Tíminn - 21.07.1981, Blaðsíða 23

Tíminn - 21.07.1981, Blaðsíða 23
Þriöjudagur 21. júli 1981 flokkstilkynningar Sumarferð Framsoknarlélögin á Vestfjörðum efna til helgarferðar með Djúpbátnum dagana 25.-26. júli að Flæð- areyri i Jökulfjörðum. Farið verður fra ísaíirði kl. 13. og þaðan að Bæjum á Snæfjallaströnd og svo úteftir. Kvöldvaka veröur og nikkan þanin. Kunnugur leiðsögumaöur verður með i förinni. Þátttakendur hafi meö sér viðlegubúnað og nesti. Þáttökugjald frá isafirði eða Bæjum er 150nýkr. fyrir fullorðna en 75 kr. fyrir börn. Leitið frekari upplýsinga hjá umboösmönnum en þeir eru: Gunnsteinn Gislason Norðurfirði, Bjarni Guðmundsson Bæ, Karl Loftsson Hólmavik, Karl Aðalsteinsson Smáhömrum, Sigurður Jónsson Felli, Bjarni Eysteinsson Bræðrabrekku, Jónas R. Jónsson Melum, Halldór B. Gunnarsson Króksfjarðarnesi, P innur Kristjánsson Skerðingsstöðum, Kristinn Bergsveinsson Gufudal, Ragnar Guðmundsson Brjáns- læk, Ossur Guðbjartsson Láganúpi, Sigurgeir Magnússon Patreksfirði, Svavar Júliusson Patreksfirði, Ölafur Þóröarson 1 álknafirði, Magnús Björnsson Bildudal, Ölafur V. Þórðarson Þingeyri, Guðmundur Hagalinsson Hrauni, Björgmundur Guðmundsson Kirkjubóli, Gunnlaugur Finnsson Hvilft Erling Auð- unsson Súeandafirði, Guðmundur M. Kristjánsson Bolungarvik, örnólfur Guðmundsson Bolungarvik, Friðgeir Hrólfsson ísafirði, Magni Guðmundsson Isafirði, Heiðar Guðbrandsson Súðavik, Sigurjón’ Samúelsson Hrafnabjörgum, Sigmundur Sigmundsson Látrum, Jóna Ingólfsdóttir Rauðamýri, Páli Jó- hannsson Bæjum. Þetta verður ógleymanleg helgi. Kjördæmasambandið. Fjölmennum. Framsóknarfélag Borgarfjarðarsýslu efnir til helgarheimsóknar til Vestmannaeyja 4. sept. n.k. ef nægileg þátttaka fæst. Fararstjóri verður Trausti Eyjólfsson, kennari við Bændaskólann á Hvann- eyri og skráir hann ferðafélaga i sima 7019. Sumarferð Framsóknarfélag- anna i Reykjavik Farið verður 26. júli. Lagt verður af stað frá Rauðarárstig 18 kl. 8.00 f.h. Farmiðasalan er i fullum gangi. Skrifstofan Rauðarárstig 18 er opin daglega frá kl. 9 - 17. Siminn á skrif- stofunni er 24480. Verð er kr. 130 fyrir full- orðna en kr. 85 fyrir börn Gtivera gönguferðir og leikir. Eitthvað fyrir alia. Vaidir leiösögu- menn i hverjum bil. Fararstjórar og leiðsögumenn verða: AgústÞorvaldsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Haraldur Ólafsson, Hrólfur Halldórsson, Jón Gislason, Jón Snæbjörnsson, Ólafur Jóhannesson, Þórarinn Sigurjónsson. Aöalfararstjóri verður Þórunn Þórðar- dóttir hjá Ferðafélagi íslands. Ekið verður: Reykjavik-Þingvellir-Kaldidalur-Hlöðuvellir-Lamba- hraun-Mosaskarð-Kjalvegur-Haukadalur-Skálholt-Reykjavik. Fólk er minnt á að taka meö sér nesti og góðan ferðafatnaö. Ath. Allt ferðafólk er velkomið i þessa ferð. Ferðanefndin Sumarferð Suðurnes Ákveðið hefur verið að efna til sumarferðar 26. júli i samfloti við Framsóknarfélögin i Reykjavik. (sjá nánari ferðatilhögun i auglýsingu þeirra). Þátttaka tilkynnist i sima 2840. Svæðisráð framsóknarmanna á Suðurnesjum. Leiðarþing Alþingismennirnir Steingrimur Hermannsson og ólafur Þ. Þórðarson halda leiðarþing á eftirtöldum stöðum: 1 Félagsheimilinu i Arneshreppi fimmtudaginn 23. júli kl. 21. A Borðeyri föstudaginn 24. júli kl. 14. Allir velkomnir. Byrjendur fjolskyldu fra 9 20” kr. 1350 24” kr. 1497 20” kr. 975,- 16” kr. 1025.