Tíminn - 16.05.1981, Síða 5
Laugardagur 16. maí 1981
5
erlent yfirlit
Kohl svarar
fyrir Schmidt
Óvægin kosningabarátta Begins
■ FÆSTIR munu hafa reiknað
með þvl, að það ætti eftir að ger-
ast á þinginu I Bonn, að Helmut
Kohl, formaður flokks kristilegra
demókrata, kveddi sér hljóðs til
að verja höfuðandstæðing sinn,
Helmut Schmidt kanslara.
Þetta geröist þó á Bonnþinginu
fyrra fimmtudag (7. mal).
Tilefnið var, að Schmidt kansl-
ari hafði orðið fyrir hinum
óvægnustu árásum af hálfu Beg-
ins forsætisráðherra Israels.
Begin hafði borið það á Schmidt,
að hann hafi þjónað nazistum
meðan þeir voru og hétu og tekið
fullan þátt I hernaði þeirra. M.a.
hefði Schmidt tekið þátt I að loka
brottfararleiðum frá ótilgreindri
borg meðan nazistar voru að
myrða Gyðinga innan borgar-
markanna.
Jafnframt þessu lét Begin fljóta
með óþvegin orð i garð Þjóð-
verja yfirleitt fyrir meðferö
þeirra á Gyðingum á Hitlerstim-
anum.
Kohl lét svo ummælt, að um-
mæli Begins um Schmidt væru
bæði röng og ósæmileg og ættu
ekki heima i skiptum þjóða, sem
vildu vinsamlega sambúð og út-
rýma misskilningi og hatri. Sama
gilti um ummæli Begins um Þjóð-
verja almennt.
Þjóðverjar viðurkenndu, að
Gyðingar hefðu sætt hróplegu
ranglæti af hálfu nazista og þeir
hefðu ekki áhuga á að láta það
gleymast. Hins vegar væri með
öllu rangt að sakfella alla þýzku
þjóðina eöa t.d. þau 60% ibúa
Vestur-Þýskalands, sem hefðu
ekki verið fæddir, þegar Hitler
féll frá.
Þjóðverjar æskja góðrar sam-
búðar við Israelsmenn, sagði
Kohl, og ekki sizt yngri kynslóð-
ina.
Schmidt sjálfur var fáorður um
árásir Begins, en sagði það von
sina, að þeim mætti linna og góð
sambúð héldist með Vestur-
Þjóðverjum og ísraelsmönnum
áfram. Sfðan hóf hann að skýra
frá för sinni til Saudi-Arabiu og
fleiri rikja við Persaflóa, en þessi
för hans var til sérstakrar um-
ræöu i þinginu.
Um fortið Schmidts, sem Begin
Begin er að vinna á I kosninga
baráttunni.
dró inn i árásir áinar, er það að
segja, að Schmidt var kvaddur i
herinn 1937, þá 18 ára gamall, en
áður hafði hann verið skráður I
æskulýðssamtök Hitlers eins og
allir skólafélagar hans, enda var
það skylda á þessum árum. Her-
deild hans var send til Rússlands
1941 og barðist hann þar um
skeið, vann siöan I höfuðstöðvum
hersins, en var sendur til Belgiu
1944, þar sem Bretar tóku hann
höndum og héldu honum sem her-
fanga i sex mánuði. Hann gekk I
flokk sósialdemókrata meðan
hann var fangi. Schmidt var orð-
inn liðsforingi, þegar hann var
tekinn til fanga.
ÞAÐ var ferðalag Schmidts til
Saudi-Arabiu, sem var tilefni
árásar Begins á hann. 1 þessu
ferðalagi gaf Schmidt stjórnend-
um Saudi-Arabfu þau svör, aö
Þjóðverjar myndu ekki selja
þeim vopn að sinni, en þeir hafa
m.a. farið þess á leit, aö Vestur--
Þjóðverjar seldu þeim 300 skrið-
dreka af svonefndri Leopard 2--
gerö. Hver slikur skriðdreki kost-
ar 2 milljónir dollara.
