Tíminn - 15.07.1981, Síða 8

Tíminn - 15.07.1981, Síða 8
8 MiOvikudagur 15. jiili 1981 utgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Af- greiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarins- son, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Olafsson. Fréttastjöri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefánsdóttir, Egiil Helgason, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir). Otlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elín Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausa- sölu 4.00. Askriftargjaldá mánuði: kr. 80.00 — Prentun: Blaöaprent h.f. Viðskiptin við álhringinn ■ Það er komið greinilega i ljós, að Hjörleifur Guttormsson ráðherra mátti ekki draga að láta fara fram itarlega athugun á viðskiptum sviss- neska álhringsins, Alusuisse, við dótturfyrirtæki þess hér, Islenska álfélagið hf. Þær niðurstöður, sem nú liggja fyrir, virðast gefa ótvirætt til kynna, að þessi viðskipti hafi að ýmsu leyti farið fram á annan hátt en samræmist þeim samningum, sem gerðir voru við þessa að- ila á árinu 1966. Enn er þó ekki hægt að staðhæfa hversu mikið frávikið kann að vera frá samning- um. Fullnaðarsvör Alusuisse liggja enn ekki fyr- ir, en sennilega telur það sig geta gert einhverjar athugasemdir við umræddar skýrslur. Svar Alusuisse mun þó ekki geta hnekkt þvi, að samn- ingar hafa verið vanefndir. Vegna þess að umræður hljóta að verða miklar um þetta mál, er mikilvægt, að þær byggist ekki á sögusögnum, sem geta verið rangar. Það er þvi eðlileg krafa, að umræddar skýrslur verði birtar eða fullnægjandi útdráttur úr þeim. Almenning- ur verður þannig að geta gert sér nokkurn veginn ljóst um hvað málið snýst. Þetta er ekki i fyrsta sinn, sem það kemur i ljós, að viðskipti Alusuisse og Álfélagsins reynast önnur en samningar gera ráð fyrir. Þetta varð einnig uppvist við endurskoðun, sem var gerð ár- ið 1975. Alusuisse féllst þá á leiðréttingu og ýms- ar lagfæringar. Siðan mun athugun á viðskiptum Alusuisse og Álfélagsins ekki hafa farið fram fyrr en nú, enda þótt íslendingar geti óskað eftir árlegri endur- skoðun samkvæmt álsamningunum. Reynslan sýnir, að ekki hefði verið vanþörf á árlegri endur- skoðun. 1 framhaldi af endurskoðuninni nú munu að sjálfsögðu hefjast viðræður við Alusuisse og is- lensk stjórnarvöld um leiðréttingu á skattgreiðsl- um i samræmi við fengnar upplýsingar. Miklu skiptir, eins og iðnaðarmálaráðherra hefur tekið fram, að i þessu máli náist sem viðtækust islensk samstaða. Viðræðurnar við Alusuisse þurfa að snúast um fleira en skattgreiðslurnar. Þær breytingar, sem orðið hafa á orkumálum heimsins siðan 1966, þegar álsamningurinn var gerður, eru slikar, að það er eðlileg islensk krafa, að hækkun verði á orkuverðinu, sem Álfélagið greiðir. Þess verður að vænta,aðAlusuisseviðurkenni þessa staðreynd og leiðréttingar fáist fram i samræmi við það. Af hálfu íslendinga hefur það dregist óeðlilega lengi að taka orkuverðsmálið upp. Alusuisse hef- ur notið góðs hagnaðar vegna þess. Það má læra af þessum málum öllum að gæta þarf mikillar varúðar i samningum og skiptum við erlenda auðhringi. íslendingar eru hér reynslunni rikari. Það verður að vera stefna Is- lendinga að eiga sjálfir þau fyrirtæki, sem starfa i landinu. Þ.Þ. Jón Helgason, ritstjóri Ég hitti hann fyrst fyrir riím- um þrjátíu árum á blaði sínu Timanum. A þeim dögum gekk ég þar stundum um garða sem hlaupastrákur einhvers konar hugsjóna. Ég held að hann hafi talið sig þar verkamann í vfn- garði svipaðra skoðana. Ég minnist þess ekki frá þess- um árum að þeir islenskir blaöa- menn, sem ég þá kynntist, væru biinir að uppgötva það aö starf þeirra væri i sjálfu sér hugsjón list eða vfsindi, heldur litu þeir á blaðamennskuna sem tæki er unnt væri að beita i þágu hug- sjóna. Ég held að við tveir, sem þarna hittumst, höfum þá átt svipaðan draum. Var það ekki draumurinn um fegurra mannlif? Hann