Tíminn - 20.03.1981, Qupperneq 9

Tíminn - 20.03.1981, Qupperneq 9
13 Föstudagur 20. mars 1981. Verkalýðsfélag Borgamess 50 ára Sunnudaginn 22. mars n.k. eru liðin 50 ár frá þvi, að 39 verka- menn i Borgarnesi boðuðu til fundar og stofnuðu Verkalýðsfé- lag Borgarness. Guðjón Bene- diktsson úr Reykjavik var feng- inn til að aðstoða við stofnun fé- lagsins. t fyrstu stjóm félagsins áttu sæti: formaður: Daniel Eyjólfs- son, ritari, Guömundur Sig- urðsson, gjakdkeri: Karl L. Björnsson, fjármálaritari: Friðrik Þorvaldsson, varafor- maður: Einar F. Jónsson. A öðrum fundi félagsins var samþykktur kauptaxti fyrir það og undirskrifuðu vinnuveitend- ur hann þegar i staö að tveimur undanskildum, en þeir voru sið- ar knúnir til þess. Félagið hefur oft náð góðum árangri i kjara- málum. Verkalýðsfélag Borg- arness gekk þegar i Alþýðusam- band Islands. — minnst meö fagnaöi, sýningu og afmælisriti A fyrstu árum félagsins voru atvinnuúrbætur oft á dagskrá og margar raunhæfar ályktanir i atvinnumálum samþykktar. Fram til ársins 1976 náði fé- lagið aðeins til Borgarness, en þá var félagssvæðið stækkað og nær nú yfir Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu (norðan Skarðs- heiðar). Félagsmenn eru um 500. Hin siðari ár hefur verið leit- ast við að gera starfsemina fjöl- breyttari. Haldin hafa verið 10 fræðslunámskeið i samvinnu við M.F.A. og hefur fræöslustarfið eflt félagið mikið. Siðan 1976 hefur komið út fréttabréf á vegum félagsins, sem nefnt er Félagsfréttir. Vinnan, blað ASl er keypt og sent á hver heimili félags- manna. Arlega eru famar skemmti- ferðir á vegum félagsins og njóta mikilla vinsælda. Félagiö á eitt orlofshús i Olf- ugur sjúkrasjóður sem styrkir usborgum. Starfræktur er öfl- félagsmenn i veikindum og Snorrabúð — Félagsheimili verkalýðsfélaganna I Borgarnesi. gegnir fjölþættara hlutverki. Félagið á, ásamt 3 öðrum stéttarfélögum, félagsheimilið Snorrabúð og þar fara fram fundir og þar er skrifstofa fé- lagsins. Stjórn félagsins árið 1981 er þannig skipuð: formaður: Jón Agnar Eggertsson, ritari: Karl Á. Ólafsson, gjaldkeri: Agnar Ólafsson, fjármálaritari: Berg- hildur Reynisdóttir, varafor- maður: Baldur Jónsson, með- stjórnendur: Sigrún D. Elias- dóttir og Ólöf Svava Halldórs- dóttie. Afmælisins verður minnst meö fagnaði á Hótel Borgarnes laugardaginn 21. mars og hefst samkoman kl. 19.00. A sunnu- daginn 22. mars verður opnuð i Snorrabúð sýning á myndum og munum sem tengjast verkafólki i Borgarfirði. 1 undirbúningi er vandað af- mælisri't f tilefni af 50 ára af- mælisins. Lögberg-Heimskringla: Beint í pósti" til áskrifenda KL — „Stjórnarnefnd L.H. hefur ákveðið að hver og einn á- skrifandi blaðsins á islandi fái það framvegis með pósti beint frá ritstjórnarskrifstofunni í Winnipeg og án milligöngu í New York, Keflavik og Reykja- vík,” segir i forsiöufrétt Lög- bergs Heimskringlu 16. jan. sl., en miklir erfiðleikar hafa verið á þvf að koma blaðinu til áskrif- enda á tslandi að undanförnu. 