Tíminn - 24.03.1981, Side 7

Tíminn - 24.03.1981, Side 7
Þriðjudagur 24. mars 1981 7 „Frelsi til lyga” „Einn af forystumönnum flokksins sagöi..........”, „Samkvæmt áreiðanlegum heimildum...„Altalað er nú...”, o.s.frv., o.s.frv. Hver hefur ekki lesið eða heyrt fréttir fjölmiðla sem hefjast þannig? Fréttir af hveriu sem er, allt frá rófnauppskeru til morðmála. Þó held ég aö þessi byrjun sé oftast notuð þegar rætt er um stjórnmál og frétta- maðurinn þykist vera ópólitisk- ur, „frjáls og óháður,” eða þá með gráðu i rannsóknarblaða- mennsku. Þannig byrjanir frétta gefa blaða- og fréttamönnum (hér eftir kallaðir blaðamenn) óskorað valdtil að fullyrða hvað sem er, um hvaða mál sem er og ekki er hægt að biðja um heimild fyrir viðkomandi frétt, þvi þá heitir það að ritfrelsið sé skert. Er ekki rétt fyrir okkur að dusta rykið af 72. grein stjórnarskrárinnar og sjá hvað þar stendur? „,Hver maður á rétt á að láta i ljós hugsanir sinar á prenti, þó verður hann að ábvrgjast þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar tálmanir fyrir prentfrelsi má aldrei i lög leiða.” (Undirstr. höfundar). Það var lóðið, viðkomandi verður að ábyrgjast það sem hann skrifar. Samt sem áður geta óvandaðir blaðmenn full- yrt hvað sem er, ef þeir hefja frétt á áðurnefndum orðum. Jafnvel logið visvitandi, eins og virðist vera i Dagblaösheim- ildamanna-málinu á dögunum. Þar virðist málinu lokið i bili., en eftir sitja saklausir aðilar undir þeim grun að hafa rofið þagnareið. Virtist blaðamönn- um sviða það að Hæstiréttur skyldi ekki fjalla um málið og gefa þeim fullt frelsi til áfram- haldandi lyga. Nú má enginn taka þessi orð min þannig að allir blaðamenn séu undir sömu sökina seldir. Flestir eru þeir vandaöir i f-éttaflutningi slpum. Samt virðist bera mest á hinum óvönduðu og fólk virðist taka fréttir þeirra sem heilagan sannleik. A hinum Norðurlönd- unum eru þannig blaðamenn yfirleitt i þjónustu sorprita og speki þeirra tekið með viðeigandi hætti. Þeim virðist nokkuð sama um aö frægð þeirra sé að endemum. Ég vona sannarlega að blaðamenn kunni að fara eftir stjórnarskránni i ritum sinum og að slefberarnir fái að njóta sin þar sem þeim ber eða m.ö.o. þar sem enginn tekur mark á þeim. Halldór Halldórsson Halldór Halldórsson Magnús Guðmundsson, Patreksfirði: Á leið á miðin, 14. mars 1981 30 sjómílur NV. frá Blakksnesi - ss***.^ 1 febrúar varð hörmulegt sjó- slys þegar Heimaey rak á land i ofsaveðri og tveir ungir sjó- menn fórust. Islendingar hafa orðið að þola margar fórnir við að sækja gull i greipar Ægis, og gera ennþá. Þetta sjóslys gefur þó sér- staklega sjómönnum, eiginkon- um, mæðrum og ættingjum þeirra og raunar allri þjóðinni, tilefni til umhugsunar, enda slegiðmargan óhug. Aðafþakka aðstoð til handa mönnum sem eru i lifsháska getur enginn leyft sér að gera, eins og i þessu tífifelli átti sér stað gagnvart varöskipi, sem var i Vest- mannaeyjum. Varðskip getur heldur ekki tek iðvið AFNEITUN UM AÐSTOÐ TIL GREINA, þar sem það varðarvið landslög og er refsi- vert athæfi að fara ekki á vett- vang, þótt neitað sé um aðstoð þegar menn eru i lifsháska. Færi ég hér rök að þvi. 1 lög- um frá 4. ágúst 1819 stendur: Bæði eftir hlutarins eðli og grundvallarreglum laga Vorra verður að álita það almenna borgaraskyldu hvers þess, er býðst færi á að bjarga manni, sem er i lifsháska að beita til þeim ráðum er hann fær til náð, og sérstaklega skal það þvi vera skyldahvers þess sem sér mann vera i llfsháska, að gera tafar- laust sjálfur eða með tilstyrk annarra, sem hann kallar til hjálpar, allt það, er UNNT er eftir atvikum til þess að bjarga manninum. Ennfremur segir i landslög- um, kaflanum REFSILÖG, lög nr. 19. 