Tíminn - 20.03.1981, Side 6
6
Föstudagur 20. mars 1981.
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiöslustjóri: Siguróur Brynjólfsson. — Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurósson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Blaöa-
menn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefáns-
dóttir, Friörik Indriöason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-Tim-
inn), Heiöur Helgadóttir, Jónas Guömundsson (þingfréttir),
Jónas Guömundsson, Kristinn Hallgrimsson (borgarmál),
Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir), Ljósmynd-
ir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þor-
bjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrif-
stofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300.
Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392. — Veröilausa-
sölu 4.00. Áskriftargjald á mánuöi: kr. 70.00. — Prentun:
Blaöaprent hf.
Hiklaust í næsta áfanga
Bráðabirgðalög rikisstjórnarinnar sem sett voru
um sl. áramót miðuðu að þvi að ná mjög marktæk-
um árangri i baráttunni við verðbólguna þegar á
fyrra hluta þessa árs. Þetta skyldi gert með sér-
staklega hertri verðstöðvun, stöðvun gengissigs,
tilteknum aðgerðum i fjármálum og peningamál-
um, en ekki sist með þvi að launþegar létu eftir
hluta af visitöluhækkun kaups i marsbyrjun i
trausti þess að eftir gengi á öðrum sviðum.
Þvi þýðir ekki að neita lengur, að árangurinn er
þegar farinn að koma i ljós. Og það er enn fremur
ljóst, að árangurinn kemur ekki sist i ljós vegna
þess að allur almenningur féllst á aðgerðir rikis-
stjórnarinnar og fagnaði þeim, þrátt fyrir áróður
st jórnarandstæðinga.
Og þá er eftirleikurinn fram undan. Það er eðli-
legt að þegar verði hafist handa um þá áfanga sem
við eiga að taka eftir 1. júni næstkomandi.
Það hefur verið ljóst öllum aðiljum að meira
þurfi til að koma en aðgerðirnar i bráðabirgðalög-
unum. Framsóknarmenn óskuðu þess að aðgerð-
irnar yrðu róttækari þegar i byrjun og að bráða-
birgðalögin yrðu viðtækari en samkomulag náðist
um.
Það er algerlega augljóst, að ekki nægir að taka
fast um taumana i þrjá til fjóra mánuði, en standa
siðan frammi fyrir þvi að sömu gömlu vandamálin
spretta fram strax og spennitreyjunni er slakað af.
Þetta gæti gerst ef ekki er i tæka tið ráðist i ákvörð-
un um næstu áfanga, og sést það best á þvi ákvæði
bráðabirgðalaganna að kaupgjaldshækkanir skuli
miðast við óskerta framfærsluvisitölu það sem eftir
er ársins. Hins vegar er það aftur á móti ljóst, að
það er ekkert náttúrulögmál að allt verði að fara i
bál og brand þegar i stað er herðingarákvæðum
bráðabirgðalaganna sleppir, vegna þess einfald-
lega að með framkvæmd þeirra hefur vissulega
verið slegið á þensluna og nokkurt verðskyn al-
mennings vakið.
Mergurinn málsins er sá, að einmitt með þessu
hefur skapast viðspyrna til að halda áfram. Verði
það ekki gert er miklu verr af stað farið en heima
setið.
Nú liggur fyrir að taka ákvarðanir um grundvöll
visitöluútreikninga. Allt það mál og tengslin við
launaþróunina verður að gaumgæfa vandlega. Það
verður að hafa hagsmuni allra landsmanna, at-
vinnuvega og heimilanna i huga en ekki togstreitu-
sjónarmið. Það verður að vinna með tilliti til íengri
tima en ekki skemmri.
— Hverjum dettur það t.d. i hug, að vit sé i að al-
mennt kaupgjald hækki i landinu fyrir það eitt að
sólarlandaferðir verði dýrari?
Vonandi verður árangur bráðabirgðalaganna frá
þvi um áramótin §á, að sem allra minnst þurfi að
krukka i kaupgjaldsþróunina nú i sumar. Kaup-
gjald og verðlag eru samsnúin svo þétt að þar togar
hver þáttur i annan, og þvi ætti sú hjöðnun, sem nú
þegar hefur verið knúin fram, að valda þvi að
stökkin verði i reynd minni.
En stjórnvöld mega ekki hika við að taka fast i
taumana ef sýnt þykir að verðbólgan stefni upp
fyrir það námark sem rikisstjórnin hefur sett henni
á þessu ári.
Velgengni þjóðarinnar og stuðningur við rikis-
stjórnina er undir þessu komin. JS
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Thatcher bjargaði
fjármálaráðherranum
Fj árlagafrumvarpió olli miklum vonbrigöum
Geoffrey Howe fjármálaráöherra og kona hans. Howe heldur á
hinni eldgömlu, frægu fjárlagafrumvarpstösku.
MARGARET Thatcher hefur
á ný sýnt, að hún er strangur
húsbóndi og lætur ekki undan,
þótt á móti blási.
Þetta gerðist i sambandi við
fjárlagafrumvarpið fyrir
1981—1982, sem Geoffrey Howe
fjármálaráðherra lagði fyrir
þingiö i byrjun siðastliðinnar
viku.
Fjárlagafrumvarpið fékk nær
enga umfjölluni' rikisstjórninni,
áður en þingið fékk það til með-
ferðar. Þetta vakti óánægju
margra ráðherra, sem fannst
sér misboöiö meö þessu. Efni
frumvarpsins olli þó enn meiri
óánægju þeirra.