- 24” kr. 1105 26” kr. 1324 Reykjavíkurvegi 60 Póstsendum Sími 54487 Sími 52887 Musik & Sport eftir helgina Geðrannsókn á Sunnlendingum til að reikna brú á ölfusá ■ Helgin gekk i garðað venju með ýlfrandi vindi og stórum köldum regndropum, og hvergi var vist viðunandi af- drep á landinu, ef marka mdtti veðurlýsingu veðurstof- unnar. Þetta var þvi innisetu- helgi, nema hjá alhraustustu ferðagörpum, og hjá þeim sem gleymdu að hlusta á veör- ið. Aðal umræðuefni helgarinn- ar var súrt eins og veðrið, sumsé súrál og sUr mjólk, einkum þessi sem geymd er i fjósinu f 78 klukkutima, eftir að bUið er að mjólka, en þá þóknast vinnslustöövunum oft fyrst aðsækja hana og hella i fernur, og vilja þá helst tvi- sjóða hana, eins og góðan landa, enda öll efnin þd farin úr þessum merka drykk, sem ásamtsoðningu og lysi héltlif- inu i okkur gegnum myrkustu aldirnar. En súrálið og sUra mjólkin, sem tekur svo miklum breyt- ingum I ferðalögum, hefur hlotið svo rækilega umfjöllun, að ekki er á bætandi hér. önnur frétt, merkileg, vakti einnig athygli margra, en hún var i Utvarpinu, en greint var frá því, að veriðværi að vinna að sálfræðilegri, eða félags- legri undirstöðu að brU yfir ölfusárósa við Óseyrarnes, en þetta mun vera spáný aðferð við að reikna Ut brýr á tslandi, þótt mikil kleppsvinna hafi löngum fariðfram við brýr og vegi þessa lands. Þaö mun hafa verið árið 1891, sem ölfusárbrUin var byggð, og var þá langstærsta brUarmannvirki á tslandi. Að- ur höfðu Arnesingar og Rang- æingar farið yfir ána á lögferj- um, einkum á Kotferju og ós- eyrarnesf erju. Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri, var aöal hvata- maðurinn að brUarsmíðinni, en lengi vel komst hUn ekki gegnum þingið, vegna þess að nreshir nokkur, þingmaður fynr Suðurláglendið taldi þetta óþarfa og menn myndu bara leggjast i ferðalög, ef byrjað væri að brUa. Engin geðrannsókii fór þó fram i þetta sinn á Amesing- um vegna brúarinnar, eða fé- lagsfræðileg könnun, enda nafnnUmer ekki til, en það er af presti að segja, að loks fékkst hann eftir miklar for- tölur, til að samþykkja brú á ölfusá, gegn þvi að ekki yröi komið næsta ár og farið að heimta brú á Þjórsá. Og brúin var byggð. Hvað geðrannsókn um fé- lagsleg áhrif brúar við Óseyr- arnes, eða við ölfusárósa við- kemur, verður það að segjast eins og er, að hún er með öllu óþörf. Islendingar hafa farið þarna yfirána i mörg hundruö ár eða frá landsnámsöld, án teljandi óhappa, enda liggja þessirstaðir beint við, og hafa gert það frá fyrstu tið. Það er þvi alveg hægt að sleppa þeim stórfelldu per- sónunjósnum, sem nú virðast stundaðar í Ámes- og Rangár- vallasyslu, undir yfirskyni fé- lagslegs grundvallar fyrir brú. Farið verður með upplýs- ingarnar sem algjört trUnað- armál, segir þessi brésnéff kjaftafaganna, og öryggi ibU- anna er það, aö hann muni geyma öll gögn sjálfur. Allir vitibomir menn skilja, að nauðsynlegt er að brúa viö ósa ölfusár. Það er sam- göngubót fyrir marga staði og ný örugg leið fyrir Suðurlág- lendið til Þorlákshafnar, Reykjavikur og Suðurnesja og þá Ut i Vestmannaeyjar um leið. 1 bók Þorsteins Jósepssonar Landið þitt stendur þetta: „Arið 1896 gengu harðir jarðskjálftar yfir Suðurlands- undirlendið. Þá voru þrir bæir á Selfossi og hrundu þeir allir i rústisamakippnum, sem reið yfir að kvöldi 5. sept. Úr tveimur bæjanna tókst fólkinu að forða sér, en i þriðja bæn- um fórust hjónin. Annað heim- ilisfólk gatsmogið út um rifur sem mynduðust á þekjuna, þegar bærinn féll, nema tveir drengir, sem grafnir vour lif- andi upp úr rústunum skömmu siðar. Jörðin á Sel- fossi gekk þessa nótt i bylgj- um, svo að hvergi var stætt. ölfusárbrU stórskemmdist i jarðskjálftunum og var aðeins fær gangandi fólki unz viögerð á henni hafði farið fram.” Þetta ætti að nægja til þess að sanna, að það er ástæðu- laust að vera njósna um Sunn- lendinga i nafni brUargerðar, og nafnUmera-mann þennan ber að stöðva hið bráðasta af'. til þess bærum yfirvöldum og snUa sér þess i stað að brUar- gerðinni á venjulegan hátt. Jónas Guðmundsson, rithöfundur, skrifar: n

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.