Tíminn - 21.07.1981, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 21. júli 1981
■ Frá blaðamannafundistarfsfólks aöalskrifstofu OLtS i gærkveldi. Viö háboröiösitja taliö frá vinstri:
Halldór Viihjálmsson, aöaibókari, Kristján Óskarsson, deildarstjóri, Viihjáimur ólafsson, sölustjóri,
Sigriöur Bergmann, bókari og örn Guömundsson, skrifstofustjóri. í baksýn er annaö starfsfólk á skrif-
stofu OLIS.
Allt skrifstofufólkOLISsegir upp störfum:
ÖNUNDUR ENDURRÁÐ-
INN
SVAN REKINN
— eru kröfur starfsfólks til stjórnarinnar
® Allt starfsfólk á aöalskrifstofu
Oliuverslunar islands I Hafnar-
stræti hefur ákveöiö aö segja upp
störfum hjá fyrirtækinu, veröi
ekki breyting á afstööu stjórnar
til brottvikningar önundar As-
geirssonar, fyrrverandi forstjóra,
og eins veröi krafa þeirra um
uppsögn Svans Friðgeirssonar,
stöövarstjóra, ekki tekin til
greina.
Fyrrnefndar upplýsingar komu
fram á fundi sem starfsfólk OLÍS
á aðalskrifstofu hélt með frétta-
mönnum i gærkveldi. ,,Það er von
okkar að þessar aðgerðir leiði til
þess að réttlætið sigri að lokum.
Við höfum reynt að koma vitinu
fyrirstjórn fyrirtækisins sl. þrjár
vikur, en það hefur ekki tekist,
enda hafa þeir haft mikið að gera
við laxveiðar undanfarna daga”,
sagði Halldór Vilhjálmsson, aðal-
bókari, á blaðamannafundinum i
gærkveldi.
Það eru á milli 30-40 starfs-
menn á aðalskrifstofu OLÍS er
standa fyrir þessum aðgerðum,
en alls munu starfa um 220 manns
hjá fyrirtækinu. Sagði örn Guð-
mundsson, skrifstofustjóri, að
lang flestir starfsmenn fyrirtæk-
isins væru undrandi og hneyksl-
aðir á vinnubrögðum stjórnarinn-
ar i þessu máli, eins og flestir
landsmenn.
Tildrög þessa máls eru þau,
eins og öllum lesendum Timans
er kunnugt, að þann 1. júli sl. er
öllu starfsfólki tilkynnt að önund-
ur Ásgeirsson, þáverandi for-
stjóri OLIS hætti störfum hjá fyr-
irtækinu þann dag fyrirvaralaust.
Er látið að þvi liggja að önundur
hafi hætt af sjálfsdáðum, en hins
vegar fór það ekki framhjá nein-
um starfsmanni að stjórnin „hafi
þvingað önund til að segja af
sér.”
Að sögn starfsfólksins var
Önundi ekki gefin önnur ástæða
fyrir uppsögn sinni en sú „að
hann hefði fjarlægst stjórnina.”
Undi það illa þessu ráðabruggi og
sendi stjórninni yfirlýsingu, sem
undirrituð var af 36 starfsmönn-
um á aðalskrifstofu, þar sem lýst
er „undrun og megnustu van-
þóknun á þeim aðgerðum stjórn-
ar félagsins sem leitt hafa til fyr-
irvaralausrar brottfarar önund-
ar Asgeirssonai, íorsijora.
Stjórninhafði samþykkt að örn
Guðmundsson, skrifstofustjóri,
og Svan Friðgeirsson, stöðvar-
stjóri, færu sameiginlega með
stjórn fyrirtækisins þar til nýr
forstjóri tæki við störfum. 3. júli
tilkynnti örn að hann treysti sér
ekki til að vinna með Svan á þeim
grundvelli sem ákveðinn hafði
verið. Daginn eftir samþykkti
siðan stjórnin að Svan myndi ekki
koma niður á aðalskrifstofu fyrst
um sinn, og málið yrði i biðstöðu
fram til 16. júli.
