Tíminn - 23.05.1981, Blaðsíða 14

Tíminn - 23.05.1981, Blaðsíða 14
14 Sunnudagur 24. mal 1981 ■ „Mér mun ávallt þykja vænt um hann”, segir Adriana um Hemingway. Hér sjást þau saman á einu myndinni sem til er af þeim saman. Reyndar var Mary kona hans, með þeim á þessari mynd upphaf- lega, — en hún var klippt frá. Hemingway og stúlkan hans í Feneyjum: Þrjátíu ára ástar- ævintýri rifjað upp ■ ,,Þá gekk hún i salinn, há- vaxin, frjálsleg og geislandi af æskufegurð”. Þannig lýsti Ern- est Hemingway Renötu, sögu- hetjunni i bókinni Across the River and into the Trees, en hún kom út 1950. ,,Húð hennar var fölleit, næstum olifugul, vanga- svipurinn gat valdið þér — og hverjum sem var — hjartasorg, og dökka hárið þykkt og lifandi föll á axlir henni”. I þrjá áratugi hafa „betri borgarar” i Feneyjum vitað, að Hemingway hafði raunverulega konu að fyrirmynd Renötu. Sú kona var Adriana Ivancich, fög- ur dóttir aðalsmanns i borginni. Samband hennar við rithöfund- inn hófst, þegar hann var 49 ára og þreyttur af striði og viski- drykkju, en Adriana var nýorð- in 19 ára. Bannaði útkomu bók- arinnar á ítaliu i 10 ár Hemingway var umhugað um að hlifa mannorði Adriönu og lagði þvi bann við þvi i 10 ár, að bókin kæmi út á Italiu. Það ar þó ekki nægur timi til aö forða Adriönu frá hneyksl- inu, en hún stóð sig eins og hetja og tók þessu fjaðrafoki i Feneyj- um með ró. Nú, næstum 20 árum eftir dauöa Hemingways, hefur hún komið fram með sina hlið á at- burðunum i minningabók, sem hún skrifar. ,,Ég vildi biða þess að áhrifin frá gamla hneykslinu gufuðu upp og litiö yrði öðru visi á þessi mál og ég vildi lika biða þar til synir minir væru orðnir stærri”, segir hún. ,,En mér finnst það skylda min gagnvart „Papa” (Hemingway) að skrifa þessa bók. Ég er týndi hlekkurinn (the missing link) i lifi hans”. Bók Adriönu kom út á þessu ári og heitir Hviti turninn, Hún segir þar frá ástarsambandi þeirra fyrir 30 árum. Bókin hef- ur runnið út á Italiu. A bókarkápunni er eina myndin sem til er af Adriönu og Hemingway, þar sem hún hall- ast upp að breiðu brjósti hans, en hann horfir á hana ástfang- inn. Reyndar var Mary eigin- kona hans meö á þessari mynd upphaflega, en Adriana klippti hana frá. „Það sem skeði þegar við hittumst fyrst var meira en ást- arævintýri”, segir Adriana, sem nú er 50 ára. „Samband okkar varð svo innilegt, þvi ég braut niður varnarmúrinn, sem hann hafði byggt um sig. Hann meira að segja hætti að drekka þegar ég baö hann um það. Ég er stolt yfir þvi að rifja það upp, að ég kom honum af stað með að skrifa bókina Gamli maðurinn og hafiö.”. Um bókina, sem vakti hneykslið segir hún siðan: „Jú, ég veit að hann skrifaði bókina Across the River and into the Trees fyrir mig og með mig i huga, —- en mér sjálfri likaöi ekki sú bók og ég sagði honum það. Ég gagnrýndi hann hik- laust, þegar mér fannst eitthvað ekki nógu gott,-hann reyndi að taka tillit til þess sem mér fannst og breyta eftir þvi, og minar skoðanir breyttust lika til móts við hans. Ég er ávallt þakklát Papa fyrir áhrif hans á mig”. Þau hittust fyrst i veiðiferð Hemingway var i veiðiferð hjá vinafólki Adriönu þegar þau hittust fyrst 1948. Það gerði ó- veður með mikilli rigningu og hún varð hrakin og blaut. Hann braut greiðuna sina i tvennt og gaf henni annan helminginn. Þegar Adriana greiddi sitt dökka siða hár varð Heming- way hugfanginn af henni. Allt við hana heillaöi hann: fegurð hennar, gáfur og rómantiskt uppeldi og umhverfi. A æskuárunum hafði Adriana ýmist átt heima i höll fjölskyld- unnar i Feneyjum eða búið á sveitasetri frá 16. öld, sem öld- um saman hafði verið i eigu ætt- arinnar. Faðir hennar hafði fallið i striðinu, og móðir hennar þvi verið ein um uppeldi Adriönu, og var hún strangur uppalandi. Adriana var þvi mjög mót- tækileg fyrir hrifningu manns, sem var þetta mikið eldri en hún, og þegar kynni þeirra urðu innilegri kallaði hún hann oftast „Papa”. Hemingway hvatti Adriönu til að stunda ljóðagerð, en hún hafði smávegis fengist við það. Einnig var hann hrifinn af þvi hvaðhún var listræn og teiknaði velog hafði gott auga fyrir ljós- myndun. Hann gaf henni gömlu feröaritvélina sina og Rollei- flexmyndavélina og baö hana að nota hvort