Tíminn - 23.05.1981, Side 24

Tíminn - 23.05.1981, Side 24
24 Sunnudagur 17. mai 1981 ■ Þegar Francois Mitterrand var tilkynnt siöla kvölds á kosningadag- inn 10. mai aö hann yröi næsti forseti Frakklands, brá varla fyrir sigur- brosi á þunglyndislegu krata-andliti hans. Hann vék sér aö skoðana- bróöur sinum og sagöi: „Hvaöa stjórnmálamaöur sagöi aftur: „Núna byrja fyrst erfiöieikarnir”. Þaö er ekki ólikiegt aö á stundu sigursins hafi gömul vonbrigöi veriö ofarlega i huga Mitterrands, þaö var jú ekki fyrr en i þriöju tilraun sem hann náöi kjöri. Sömu nótt geröi ævintýralegt þrumuveöur yfir Parisarborg. Þaö rigndi án afláts á glaðbeittan múginn, rósir sósialistanna týndust I vatnselgnum, þrumuveöriö yfirgnæföi fagnaöarlætin á Bastillutorginu. Hvað hefði de Gaulle sagt? ■ „Ég vona að það sé ekki Guð sem er reiður”, sagöi maður sem hafði kosið sósialista i fyrsta sinn. „Bara de Gaulle.” Gamli maðurinn hefur svosem ærna ástæðu til að reiðast. Mitterrand er fyrsti sósialistinn sem kosinn er forseti eftir eyði- merkurgöngu flokks hans i heila kynslóð. Og þrautin er ekki unnin enn. Þingkosningar i júni standa fyrir dyrum, ef að miðjukjósend- ur sem kusu hann i forsetakosn- ingunum, einkum vegna óvin- sælda Giscards, fylkjast þar um hinn nýja leiðtoga hægri aflanna, Jaques Chirac, eru sósialistar ásamt kommúnistum enn minni- hluti i þjóðþinginu. Þá er útilokað að Mitterrand hafi sömu völd og forverar hans Giscard, Pompidou og de Gaulle höfðu. Það er vafa- samt hvort honum tækist að stjórna landinu i trássi við þing- meirihluta hægri manna. Ef sósialistum og kommúnist- um tekst að vinna þingmeirihluta tekur annar vandi við. Kommún- istar er ekki hátt skrifaðir i Frakklandi þessa dagana, þeir fengu ekki nema um 15% i fyrri umferð kosninganna. En þeir eru visir til að selja sig dýrt, þeir vilja fá ráðherra i stjórn Mitterrands og að hann taki upp á arma sina einhver stefnumál þeirra. Þetta er meirihluti kjósenda ekki reiðu- búinn að samþykkja. Franski kommúnistaflokkurinn hefur litið gert til að fegra ásjónu sina sið- ustu árin eins og skoðanabræöur skráðist meö prói i lögum og stjórnmálafræði. Hann segir sjálfur: „Ég er ekki fæddur sósialisti undir þrýstingi frá hug- myndum sem voru á kreiki og at- burðum sem gerðust allt i kring- um mig.” Af þessum atburðum hafði sið- ari heimsstyrjöldin óhjákvæmi- lega mest áhrif. Það er háttur frakka að rannska feril stjórn- málamanna i striðinu. Mitter- rand fór ekki varhluta af þvi. Hann særðistogvarhandtekinn af Þjóðverjum strax árið 1940. Jafn- framt fer sögum af þvi að hann hafi verið óagaður hermaður sem hvatti til uppreisnar gegn yfir- boðurum sinum. í mat með kommúnistum 1 átján mánuði eftir handtök- una var Mitterrand á stöðugu flakki milli ýmissa fangabúða Þjóðverja. Það var einmitt i fangabúðum að Mitterrand komst fyrst i tæri við kommúnista. „Ég þekkti ekkert til kommúnista fyrr en ég deildi með þeim rúgbrauði og súpugutli i fangabúðum", skrifaðihannsiðarmeir. „Éghitti þá aftur i andspyrnuhreyfingunni og við urðum vinir. Kettir og hundar undir sama þaki.” Hann reyndi þrisvar sinnum að flýja. 1 þriðju og árangursrikustu tilrauninni komst hann aftur til Frakklands. Hann gerðist litil- sigldur opinber starfsmaður FRANCOIS HITTERAND Hálar brautir framundan - píslarganga að baki þeirra við Moskvu. Slikt háttalag vefst óhjákvæmilega fyrir Pétr- um og Pálum Frakklands. Forseti allra Frakka Vist er að háttalag Mitterrands fyrstu dagana i Elysée höllinni ræöur miklu um hvort hann fær starfsfrið eða ekki. Kannski gaf hann tóninn þegar hann hélt ræðu yfir samstarfsmönnum sinum i Georgs V hótelinu i Paris. Þá sagði hann að kjörinn forseti Frakklands gæti ekki haldið formlega fundi i aðalstöðvum sósialista. Viðtökurnar voru eilitið blandnar. Við annað tilefni sagöi hann: „Ég er ekki lengur frambjóðandi sósialista. Ég er ekki forseti þeirra. Ég er forseti allra Frakka”. Sjaldan bregst þeim stillinn Fransmönnunum. Mitterrand er engin verkalýös- hetja. Hann er upprunninn úr lægri