Tíminn - 21.07.1981, Page 24

Tíminn - 21.07.1981, Page 24
VABAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Sími (91) 7 - 75 -51, (91) 7-80-30. HEDD HF. Skemmuvegi 20 Kópavogi Mikiö úrval Opið virka daga 919 • Laugar- daga 10-16 HEDD HF, Gagnkvæmt tryggingafé/ag 3ii Fjórhjóladrifnar dráttarvélar 70 og 90 ha. Kynnið ykkur verð og kosti BELARUS Guðbjörn Guðjónsson heildverslun Vilmundur Gylfason á óvenjulegum blaðamannafundi VR um opnunartíma verslana: TELUR W) AD LÝ8- RÆÐI SÉ í DAGSBRIÍN?” Þriðjudagur 21. júli 1981 ■ ..Telur þú að lýðræði rfki i verkalýðsfélaginu Dagsbrún?” var fyrsta spurnine Vilmundar Gvlfasonar, blaða- manns Alþýðublaðsins til Magnúsar L. Sveins- sonar formanns VR á blaðamannafundi þeim, er VR hélt i gær til að út- skýra sjónarmið sin i máli því, sem hefur komið upp vegna opnun- ar nokkurra verslana á laugardögum i sumar. Magniis og fleiri fundarmenn urðu hálfundrandi á þessari spurningu, og Magnús benti Vii- mundi á að spyrja einhvern úr Dagsbrún þessarar spurningar. Vilmundur hélt áfram spurn- ingum sinum um Dagsbrún og spurði næst, hvort ekki hefði verið kosinn þar annar formaður en Eðvarð Sigurðsson undanfarin 40 ár, ef lýðræði rikti þar. Magnús bað Vilmund um aö halda spurningum sinum við efni blaðamannafundarins, sem Vil- mundur svaraði með þvi að spyrja hve margir félagar væru i VR og hve margir hefðu komið á siðasta aðalfund þess. Svarið var, að um 9-10 þúsund félagar væru á skrá hjá félaginu, en eitthvað á annað hundrað heföu mætt á aðalfundinn. „Heföi Asmundur Stefánsson, sem eitt sinn var félagi i VR, átt möguleika á formannsstöðunni i félaginu i kosningu á möti þér á þessum aðalfundi?” spuröi Vil- mundur þá. „Þvi hefði atkvæðatalan ráðið” svaraði Magnús. Símastulkur á Dagblað- inu „Eins og Alþýðublaðið hefur bent á þá vinna skrifstofustúlkur á Dagblaöinu mikla yfirvinnu, svara þar i sima allar helgar. Hvers vegna farið þið ekki upp á B Vilmundur Gylfason. Róbert). ,Af þvi að sessunautur þinn (Björn Þórhailsson) gaf þér vink” (Tlmamynd: skrifstofur DB og rífið af þeim simann?” spurði Vilmundur næst. Magnús byrjaði að svará þess- ari spurningu og var búinn með 2- 3 setningar af svarinu er Vil- mundur greip fram i fyrir honum og sagði: „Ég veit að það er af þvi aö sessunautur þinn hefur gefið þérvink”, sessunautur Magnúsar á blaðamannafundinum var Björn Þórhallsson, stjórnarfor- maöur Dagblaðsins. A eftir fylgdu nokkuð snörp orðaskipti milli Magnúsar og Vil- mundar, þar sem báðir töluöu i einu og litið skildist af. En Vil- mundur átt nokkrar hárbeittar spurningar eftir i fórum sinum: læiksýningar á morgn- ana? „Mundir þú Magnús, ef þú vær- ir formaður leigubilstjórafélags- ins Frama, beita þér fyrir þvi að leigubilstjórar hættu akstri á kvöldin og um helgar?” Og spurningin: „Mundir þú Magnús ef þú værir formaður Þjóðleikhúsráðs beita þér fyrir þvi' að leiksýningar yrðu á morgnana?” Einhver i salnum spurði Vil- mund hvort hann mundi sækja leiksýningar á morgnana: Hann svaraði þvi neitandi, en bætti við; „Magnús, Rolf og Erlendur i SÍS mundu