Tíminn - 23.05.1981, Side 18

Tíminn - 23.05.1981, Side 18
Sunnudagur 24. mal 1981 Sunnudagur 24. maí 1981 DEILURNAR ISKÁKHREYFINGUNNI: ■ Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að mikil átök standa nú yfir innan skákhreyfingarinnar á islandi. Forseti Skáksambands Islands verður kjör- inn 30. maf næstkomandi og er sýnt að þar mun koma fram gagnframboð móti núverandi forseta# dr. tngimar Jónssyni. Með því að þessi mál hafa verið svo áberandi sem raun ber vitni verður hér reynt að varpa nokkru Ijósi á það sem er að gerast í skákhreyf- ingunnir þá menn og þau málefni sem deilt er um. Rætt var við f jölda manna sem tengjast þessum mál- um, bæði beint og óbeint, og er vonandi að sæmileg yfirsýn hafi fengist yfir málið. Skal rækilega tekið fram að þær skoðanir sem fram koma hér að neðan eru ekki undirritaðs, heldur þeirra sem talað var við. Sumir þeirra sem ég ræddi við töldu að deilurnar sem nil standa ættu sér miklu lengri að- draganda en ætla mætti i fljótu bragði. Það er alla vega ljóst að sjaldan hefur verið friösamlegt um að litast i Skáksambandi Islands, réttara væri að segja aö þar hefði hver höndin verið uppá móti annarri í fjölda mörg ár. Ar- ið 1967 hefur veriö nefnt sem upp- hafsár þeirra deilna sem nU virð- astvera að riöa skákhreyfingunni að fullu. Þaö ár náði Hólmsteinn Steingrfmsson kjöri sem formað- ur Taflfélags Reykjavikur og fylgdu honum aörir siðir en tiök- ast höfðu fram aö þvi. Aður hafði skákhreyfingin verið nokkurs konar einkaklUbbur sterkra skákmanna sem komu saman til að sinna áhugamáli sinu en hirtu annars li'tt um hin almennari stjórnunarstörf. Á þessu varö breyting með tilkomu Hólm- steins. Hann var lítill sem eng- inn skákmaður en hins vegar hörkuduglegur félagsmála- og fjármálamaður. Hann og_ félagar hans réðust i aö láta reisa hið glæsilega félagsheimili Tafl- félags Reykjavlkur við'Grensás- veg og var það glfurlegt átak á sinum tima. Nokkru þurfti náttUrlega að fórna til. Tilþess að afla fé til smlðinnar — þvi það var vond kreppa á tslandi um þetta leyti— leituðu þeir til rikisins og komu skákinni inni æskuiyðs- starfsemi þess. Þar með fékk skákhreyfingin aðgang að vænum sjóðum en með auknu unglinga- starfi fannst hinum sterkari skákmönnum að þeir yrðu Utund- an. ,,Það fengust engir peningar útá okkur,” sagði einn af sterkari skákmönnum þjóðarinnar við mig, ,,svo smáttogsmáttvarfarið að íita á okkur sem afætur á félaginu. Við fengum ekki aðgang að hUsi Taflfélagsins nema inn- anum krakkana semvoru að læra mannganginn og við urðum þá að tefla við þá lika.” Taflfélagsmenn klufu sig UtUr félaginu og stofn- uðu Skákfélagið Mjölni. Var það Taflfélaginu mikið áfall á sinum tima en það rétti fljótlega Ur kUtnum og hélt stöðu sinni sem langstærsta og öflugasta skákfélag landsins. „Hólmsteinn og þeir sem komu með honum voru kannski íþróttamenn i stjórnun,” sagði fyrrnefndur skákmaður, „en þeir höfðu litinn skilning á innra eöli skákar- innar.” Frá og með árinu 1967 hafa menn einsog Hólmsteinn oftar en ekki valist til forystu i skákhreyfingunni, viðurkenndir framkvæmdamenn en litlir skák- menn. Slikir menn eru til dæmis þeir Guðfinnur Kjartansson, nU- verandiformaður