1 ritstjórnargrein blaðsins segir m.a.: Lögberg-Heimskringla hefur boristmeð slæmum skilum tilá- skrifenda á Islandi eða þá alls ekki komist til þeirra. Svo að tekið sé dæmi, þá voru blöð, sem gefin voru út i september, októ- ber og növember marga mánuði á leiðinni til Islands. Hafði þeim þó verið komið skilvislega i flugpóst i hverri viku og send rakleiðis á afgreiðslu Flugleiða i Chicago eða New York, en þar hafa logn og hafvillur tekið við. Hér er naumast við einstakl- inga að sakast heldur flókið kerfi þar sem margar útréttar hendur verða hver fyrir annarri svo að ekki verður neitt úr framkvæmdum. Eflaust ber að viröa góðan vilja þótt aö litlu haldi komi. Það kann að hafa borið viö að L.H. hafi stöku sirmum komist um borö hjá Flugleiðum, en þá hafa guð og lukkan ráðið áfangastað. Óstað- festar fregnir herma að tals- verður hluti af Islandsupplagi L.H. hafi borist alla leið til Hamborgarog farið lokaspölinn með járnbrautarlest. Slitur af blaðinu fannst i Vinarborg rétt fyrir jól, og þau blöö sem ætluð voru áskrifendum á Akureyri eru sögð hafa lent í ritskoðun hjá franska herforingjaráðinu i París. En svo sleppt sé öllu gamni, þá eru þessar hafvillur blaösins annálshæfir hrakn- ingar og satt best að segja mikil raunasaga. Iðnfræðingafélag íslands: Lögvemdun á starfs- heiti brýnasta hags- munamáliö Þann 7. mars siðastliðinn var haldinn aðalfundur Iðnfræðinga- félags islands að Hótel Esju. Félagið hefur starfað af mikium krafti síöan 15. mars 1980 og eru félagar nú tæplega sjötíu talsins. Menntun félagsmanna er sveins- próf og tveggja og hálfs árs nám við Tækniskóla islands i raf- magni. vélum og byggingum eða sambærilegum námsbrautum frá öðrum skóium. Benda má mönn- um með slika menntun á, að skrifa til félagsins að Síðumúla 37 hafi þeir áhuga á að gerast félag- ar. Markmið félagsins eru meöal annars að: Gæta hagsmuna félagsmanna, lögvernda starfsheiti, vinna að kjaramálum, kynna iönfræðinga fyrir atvinnurekendum og al- menningi, bæta samvinnu tækni- manna. Á aðalfundinum voru lagðar fram skýrslur og greinargerðir yfir árangur og starfsemi liðins árs og auk þess lagðir fram endurskoðaðir reikningar félags- ins. Lögverndun á starfsheiti hefur þokast i rétta átt en eftir þvi er beðið með nokkurri óþreyju enda er þetta eitt brýnasta hags- munamál félagsmanna. Akveðið var að stofna skuli kjaradeild inn- an félagsins á þessu ári. Einnig var kosinn nýr formaöur og tveir aðrir nýir menn i stjórn. Stjór félagsins er nú þannig skipuð: Formaður, íigurður örn Gislason rafmagnsiðnfræðingur: varaformaöur, Eyjólfur Baldurs- son vélaiðnfræðingur: ritari, Benedikt Egilsson byggingaiðn- fræðingur: gjaldkeri, Eyjólfur Gislason rafmagnsiðnfræðingur: meðstjórnandi, Garðar Sigurðs- son vélaiðnfræðingur. Gefst ferðum KL — 1 maf hefjast vikulegar bif- reiðaflutningaferðir til megin- lands Evrópu, sem gefa félags- mönnum Félags islenskra bif- reiðaeigenda kost á ódýrum flutningi á bifreiðum þeirra, en þeir sjálfir njóta hagstæðra flug- fargjalda. Samvinna um ferðir þessar er milli FtB, Ferðaskrif- stofunnar útsýn og Hafskips hf. Ferðatilhögun er sú, aö menn aka bilum sinum um borð i flutningaskipiö, sem er af svo- kallaðri ro-ro gerð, i Reykjavik. Skipiðsiglir siöan til Antwerpen