gera það”. Undir lokin bað Vilmundur um nánari útlistun á þvi afhverju simastúlkurnar á DB væru ekki stöðvaðar. Magnús kom með nokkuð langt og flókið svar við þviogþá sagði Vilmundur:, „Ég skildi ekki orö af þvi sem þú sagöir og tel mig þó vera nokkuð góðan blaöamann”. „Það er þin skoöun en ekki min”, sagði Magnús þá. —FRI fréttir ..Lögreglan gekk of langt” B „Það kemur kæra vegna þessa máls hingað til embættisins á HUsavilc, og hún verður tekin fýrir á venjulegan hátt. Mér virðist ljóst að lög- reglan hafi þarna gengið of langt”, sagði Sigurður Gizurarson, sýslumaður á HUsa- vik, i samtali við Tim- ann vegna óvenjulegs máls sem kom upp um helgina,og leiddi til að forstöðum aður Skúla- garðs i Kelduhverfi fékk að gista i fanga- klefum lögreglunnar á Raufarhöfn aðfarar- nótt sunnudagsins. Dansleikur var i Skúlagarði á laugar- dagskvöld, en til gæslu á honum komu þrir lögr eg lum e nn . t skemmtanaleyfi var gert ráð fyrir tveimur lögreglumönnum, en venjan er að gæslu þeirra kosti rikið. Að dansleik loknum vildu lögreglum ennirnir siðan heimta gjald fyrir þann þriðja, hjá hljómsveitinni. Inn i þann málarekstur blandaði forstöðu- maðurinn sér, sagði ekki eiga að greiða reikninginn og visaði til skemmtanaleyfis- ins. Endaði deilan með þvi að lögreglan gafst upp við inn- heimtuna, en tók i staðinn með sér for- stöðumanninn til gist- ingar i geymslum sin- um á Raufarhöfn. —JSG. dropar Af bílaflota Siglfirð- inga ■ Bifreiðafloti Siglfirð- inga virðist vera með allra lakasta móti um | þessar mundir, ef marka má nýlega fundargerð bæjarráðsins á staðnum. | Má af henni ætla að nú | hafi öllum bifreiðum I I bænum verið lagt, nema | örfáum vörubílum, setn þó er ekki búist við að endist fram á haustið. En litum i fundargerð- ina. „Bæjarverkstjóri upplýsti, að vörubilar bæjarins væru i mjög slæmu ástandi og fyrir- sjáanlegt, að þeir muni ekki endast út sumarið. ÖÐRUM bílum hefur nú þegar verið lagt”. Ekki er þó bæjarráðið ánægt með umferð þess- ara fáu vörublla um bæ- inn þvl stuttu seinna á fundinum samþykkti það „að takmarka nú þegar þu n ga f lu tn in ga um Hafnargötu með þv! að beina allri umferð VÖRUBIFREIÐA um Snorrabraut. Bæjarstjóra er falið að kynna sam- þykkt þessa fyrir bíl- stjóradeildinni og öðrum, er eiga vörubila I bænum." Is- brjóturinn IViðsáum I auglýsingu I Mogganum að Helgar- póstsmenn telja sig hafa „brotið isinn á flestum sviðum islenskrar blaða- mennsku"!!. Viðm ælandi Dropa vildi hins vegar orða hlutinn þannig, að þegar Helgar- pósturinn braut Isinn hafi hann dottið ofan i vökina og þar svamli hann enn. Ber- strípaður B Visir birti I gær viðtal við islenskan endurskoð- anda tslenska álfélags- ins, og segir hann um súr- álsmálið, að það virki á sig eins og sagan um nýju fötin keisarans. Ætli endurskoðandinn hafi gleymt þvl, að keis- arinn — sem i sögunni var að visu ekki svissneskur — var þegar vel var að gáð berstrlpaður? Krummi ... ...las þá stórfrétt efst á forsíðu VIsis I gær að mannabein hefðu fundist i grafreit!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.