tveggja af kappi. Einnig taldi Hemingway italska bókaútgefendur sina á það, að fá Adriönu „sem væri gáfuð listakona” til þess að mynd- skreyta bókakápur á bókum hans. Ástarbréf frá Afriku 1 sjö ár skrifuðust þau á, þeg- ar þau voru ekki samvistum. Einkum var Hemingway dug- legur við aö skrifa. Frá Nairobi i Kenya skrifaði hann henni eld- heit ástarbréf. Þá hafði Hem- ingway lent i tveim flugslysum á tveim dögum, og var skrám- aður og meiddur innvortis þeg- ar hann skrifaði: ,, Ég elska þig meira en mánann og himininn og svo lengi sem ég lifi. „Dótt- ir” (gælunafn hans á Adriönu) en hve lifið er flókið! Bæði skiptin sem ég dó hugsaði ég að- eins um eitt: Ég vil ekki deyja af þvi að ég vil ekki að Adriana verði hrygg. Ég hef aldrei elsk- að þig eins innilega og á dauða- stundinni”. í bókinni Across the River, sem talin er nokkuð sönn minn- ingabók skáldsins, segir frá þvi, að söguhetjurnar — miðaldra herforingi og hin unga Renata — elskasti gondóla. Þessi frásögn, sem allir töldu sanna, varð til þess að eyðileggja mannorð Adriönu og i heimaborg hennar Feneyjum var hún útilokuð af sinum fyrri kunningjum og eins og hún segir nú: var hún eigin- lega gerð útlæg. „Hann bað min”, sagði Adriana. „Vitleysa” sagði Mary 1 frásögn hennar i bókinni Hviti turninn segir hún þó, að þau hafi ekki átt mök saman og aðeins við sérstök tækifæri kysstst. — Það varð samkomu- lag þeirra að ganga ekki lengra i þá átt. „Aldrei”, segir Adriana i bókinni „gekk hann lengra en ég vildi eða var áleitinn við mig”. Þessi ummæli hennar hafa vakið hjá gagnrýnendum bolla- leggingar um, að ef til viil hafi gömul striðsmeisli, aldur og stöðug vindrykkja Hemingways haft sitt að segja i þessu máli. Adriana heldur þvi fram að Hemingway hafi beðið sig að giftast sér, — þrátt'fyrir það að á þessum tima átti hann eigin- konu fyrir, Mary, sem nú er 76 ára. „Vitleysa!” sagði Mary, þeg- ar hún var spurð um þetta mál. „Ernest þótti vænt um hana, eins og svo margar aðrar ungar stúlkur.” Adriana segir sjálf, að hún hafi aldrei tekið þetta bónorð al- varlega. „Hann var of gamall. Hann var kvæntur — þetta var allt óhugsandi”, útskýrir hún. Hviti turninn Ef til vill á Adriana bestu ' minningarnar um Papa frá Kúbu, en þangað fóru hún og móðir hennar i heimsókn til Hemingway-hjónanna Ernest og Mary sem bjuggu þar. A daginn sat rithöfundurinn i svalanum, neðst i gömlum steintumi, sem var á landareign hans, en Adriana sat uppi i turn- inum og hamaðist þar við teikn- ingar sinar. Hún segist minnast þess, að einu sinni hafi hann rispað úinliði þeirra beggja og dýft pennanum i blóð þeirra og hafi þar með stofnað leynifélag þeirra, sem hann kallaði „White Tower, Inc”. (Hviti turninn hf.) — Þaðan er komið nafnið á bók Adriönu. Adriana hefur nú verið i far- sælu hjónabandi i 17 ár. Maöur hennar er þýskur greifi, Rud- olph von Rex, og eiga þau hjón tvo sonu, Carlo 14 ára og Nocola 12 ára. Þau búa á búgarði i Toskana-héraðinu á Italiu. Fjöl- skylduhöllin i Feneyjum til- heyrir bróður Adriönu, en hann hefur leigt hana ferðamanna- samtökum. „Að ætla sér að við- haida höll i Feneyjum er óðs manns æði. Það er harmleikur- inn i Feneyjum — mengunin — sem veldur þvi. Þessar gömlu bygingar liggja allar undir skemmdum. Það þarf stórfé og mikla vinnu og vinnukraft til þess að sporna við eyðilegging- unni.” Bók Adriönu — Hviti turninn — verður gefin út i Bandarikj- unum, nema Hemingway-út- gáfufélagið reyni að stoppa það á þeim forsendum að bréfin frá Hemingway séu ritsmiðar hans, og ekki hafi verið gefið leyfi fyrir útgáfu á þeim. Mary, ekkja rithöfundarins, segir að hann hafi gefið fyrirmæli um það, að bréf hans yrðu eyðilögð, — og ég vil að fariö verði eftir óskum hans i þvi efni, sagði hún nýlega. 1 bók sinni segir Adriana frá þvi, þegar þau Hemingway hitt- ust i siðasta sinn árið 1955. Þau sátu á Gritti-svölunum og horföu yfir Grand Canal. Það var sólarlag i einni fegurstu borg heimsins. Tár runnu niður vanga hans. „Sjáöu til, dóttir”, sagði hann, „nú getur þú sagt öllum að þú hafir séð Ernest Hemingway gráta”. (Þýtt-BSt) ■ Adriana rifjar upp minningar á svölunum þar sem þau Hemingway sátu saman siðast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.