TR,og Einar S. Einarsson. Telja sumir — en vel að merkja: fjarri þvi allir — að tilkoma þeirra hafi orsakað skilningsbrest milli skákmann- anna, sem allthlytur jU að snUast um, og svo forystu skákhreyf- ingarinnar. li eið nU og beið. Guðmundur G. Þórarinsson var fyrir nokkr- umárum kjörinn forseti Skáksam- bands tslands og haföi hann um- sjón með hinu mikla verkefni þegar Robert Fischer og Boris Spasski'j leiddu saman hesta sina i Laugardalshöllinni. Þótti hann standa sig ákaflega vel en var þó fáum eftirsjá i honum þegar hann hætti árið 1974. Þá þótti sumum hann vera farinn að sóla sig of mikið i' ljóma heimsmeistaraein- vigisins. Gunnar Gunnarsson tók þá við og sat i eitt ár. Hann var, og er, einn af kunnustu skák- mönnum þjóðarinnar og mun aldrei hafa hugsað sér að gegna embættinu nema stuttan tima. Ekki þurfti langan tima til: eftir þetta eina ár var jöröin farin að hitna undir fótum hans svo hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Með honum voru I stjórn Skák- sambands Islands Einar S. Einarsson, gjaldkeri, og Ingimar Jónsson, varastjórnarmaður. Tók Einar S. Einarsson við forseta- embættinu og naut þar ekki sist stuðnings Taflfélags Reykjavik- ur, þeirra Hólmsteins Stein- grimssonar og Guðfinns Kjart- anssonar. Gegndi Einar embætt- inu allt til þess að hann var felld- ur með eftirminnilegum hætti á siðastliðnu ári. •• Ollum þeim sem ég ræddi við um þetta mál bar saman um einn hlut og gilti þá einu hvort um var að ræða einlæga stuðnings- mennEinars eða hatramma and- stæðinga: sem sé að Einar S. Einarsson hefði unniö skákhreyf- ingunni, og þá náttúrlega Skák- sambandi Islands sérstaklega, mikið gagn. Hann starfaði af miklum dugnaði og ósérhlifni, um það eru allir sammála, og kom ótrúlega miklu i verk á skömmum tima. Meðan hann var gjaldkeri i stjórn Gunnars Gunnarssonar hafði hann umsjón með einu miklu happdrætti sem Skáksambandið efndi til en þá var fjárhagur þess mjög slæmur. Ofluðust með þvi miklir peningar sem dugðu til að koma samband- inu aftur á réttan kjöl. Eftir a6 Einar tók við embætti forseta hófst hann handa um að Utvega Skáksambandinu hUsnæði sem það hafði sárlega vantað og tókst það framar vonum: sambandið hefur nU til umráða eina fallega hæð I nyju hUsi við Laugaveg. 1 stjórnartið Einarsvoru haldin hér þrjd af hinum árlegu Reykja- vikurskákmótum (og eitt þeirra, mótið 1978, hið sterkasta sem lik- legt er að haldið veröi hér I náinni framtíð), hér fór fram einvígi Spasskijs og Vlastimil Horts, og innanlands var sömuleiðis mikiö starf unnið. Það er þvi fullljóst að það voru ekki störf Einars að skákmálum I landinu sem urðu til þess að efnt var til samblásturs gegn honum sem lyktaði með þvi að dr. Ingimar Jónsson — sem af hörðustu andstæðingum sinum er kallaður einungis „doktorinn” — fór i' framboð i fyrra og felldi Einar með eins atkvæðis mun. Að sjálfsögðu fer tvennum sögum af ástæðunum... Aður en vikið verður að slagn- um sem varð i fyrra er rétt að rekja ögn ymislega atburði sem urðu meðan Einar S. Einarsson var forseti. Högni Torfason var varaforseti hans fyrstu árin og unnu þeir mikið saman, félagarn- ir. A aðalfundi árið 1979 var