Þetta hlaut Begin að iika vel að
sjálfsögðu, en annaö féll honum
miöur. A blaðamannafundi i
Saudi-Arabi'u skýrði Schmidt frá
fyrirhuguðum fundi utanrikisráð-
herra Efnahagsbandalags
Evrópu og Arabarikjanna, sem
sennilega verður haldinn i
Brussel i október. Schmidt sagði,
að fulltrúar frá Frelsishreyfingu
Palestinuaraba myndu taka þátt i
fundinum.
Siðar lét hann þau orð falla,
m.a. eftir heimkomuna til Bonn,
að Palestinumenn ættu rétt til
sjálfsákvöröunar um mál sin og
þaö bæri aö viðurkenna þann rétt
alveg eins og rétt Israelsmanna
til sjálfstæðis.
Það voru einkum þessi um-
mæli, sem Begin notaði sem til-
efni árásanna á Helmut Schmidt.
MARGIR fréttaskýrendur
telja, að Begin hefði sparað sér
þessar stóryrtu árásir, ef kosn-
ingar stæðu ekki fyrir dyrum i
Israel. Það er ekki óvinsælt þar
að deila á Þjóöverja og með þvi
að deila jafnframt á þýzka sósial-
demókrata nær Begin til Verka-
mannaflokksins, sem er helzti
keppinautur flokks hans i
kosningunum.
Deilan viö Sýrland ú.t af eld-
flaugum i Libanon er talin af
svipuðum toga spunnin. Begin
álíti hana liklega til vinsælda.
Begin hefur hvergi hlift sér I
kosningabaráttunni siðustu vik-
urnar, enda þótt heilsa hans sé
talin hanga á bláþræði, en hann
hefur tvivegis orðið fyrir alvar-
legum hjartatilfellum. Nú vinnur
hann oft 19 klukkustundir á sólar-
hring og heldur fjölda funda.
Skoðanakannanir benda til, að
honum verði vel ágengt.
Þegar kosningarnar voru
ákveðnar siðastliðinn vetur,
bentu skoðanakannanir til, aö
Verkamannaflokkurinn ynni
stórsigur. Nú virðist það úr sög-
unni og úrslitin vera mjög óviss.
Það þykir ekki lengur útilokað, að
Begin geti haldið stjórnarforust-
unni eftir kosningarnar.
■ Frá fundi Helmuts Schmidt
kanslara og Khalids konungs i
Riyadh — og skriðdrekategundin
Leopard 2, sem Schmidt hafnaði
að selja stjórn Saudi-Arabiu, en
hún vildi fá ekki færri en 300, þótt
hver kostaði um 2 millj. dollara.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
erlent yfirlit
Caspar Weinberger
Viss um viðbrögð
NATO-ríkjanna
— ef til átaka um
Mið-Austurlönd kemur
BCaspar Weinberger,
varnarmálaráðherra Banda-
rikjanna, sagöi á blaöa-
mannafundi, eftir fund
varnarmálaráðherra rikja At-
lantshafsbandalagsins nú i
vikunni, að hann væri nú full-
viss um að ef til þess kæmi að
oliuhagsmunum vesturvelda i
Mið-Austurlöndum yrði
ógnað, myndu NATO-þjóðir
bregðast viö á þann hátt að
hagsmunirnir yröu verndaðir.
„Það er almennt viður-
kennt, að það gæti þurft að
beita hervaldi utan Evrópu, til
þess að vernda mikilvæga
hagsmuni bandalagsþjóða”,
sagði Weinberger viö blaða-'
menn um borð I flugvél sinni,
eftir að fundi varnarmála-
ráöherranna lauk á miöviku-
dag.
Weinberger benti á að hags-
munir margra annarra þjóða
færu saman viö hagsmuni
Bandarikjanna ef til ein-
hverra aögerða kæmi, sem
hefðu áhrif á oliusvæðin 1
Mið-Austurlöndum.
