Tíminn - 25.03.1981, Qupperneq 11
MiOvikudagur 25. mars 1981
15
IÞROTTIR
Það vantar ekki að tilburðir Jóhannesar Stefánssonar séu glæsilegir er hann svifur inn f teiginn hjá
Frömurum i jafnteflisleiknum I gærkvöldi.
Tfmamynd Hóbert
Kvennalandslíðið utan
Leikur við Noreg í undankeppni HM og vináttuleik við Dani
íslenska kvennalandsliðið hélt i
gær áleiðis til Noregs með við-
komu i Danmörku.
1 kvöld mun kvennalandsliðið
leika vináttuleik við Dani og
halda siðan til Noregs þar sem al-
varan tekur við.
Leikirnir við Noreg eru i for-
keppni HM og takist stúlkunum
aðsigra komast þær i aðalkeppn-
ina sem haldin verður i sumar.
Landsliðshópurinn var fyrir
stuttu valinn og skipa hann eftir-
taldar stúlkur:
Gyða úlfarsdóttir FH
Katrin Danivalsdóttir FH
Kristjana Aradóttir FH
Margrét Theodórsdóttir FH
Kolbrún Jóhannsdóttir Fram
Guðriður Guðjónsdóttir Fram
Oddný Sigsteinsdóttir Fram
Jóhanna Halldórsdóttir Fram
Sigrún Blomsterberg Fram
Jóhanna Pálsdóttir Val
Erna Lúðviksdóttir Val
Sigrún Bergmundsdóttir Val
Eiríka Asgrimsdóttir Vikingi
Ingunn Bernodusdóttir Vikingi
Olga Garðarsdóttir KR
Erla Rafnsdóttir 1R
Landsliðsstúlkurnar hafa að
mestu þurft að afla fjár til ferðar-
innar sjalfar með ýmsum hætti
t.d. happdrætti.
tslenska kvennalandsliðið hef-
ur ekki leikiðlandsleikisiðan 1977
ef undan eru skildir landsleikir
við Færeyinga.
Leikir islenska liðsins við Nor-
egverðaá föstudaginn og laugar-
daginn.
Þjálfari islenska liðsins er Sig-
urbergur Sigsteinsson og farar-
stjóri er Þórður „kaupmaður”
Sigurðsson.
röp—.
ÍÞROTTIR
Atli lór of
seint í gang
og KR-ingar náðu jafntefli 19:19 á móti Fram
Gárungarnir eru nú farnir að
kalla KR jafnteflisliðið, og er það
ekkert út i bláinn þvi að i gær-
kvöldi tókst þeim að ná jöfnu
gegn Fram 19:19 i fallkeppninni,
staðan i hálfleik var 8:7 fyrir KR.
KR-ingar hafa leikið þrjá leiki i
keppninni og gert jafntefli i þeim
öllum, tvisvar gegn Fram og sið-
an gegn Haukum.
Og fari svo að leikur KR og
Hauka sem verður á föstudaginn
endi einnig með jafntefli þá
standa öll félögin með jafnmörg
stig.
Fram hefur nú lokiö sinum
leikjum og eru þeir með fjögur
stig en KR og Haukar hafa þrjú
stig hvort félag og er innbyrðis
leikur þeirra siðasti leikurinn i
hinni annars bráðskemmtilegu
fallkeppni.
Ef við snúum okkur að leiknum
sem i raun var ekki ýkja mikið
fyrir augað þ.e.a.s. ef spennan er
undanskilin þá skoruðu Framar-
ar fyrsta markið, en KR-ingum
tókst fljótt að jafna.
Þeir tóku siðan forystuna, jafn-
ræði fyrri hlutann en um miðjan
hálfleikinn komust þeir þremur
mörkum yfir, en Framarar gáf-
ust aldrei upp og minnkuðu mun-
inn i eitt mark fyrir hálfleik.
Það var siðan fljótlega i upp-
hafi siðari hálfleiks sem Framar-
ar komust þremur mörkum yfir
aðallega fyrir einstaklingsfram-
tak Atla Hilmarssonar.
En Atli skoraði þá hvert markið
á fætur öðru þrátt fyrir að vera i
strangri gæslu.
Nú KR-ingar voru eins og
Framarar i fyrri hálfleik — gáf-
ust ekki upp og þeim tókst að
jafna en aldrei komust þeir yfir,
eitt til tvö mörk skildu félögin að
mestan hluta siðari hálfleiks.
Er um 3 min voru til leiksloka
var staðan 19:17 fyrir Fram.
Haukur Geirmundsson komst inn
úr horninu og minnkaði muninn i
eittmark 19:18 og gamla kempan
Haukur Ottesen braust i gegn um
vörn Fram er min. var eftir og
skoraði.
Fram tókst ekki að skora á
lokasekúndunum, enda reyndu
þeir frekar að halda boltanum og
voru lika einum færri, Hannes
Leifsson rekinn út af i tvær min
rétt áður.
Flest mörk Fram gerði Atli
Hilmarsson 6 öll i seinni hálfleik,
en Alfreð Gislason gerði 6 mörk
fyrir KR 3 úr vitum.
röp-.