Bragi Halldórsson i framboði gegn Einari til forsetaembættis- ins en var felldur með töluverðum atkvæðamun og verður vikið ofurlitið aö þvi framboði siöar i þessari grein. A þeim hinum sama aöalfundi féll Högni Torfa- son niður i sæti varamanns i stjórn Skáksambandsins. í hans stað var dr. Ingimar Jónsson val- inn varaforseti en hann hafði þá um skeið ekki átt aðild að stjórn sambandsins. Það er dálitið kald- hæðnislegt að það var enginn annar en Einar S. Einarsson sem fékk dr. Ingimar til aö taka að sér embætti varaforseta: „hann ætlaði Ingimar ekkert illt,” sagði einn stuöningsmanna Einars sem ég ræddi við. Sfðan gerist það, einsog áður hefur komið fram, að á aðalfundinum 1980 býður Ingi- mar sig fram gegn Einari og sigr- aði hann. A sama fundi var ekki stungið uppá helsta stuönings- manni Einars innan stjórnar- innar, Högna Torfasyni, til á- framhaldandi stjórnarsetu. „Doktorinn” hafði tekið völdin. En vikjum nU að þeim á- viröingum sem andstæðingar Einars fundu gegn honum. „Einar er ágætur maður,” sagði maður nokkur sem telja verður hlutlausan i málinu. „Hann hefur hins vegar einstakt lag á að koma mönnum uppá móti sér.” Þarna er kjarni málsins I hnotskurn — ef svo má segja! Andstaðan við Einar virðist sem sé bundin við persónu hans. „Það vill oft verða svo með duglega menn að þeir sjást ekki fyrir, gera ýmislegt i blóra við samstarfsmenn sina,” sagöi sami maður og áður var vitnað i. „Einar er maður sem þorir að taka ákvarðanir og stundum verður að gera það hik- laustogán samráðs við aðra. Það fór aftur á móti i taugarnar á mörgum þegar hann gerði það æ ofani æ. Slikir menn verða óhjá- kvæmilega gagnrýndir.” Aðrir taka dýpra i árinni og segja að Einar hafi hagað sér einsog ein- ræðisherra, hann hafi vaðið á- fram án þess að taka tillit til ann- arra en nánustu félaga sinna i skákhreyfingunni og oft og tiðum hafi hann hagað sér einsog aðrir en þeir væru krakkar sem hann gæti skipað fyrir að vild. „Það eru margir skapstórir menn i skákhreyfingunni sem sættu sig ekki við þetta,” sagði einn við- mælenda mina. Það var af þess- um ástæðum, segja andstæðingar Einars, sem Bragi Halldórsson, skákmeistari, var fenginn i fram- boö gegn honum árið 1979: Það framboð, segja sömu aðilar, var hins vegar illa skipulagt og kom fram á siðustu stundu svo ekki tökst að fella Einar. Þá segja stuðningsmenn dr. Ingimars að Einar hafi fljótlega eftir að Ingi- mar var kjörinn varaforseti fariö að sniðganga hann og hafi svo virst sem hann liti á Högna Torfa- son, sem þá vari varastjórn, sem varaforseta áfram. Þetta hafi Ingimar fallið afskaplega illa — „hann er metnaöargjarn maö- ur,” segir einn heimildarmaður — sem og fleiri mönnum i stjórn Skáksambandsins með Einari. Fullyrða þeir að Einar hafi á end- anum aðeins ráðið yfir einu atkvæðii'stjórninni, aðrir hafiþá verið orðnir honum andsnUnir — af fyrrgreindum ástæðum. Að sjálfsögðu lita Einarsmenn öðruvisi á þessi mál. Þeir segja að vissulega hafi Einar verið starfsamur forseti en hann hafi þó jafnan haft samráö við aðra stjórnarmenn. Eftir aö dr. Ingi- mar varð varaforseti hafi hann hins vegar snUist af alefli gegn Einari, i' þeim tiigangi einum að koma