i Belgiu. Viku siðar sest eigandinn og hans fólk i makindum i flugvél Flugleiða og flýgur hvort heldur hentar honum betur, til Luxem- borgar eða Amsterdam, en þaöan er farið með járnbrautarlest til Féldgum í FIB kostur á ódýrum tíl meginiandsins Antwerpen og tekur sú fefð um 3 klst. Ferðaskrifstofan Útsýn sér um alla þjónustu varðandi flutning- ana og einu plöggin, sem far- þegar verða sjálfir að sjá um að hafa handbær, eru alþjóðlegt öku- ski'rteini og svokallað ,,Green Card”, tryggingavottorð um að bifreiðin sé rétt tryggð til sliks ferðalags. A skrifstofuFlB geta félagsmenn fengið skuldaviðurkenningar, „Letter of Credit”, sem þeir geta notað erlendis til greiðslu á við- gerðum, auk slysa- og lögfræðiað- stoðar, sem þörf kann að vera á vegna tjóna. Reikningamir eru siðan innheimtir hér heima. Einnig geta félagsmenn fengiö tjaldbúðavegabréf, en þau veita oft afslátt á tjaldstæðum og eru jafnframt trygging gagnvart þriðja aðila ef skemmdir verða. 1 sumum tilfellum fá aðeins þeir, er framvisa tjaldbúðavegabréfi aðgang að tjaldstæöum. Þá hefur FIB á boðstðlum mikið úrval af vegakortum og ýmsum handbók- um um tjaldstæöi, ódýr gisti- heimili o.fl., sem nauösynlegt er að hafa á ferðalögum erlendis. 1 fyrra hófu þessir sömu aðilar samvinnu um bifreiðaflutninga til meginlandsins. Þá notfærðu 400 farþegar á 96 bifreiðum sér þessa þjónustu. Ro-ro skipin eru sérlega hentug til þessara flutninga. I fyrra uröu aðeins skemmdir á 1-2 bílum I flutningunum og voru þær litilvægar, enda fást mun ódýrari tryggingar á flutningum á bif- reiöum með ro-ro skipum en venjulegum fraktskipum. Nýja myntin sérslegin Byrjað að selja sérunnin sýnishorn af nýju myntinni i dag i dag hefst sala á sérunnum sýnishornum af hinni nýju mynt, sem kom i umferð við gjald- miðilsbreytinguna nú um ára- mótin. Má segja, að nýju mynt- inni sé þannig fagnað á svipaðan hátt og sú gamia var kvödd á síð- asta ári, en þá voru gefin út 15.000 sérslegin sett af þeirri mynt, sem látin hafði verið i umferð á árun- um 1946-1980, og seldust þau upp á skömmum tfma. 1 tilefni af þessum timamótum islenskrar myntútgáfu er fólki nú einnig gefinn kostur á að eignast nýju myntina sérslegna i smekk- legum gjafaumbúðum. Er myntin sérstaklega unnin, þannig að sléttir fletir hennar eru gljáfægð- ir, en mött áferð er á myndum og letri. Myntin ber ártalið 1981 — fyrsta útgáfuár hennar — og skal sérstök athygli vakin á þvi að hún verður ekki gefin aftur út sérsleg- in, nema breyting verði gerð á sjálfri myntútgáfunni. Upplag nýju myntarinnar er eins og i fyrra takmarkað við 15.000 sett, en þau eru framleidd hjá Royal Mint, London, þar sem islenska myntin hefur verið sleg- insiðustu fjóra áratugi. Söluverö hefur verið ákveðiö fyrst um sinn kr. 215.00 á sett, og veröur salan takmörkuð við fimm sett til hvers kaupanda fyrstu tvær vikurnar. — Myntin, sem seld verður bæði á innlendum og erlendum maikaöi, verður fáanleg hér á landi i af- greiðslu Seölabankans, Hafnar- sfræti 10, hjá bönkum og spari- sjóðum, svo og hjá helstu mynt- sölum I Reykjavik.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.