1 millitiðinni fara hins vegar
fram viðræður um ráðningu nýs
forstjóra. Hinn 8. júli er sam-
þykkt samhljóða i stjórninni að
ráða Þórð Ásgeirsson forstjóra
fyrirtækisins frá og með 1. ágúst
nk. Jafnframt var ákveðið að
fresta formlegri ráðningu hans til
16. júli.
Deginum áður, þ.e. 7. júli hafði
örn Guðmundsson sett fram þær
kröfur við stjórn OLIS að önund-
ur fengi uppreist æru, „að svo
miklu leyti sem unnt væri”, og
jafnframtbauð hann upp á það að
„annað hvort myndi hann hætta
störfum hjá fyrirtækinu eða Svan
Friðgeirsson hætti störfum, þ.e.
stjórnin hafði völ á þvi hvorn
starfsmanninn hún vildi hafa
áfram i fyrirtækinu.”
Ekkert gerist i málinu fram til
16. júli þar sem öll stjórnin, að
undanskildum Ingvari Vilhjálms-"
syni, var i veiðiferð.
Hinn 16. júli undirrita 26 starfs-
emnn á aðalskrifstofu yfirlýsingu
þar sem þeir segjast ætla að segja
upp störfum nái kröfur Arnar
Guðmundssonar, sem fyrr eru
nefndar, ekki fram að ganga
Reynt var að ná samkomulagi
með aðilum. Stjórnin var beðin að
fresta tilkynningu ráðningu nýs
forstjóra fram yfir helgina, en
varð ekki við þeirri ósk. Jafn-
framt tilkynnti stjórnin aö hún
sæi ekki ástæðu til þess að Svan
Friðgeirsson léti af störfum hjá
félaginu.
Viðsvobúiðstendur enn, og allt
bendir til þess að svo fari að
starfsmennirnir segi störfum sin-
um lausum, enda engan bilbug á
stjórninni að finna.
Starfsfólkið krefst þess að
önundur verði ráðinn á ný sem
forstjóri um tima, jafnframt þvi
sem Svan verði vikið frá störfum,
og segi sig úr stjórn félagsins.
Svan hefur itrekað lýst þvi yfir
við stjórnina að hann sé reiðubú-
inn að hætta störfum hjá félaginu.
Stjórn félagsins hefur hinsvegar
ekki getað fallist á þá lausn máls-
ins.
Segir starfsfólkið um Svan, að
hann hafi oddastöðu i stjórn fyrir-
tækisins, og i krafti þess, grafið
undan stöðu forstjóra og ekki
sinnt fyrirmælum hans.
Nánar verður sagt frá þessu
máli i Timanum á morgun, en
fyrir liggja tvær miklar greina-
gerðir, önnur frá stjórn félagsins,
en hin frá starfsmönnum, þar
sem atvikum er nákvæmlega
lýst, sin frá hvorum sjónarhóln-
um.
(Kás
B Skrifstofur OLIS i Hafnarstræti voru auðar i gær, eins og sl. tvo
vinnudaga. Timamyndir: Ella.
Súra mjólkin:
Heilbrigdiseftir-
litið kærir Mjólk
ursamsöluna
® H eilbrigðisefti rlit rikisins
hefur kært Mjölkursamsölu
Reykjavikur og fleiri mjólkur-
samlög til Rikissaksóknara
vegna meints brols á reglugerð
um mjólk og mjólkurvörur. Er
samlögunum gefið að sök að hafa
ekki fyigt þeim reglum sem cru I
gildi um meðferð mjólkurinnar,
þ.m.t. ekki fylgt reglum um rétta
stimplun siðasta söludags, og
einnig forhitaða mjólk sem ekki
er heimilt samkvæmt reglugerð-
inni.
Kæran er fram komin vegna
kvartana frá neytendum undan-
farna daga og vikur um skemmda
mjólk, jafnvel áður en komið er
að stimpluðum siðasta söludegi.
1 frétt frá Mjólkursamsölunni i
Reykjavik vegna þessa máls
segir að augljóst sé að stór hluti
þeirrar mjólkur sem settur var i
umbúðir i' Mjólkurstööinni i
Reykjavik dagana 2., 3. og 9. júli
hafi haft mjög skert geymsluþol.