millistétt, einn af átta börn- um stöðvarstjóra i Cognac hérað- inu. Ferill hans i háskóla var býsna glæsilegur, hann braut- undir Vichy-stjórninni (lepp- stjórn nasista). Gaullistar hafa oft reynt að gera sér mat úr þessu. Mitterrand þrætir fyrir, segir að starfið hafi hylmt yfir athafnir hans i andspyrnuhreyfingunni þar sem hugur hans var allur. Hann er þó ekki enn hafinn yfir grun gaullista um linkind i strið- inu. Það var i andspyrnuhreyfing- unni að Mitterrand hitti konu sina verðandi, Daniéle, sem þá var hjúkrunarkona. Systir hennar kynnti hana fyrir Francois, sem var i felum i ibúð systurinnar i Paris, Daniéle segir að fyrst hafi henni þótt hann ljótur, enda gekk hann um með falskt yfirskegg og þvældan hattkúf. En ástin bloss- aði upp. Hjónaband þeirra kvað hafa verið farsælt, klettur sem Mitterrand hefur alla tið byggt á. Eina samninga leiðin - stríð Stjórnmálabaráttan i Frakk- landi á 6ta áratugnum einkennd- ist mikið til af timburmönnum nýlendustefnunnar. Striðinu i Indó-Kina og uppreisninni i Alsir og niöurlægingunni sem fylgdi i kjölfariö. Þá varð sú skoðun út- breidd að Mitterrand væri maður sem sniði sér skoöanir eftir þörf- um dagsins. Mitterrand átti sæti i hvorki meira né minna en ellefu rikisstjórnum i glundroðanum sem rikti þegar fjórða lýðveldið riðaði til falls (de Gaulle tók svo við 1958 — þá hefst skeiö fimmta lýðveldisins), einkum vegna striösins i Alsir. Andstæðingar hans segja að þá hafi stjórnmála- skoðanir hans verið æði flöktandi, allt eftir þvi hvort vindarnir blésu frá þjóðernissinnum eða sósial- istum. Vist er að Mit'terrand hef- ur aldrei verið kreddufastur mað- ur. Hann kvað ekki hafa flutt eina einustu ræðu á þessum tima sem benti til mikilla afreka i framtið- inni. Helst er minnisvert að sem innanrikisráðherra sagði hann um striöið i Alsir: „Eina samn- ingaleiðin er strið”. Það hefur löngum háð Mitterrand hversu litill ræðuskörungur hann er. Sjónvarpið hefur aldrei verið hans sterka hlið, það er jafnvel talið að lakleg frammistaða hans i sjónvarpskappræðu við Giscard fyrir sjö árum hafi rænt hann for- setaembættinu i það skiptiö. „...þaö er eins og ég sé alltaf að fara i próf. Þegar ég tala opinber- lega finn ég ennþá einhvers konar mótspyrnu innra með mér.” öll þessi vandkvæði eru núorðið hluti af hæglátri og óhagganlegri imynd Mitterrands. 1959 skeði enn atburður sem rýröi álit Mitterrands sem þá var þingmaður. Bil hans var veitt eftirför eitt kvöldið og skotið á hann úr vélbyssu. Mitterrand slapp með skrekkinn, en maður sem var ákærður fyrir árásina hélt þvi fram að Mitterrand hefði leigt sig til verksins, sem liklega hefði þá átt að auka veg hans og virðingu. Málið var látið liggja i þagnargildi. Gunnar Thor. þeirra Frakka Þvi er engin furða að menn hafi velt fyrir sér hvort rétt væri að taka Mitterrand trúanlegan. Þó geta menn dáðst að þvi i fari hans hvernig hann hefur eiliflega þrjóskast við og alltaf snúið aftur i sviðsljósið þrátt fyrir ýmis áföll og niðurlag i tveimur forseta- kosningum. Við islendingar eig- um okkar Gunnar Thor, sem lifir sitt blómaskeið á áttræðisaldri, Frakkar eiga sér hliðstæðu i Mitterrand. Það er af nógu að taka þegar áföll á ferli Mitterrands eru ann- ars vegar. Hann lagöist út i von- lausa baráttu gegn landsföðurn- um de Gaulle 1965, ætlaði sér þá að vinna sér stuðning tvistraðra vinstri afla með þvi að úthrópa gamla manninn sem harðstjóra. Þetta var á blómaskeiði gaull- Mitterrand átti ekki sjens. 1968 reyndi hann ótimabæra afturkomu. Hann leit svo á að stúdentauppreisnin hefði hrakið gaullismann endanlega út i ystu myrkur. Þá var de Gaulle reynd- ar i Þýskalandi og lét sig dreyma um að koma aftur á röð og reglu meö gamaldags hervaldi — hann átti nú einu sinni Frakkland. Mitterrand ætlaði sér að fylla upp i tómarúmið á milli Gaullista og kommúnista, en þegar bylgjurn- ar lægði stóð allt i raun við það sama. Vanhugsuð og óundirbúin sjónvarpsræða gerði út um vonir Mitterrands i það skiptið. f

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.