1940 12. febr. 221 gr., ótvi- rætt, að sá eða þeir eru sekir sem láta fyrirberast að fara til hjálpar mönnum, sem eru i lifs- háska, EN ÞAR SEGIR: Láti maður farast fyrir aö koma manni tii hjáipar, sem staddur er i Iffsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigöi sjáifs sin eða ann- arra i háska, þá varðar það varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum. Það vita allir að löggjafinn flaggar i' heila stöng og hvetur landsmenn til þess að halda landslög, ekki sist þegar hann setur bráöabirgðalög til styrkt- ar ráðþrota stjórnvöldum. En mér sýnist að löggjafinn f laggi I HALFA STÖNG EF SJÓMENN ERU STADDIR í LIFS- HASKA. Það er aumt til þess að vita, að varðskipin okkar séu þræl- bundin við bryggju verstu og hættulegustu vetrarmánuðina 1 stað þess að fylgjast meö fiski- skipum landsmanna. Þaö er heldur mikill baggi á lands- mönnum, ef þessi blessuð varð- skip eiga eingöngu að vera til þess að liggja inni i vogum og vikum á sumrin öllum til skammar og þrælbundin við bryggju á vetrum. Ég vil minna á, að Bretar sýna sínum sjómönnum mikla umhyggju og höfðu hér tvö skip til aðstoöar sjómönnum sinum m.s. Ossino og m.s. Miröndu, sem Islendingar nutu góðs af. þá. Eða hvar er „The Missions toSeamen” á Islandi? eins og er alls staðar erlendis. Það á ekkert skip að þurfa að biðja varðskip um aðstoð. Ef það veit um skip i háska á það þegar I stað AÐ FARA A VETTVANG. Þaðer hneykslf að rikið skuli heimta greiðslu fyrir veitta að- stoð, sem varðskip veitir sjó- mönnum. Ég myndi skammast min fyrir að vera á föstum laun- um hjá þér sem lest þetta, og heimta svo greiðslu af þér fyrir að veita þér aðstoð I vandræðum þinum. Eru Islenskir sjómenn á sama báti og portúgalskir sjómenn voru fyrir allnokkru??? Portú- galar gerðu Ut fiskiskip til veiöa við Grænland sem islenskir sjó- menn muna. Þeir sendu einn mann til veiða frá móðurskipi á svokölluðum „dorium” og þaö kom fyrir að islensk fiskiskip á þessum slóðum fundu mann- lausa ,,doriu”á reki og skiluöu henni til Portúgalanna, sem urðu mjög ánægðir á fá „dori- una” en þeir spurðu ekki eftir manninum, sem var i henni. Magnús Guömundsson, Pat- reksfirði (rétt mun vera Pat- reksfirði, ekki Bakkaf.) Tímamót í íslenskri björgunarsögu 1 dag 24. mars eru liðin fimmtiu ár frá þvi að fluglinutæki voru fyrst notuð við björgun skipbrots- manna úr sjávarháska við Island. Siðan þá hafa fluglinutæki komið við sögu flestra strandbjargana hérlendis. Það var nýstofnuð deild innan Slysavarnafélags Islands, Þor- björn i Grindavik, sem fyrst notaði fluglinutæki við björgun. Deildin var stofnuð 2. nóvember árið 1930, en þá nokkru áður hafði Slysavarnafélagið keypt fluglinu- tæki og komið þeim fyrir i geymslu hjá Einari Einarssyni i Krosshúsum i Grindavik, en hann var einn af frumkvöðlum slysa- vamastarfsins þar og fyrsti for- maöur deildarinnar. Hafl)i Jón E. Bergsveinsson fyrsti erindreki Slysavarnafélags íslands komið til Grindavíkur og kennt heima- mönnum að fara með tæki þess, en þau voru þá tiltölulega ný af nálinni, og notkun þeirra við bjarganir ekki orðin almenn. Aðfaranótt 24. mars 1931, rösk- um fimm mánuðum eftir að Slysavarnadeildin Þorbjörn var stofnuð, varð þess vart aö togari# var strandaður undan bænum Hrauniaustan við Grindavik. Tók skipið sem var Cap Fagnet frá Fécamp i Frakklandi niðri all- langt frá landi, en barst siöan yfir skerjagarð og festist skammt frá ströndinni. Þeyttu skipverjar eimpipur skipsins og gáfu þannig til kynna að þeir væru i nauðum staddir. Frá Hrauni var maður strax sendur til Grindavikur og björg- unarsveitin kölluð Ut. Voru björg- unartækin sett á bifreið og haldiö áleiðis aö Hrauni, en ekki var bil- fært alla leiðina á strandstaö og varð þvi að bera tækin siðasta spölinn. A meöan beðið var björg- unar freistuðu skipverjar á Cap Fagnet þess að láta linu reka i land, en þær tilraunir mistókust og þóttiskipverjum þvi tvisynt að takastmættiað koma á sambandi milli skips og lands. Um hið fyrsta fluglinuskot til björgunar úr strönduðu skip, seg- ir svo I 1. bindi bókaflokksins „Þrautgóöir á raunastund”, björgunar- og sjóslysasögu Islands. „Einar og Guðmundur verða sammála um miðunina. Allt er tilbUið fyrir skotiö. Guömundur Erlendsson tekur i gikkinn. Hamarinn smellur fram og sprengir púöurskotið I byssunni. A sama andartaki kveikir það i eldflauginni og hUn þýtur af stað með háværu hvisshljóði. 