„Hefurkomiö Iljós, að hér var að
hluta til um mannleg mistök að
ræða við afgreiðslu mjólkur til
Reykjavikur, að hluta til veila i
eftirlitskerfinu og að hluta til bil-
un i gerilsneyðingartæki I
Mjólkurstöðinni i Reykjavik, án
þess þó að gerilsneyöingu hafi
verið áfátt.”
Tekur Mjólkursamsalan fram
að þegar hafi verið gerðar ráð-
stafanir tii aö ráða bót i þessu
efni.
—Kás
Treg veiði í Hofsá
og Laxá í Aðaldal
■ Veiðini Hofsá i Vopnafiröi hef-
ur verið óvenjudræm þessar
þrjár vikur siðan að áin opnaði og
i lær voru aðeins komnir þar á
land tæpir 30 laxar sem er mun
minna en á sama tima i fyrra.
Stærsta laxinn 18 pund hefur
Pétur Ingólfsson fengið en 6
stengur eru leyfðar i ánni.
fiOO úr Laxá I Aðaldal
NU eru komnir á land 600 laxar
úr Laxá i Aðaldal en veiðin þar
hefur verið léleg undanfarna
daga eftir ágæta byrjun þar. Lax-
veiðim enn i' hollinu sem er þar nú
eru samt bjartsýnir á að eitthvað
fari að rætast úr þeim málum.
Merkur og pund
örn Sævar er veiðieftirlits-
maður með iaxveiðiánum i Húna-
vatnssýslum og hefur sem slikur i
nógu að vasast. Segja má að
veiðimálin taki hug hans allan og
sem dæmi um það heyrði Veiðu-
hornið eftirfarandi sögu.
örn eignaðist barnabarn ný-
lega. Erverið var að segja honum
frá barnsburðinum gekk eitthvað
erfiðlega fyrir hann að setja sig
inn i þau mál þangað til einhverj-
um hugkvæmdist að segja honum
frá þessu á laxveiðimannamáli
eöa „Þetta var 33 cm 4 punda
hrygna”.
NU bíður örn eftir þvi að það
hrökkvi upp úr honum i samtali
við einhvern veiðimanninn
„Þetta er fallegur 18 marka lax
sem þU hefur þarna”.
—FRI
Sjálfstædisflokkurinn vill
stofna nefnd allra þingflokkanna
í álmálinu:
„Undir forystu
sem þeir
sætta sig vid”
■ „Flokkurinn er fds (il sam-
starfs um málefni álversins i
Straumsvik, enda veröi rikis-
stjórnin reiöubúin til samvinnu á
þeim grundvelli sem nauösynleg-
ur er”, segir m.a. I ályktun þing-
flokks Sjálfstæöisflokksins um
sdrálsmáliö svokallaöa.
Þar kemur fram að þing-
flokkurinn telur aö fyrsta skrefiö
sé að ljUka alhliða athugun máls-
ins. Segir þar að endurskoða
verði álsamninginn vegna
breyttra aðstæðna frá 1975, og inn
i endurskoöunina verði að koma
viöræður við Alusuisse um hækk-
un raforkuverðs og skattgreiðslur
fyrirtækisins. Nefnd er stækkun
álversins og eignaraðild Islend-
inga.
„Til að vinna aö framangreind-
um verkefnum telur þingflokkur-
inn nauðsynlegt að sett verði á
stofn fagleg nefnd með aöild allra
þingflokka undir forystu, sem
þeir geta sætt sig við”, er niður-
lag ályktunar þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins.
1 gærkveldi þegar blaðamaður
Timans hafði samband við Hjör-
leif Guttormsson iðnaöarráö-
herra, hafði honum enn ekki gef-
ist tóm til þess að kynna sér
ályktun þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, þannig aö hann vildi
ekki tjá sig um innihald hennar að
svo stöddu.
Hjörleifur var um leið spurður
hvaöa mat hann legöi á ályktun
þingflokks Alþýðuflokksins varö-
andi sUrálsmálið frá þvi s.l.
fimmtudag og sagöi hann: „Þeir
t^ka að athuguðu máli, greinilega
mark á niðurstöðunum, og telja
að það eigi að bregðast hart við”.
—AB