1 frumvarpinu er lagt til aö
bæta við nýjum álögum, sem
nema um 3600 milljónum
sterlingspunda. Skattar þeir,
sem fyrir voru, eru nær ekkert
lækkaðir, eins og lofað var af
Ihaldsflokknum fyrir kosn-
ingarnar 1979.
Þvert á móti er tekjuskatt-
urinn raunverulega hækkaöur
um 1900 milljón sterlingspund.
Þetta er gert á þann hátt, að
skattvisitalan er ákveðin miklu
lægri en vera ætti, ef miðað væri
við framfærslukostnað.
Tekjuskattshækkunin hefur
þó ekkimælzt verst fyrir, heldur
hitt, að lagt er til að hækka
álögur á bensin, oliu, áfengi,
tóbak og bila. Hækkunin á
bensini er mjög veruleg.
En þótt skattarnir séu þannig
hækkaðir verulega, eru barna-
bætur, atvinnuleysisstyrkir og
ellilaun nær ekkert hækkuð
þrátt fyriraukna dýrtið. Fram-
lög til atvinnuaukningar eru
heldur ekki aukin, þrátt fyrir
vaxandi atvinnuleysi.
Skattahækkunin fer nær öll til
að draga úr skuldasöfnun hjá
rikinu. Liklegt þykir, að hún
verði 13.500 milljónir sterlings-
pund á yfirstandandi fjárlaga-
ári (1980—1981), en i fjárlaga-
frumvarpinu fyrir 1981—1982 er
hún áætluð 10.500 milljónir
sterlingspunda.
FYRSTU viðbrögö flokks-
bræðra Thatdiers voru aö beina
spjótum sinum gegn fjármála-
ráðherranum. Margir kröfðust
afsagnar hans.
Thatcher mætti þessum
kröfum skjótt og sagði frum-
varpið samið i samráði við sig
og þvi ætti að beina gagnrýninni
gegn sér.
Hún sagðist jafnframt ekki
efast um að stefnan, sem fjár-
lagafrumvarpið byggði á, væri
rétt. Allt annaö myndi leiða til
vaxandi verðbólgu, óhóflegrar
seðlaútgáfu og aukinna vand-
ræða.
Hún skildi vel, að fjárlaga-
frumvarpið væri beiskt meðal,
en það væri eina lækningalyfiö,
sem gæfi von um bata.
Þessi einbeitta afstaða
Thatchers varð þess valdandi,
að óánægðu ráðherrarnir lýstu
fylgisinu við frumvarpiðog nær
allir þingmenn Ihaldsflokksins
sömuleiðis.Við fyrstu umræðu i
þinginu var frumvarpið sam-
þykkt með 325 atkvæðum gegn
270.
Það var aðeins i sambandi við
hækkunina á bensinskattinum,
sem þessi eining brast. Nokkrir
þingmenn Ihaldsflokksins
greiddu atkvæði á móti hækk-
unum, en aðrir sátu hjá. Hækk-
unin var samþykkt með 295 at-
kvæðum gegn 281.
Einn þingmaöur, Christopher
Brocklebank Fowler, gekk
hreint til verks og sagði sig úr
flokknum. Hann hefur nú sam-
einast þeim þingmönnum, sem
gengið hafa úr Verkamanna-
flokknum, og hyggjast stofna
sósialdemókratiskan flokk.
ÞÓTT Thatcher hafi meö ein-
beitni sinni kveðið niður upp-
reisnartilraunir i Ihalds-
flokknum aö þessu sinni, þykir
margt benda til þess, aö henni
takist það miður framvegis.
Atkvæðagreiðslan um hækkun
bensinskattsins bendir til þess.
Margir spá því, að fjárlaga-
frumvarpið reynist ekki full-
nægjandi og nauðsynlegt kunni
þvi að reynast að setja auka-
fjárlög á komandi hausti.
Fari svo telja fréttaskýr-
endur, að Howe fjármálaráð-
herra verði valtur i sessi og
jafnvel Thatcher sjálf.
I byrjun máimánaðar verða
liðin tvö ár siðan Thatcher tók
við stjórnarforustunni og hóf að
framkvæma leiftursóknar-
stefnu sina. Flest hefur snúiztá
verri veg siðan.
Verðbólgan hefur að visu
lækkað siðustu mánuði, en er
enn 13% eða nokkru hærri en
hún var, þegar Thatcher kom til
valda. Fyrst eftir valdatöku
hennar jókst verðbólgan mikið.
Atvinnuleysið hefur stór-
aukizt. Um 10% af vinnufæru
fólki er atvinnulaust.
Þjóðarframleiðslan hefur
dregizt saman.
Atvinnufyrirtækjum, sem
gefast upp og hætta rekstri,
fjölgar stöðugt. Fjárfesting i
iðnaði hefur dregizt saman.
Thatcher trúir þvi, að til þess
að ástandið geti batnað þurfi
það enn að versna. Andstæð-
ingar hennar halda þvi hins
vegar fram, að enginn bati geti
hlotizt af stefnu hennar, heldur
haldi ástandið áfram að versna
að óbreyttri stefnu.
Lagist ástandið hins vegar
ekki, mun þeirri skoöun vaxa
fylgi, að Thatcher eigi aö hætta
og nýr maður að taka við
stjórnarforustunni.
Þaö kann að vera merki um,
að Thatcher sé eitthvað að
snúast hugur, að vextir voru
nýlega lækkaðir úr 14% i 12%.
Thatcher að verja fjárlagafrumvarpiö.