Dregiö í bikarnum
1 gær var dregið um það hvaða
félög eigi að leika saman i 8-liða
úrslitum Bikarkeppni HSl.
Aðeins tveir af fjórum leikjum
átta liða úrslitanna liggja fyrir á
hreinu.enþaðer viðureign Fylkis
og Vikings og Aftureldingar og
Þróttar.
Hinir tveir leikirnir eru KR/-
Stjarnan — Haukar/HK og
Fram/UBK — Valur. Þá var
einnig dregið i 8-liða úrslit i Mfl.
kvenna og leika þar saman:
FH/ — IBV/Þróttur.
Haukar — Vikingur.
1R — Fram.
KR — UBK/Valur i 2. flokki
karla 8-liða úrslitum leika
KR - Valur.
Vikingur/Þróttur — Grótta/-
Haukar.
Stjarnan — Ármann/FH
Fram — HK.
—röp.
i Finnar í heimsókn og leika
| þrjá landsieiki i körfu
I Liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir Evrópukeppnina í Sviss
■ í næsta mánuði - Fyrsti leikurinn við Finna í Höllinni annað kvöld
Iíslenska körfuknatt-
ieiksiandsiiðið undir-
býr sig nú af kappi
fyrir C-keppnina sem
^ haldin verður i Sviss
Ium miðjan næsta
mánuð.
Einn liðurinn i undir-
búningnum er koma
finnska landsliðsins
^ hingað til lands nú i
Ivikunni.
Finnska landsliðið
mun ieika hér þrjá
landsleiki, fyrsti
ieikurinn verður i
? Laugardalshöll á
morgun og hefst hann
I kl. 20.
Á föstudaginn verður leikið i
| Keflavfk og á laugardaginn
£ verður leikið i Borgarnesi.
Eins og fram hefur komið i
Timanum hefur islenska liðið
verið valið en það skipa eftir-
taldir leikmenn:
Jón Sigurðsson KR
Ágúst Lindal KR
Gisli Gi'slason 1S
Gunnar Þorvarðarson Njarðvik
Jónas Jóhannesson Njarðvik
Valur Ingimundarson Njarðvi'k
Kristinn Jörundsson 1R
Simon Ölafsson Fram
Kristján Agústsson Val
Pétur Guðmundsson Val
Rikharður Hrafnkelsson Val
Torfi Magnússon Val
Jón Sigurðsson KR er fyrirliði
landsliðsins og hann hefur
einnig flesta landsleikina að
baki, hefur leikið 82 landsleiki i
körfuknattleik.
Enginn efi er á þvi að finnska
landsliðið er gifurlega sterkt.
Finnar hafa leikið 26 landsleiki
á siðasta ári og það sem af er
þessu ári. Þeir hafa sigrað i 17
leikjum og tapað 9.
Einn af sigurleikjum Finna er
einmitt gegn islenska landslið-
inu en sá leikur var i Osló i april
i fyrra og sigruðu Finnar 77-63.
I finnska liðinu eru nokkrir
yfirburðarmenn, Erkki Saarsto
er með 117 landsleiki að baki og
hann varð stigahæsti leik-
maðurinn i finnsku deildinni i
ár, skoraði26,5stig að meðaltali
i leik.
Þá er kappi Zitting að nafni,
sem leikið hefur 80 landsleiki
fyrirFinna, en sá kappi tók flest
fráköstin i finnsku deildinni i ár
með 17 fráköst að meðaltali i
leik. Kappinn sá er einnig
stærsti leikmaðurinn i finnska
landsliðinu 2,05 m.
Lignell er enn ein stórstjarna
Finna sem þeir tefla fram hér á
landi i vikunni, en hann hefur
verið stigahæsti leikmaður
finnska landsliðsins undanfarin
3 ár með 24 stig að meðaltali i
leik.
Kappinn sá er ekkert óvanur
að leika landsleiki i körfuknatt-
leikhefur ein 140 stk. að baki og
er landsleikja flestur af finnsku
landsliðsmönnunum.
En þrátt fyrir alla þessa upp-
talningu á góðverkum Finna á
körfuboltasviðinu þá þurfa is-
lensku landsliðspiltarnir engu
að kviða.
öruggt má telja að islenska
landsliðið hefur aldrei áður
verið eins sterkt og nú er, og þá
hefur landsliðið æft gifurlega
vel fyrir Evrópukeppnina i
Sviss.
Okkar leikmenn eru lika
hittnir eins og Finnarnir og þeir
geta einnig hirt „slatta’’ af frá-
köstum og þá fyrirfinnast einnig
i islenska liðinu hærri leikmenn
en i þvi' finnska.
En þó ber að hafa það i huga
að þessir leikir gegn Finnum
eru undirbúningur fyrir
Evrópukeppnina og i Sviss er
ætlast til þess að dæmið gangi
upp og islenska liðinu takist að
vinna sér sæti i B-keppninni.
Rósin á að springa út i Sviss
og að þvi er stefnt að svo verði,
þannig að alveg eins má búast
við þvi að islenska liðið tapi öll-
um leikjunum fyrir Finnum,
enn eitt er þó víst að strákarnir
gera sitt besta.
röp—.