sjálfum sér að. Samkomu- lag innan stjórnarinnar fór mjög versnandi eftir þvi sem á leið siðasta stjórnarár Einars S. Einarssonar og vilja Einarsmenn kenna það undirróðri og ódrengi- legum vinnubrögðum Ingimars- manna sem hafi nánast sagt sig Ur lögum við aðra stjórnarmenn. Einn Einarsmanna sagöi mér og að það væri rangt að Einar hafi aðeins átt eitt atkvæði i stjórninni undir lokin: þar hafi aðeins munað einu atkvæði. N ema hvað: það er alla vega ljóst að fyrir aðalfund árið 1980 höfðu andstæðingar Einars á- kveðið — af hvaða orsökum sem það var nU — að freista þess að fella hann i forsetakjöri. Hófust nU miklir flokkadrættir. Sumir andstæðingar Einars sökuðu hann um hin verstuafglöp i starfi og á fulltrUafundi Taflfélags Reykjavikur i fyrra sauð uppUr. Þar kom berlega i ljós að það voru félagar Einars i stjórn Skák- sambands íslands sem voru harð- astiri andstöðunni gegn honum. Á þessum fundi hafði Helgi nokk- ur SamUelsson sig mikið i frammi en hann er einn helsti stuðnings- maður dr. Ingimars og mjög um- deildur maður — svo ekki sé sterkaraðorðikveðið. Ýmsirþeir sem annars hafa ekkert á móti Ingimar Jónssyni eru þeirrar skoðunar að á þessum fundi hafi menn hans gengið of langt. Einarsmenn tala um sifelldar dylgjur sem aldrei hafi verið rök- studdar. Allt um það var ljóst að tilmikilla tiðinda myndi draga á aðalfundinum. Einn þeirra sem ég ræddi við sagði að Einar hafi varla verið i neinni hættu fyrir forsetakjiriö en þá féll sprengja. Dagblaðið birti stóra frétt á bak- siðu undir fyrirsögninni: „Kommabylting í Skáksamband- inu”! Nafngreindi Einar S. Einarsson þar ýmsa menn sem hann taldi aöila að samsæri Alþýöubandalagsmanna og/eða kommUnista gegn sér. Pólitfkin var komin i spilið. ^^að var augljóst af samtölum við bæði skákmenn og forystu- menn skákhreyfingarinnar að þessi frétt i Dagblaðinu var mönnum mjög ofarlega i huga enda þótt ár sé liðið frá birtingu hennar. Þótti vafalitið mörgum sem Einar skyti þarna hressilega yfir markið þó svo að vitaö væri að ýmsir helstu stuðningsmenn Ingimars væru Alþýðubandalags- menn: Helgi SamUelsson, Guð- bjartur Guðmundsson, Ólafur H. Ólafsson. Gekk einn viðmælenda minna svo langt að halda þvi beinlinis fram að með birtingu þessarar fréttar hafi úrslitin i for- setakjörin verið ráðin, Einari i ó- hag. Svo fór sem fór og munaði einu atkvæöi sem áður var frá greint. Timabært er nú að segja ofurlitið frá reglum Skáksam- bands íslands varöandi forseta- og stjórnarkjör. Taflfélögin útum landið eru aðilar að sambandinu og fá þau fulltrUa á aðalfund þess samkvæmt félagatölu. Taflfélag Reykjavikur er náttúrlega lang- stærsta félagiö og þaö getur ráðiö býsna miklu um framvindu mála i krafti fjölda fulltrúa sinna. I fyrra haföi Ingimar Jónsson náð undir sig meirihluta fulltrúa Tafl- félagsins en þá var Stefán Björns- son formaður þess. NU — ári siðar — hefur Einar S. Einarsson birt i blöðum ásakanir þess efnis að varaformaöur TR, Ólafur H. Ól- afsson, hafi fyrir fulltrUakosning- arnar i fyrra stundað skipulegar Utstrikanir úr félagalistum og hafi hann þannig strikað Ut alla þá sem honum voru ekki þóknan- legir pólitiskt. Ólafur H. Ólafsson hefur