1 fyrsta skipti hefur verið skotið Ur li'nu- byssu til björgunar á Islandi. Mennirnir fylgjast spenntir með eldflauginni, þar sem hUn klýfur loftið. Skotiö heppnast prýðilega. Linan kemur yfir skip- ið, rétt fyrir framan stjómpall- inn. Það er auðvelt fyrir skips- menn að ná tilhennar. Þeirverða reyndar að sæta lagi að ná henni, en skjótt er hUn i þeirra höndum. Samband er fengið viö land.” Björgun skipbrotsmannanna 38 af Cap Fagnet gekk að óskum, en þó mátti ekki tæpara standa, þar sem aðeins nokkrum klukku- stundum eftir björgunina hafði skipið brotnað I spón á strand- staðnum. Þessi björgun færði mönnum heim sannindi þess hve mikilvæg- ur björgunarbUnaður fluglinu- tækin voru og flýtti fyrir Ut- breiðsluþeirra. Leið ekki á löngu uns sliktæki voru komin til allra deilda Slysavarnafélags íslands umhverfis landiö. HUn er ekki löng sjávargatan frá Reykjanestá austur á Hrauns- fjörur, en þar hafa mörg skipin strandað og oftast i stormi og for- áttu brimi. Það hefur þvi reynt á dugnað, karlmennsku og þor fél- aganna Ur „Þorbirni” og engin ein björgunarsveit Slysavama-- félags tslands hefur bjargað jafn mörgum mönnum Ur helgreipum Ægis af strönduðum skipum með fluglinutækjum, eins og eftirfar- andi skrá sýnir: 24. mars 1931 Cap Fagnet, franskur togari 38 mönnum bjargað. 9. april 1933 SkUli fógeti, isl. togari 24 mönnum bjargað. 6. sept. 1936Trocadero, enskurlinu- veiðari 14 mönnum bjargað. 6. jan. 1947 Louis, enskur togari 15 mönnum bjargað. 27. febr. 1950 Clam, enskt oliuskip 23 mönnum bjargaö. 14. april 1950 Preston North End, enskur togari 6 mönn- um bjargað. 31. mars 1955 Jón Baldvinsson, isl. togari 42 mönn- um bjargað. 7. febr. 1962 Auð- björg, isl. fiskiskip. 6 mönnum bjargað. 20. des. 1971 Arnfirö- ingur II, ísl. fiskiskip 11 mönnum bjargaö. 22. febr. 1973 Gjafar, isl. fiskiskip 12 mönnum bjargað. 4. ág. 1974 Hópsnes, isl. fiskiskip 2 mönnum bjargað. 15. sept. 1977 Pétursey, isl. fiskiskip 1 manni bjargaö. Samtals eru þetta 194 islenskir og erlendir sjómenn sem björg- unarsveitinni Þorbirni hefur auðnastað bjarga á giftudrjúgum starfsferli. Ekki er það ætlunin að tiunda og greina frá hverjum einstökum atburði, sem hver á sina sérstæðu sögu. Þó er skylt að geta hinnar stórfenglegu björgunar áhafnar togarans Skúla fógeta. Aöstæður á strandstaðnum undan Staðar- hverfi voru hinar erfiðustu, for- áttu brim og sat togarinn fastur á skeri langt frá landi. Gekk það kraftaverki næst að skyttan skyldi hæfa skipið af svo löngu færi og að takast skyldi að ná þeim mönnum, sem enn voru lif- andi um borð i land. Viö björgun mannanna 6, sem enn voru á flaki breska togarans Preston North End, sem strandaði á Geirfuglaskeri, lögðu björgunarsveitarmennsig i mikla lifshættu, en þeir höfðu farið út aðtogaranum á vélbátnum Fróða og björguðu þeim um borð i' hann. Þegar togarinn Jón Baldvinsson strandaöi viö Reykjanes var á- höfn hans allri, 42 mönnum, bjargað og hefur aldrei jafn mörgum mönnum verið bjargaö af strönduðu islensku skipi. Ötaldir eru þeir Islenskir og erlendir sjómenn, sem eiga þess- um björgunarbUnaöi, fluglinu- tækjunum, lif sitt aö launa. NU siðustu vikur og mánuði hafa þessi björgunartæki komið að giftudrjúgum notum viö björgun skipbrotsmanna er vélskipin Katrin, Heimaey, og Sigurbára fra Vestmannaeyjum, strönduöu. Ahafnir þessara skipa töldu 28 menn og var 21 þeirra bjargaö með fluglinutækjum SVFÍ. Við stofnun Slysavarnafélags Islands og útvegun þessara björgunartækja uröu timamót i islenskri björgunarsögu, en eins Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.