Tíminn - 30.07.1981, Page 4
4
qerðum at gos-
jöi. SODA-MAT
idist auöveldust
löskur eöa aðra
ví okkar reynsla
líkum flöskum.
beint í 9'asl0 a
Umboðsmenn Tímans Vesturland
Staður: Nafn og heimili: Simi:
Akranes: Guðmundur Björnsson, Jaðarsbraut 9, 93-1771
Borgarnes: Unnur Bergsveinsdóttir, Þórólfsgötu 12 93-7211
Rif: Snædis Kristinsdóttir, Háarifi 49 93-6629'
Ólafsvik: Stefán Jóhann Sigurösson, Engihliö 8 93-6234
Grundarf jörður: Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15
Stykkishólmur: Esther Hansen, Silfurgötu 17 93-8115 )
Fimmtudagur 30. júli 1981
.■ Edouard Saouma heimsótti Rannsóknastofnun landbiinaöarins i gærmorgun. Hér kemur
hann upp stigann i fylgd Dr. Björns Sigurbjörnssonar forstjóra Rannsóknastofnunarinnar, en
Björn er einmitt formaður FAO nefndarinnar i islandi. — Timamynd — Ella.
Edouard Saouma, adalforstjóri Matvæla
og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna:
„500 MILUÓNIR
MANNA SVELTA”
,,Hægt að sjá þeim fjölda fyrir nægum
kornmat fyrir 1% af því f jármagni sem
varið er til vígbúnaðar á ári hverju”
■ „Af viðræðum minum við is-
lensk stjórnvöld, viröist mér sem
þau hafi skilning á vandamálum
okkar og vilji styðja við starfsemi
okkar”, sagði Edouard Saouma,
aðalforstjóri FAO (Matvæla- og
landbúnaöarstofnun Sameinuöu
þjóðanna) á fundi með frétta-
mönnum i gær.
Saouma er hingað kominn i
opinbera heimsókn i boði Pálma
Jónssonar landbúnaöarráöherra,
en þá heimsókn tengdi hann fundi
með FAO-nefndum Noröurland-
anna, sem haldinn var I fyrradag,
að Hótel Sögu.
Með Saouma i förinni eru fjórir
aörir háttsettir starfsmenn FAO.
Evrópuþing FAO hér á
landi 1984
Saouma sagðist hafa þegiö boð
islenskra stjórnvalda þess efnis
aö halda hér á landi Evrópuþing
FAO, og verður þaö haldiö hér
1984.
í gærmorgun ræddi hann viö
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra, Claf Jóhannesson utan-
rikisráðherra og Pálma Jónsson
landbúnaðarráðherra. Kynnti
hann landbúnaðarráðherra svo
kallaöan viðlagasjóð FAO, sem er
sjóður sem i neyöartilvikum veit-
ir rikisstjómum aðstoö. Mæltist
hann til þessvið Pálma að Islend-
ingar styrktu þennan sjóðá sama
hátt og hin Norðurlöndin gera,
þ.e. með matvælaframlögum.
Pálmi mun hafa tekið málaleitan
Saouma vel, og mun hann kynna
sér máliö nánar.
Við Islendingar höfum ekki
styrkt þennan viðlagasjóð sér-
staklega, en framlag okkar til
FAO var á s.l. ári 55 þúsund doll-
arar og á þessu ári verður það 80
þdsund dollarar. Norðurlöndin
eru stærstu styðjendur FAO og
fjármagniö sem frá þeim kemur
til starfsemi FAO nemur 25% og
allt upp i 80% ieinu tilviki, af fénu
sem veitt er í hin ýmsu verkefni.
Sagöi Saouma að þeir hjá FAO
gerðu sér vel grein fyrir þvi að
tsland eins og svo mörg önnur
lönd ætti við efnahagsvanda að
striöa nú, en hann benti einnig á
að það væri ekki mikið sem FAO
færi fram á, heldur aöeins það að
allir legðu eitthvað af mörkunum,
til þess að taka þátt i baráttunni
gegn hungursneyðog vannæringu
sem hrjáirnæstumfimm hundruð
milljónir manns.
140 milljónir dollarar á
ári
Stofnunin hefur yfir að ráða
fyrir árin 1980 og 1981 tæpum 280
milljónum bandarikjadala, en
það hrekkur hvergi til. FAO fær
þetta fjármagn frá þeim 147 lönd-
um sem eru aðildarlönd aö FAO
svo og fær stofnunin fjármagn frá
Þróunarstofnun Sameinuðu þjóö-
anna.
Saouma gerði afskaplega
áhrifarikan samanburð fyrir
fréttamenn igær, þegar hann var
aö dásama Island fyrir það aö
vera ekki með her. Sagði hann
þá: ,,Hugsið ykkur, að aö hægt
væri að sjá þeim 500 milljónum
manns.sem þjástaf vannæringu I
heiminum, fyrir nægum kornmat
allt árið, fyrir 1% þess fjármagns
sem notað er til vigbúnaðar á ári
hverju, en upphæðin er 5000
milljónir dollara.”
>
Þriðji heimurinn
aðalathafnasvæðið
Saouma kom inn á það hvernig
starfsvið FAO hefur breyst siðan
stofnuninvarsettá fót 1945. Sagði
hann að fyrstu starfsárin hefði
aðallega verið glimt við vanda-
mál eftirstriðsáranna i Evrópu,
en starfið hefði siðan smám
saman, og eftir þvi sem þörfin
jókstbeinst gegn hungursneyð og
vannæringu Þriðja heimsins.
Sagði hann að ástandið væri viða
hörmulegt, en verst væri það þó i
Afriku. Greindi hann frá þvi' að
kornframleiðsla i 30 löndum
Afriku væri i dag minni, en hún
var áriö 1979.
Saouma lýsti yfir ánægju sinni
með heimsókn sina hingaö, og
sagðist vænta mikils af Islandi i
framtiðinni. Nefndi hann góö
störf þeirra 19 tslenóinga, sem
starfa á vegum FAO i mörgum
þróunarlandanna, og sagði þá
hugmynd hafa komið upp aö
þjálfa hér á landi menn frá þro-
unarlöndunum i sjómennsku og
útgerðastörfum.
Dagskrá Saouma er mjög stíf á
meðan á heimsókninni stendur,
en henni lýkur I kvöld meö kvöld-
verðarboði Steingrims Her-
mannssonar sjávarútvegsráð-
herra aö Þingvöllum.
—AB