svarað þessum ásökunum og harðneitað þeim en Einar hef- ur ekki dregið þær til baka. Af samtölum minum við ýmsa aðila þessa máls kom fram að flestir, ef ekki allir, sem hnútum eru ■ Dr. Ingimar Jónsson. ■ Einar S. Einarsson. ■ Guöfinnur Kjartansson. ■ Hólmsteinn Steingrimsson. ■ Hgöni Torfason. Helgi SamUelsson. kunnugir telja það fjarri öllum sanni að Ólafur hafi gert sig sek- an um þetta athæfi. „Ólafur er einlægur skákáhugamaður”, sagði einn, „og þó við séum á önd- verðum meiöi i pólitik, þá get ég fullyrt að hann myndi aldrei gera svona hlut”. Hitt viröist auðsætt að fyrir aðalfund var nokkuð um smalanir á báða bóga og til dæm- is hafa Einarsmenn haldið þvi fram að heilu skólabekkirnir sem töku þátt I skólaskák-prógrammi Scáksambandsins á Suðurlandi hafi veriö skrifaðir inni taflfélög- in. Um smalamennsku verður meira sagt hér á eftir. En sem sagt, Einar S. Einars- son var felldur úr embætti forseta Skáksambands tslans og dr. Ingi- mar Jónsson tók við. 1 viðtali sem Helgarblað Visis átti við Ingimar fyrir ári siðan sagðist hann vera kosinn til að koma á sáttum innan skákhreyfingarinnar. Það fór á annan veg. Þótt friðvænlegt hafi veriðá ytra borði hafa undir niðri verið allskonar ýfingar manna á milli og að minnsta kosti einu sinni sauð rækilega uppúr. Þaö var útaf Skáksambandi Norður- landa. Þannig er mál með vexti, að á tveggja ára fresti er haldinn aðal- fundur þessa sambands sem skáksamböndin á Norðurlöndum eiga aðild að. Skiptast löndin á um að eiga forseta Sambandsins. Arið 1979 var fundur haldinn i Noregi og var þar Einar S. Ein- arsson — sem þá var auövitað forseti Sí — kjörinn forseti þess til næstu tveggja ára, eða þartil fundur yrði haldinn hér á tslandi árið 1981 eða nú i sumar. Siðan gerist það að þegar eitt ár er liðið frá kjöri Einars fellur hann i kosningu um forseta Skáksam- bands tslands. Þá kom upp sú spurning hvort Einar væri forseti Skáksambands Norðurlanda sem einstaklingur eða sem fulltrUi Skáksambands tslands. Einar leit svo á að þetta kjör væri bundið sér sem einstaklingi og þvi væri ekkert sem kæmi i veg fyrir að hann gegndi þessu embætti á- fram. A fyrsta fundi hinnar nýju stjórnar Skáksambands tslands var rætt um þetta mál og komust menn að þeirri niðurstööu að eöli- legast væri að Einar léti af þessu embætti þar sem hann væri ekki lengur fulltrUi St en ekkert Var þó gert I málinu lengi vel. Segir dr. Ingimar Jónsson aö hann og Þor- steinn Þorsteinsson varaforseti, hafi tekið að sér aö ræðaþettamál við Einar en þeir siðanguggnað á þvi og talið þaö þýðingarlaust þar ■ Pétur Eirfksson. sem Einar myndi aldrei fallast á að segja embættinu lausu. Næst gerist það að hér á tslandi er sið- astliðið sumar haldið skákmót nórrænna grunnskólanema. Skáksamband tslands sá um framkvæmd þess móts að mestu leyti og meðal annars var gefiö Ut dálitið mótsblað. Einar S. Einars- son fór fram á þaö að fá að birta ávarp i þvi mótsblaði — sem for- seti Skáksambands Norðurlanda — en þá var þvi hafnað. Einar dó að visu ekki ráðalaus: hann fór til prentarans sem prentaði móts- blaðiö og fékk hann til að prenta ávarp sitt i dálitlum blöðungi á undan mótsblaðinu. Þvi dreifði hann