Tíminn - 21.07.1981, Qupperneq 2

Tíminn - 21.07.1981, Qupperneq 2
2 Þriðjudagur 21. júli 1981 Pifa bæði um brjóst og mjaðmir ■ Sko, pifan sveiflast um mjaðmirnar og felur aukakilóin. .Afslöppunar-samfestingur’ Þið getid verið stoltir af mér sagði Maurice við vini sína, en þeir bara hlógu að honum ■ Maurice Guegen var álitinn grobbari, sem ekki væri mark takandi á. Þvi var það, að þegar hann sagði vinum sinum, að hann hygöist taka sér fyrir hendur alveg sér- stakt verkefni, sem þeir gætu veriö stoltir af hon- um fyrir, tóku þeir hann ekki alvarlega. En Maurice lét ekki sitja við orðin tóm. Hann kom sér fyrir i rúmgóöum sýningarsalarkynnum i heimaborg sinni, Paris, og hóf að byggja spila- borg. Þeir, sem reynt hafa aö byggja spilaborg, vita að það er mikið vandaverk og ekki á hvers manns færi. En Maurice gat sýnt vinum sinum, að hann er afburöamaöur i grein- inni. Honum sækist byggingin vel, svo sem sjá má á myndinni, og virðist ekki ætla að hætta fyrr en hann er kominn upp i rjáfur sýningar- salarins. Einvfgi aldarinnar? ■ t villta vestrinu i Wyoming stóðu tveir herramenn á áttræðis- aldri i sifelldum ófriði og rifrildi yfir limgerðið, sem aðskildi hús þeirra, en þeir höfðu veriö ná- grannar áratugum saman. Fyrir 30 árum kom upp ósætti milli þeirra, sem sifellt versnaði og nú var svo komið, að þeim kom saman um það eitt, að svona gæti þetta ekki gengiö lengur, nú yrðu þeir að gera út um sin mál meö einvigi. Clive Cooper, 74 ára, kom til móts viö ná- granna sinn, Richard Nimblette, 77 ára, með forna skammbyssu og Richard hafði sömuleiðis grafið upp gamla skammbyssu. Þeir stóðu nú þarna sinn hvorum megin við limgerðið og hleyptu af, og skutu sex skotum hvor. Það voru ekki nema nokkrir metrar milli þeirra, en ekkert skotanna hitti. Ná- grannarnir hringdu á lög- regluna og hún kom sam- stundis á vettvang. Farið var aö huga aö meiöslum kappanna, en þaö kom þá i ljós, að þeir voru ósærðir, þvi eins og áður segir hittu þeir ekki 1 lögregluskýrslunni er það skýrt með þvi, aö Nimblett, 77 ára, sér afar illa, einkum sér hann illa frá sér, og Cooper, sem er 74 ára, verður að nota staf til að geta staöiö nokkurn veginn stööugur, svo hon- um gekk illa að miða by.ssunni. Þegar gömlu mennirnir höfðu hvor um sig greitt 100 dollara i sekt, voru þeir spurðir hvers vegna þeir heföu orðið ósáttir og um hvaö deilan hefði staðið, — en þá mundu þeir það hvorugur. Neyðarkall í midri Róm ■ A götu i Róm fannst miði með krotaðri hjalparbeiðni svohljóðandi: ,,Hjálp! Konan min heldur mér innilokuðum sem fanga. Hún lemur mig og pinir.” Lögreglan var fengin til að rannsaka rriólift og fann þá Cesare Flotentini innilokaðan i ibúö, sem haföi verið heimili hans og konu hans. Hann var meö glóöarauga á báöum augum, svangur og illa haldinn. Hann sagöi lögreglunni aö konan hans, Angela, 51 árs heföi ásakaö sig íyrir framhjáhald. Ekki hefur enn verið gefiö upp neitt um sannleiksgildi þeirrar ásökunar, — en Angela veröur nú aö horfast i augu viö þaö, aö hún er ásökuö fyrir mannrán og likamsárás! 'Mv: 'JÆl’: *■. „«V. ■ ;.vav; •jjMi . , l f -. T f » j jjm? : , ■ „mv . — * • 'jluz:. 'xW, *’5 - ■ ‘v " - . V'” ■ yjaM&y&r Sundföt með pífum ■ í sumar hefur „pífu-tíska" breiðst út eins og eldur í sinu. Blússur, kjólar og pils hafa verið skreytt pífum og nú er meira að segja farið að nota pífur á sundfötin. Bæði heili sundbolurinn, sem er mjög klæðilegur og bikini-sundfötin eru með pífum um mjaðmir og brjóst. —Eftir sundið, segir tískuteiknarinn, er gott ið spóka sig í leóparda- munstruðum samfest- ingi. Líklega er þó heppi- legra að vera í svolítið hentugri skóm,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.