reis af þeirri skoðun að maðurinn væri þess megnugur að móta örlög sin — breyta heiminum til hins betra. Ég held að viö höfum trúað á rétt allra manna til hamingju, friðar og farsældar — á samvinnu, jöfn- uð og réttlæti. Ég man ekki hvort við ræddum nokkurn tfma, hvað væri góö blaðamennska. Ég held við höf- um tníað því að það væri góð blaðamennska að reyna að stuðla að sköpun heims þar sem þessi lifsgildi væru f heiðri höfð. f tfma skildi okkur aö hálfur mannsaldur — i rilmi ein heiði. Þó var það vi'st þessi heiði — Botnsheiðin — sem tengdi okkur fyrstog sibar. Hann ólst upp und- ir suöurbrekkum hennar, ég norðurbrekkum . Við þekktum hana báðir sem smalastrákar: i frosti og frerum, i þoku og silld, i sólglóð bjartra morgna er dögg skeiná stráum og ljós störin i fló- um hennar sveigðist fyrir and- vara af Súlum eða kælu norðan af Oki. Hann ólst upp i Stóra-Botni sunnan heiðar, ai var i móðurætt frá Efstabæ iSkorradal, af Efsta- bæjarætt, óbrigöulustu gáfu- mannaætt Borgarf jarðardala sem alið hefur þessum sveitum fremsta orðlistarmenn I ljóðum og iausu máli, heimsfræga stærð- fræöinga, visindamenn ýmissa greina, lækna og þingskörunga. Þegar ég lit á lifshlaup hans sé ég að ungur hefur hann fariö á al- þýðuskóla Þingeyinga aö Laug- um i Reykjadal og siðan I Sam- vinnuskólann. RUmlega tvi'tugur gerist hann blaðamaður og var það æ siðan, ritstjóri tveggja blaða, Frjálsrar þjóðar og Tlm- ans, og ritstjóri a.m.k. tveggja tímarita, Dvalar og Sunnudags- blaös Tímans, er hann mótaöi mjög að si'num smekk meðan það var og hét. Svo erilssöm ritstörf og ritstjóm væru ærið ævistarf en þó er minnst talið af verkum Jóns. Ef blaðið er i bókaskrám sést nafn hans sem þýðanda 38 bóka og kynni þó eitthvað að vera van- talið. Sumar þessara báka — einkum frá fyrstu árunum — eru skáld- sögur, sem nU eru kenndar viö af- þreyingu, aðrar eru eftir merkis- höfunda evrópskrar og skandí- naviskrar sagnageröar eins og Alexandre Dumas, Leo Tolstoj, Alberto Moravia, Nordahl Grieg og Vilhelm Moberg. Sérstaka at- hygli mega vekja þýðingar Jóns á bókum manna af gerð hanssjálfs, ritfærra garpa og náttUruskoðara eins og Knud Rasmussens, Peter Freuchens og Thor Heyerdahls. NU mætti ætla að drepið hefði veriö á sem næst tvigilt dagsverk skrifandi manns. Enég hef fýrir satt að Jón væri alla ævi mesti nátthrafn. Ég hygg aö frum- samdar bækur sinar hafi hann einatt fest á blaö meðan aðrir sváfu, ýmist nær óttu meöan þetta sandkorn, sem viö byggj- um, geystist gegnum skammdeg- ismyrkrið eða það laugaðist heimsskautaljósi vornátta. Efnislega mætti skipta frum- sömdum verkum Jóns i' þrjá flokka og þeir gætu haft að yfir- skrift helga þrenning hvers góðs Islendings: land, þjóö og tunga. Hann samdi ritið Borgarfjarð- arsýsla sunnan Skarðsheiðar, lands- og náttUrulýsingu fóstur- byggða sinna er kom Ut sem Ar- bók Ferðafélags tsiands (1950). Um sögu íslenskrar þjóðar hef- ur hann margt skrifað. Alkunn og vinsæl eru rit hans öldin átjánda I - II (1960 - 61), öldin sautjánda (1966) og öldin sextánda (1980), þar sem frá at- burðum þessara tima er sagt svo sem vænta mætti að þeir hefðu komið fyrir sjónir blaðamanni með reynslu og áhugasvið Jóns. önnur sagnfræöileg rit hans eru Tyrkjaránið (1963) og Hundrað ár i Borgarnesi (1967). A mörkum sagnfræöi og skáld- skapar standa þær bækur sem hann hefur e.t.v. orðið frægastur fyrirog þar sem list hans kann að risa hæst: íslenskt mannlifl - IV (1958 - 62) og Vér islands börn I - III (1968 - 70). Sagt hefur verið um þessi rit aö efnisöflun til þeirra væri að hætti vísindamanns en Urvinnslan listamanns. Aðdáunarvert er um þessa þætti Jöns hversu skáldleg sýn hans og listræn tök gæöa mannleg örlög frá liðinni tið lifi og lit, holdi og blóði, án þess hug- arflug ofbjóði staðreyndum. Það lýsir lfka höfundi þáttanna að oft eru viðfangsefni þeirra lif og ör- lög olnbogabarna og smælingja ellegar manna er striddu gegn straumi og