siðan meðal keppenda á Norðurlandamótinu. Siðan komst málið i blöðin og gagnrýndu Ein- ar og stuðningsmenn hans stjórn Skáksambandsins harðlega fyrir gerræði. Stjórnin svaraði með þvi að fara fram á að Einar léti af embætti forseta Skáksambands Norðurlanda og var hafiö mikið strið. Einar leitaöi til skáksam- banda hinna Norðurlandanna og fékk þar fullan stuðning fyir mál- stað sinum, að hann væri i fullum rétti forseti Sambandsins og þvi yrði ekki breytt. UppUr þessum deilum sagði Þráinn Guðmunds- son, sem lengi hafði starfað i stjórn Sl, af sér. T vær hliðar eru á þessu máli einsog öðrum. Margir þeirra sem ég talaði við sögöu að þeim hefði fundist eðlilegt að Einar segði af sér embætti forseta Skáksam- bands Norðurlanda þó lögin séu harla óljós og segi varla af eða á um hvort maður sem ekki er for- seti einhvers norræna skáksam- bandsins geti gegnt embættinu. Einn sagði: „Það er að visu teó- retiskt mögulegt að sitthvor mað- urinn sé forseti SI og hins vegar Skáksambands Norðurlanda, en það getur verið óþægilegt, sér- staklega i tilfdli einsog þessu þegar menn — sem þurfa óhjá- kvæmilega að hafa mikil sam- skipti sin á milli — eru andstæð- ingar og talast i rauninni ekki við. Þvi er skiljanlegt að þeir i stjórn- inni skyldu vilja fá þetta em- bætti”. Þegar þetta mál kom fyrst upp mun dr. Ingimar hafa verið erlendis en aðaldeilurnar staðiö milli Einars og Þorsteins Þorsteinssonar, varaforseta Sí. Báðir standa þeir fast á sinu og á- tökin mögnuöust stig af stigi. Þegar Ingimar kom heim var á- kveðiö að reyna að koma Einari úr embætti en ekki var eining um þaö i stjórninni. Nokkrir munu hafa setið hjá en ekkert er mér ■ Halldór Blöndal. kunnugt um það hvort einhverjir greiddu atkvæði gegn tillögunni. Altént var „þetta rekiö ofani þá aftur” einsog fyrrgreindur heim- ildarmaður sagði og var þetta tekið til marks um hefndarhug Ingimarsmanna gegn Einari. Meðal annars sagöi Guðfinnur Kjartansson — sem þá haföi veriö kjörinn formaður Taflfélags Reykjavikur á nýjan leik — i grein sem hann skrifaöi i Morg- unblaðið að meö þessu væri stjórn Skáksambands Islands aö reka rýtinginn i bak Einars S. Einars- sonar. Eftir að þetta mál var Ur sög- unni var hljóttum Skáksamband- ið, Einar S. og Ingimar um skeiö. Eftir að aðalfundurinn fór • að nálgast hefur hins vegar orðiö vart sivaxandi hræringa og þaö er ljóst að nú er safnað liði gegn Ingimar Jónssyni. Er þetta allt- saman orðið heldur flókiö mál en verður nú reynt að gefa nokkra hugmyynd af þvi sem gengur á. 1 fyrsta lagi: hvers vegna er nú sótt gegn dr. Ingimar Jónssyni og stjórn hans? Fullyrða má aö það er ekki gert af málefnaiegum á- stæðum. Það er flestra álit að Ingimar hafi staöið sig ágætlega við stjórn Skáksambandsins, hann hafi haldið áfram með þau mál sem fyrrverandi stjórn hafði hafið og auk þess bryddað á ýms- um nýjungum. Sér i lagi mun nú- verandi stjórn hafa gert sér far um að efla skákstarfúti á landi og hafa nokkur ný skákfélög litið þar. dagsins ljós uppá siðkastið. „Þetta er alltsaman svo ómál- efnalegt”, sagði þekktur skák- maður i samtali við mig nýlega. „Erlngimar hafði verið kosinn i fyrra var það hans fyrsta verk að stiga