Tíminn - 16.05.1981, Side 8

Tíminn - 16.05.1981, Side 8
Laugardagur 16. maí 1981 Laugardagur 16. maí 1981 9 fréttafrásögn ÞU VERÐ R AÐ SLA HRATT ■ „Við skulum láta boðin ganga hratt fyrr sig þvi það eru yfir 300 númer sem bjóða á upp i dag”, sagði Jónas Gústavsson annar uppboðshaldaranna I Tolistöðv- arhúsinu um helgina. „Þá verður þú að slá hratt”, hrópaði einhver að Jónasi úr mannfjöldanum sem saman var kominn á uppboðinu. Hann hafði þó ástæðu til að sjá eftir þessu katli þvi hann varð seinn fyrir með eitt boðið og... „Þvi miður þú varst búinn að segja mér að slá hratt”, sagði Jónas. Troðið var út að dyrum i Toll- stöðvarhúsinu er uppboðið hófst og þar að auki stóð f jöldi manna á hafnarbakkanum fyrir utan stöð- ina. Rólegt var i upphafi en er leið á æstust menn upp og gættu ekki alltaf að halda boðunum innan skynsamlegra marka. Fyrstu númerin sem boðin voru upp voru búðarborö úr viði og ein- hver stálheppinn náungi hreppti eitt þeirra á aðeins 5 kr. Siðan færðist f jör í leikinn auk þess sem gamanmál fuku á milli uppboðs- gesta og uppboðshaldaranna tveggja þeirra Jónasar og Ingólfs Sigurz. Bestu kaupin? Er uppboðið var um það bil hálfnað slöngruðu þrir prúöbúnir náungar inn i salinn, vel viö skál og -.skemmtu sér greinilega mjög vel við að bjóða i ýmsa hluti. Einn þeirra bauð af miklum krafti i 25 Matchbox bila og hreppti þá á endanum á verði sem var nokkuð langt yfir.búðarveröi. Hann og félagar hans voru þó hin- ir ánægðustu meö fenginn og er þeir héldu á brott aftur, eftir hafnarbakkanum, heyrðist hinn nýi „blleigandi” segja nokkuð stoltur á svip: ,,Ég þef oft gert góð kaup um ævina en þetta hljóta að vera þau bestu”. Einvígi Er stór og mikil hillusamstæða var boðin upp voru greinilega tveir menn i salnum sem ætluðu sér að eignast hana. Eftir að boð- in náðu 2000 kr. hættu aðrir en þeir tveir að bjóða i og fólkið fylgdist grannt með einvigi þeirra tveggja. Er boðin náðu 5000 kr. markinu byrjaði að draga úr þeim báðum og lengri timi leið á milli boða en hvorugur vildi þó gefa sig. 5100... 200.. . 300.. fyrst, annað og ... 400 ... 500.. fyrsta annað og ... fyrsta annað og ... 600 ... 700... 800... 900.. . fyrsta annað og ... fyrsta annað og ... og nú hófst hamarinn á loft .... 6000 ... „Við höfum. 6000 býður nokkur betur”. Enginn bauð betur en sá er lét i minni pokann horfði löngunaraugum á eftir samstæðunni er hún var bor- in út úr húsinu. Langtimafjárfesting Dýrasta númerið sem boðið var upp voru rúmlega 300 stykki af snjóþotum sem boðnar voru upp i einum pakka. Boðin byrjuðu i ró- legum 200 kalli en enduðu eftir mikla baráttu er Ingvar Krist- jánsson hreppti þoturnar á 6100 kr. auk söluskatts en verðmæti þeirra var talið rúmlega 20 þús- und kr. Ingvar sagði i samtali við Tim- ann að hann liti á þessi kaup sem langtimafjárfestingu. Hann sagð- istekki fara oft á svona uppboð en oft mætti gera góð kaup á þeim. 1 samtali okkar kom fram að mikið væri um að heildsalar kæmu á þessi uppboð og hrepptu þá oft fyrir litinn pening vörur sem upphaflega væru frá þeim sjálfum komnar. En einnig væri til í dæminu að menn byðu mikið i hita leiksins og gerðu þá stundum slæm kaup. Oft mikið fjör „Það er oft mikið fjör á þessum uppboðum og mikið er um að fólk komi hingað til þess að