Joseph Luns haföi áður sagt
fréttamönnum, á fundi i aðal-
stöðvum NATO, aö á fundi
varnarmálaráðherranna hefði
rikt sá skilningur, að ef til
átaka um Persaflóa kæmi,
myndu einstök riki Atlants-
hafsbandalagsins veita
Bandarikjunum heimild til
liðsflutninga yfir og um lönd
sin, til átakasvæðisins.
Luns benti á að nú þegar
nytu Bandarikjamenn aö-
stoöar Breta og Frakka viö
Persaflóa. Háttsettur banda-
riskur embættismaður skýrði
einnig frá þvi aö Weinberger
myndi eiga viðræður við
portúgalska embættismenn
um endurbætur á stöðvum
fyrir flugher á Asoreyjum.
Fréttaskýrendur hafa bent
á, að beiting vikingasveita
þeirra, sem Bandarikjamenn
vilja koma upp til að senda i
skyndi til Mið-Austurlanda,
telji þeir þess þörf, sé möguleg
viö aðstæður, sem ekki geta
talist neyðarástand. Slikar að-
stæöur gætu til dæmis skapast
ef áhrif sovétmanna I tran
yrðu slik, aö óttast væri að
þeir gætu náð valdi á oliu-
svæðum.
Páfa heils-
ast betur
■ Heilsa Jóhannesar Páis II
páfa virtist fara batnandi i
gær og eru honum nú gefnar
góðar vonir um að ná fullum
bata eftir banatilræöið sem
honum var sýnt I vikunni.
Tilræðismaðurinn, hægri-
sinnaður, tyrkneskur öfga-
maður, sem strauk úr fangelsi
i Tyrklandi 1979, aö þvi er
virðist gagngert til þess aö
myrða páfa, hefur enn ekki
gefið neitt upp um tilgang sinn
með ódæðinu. Hann neitar al-
gerlega að hafa haft aðra i vit-
orði með sér og kveðst ekki
muna hvar hann fékk skamm-
byssuna sem hann notaði viö
tilræðið.
blóöugra átaka hér og þar,
sem kostað hafa nokkur
mannslif.
IRA-menn I fangelsum á
N-Irlandi halda áfram
hungurverkföllum sinum.
Tveir þeirra hafa nú svelt sig i
nær tvo mánuöi, en tveir aðrir
um skamman tima, það eru
þeir sem tekið hafa viö af
Sands og Hughes.
Myrtu hermann
á N-írlandi
■ Breskur hermaður féll og
nokkrir aðrir særðust, þegar
skæruliðar úr irska lýöveldis-
hernum gerðu eldflaugaárás á
hóp þeirra á N-Irlandi i gær.
Þykir mikil mildi, að ekki
skýldu fleiri hljóta bana af.
Þótt ástandið á N-Irlandi
hafi verið friðvænlegra
siöustu viku, en talið var að
yrði eftir aö IRA-mennirnir
Bobby Sands og Hughes létust
i fangelsi þar, hefur komið til
Bíða þess að
styrjöld hefjist
■ Eftir þróun þá sem orðiö
hefur I deilum Sýrlendinga og
Israela vegna loftvarnareld-
flauga Sýrlendinga I Libanon,
telja flestir nú nær vonlaust að
friösamleg lausn finnist á
málinu og er nú litiö svo á aö
þess eins sé beðiö að styrjöld
milli rikjanna tveggja hefjist.
Philip Habib, sérlegur
sendimaður Bandarikjafor-
seta i Mið-Austurlöndum,
reynir að visu enn aö finna
einhverja samningamögu-
leika, en talið er að starf hans
sé vonlaust og I gær lýsti Haig,
utanrikiíráöi'erra Bandarikj-
anna, þ /. yíir að iimi sá sem
fyrir hendi var til friöarum-
leitana, væri aö renna út.
Sagði Haig að það hefði allt-
af verið vafasamt að umleit-
anir Habibs bæru árangur, en
nú mætti segja að vonin um
það væri oröin litil.