Tíminn - 15.07.1981, Síða 13

Tíminn - 15.07.1981, Síða 13
Mi&vikudagur 15. júli 1981 Evrópumótið í golfi í Grafarholti: „Völlurirm ekki eins og á Spáni” „en við gerum það sem f okkar valdi er, til að bjóða þeim upp á það besta’% segir Gunnar Torfason framkvæmdastj. mótsins ■ E vrópumeistaramót unglinga i golfi veröur haldið á Grafar- holtsvellinum i næstu viku og er þetta í fyrsta skipti sem slikt mót er haldið hér á landi. Tíminn ræddi i gær við Gunnar Torfason sem er framkvæ mdastjóri móts- ins og spurði hann fyrst hvernig undirbdningur gengi. „Við verðum að segja það að við erum á þessari breiddargráðu veraldarinnar, og völlurinn er náttUrlega ekki eins og golfvöll- ur á Spáni. Völlurinn I Grafarholti hefur aldrei verið eins góður og hann er nUna og ég held að við komum til með að halda ágætis mót á honum, og við gerum það sem í okkar valdi stendur til þess að bjóða þeim upp á það besta sem hægt er við þessar aðstæð- ur.” Hvað eru margar þjóðir sem taka þátt í Evrópumótinu? „Það eru 14 þjóðir sem mæta til leiks, langflestar þjóðirnar koma til landsins á laugardaginn og sunnudaginn. Mótið sjálft byrjar á miðvikudaginn i næstu viku, en mánudagurinn og þriðjudagurinn eru æfingadagar.” Hvernig er fyrirkomuiagið á þessu móti? „Tvo fyrstu dagana er keppt f svokölluðum höggleik, liðunum er raðað i tvo riðla eftir það sem siðan keppa innbyrðis i holu- keppni, þannig fást úrslitin i mót- inu ekki fyrr en á sunnudegin- um.” Hvernig hefur okkur gengið I Evrópumótunum ? „Siðasta ár-var mótið haldið i Dusseldorf i Þýskalandi og þar lentum við i 11. sæti, þá kepptu einnig 14 þjóðir. Evrópumótið hefur verið haldið árlega en i Skotlandi i siðasta mánuði var ákveðið að framvegis skyldi mót- ið verða haldið annað hvert ár. Sigurvegararnir á Evrópumótinu i Diisseldorf voru Sviar.” Hverjir heldur þú að möguleik- ar okkar séu á þessu móti? „Við erum með svipað lið og á mótinu i fyrra, en við erum óneit- anlega að keppa á heimavelli, við reiknum máj þvi að strákarnir njóti þess i einhverju að viö þekkjum betur aðstæður hérna á vellinum. Af unglingaliðum að vera þá er þaö alls ekki slæmt að vera i kringum tiunda sæti, við getum ekki farið fram á meira, eins litið og við höfum getað gert fyrir unglingana. Það er mikill kostnaður að halda svona mót, þó við sleppum vel vegna þess að þjóðirnar borga sitt ippihald sjálfar en i staðinn greiöa þjóð- imar engin þátttökugjöld á mót- inu. Þaö hefur verið unnið mikið starf að undirbúa slikt mót, þetta erfyrstaEvrópumótið sem haldið er hérna, þó þetta sé kallað ung- lingamót þá eru þetta fullorðnir menn allt að 22 ára. Okkur finnst gaman að þvi að það skuli koma i hlut golfiþróttarinnar að halda fyrsta E vrópumótið sem haldið er hér á landi.” röp—. Dýri leikur að nýju með Vai f kvöld. Valur KR? Dýri og Guðmundur leika ad nýju með Val á Laugardals- velli í kvöld ■ 1. deildarkeppnin hefst að nýju með leik KR og Valsá Laugardalsvellinum í kvöld/ og hefst leikurinn kl. 20. Ekkert hefur verið leikið í deildinni í rúma viku og ættu félögin því að koma hress til leiks að nýju. Leikurinn ikvöld verður örugg- lega hörkuleikur þó staða félag- anna i deildinni ætti að benda til annars. Valsmenn eru i fjórða sæti með 11 stig og eigi þeir að eiga möguleika á að verja ís- landsmeistaratitilinn þá mega þeir vart við þvi að tapa i kvöld. Jafnmikið er I húfi fyrir KR-inga, en þvi miður þá er staöa þeirra öfugu megin við Val en þeir eru i bullandi fallhættu. KR hefur aö- eins hlotiö 6 stig og er i næst neösta sæti i deildinni og tap i kvöld þýöir að ennfærastdökk ský yfir vesturbæinn. Óvist er hvort Elias Guðmundsson og Börkur leiki með KR i kvöld, en þeir hafa verið meiddir, en Valsmenn mæta að öllum likindum meö sitt sterkasta lið. Dýri Guömundsson og Guðmundur Þorbjörnsson munu vera búnir að ná sér eftir meiðslin og leika þvi með I kvöld. röp—. IGyifi Kristinsson ungiingalandsliðsmaður I golfi. Tfmamynd EHa. Stórsigur hjá Fylki sigruðu Hauka 4-1 í 2. deild í gærkvöldi ■ „Þessi leikur var ekkert sérstakur knattspyrnulega séð. Okkur tókst að komast yfir 2-0 og þannig stóð i hálfleik. En Haukarnir ná að skora strax á fyrstu minútum síðari hálfleiks og þá gerðu Fylkismenn sig seka um mikil mistök „sagði Lárus Loftsson þjálfari Fylkis eftir að Fylkir hafði sigrað Hauka 4-1 í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Laugar- dalsvelli i gærkvöld. Haukarnir sóttu stift eftir að þeir höfðu náð að minnka muninn en tókst ekki að bæta við marki. Ómar Egilsson skoraði siðan þriðja mark Fylkis og þá var eins og allur vindur væri úr Haukun- um og Ómar bætti siðan fjórða markinu við úr vitaspyrnu rétt fyrir leikslok. ómar skoraði einnig fyrsta mark Fylkis og skoraöi Ómar þvi „hat trick”, en Anton Jakobsson skoraði annað mark Fylkis. Það var Björn Jóns- son sem skoraði mark Hauka. Grótta sterkari sigrudu Óðin 2-1 í 3. deild í gær ■ óðinn og Grótta léku f a-riðli 3. deildar i gærkvöldi og lauk leikn- um með 2-1 sigri Gróttu. Þrátt fyrir það voru það ÓðinsmHin sem skoruðu fyrsta mark leiksins og var Björn Björnsson þar að verki meö þrumuskoti utan úr vltateig. Stuttu siðar fengu Gróttumenn vítaspyrnu, en Axel Friðriksson skaut framhjá. Axel bætti siðan fyrir vitið er hann skoraöi rétt undir lok fyrri hálf- leiks. Það var ekki fyrr en um n iöjan seinni hálfleik að sigur- m.irk Gróttu kom. Varnarmaður Óðms ætlaði að gefa á markvörð- inn »n svo illa tókst til aö hann skaut i eigið mark og Grótta stóð uppi sem sigurvegari.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.