skemmta sérj'sagði Ingólfur Sigurz annar uppboðshaldaranna i samtali við Timann og ekki spillir það fyrir ánægjunni sá möguleiki að eign- ast góða hluti á lágu verði. „Það er mikið til sama fólkið sem sækir þessi uppboð aftur og aftur en nú var einnig nokkuð af fólki utan af landi enda var verið að selja þannig vörur, reiðtygi og fleira. Þetta sem við seldum nú var gamall vörulager sem litil hreyf- ing hafði verið i lengi en heildar- verðmætið sem fékkst fyrir hann á uppboðinu voru rúmar 116 þús- und kr.” sagði Ingólfur. Myndir Róbert Ágústsson Texti Fribrik Indriðason Tímamenn lita inn á uppbod í Tollstöðvarhúsinu? þar sem gamlar vörur voru seldar fyrir á annað hundrað þúsund Eins og sjá má var Tollstöðvarhúsið troðfulit af fólki. ■ Jónas Gústavsson athugar vörulistann, en á honum voru rúrnlega 300 númer sem gáfu eftir daginn um 116 þús. kr. . Hvað hefðum við gert án bílsins í landi sem okkar? Við íslendingar erum sennilega sú þjóð í Evrópu sem mest er háð bifreiðum til fólks- og vöruflutninga vegna þess hvað landið okkarer stórt og strjálbýlt. Hver og einn getur séð fyrir sér það ástand sem skapaðist ef bílsins nyti ekki við. Þetta mikilvæga samgöngutæki hefur aukið frelsi og gjörbreytt skilyrðum til búsetu og vinnu í nútíma þjóðfélagi. Tíundi hver starfandi fslendingur, eða u.þ.b. 10 þúsund manns hafa atvinnu sem beint eða óbeint tengist bifreiðinni. Beinar tekjur ríkisins af bifreiðum og akstri landsmanna í formi skatta og tolla hafa verið um 1/5 af heildartekjum þess á undanförnum árum. Hlutur bensínbifreiða í heildarnotkun oliuvara á íslandi er óverulegur eða u.þ.b. 16% af eldsneytisnotkun landsmanna. Bílar og varahlutir hátollaðir Oft lítur svo út sem meðferð hins opinbera á málefnum bifreiðaeigenda sé bæði gerræðis- leg og handahófskennd og að enginn opinber aðili hafi fulla yfirsýn yfirafleiðingaraf ýmsum aðgerðum, álögum og kvöðum sem bifreiða- eigendur verða að þola. Á íslandi eru há opinber gjöld og álögur á bifreiðum sem fara beint i ríkiskassann. Bil- greinasambandið telur það vera í hrópandi ósamræmi við það mikilvæga hlutverk sem bifreiðin gegnir við að halda landinu í byggð. Þess vegna er kominn tími til að meta fram- tíðarhorfur bílsins og spyrja: HVAÐ GERUM VIÐ ÁN BÍLSINS í LANDI SEM OKKAR? BILGREINASAMBANDIÐ Uppboösgestum sýnd varan. .. dráttarvélina, jeppann, vinnuvélar og önnur tæki. öll nota þau einu og sömu fjölþykktar- olíuna á ajja smurstaði, ajjt árið um kring, nefnilega UNIFARM. UNIFARM er því endanleg lausn á margflóknum smurningsmálum bænda. Einföld og örugg. Einföld vegna þess að hún ein leysir af hólmi nær allar gömlu tegundirnar sem bændur hafa hingað til notað á vélar sínar. Flókinn og dýr lager er úr sögunni og engin hætta er á tjóni vegna ruglings á tegundum. Ingvar Kristjánsson meö feng sinn, rúmlega 300 snjóþotur. tsso Öruqq vegna þess að UNIFARM fjölþykktar- olían státar af hæstu gæðaflokkun sem nokkur vélarolía getur fengið og stenst því fullkomlega þær kröfur sem gera verður tll olíu sem notuð er jöfnum höndum á vélina, gírkassann, vökvakerfið, drifið og hemla í olíubaði. Spyrjið um reynslu þeirra sem skipt hafa yfir UNIFARM nú þegar. UNIFARM- Einfyrirallarhinar. Olíufélagið hf

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.