frásögnin ávallt yljuð þeirri mennsku og réttlætiskennd er voru aðal hans. Nærri þessum þáttum að frá- sagnaraðferð og byggingu eru heimildasögurnar Orð skulu standa (1971) og Þrettán rifur of- an I hvatt (1972). Loks liggjasvo eftir Jón fjögur smásagnasöfn: Maðkar I mys- unni (1970), Steinar I brauðinu (1975), Orðspor á götu (1977) og Rautt i sárið (1978). Það er athyglisvert um þessar sögur Jóns, sem áður haföi i skáldlegri sagnfræði iðkað breið- an epfskan stil og seint tekið að senda frá sér smásögur, hversu honum lánast æ betur að temja sér hið knappa form þessarar bókm enntagreinar. 1 fyrsta safninu er frásagnarað- ferðin breiöust og skáldsöguleg- ust en f hinu síðasta birtust t.a.m. sögur eins og „Bréf frá Bœton” og „PUpa i' sálinni” þar sem hon- um tekst að hlita þeirri listrænu kröfu er gamli Goethe orðaði efn- islega á þá leið að i góðri smásögu bæri höfundi að láta einn óheyrð- an atburðvarpa ljósiá vitt svið og mikil örlög. Þegar við skoðum þetta fjöl- þætta æviverk sjáum við að Jón var a.m.k. þriggja manna maki: orðslyngur blaðamaður — glögg- skyggn sagnfræðingur — listfeng- ur rithöfundur. t öllum þessum greinum náði hann langt og stóð sums staðar i fremstu röð. Hefði slikur maður átt að ein- beita sér meir að einu efni i þeim vændum að ná þar enn lengra? Sjálf sköpum við okkur örlög. Við erum það sem við gerum. At- hafnir okkar og verk eru lif okk- ar. í þeim einum lifum við. 1 verkum Jóns birtist okkur óvenjulega fjölhæfur, listfengur og mennskur höfundur, gæddur drengilegri réttlætiskennd, einatt yljaðri launkárri kimni. Þannig þekktiég hann b'ka sem mann. Ég á honum að þakka langa vináttu, hlýhug og örvun við ýmis tæki- færi. Samkenni verka hans allra er ást hans og valdá islenskri tungu. Á þessari tið bögubósaháttar og flatneskju i rithætti og framsetn- ingu gerði hann sér einn fárra ljósa grein fyrir ábyrgð sinni sem blaðamanns og rithöfundar i mót- un málkenndar almennings. Hann vissi að iðkun máls verð- ur aldrei visindi heldur er komin í undir nenningu, smekkvlsi og listfengi. Þar ber hann hátt i stil sinum, máli sinu, ritverkum sin- um, sem eru hann sjálfur. Enn ris græn heiðin við Stóra- Botn slungin hreinni dögg á björt- um nóttum, en sá, sem þar nam mál móður sinnar og festi sfðar i ljósi þeirra á blað af meiri list en flestir menn, er horfinn inn i þá mildu, draumlausu nótt er allra bföur. gygjjjH skorri Höskuldsson t Ég var staddur á þeim stað austanfjalls, þar sem þjóðin fórn- aði á altari framfara og hagsæld- ar mikilli náttúrufegurð og stór- söngvurum bernsku minnar, þremur unaöslegum fossum. Tindrandi bjartur og hlýr sumar- dagur var að kvöldi kominn. Ég sat við glugga og virti fyrir mér uppblástur og ömurleg rofabörð i hliðum jarðar einnar, þar sem fjölmenn æskulýðssamtök hafa ráðið rikjum og leikið sér á hverju sumri nær þvi hálfan fimmta tug ára. Hefði veriö kapp- kostaö þar á bæ aö innræta ungu fólki ættjarðarást i verki, mundu hliðarnar þær arna hafa boriö fyrir löngu samfelldan skrúöa fjölbreytilegs gróöurs með lauf- þyt og angan i staö blásinna mela og siminnkandi baröa. En sem ég hugleiddi þetta viö gluggann, barst mér skyndilega sú harma- fregn að Jón Helgason ritstjóri væri látinn. Þegar við ræddumst við siðast fyrir nokkrum vikum, kvaðst hann hafa veriö aö gróöur- setja trjáplöntur i æskustöðvum sinum i Borgarfiröi, en þar átti hann ibúðarhús I smiðum og gerði ráð fyrir að flytjast þangað á miðju sumri og hætta ritstjórnar- störfum að fullu. Ég samgladdist honum, baö hann fyrir hvern mun að snúa sér einvörðungu að djúp- rættustu hugðarefnum sinum, honum væri mál að hætta að vinna nótt sem nýtan dag, enda heföi hann um þessar mundir byrjað að klifrast á sextugasta og áttunda aldursáriö. Nú heyri ég i útvarpsfréttum, aö hann sé allur. Og mig setur hljóðan. I daglegu tali var starfsheiti einatt látiö fylgja nafni Jóns

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.