Tíminn - 23.05.1981, Page 26
26
Knpangskaqislaíur GJ
cWj
Frá skólaskrifstofu Kópavogs
Fjölbrautanám
í Kópavogi
Skólaárið 1981 til 82 verða starfræktar eftirtaldar náms-
brautir i Vighólaskóla og Þinghólsskóla:
1. Fornám
2. Fjölmiðlabraut
3. Grunnnám á iðnsviði
4. Heilsugæslubraut
5. íþróttabraut
6. Uppeldisbraut
Sérstök athygli skal vakin á nýjum brautum það er fjöl-
miðlabraut, iþróttabraut og grunnnám á iðnsviði.
Umsóknir þurfa að berast ofangreindum skólum eða
Skólaskrifstofu Kópavogs Digranesvegi 12 i síðasta lagi 5.
JUNl N.K.
Umsóknareyðublöð og-nánari upplýsingar um námið fást i
skólunum eða á skólaskrifstofunni.
Afriteða ljósrit af siðasta prófskirteini þarf að fylgja með
umsókninni.
Skólafulltrúinn i Kópavogi.
c
Utboð
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i
samsetningu og reisingu stálturna á
hluta af 220 kv háspennulinu milli
Hrauneyjafoss og Brennimels (Hraun-
eyjafosslinu 1), i samræmi við útboðsgögn
427.
Sá hluti linunnar sem hér um ræðir nær
frá Hvitá að Sköflungi, samtals um 31 km.
Á þessum hluta verða 88 stagaðir turnar
og 3 hornturnar. Verklok eru 15.
september 1981.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu
Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, 108
Reykjavik, gegn skilatryggingu að
upphæð kr. 300.-
Tilboðum skal skila á skrifstofu
Landsvirkjunar fyrir kl. 11:00 föstudaginn
12. júni 1981, en þá verða tilboðin opnuð i
viðurvist bjóðenda.
Hjúkrunarfræðingar
Reykjavíkurdeild
félagsfundur verður haldinn mánudaginn
25. mai 1981 kl. 20.00 stundvislega að Hótel
Sögu Átthagasal.
Fundarefni: Kjaramál.
Mætum öll. Stjórnin.
+
Rauðakrossdeild
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
heldur aðalfund laugardaginn 30. þ.m. kl.
10.00 f.h. i lesstofu Flataskóla.
Venjuleg aðalfundarstörf. Fólk er hvatt til
að mæta.
Stjórnin
Sunnudagur 17.maf 1981
Jafntefli
— í leik Þórs
og UBK
„Ég er mjög óánægður með að
ná ekki báðum stigunum, við átt-
um betri tækifæri en klúðruðum
þeim illa, en annars er ég ánægð-
ur með leikinn” sagði Arni
Stefánsson fyrirliði nýliða Þórs
eftir að leik þeirra við Breiðablik
i 1, deildinni i knattspyrnu lauk
með jafntefli 1-1 á Þórsvellinum á
Akureyri í gærkvöldi.
Er 15 min. voru liðnar af fyrri
hálfleik þá heyrðist einn
stuðningsmaður Þórs kalla, „á-
fram Þór, KA er með tvö stig” og
það var eins og við manninn mælt
Þórsarar fóru i gang og voru þeir
betri aðilinn það sem eftir var af
fyrri hálfleik.
Litlu munaði að þeim tækist að
skora mark, en Tómas Tómasson
bjargaði á marklinu.
Er 10 min. voru liðnar af siðari
hálfleik áttu Þórsarar að fá vita-
spyrnu, Guðmundur Ásgeirsson
markvörður Breiðabliks var með
boltann og Jón Lárusson
„dekkaði” hann.
Guðmundur kallaði til nafna
sins Haraldssonar linuvarðar og
vildi fá dæmt á Jón, en er það bar
ekki árangur rak hann boltann i
Jón með þeim afleiðingum að
hann datt.
Guðmundur Sigurbjörnsson
dómari var i slæmri aðstöðu til
þess að sjá þetta en nafni hans
Haraldsson sagði eftir leikinn,
„það eina sem linuverðir dæma á
innan vitateigsins er hendi”.
Stuttu siðar kom mark Þórs,
Jón Lárusson lék upp vinstri
kantinn og gaf fyrir markið þar
sem Guðmundur Skarphéðinsson
var og skoraði hann með föstu
skoti.
Er 15 min. voru till leiksloka
jöfnuðu Blikarnir og var Sigurjón
Kristjánsson þar að verki.
GK-Akureyri/röp-.
Claas
heyhleðsluvagnar
— Sterkbyggðir og liprir
— Flothjólbarðar —
— Stillanlegt dráttarbeizli
— 7 hnífar fylgja Verð kr 42.2oo.-
Tilbúnir til afgreiðslu strax.
12.200 kr. útborgun og eftirst.
á 12 mánuðum.
Kaupfélögin og
Z>/u£££a/itéé£a/t A/
SUDURLANDSBRAUT 3? • REYKJAVIK • SIMI 86500 •
Auglýsing
um notkun aukins afgreiðslutíma
(valtíma) verzlana í Reykjavík
Almennur agreiðslutimi (grunntimi) er:
Mánudaga til föstudaga frá kl. 8 — 18
Laugar daga f rá kl. 9 —12
Þá er óheimilt að hafa verslanir opnar á
laugardögum frá 1. júni til 1. september.
Valtimi:
Auk grunntima er verslunum heimilt að
hafa opið i allt að 8 stundir á viku frá kl.
18.00 til kl. 22.00 mánudaga til föstudaga,
þó aldrei fleiri en 2 daga i viku.
Verslanir, sem nýta sér framangreinda
heimild, skulu tilkynna borgaryfirvöld-
um, hvernig heimildin muni notuð og aug-
lýsa það á áberandi stað i versluninni.
Með eins mánaðar fyrirvara skal á sama
hátt tilkynna um breytingar, sem gerðar
eru á notkun heimildarinnar.
Brot á reglum um notkun valtimans varða
niðurfellingu á heimild til notkunar val-
tima i 3-12 mánuði.
Eyðublöð fyrir tilkynningar um notkun
aukins afgreiðslutima liggja frammi á
borgarskrifstofunum, Austurstræti 16, og
hjá Kaupmannasamtökunum, Marargötu
2.
Samstarfsnefnd um
afgreiðslutima verzlana i Reykjavik.
Til sölu
Gaskútar og
súrkútar
Upplýsingar i sima 81711 frá kl: 9-5.