Tíminn - 20.03.1981, Qupperneq 1

Tíminn - 20.03.1981, Qupperneq 1
Siöumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Með betri stjórnun við opinberar framkvæmdir: Másparal5milljarðagkr.áári — þ.e. 10% af framkvæmdafé ríkissjóðs að áliti Verkfræðingafélagsins HEI — Nefnd á vegum Verk- fræðingafélags islands, sem fal- ið var að gera tillögur um skip- an opinberra framkvæmda, er sammála um aðspara megi allt að 10% af kostnaðivið opinberar framkvæmdir með bættri stjórnun. En það þýðir miðað viðfjárlögyfirstandandiárs um 150 milljónir kr. (um 15 mill- jarða gkr.) Þessi nefnd var skipuð vegna óska Fjármálaráðuneytisins á árinu 1976, til að gera tillögur og ábendingar vegna endurskoð- unar laga frá árinu 1970 um „skipan opinberra fram- kvæmda”. Nefndin telur gild- andi lög vel samin og góð, en hinsvegar vanti talsvert á að eftir þeim sé farið. 1 fyrsta lagi telur nefndin mikiö vanta á að ákvæðum laganna um útboð sé framfylgt, svo og að því ákvæði að framkvæmdir skuli ekki hafnar fyrr en heimild er fyrir þeim í fjárlögum. Nefndin hefur það aö megin- sjónarmiði, að skilja eigi að jafnaði sem mest á milli fjög- urra aðila opinberra fram- kvæmda, þ.e. milli eiganda, hönnuðar, eftirlits og verkfram- kvæmda. Varðandi opinberar framkvæmdir til þessa, hafi hinsvegar sami aðilinn oft séð um alla þessa þætti — þ.e. ein- hver rikisstofnun — og þar með veriö undir eigin eftirliti og dómarar um eigið ágæti. Nefndin telur þarfaskilgrein- inguna mikilvægasta. Þ.e. að skilgreint sé, áður en undirbún- ingur og framkvæmdir hefjast, hverjar þarfirnar séu, til þess sitja ekki að lokum uppi með ó- þarfar framkvæmdir (Krisu- vikurskóla t.d.) Hönnunin er annar mikilvægur þáttur, M.a. bendir nefndin á mikilvægi þess, að lokahönnun sé ekki-haf- in fyrr en f jallað hafi verið um byrjunarhönnun, svo og að hönnunarvinnu sé lokið áður en framkvæmdir hefjast. Þá bend- ir nefndin á hve illar ákvæöum gildandi laga um útboð hafi ver- ið framfylgt og tók sem dæmi, að aöeins um 14% af heildar ný byggingum á vegum Vegagerð- arinnar og Vita- og hafnarmála- stofnunar hafi verið boðið út, þrátt fyrir ákvæöi laga þar um. Hinsvegar bentu nefndarmenn á Hitaveitu Reykjavikur sem gott dæmi varöandi það aö nýta hagkvæmni útboöa. Fjórða mikilvæga atriðið nefndu nefnd- armenn skilamat um reynslu af viðkomandi mannvirki eftir að það er tekið i notkun. Með skila- mati safnist upp upplýsingar sem geti verið leiðbeinandi um framkvæmdir i framtiðinni. All- mikil nýntynd un íss KL — S.l. miövikudags- morgun tilkynnti sovéskt rannsóknaskip/ sem statt var u.þ.b. 75 sjómilur norð- ur af Kolbeinsey, um hafís. Var þar um ísrek að ræða, sem þakti 4 til 6 tiundu hluta hafs. Isinn var nýmyndaður. 1 frétt frá hafisrannsóknadeild veðurstofunnar segir að undan- farnar vikur hafi hafisinn milli Islands og Grænlands haldist nálægt meðallagi. Samkvæmt veðurtunglamyndum og öðrum gögnum hafi isjaðarinn verið Islandsmegin við miðlinuna, nálægt landgrunnsbrúninni út af Vestfjörðum. Undanfarna daga hafi hins vegar verið rikjandi norölæg átt og mjög kalt norður af landinu. Þetta hafi i för með sér kólnun sjávaryfirborðs og allmikla nýmyndun iss. Furöulegt mál hjá auglýsingadeild sjónvarpsins: Má aðeins sýna raf- knúna gervilimi Sjónvarpiö bannar auglýsingu á kvikmyndinni „Punktur, punktur, komma, strik” AB — All furðulegt mál er komið upp hjá aug- 'lýsingadeild sjón- varpsins, en deildin og yfirmenn stofnunar- innar hafa hafnað þvi að birta auglýsingu á kvikmyndinni „Punkt- ur, punktur, komma, strik.” Samkvæmt heimildum blaðs- íns þá telja yfirmenn sjónvarps- ins, og þá helst framkvæmda- stjóri stofnunarinnar Pétur Guðfinnsson, að viss atriði aug- lýsingarinnar brjóti i bága við velsæmisreglur sjónvarpsins. Þar eru þá helst nefnd atriði þar sem drengurinn kemur upp úr sundlauginni, og sést af löngu færi á beran botn drengsins! Hitt atriðið er særði velsæmis- kennd sjónvarpsmannanna var það að ógreinilega sést þar sem skólastjórinn heldur á gerfilim i hendinni, og er sá limur óraf- knúinn. Það er hér sérstaklega tekið fram að limurinn umdeildi er ó- rafknúinn, vegna þeirrar skop- legu staðreyndar að i leikritinu „Vandarhögg,”, sem sjónvarp- ið lét sjálft gera, þar þykir ekk- ert tiltökumál að sýna rækilega rafknúinn gerfilim. Það skal tekið fram að aug- lýsingunni hafði af framleið- endumkvikmyndarinnar, þegar verið umturnað, til þess að hún fengi samþykki, en það gekk ekki og tefst það þvi um 10 daga að hún birtist á skjánum. Þá má Framhald á bls. 19. Félagsmálaráö samþykkir tillögu um stefnumörkun á dagvistarmálum: Dagvistarþörf bama á forskólaaldri fullnægt á 10 árum Kás — Félagsmálaráð Reykja- vikur samþykkti á fundi sinum I gsrmorgun 10 ára áætlun um uppbyggingu dagvistarheimila i borginni sem miðar að þvi aö á timabilinu verður fullnægt dag- vistarþörf barna á forskólaaldri. Þetta þýðir aö á næstu 10 árum verður aö byggja dagheimili fyrir 1165 börn og leikskóla fyrir 186 bö.m, ef miðað er við að dagvist- arheimiii geti annað 66.6% allra barna á þessum aldri. ,,Ég fagna þvi að þessi merka tillaga var nú afgreidd i Félags- málaráði”, sagði Geröur Stein- þórsdóttir, formaður Félags- málaráðs, i samtali viö Timann i gær. „Meö þessari tillögu má segja aö markaður sé ákveðinn rammi. Hún sýnir hvernig hægt er að ná þessu markmiði á til- teknu árabUi miðað við ákveönar forsendur. Hins vegar eru mörg óviss atriði sem taka verður tillit til þegar áætlunin er skoöuð. T.d. er mjög erfitt að gera sér grein fyrir þvi hvernig barnafjöldi mun þó- astá þessum árum. Það hafa ver- ið gerðar tvær spár um barna- Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.