I pontu og þakka fyrrver- andi stjórn störfsin. Siðan sagðist hann mundu halda áfram á sömu braut! Og nú fæ ég ekki séð að málefni ráöi ferðinni þegar reynt er aö fella hann sjálfan”. And- stæðingar Ingimars hafa að visu nefnt að ekki hafi enn verið stofn- að erindrekastarf innan skák- hreyfingarinnar, svo sem lofaö hafði verið, en Ingimar segir að það mál sé nú á döfinni og einn af bestu skákmönnum þjóðarinnar sagöi mér reyndar að hann væri mjög feginn þvi að þetta starf hefði enn ekki verið upp tekið, það myndi gleypa obbann af þvi fé sem Skáksambandið hefur til um- ráða en óvist hvort raunverulegt gagn væri af þ»vi. Onnur málefna- leg gagnrýni iiefur ekki veriö sett fram sem beinist að Ingimar sér- staklega, ekki fremur en þegar atlaga var gerð að Einari S. ■ Victor Korchnoi. •'? ? 19 Hvað er þá á seyöi? Frá sjónar- hóli stuðningsmanna Ingimars er um ósköp einfaldan hlut að ræða: Einar S. Einarsson og menn hans eru aö freista þess að hefna ófar- anna frá þvi i fyrra með þvi að efna til samblásturs gegn dr. Ingimar. „Það verður ekki friður i skákhreyfingunni meöan Einar S. Einarsson gengur laus,” sagði einn maður sem annars viður- kennir kosti og galla þeirra oeggja, Ingimars og Einars. Vist er að Einari og hans mönnum — en til þeirra má telja Högna Torfason og ef til vill þá Guðfinn Kjartansson og Hólmstein Stein- grimsson sem gegnir ekki lengur toppstööu i skákhreyfingunni en öllum ber saman um að hafi mikil áhrif bakvið tjöldin — að þeim liggur þungt hugur til dr. Ingi- mars og hafa raunar alls ekki neitaö þvi að þeir séu á fullri ferð til aö reyna að fella hann. Af þætti Guðfinns segir nánar siöar en það er gaman að þvi að næst- um allir sem ég ræddi við um þetta mál sáu ástæðu til þess að geta þess að bæði Einar S. Ein- arsson og Guöfinnur Kjartansson væru frá tsafirði — „metnaðar- gjarnir, kappsfullir og stundum dálitið öfgakenndir,” sagði einn viðmælandi. Nóg um það i bili. Inni þá baráttu sem nú er háð gegn dr. Ingimar hefur pólitlk blandast i sivaxandi mæli og má kannski segja að stjórnmálaskoð- anir dr. Ingimars, og félaga hans i stjórn Skáksambands Islands, séu aðalmálið i þeim slag lag sem i hönd fer. Ingimar Jónsson er vinstri-sinnaöur maður, mjög vinstri-sinnaöur, og formaöur Al- þýðubandalagsfélagsins i Kópa- vogi sem mun vera stærsta Al- þýðubandalagsfélagið á landinu. Þaö þykir mörgum slæmt i sjálfu sér. „Þaö hlýtur að teljast óæski- legt fyrir skákhreyfinguna ef i fyrirsvari fyrir henni er maöur sem er svo greinilega merktur pólitiskt,” sagði einn viðmælenda minna og annar bætti við: „Ingi- mar er óneitanlega pólitisk fi- gúra. Það hefur ef til vill áhrif á imynd skákhreyfingarinnar útá viö þó ég geti ekki séö að þaö ætti aö skipta máli.” Það sem verra er fyrir Ingimar: miklar sögur eru i gangi um tengsl hans við Sovétrikin, hann hefur verið kall- aður launaður Utsendari sovésku leyniþjónustunnar KGB og annað i þeim dúr. Þá var Ingimar um skeið formaöur Islensku friðar- nefndarinnar en sem kunnugt er eru þeir margir sem lita á þau samtök sem klúbb sérstakra Sov- étvina á tslandi. Meðan Ingimar ■ Friðrik ólafsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.