Tíminn - 30.07.1981, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 30. júll 1981
stuttar fréttir
Frá Súgandafirði: Þar hafa tilraunir með hafbeit á laxi gefist
vel.
Hafbeitin aldrei
gengiö betur
SÚGANDAFJÖRDUR:
■ Tilraunir með hafbeit á lax
hafa staðið yfir um margra
ára skeiöi botni Súgandafjarð-
ar á Vestfjörðum. Undanfarin
ár hafa þessar tilraunir verið
geröar í samvinnu við Veiði-
málastofnunina.
„Þetta litur nú miklu betur
út en áður”, sagði Einar
Guðnason, á Suðureyri, einn
þeirra sem stendur i þessum
tilraunum, i samtali við Tim-
ann.
Nú eru gengnir um hundrað
laxar á þessu sumri, en á
sama tima i fyrra voru þeir
taldir á fingrum manns. Á öllu
sumrinu i fyrra heimtust um
130 laxar, en aðal endur-
heimtutiminn er i ágúst og
september, þannig að byrjun-
in lofar góöu i ár.
Um 7-8 ár eru siðan lón var
búið til i botni Súgandafjarð-
ar. 1 upphafi voru seiðin höfð i
aðlögunartjörniþvi, en nú sið-
ustu árin hafa þau verið
geymd i flotbúrum, og hefur
sú framkvæmd gefið mun
betri raun en sú fyrri. Er seið-
unum sleppt i þremur,hollum‘*
með hálfsmánaðar millibili.
Oftast hefur verið sleppt um 6
þús. sjógönguseiðum. 1 ár er
hins vegar meiningin að
sleppa um 9 þús. seiðum.
„Það hefur komið í ljós við
þessar tilraunir að sleppingar
úr búrum hafa gefist miklu
betur, en þegar seiðin voru
höfð i aðlögunartjörn úti við
ána. Það hefurkomið á daginn
að skilin eru um helmingi
betri úr búrum en úr tjörn-
inni”, sagði Einar Guönason.
„Ég er gallharður á þvi að
ég tel aö þetta hafi verið I si-
felldri framför hjá okkur
undanfarin ár, enda erum viö
nú farnir að sleppa seiðunum
með meira öryggi en áður, og
nú gerum við okkur betur
grein fyrir þvi hverjar lik-
urnar eru á að við fáum þau
aftur til baka.”
Meirihlutinn af þeim löxum
sem fengist hafa i ár eru 2 ára
og eldri, en einnig hefur
nokkuð borið á fiski eftir árs-
dvöl i sjó.
—Kás.
Ferðamanna-
straumurinn
með mesta
móti
MÝVATNSSVEIT:
■ Ferðamannastraumurinn
er nú með mesta móti við Mý-
vatn. Að sögn Jóns Illuga-
sonar, fréttaritara Timans i
Mývatnssveit, þá hafa ferða-
menn, bæöi innlendir og
erlendir tjaldaö mjög mikið á
tjaldstæöunum við Mývatn og
að undanförnu hafa bæði
hótelin við Mývatn verið full-
bókuð.
Þrir landverðir starfa við
vatnið og annast þar eftirlits-
störf. Þeir munu hafa nægan
starfa vegna þess hve mikill
fjöldi ferðamannanna er.
Aberandi er hvað fjöldi
breskra og svissneskra ferða-
manna hefur aukist við Mý-
vatn. Þá er alltaf mikiö um
franska og þýska ferðamenn
við Mývatn, og að sögn Jóns er
svo einnig nú í sumar. AB
Mikil vinna
og mikill afli
STÖÐVARFJ ÖRÐUR:
■ Mikil vinna hefur veriö á
Stöðvarfirði að undanförnu,
þvi skuttogari þeirra Stöðv-
firðinga Kambaröst hefur
aflað mjög vel.
Kambaröst landar nær ein-
göngu á Stöðvarfirði, en nú um
daginn landaði skipið i Fær-
eyjum vegna þess að Stöðv-
firðingar höfðu ekki undan að
vinna aflann.
Þrátt fyrir miklar annir viö
fiskvinnsluna, þá vinna Stöðv-
firðingar ekki langan vinnu-
dag. Þeir vinna yfirleitt ekki
framyfirkl.5 ieftirmiðdaginn
i frystihúsinu, en þeir vinna
bónusvinnuog gengur hún svo
vel aö ekki þarf að vinna fram
eftir á kvöldin. AB
Hótel Reyni-
hlíð staekkaö
MÝVATNSSVEIT:
■ Nú er verið að stækka Hótel
Reynihlíð við Mývatn, og er
viðbótarálman um það bil að
verða fokheld.
I þessari álmu veröa 18
tveggja manna herbergi og
litill veitingasalur. Reiknað er
með því að þessi viðbótar-
bygging verði tilbúin til notk-
unar næsta sumar.
Þá eru Mývetningar að
reisa sérsundlaug og búnings-
aðstöðu við hana. Laugin er
tref japlastlaug framleidd aö
Skagaströnd og verður hún 11
sinnum 25 metrar og er verið
að vinna við uppsetningu
hennar þessa dagana og von-
ast Mývetningar eftir þvi að
geta tekið hana i notkun eftir
mánuðeða svo. Framkvæmd-
um við búningsaðstöðuna er
lokið, þannig að Mývetningar
og gestir Mývatnssveitar
þurfa ekki að biða þess lengi
að geta fengið sér sundsprett
við Mývatn.
AB
fréttir
Fasteignamarkaðurinn:
„MIKUR PENING-
AR Nð í IIMFERD”
I „Það sem mér finnst alltaf
áberandi er hve miklir peningar
eru i umferð og, það sem alltaf
gerist þegar framboðið svarar
ekki til eftirspurnar, er aö veröið
hækkar”, sagði Jón Guömunds-
son, einn af fasteignasölum borg-
arinnar. Timinn hafði samband
við nokkra fasteignasala til að
leita álits þeirra á orörómi um
miklar verðhækkanir á ibúöum
að undanförnu.
Jón sagði sérstaklega hafa bor-
ið á hækkunum 4—5 herbergja
eigna. Áberandi væri, hve litið sé
núá markaðinum af þvi sem kall-
aðar eru góðar eignir, sem þýði
aftur að góðar eignir hafi að
undanförnu selst á hærra verði en
þær komi jafnvel til með að gera
eftir einn til tvo mánuði, ef fram-
boð skyldi aukast að marki á
þeim tima.
Fleiri fasteignasalar voru svip-
aðrar skoðunar. Verðið hafi þok-
ast upp á við upp úr áramótunum
og siöan komið nokkurt stökk i
júnímánuði vegna mikillar
spennu á markaðinum.
Jafnframt voru fleiri þeirrar
skoðunar að verulega hafi ræst úr
fjárráðum fólks. Siðari hluta s.l.
árs hafi orðið vart mikillar
tregðu, svo og þess að fólk hafi átt
erfitt með að standa i skilum.
Þetta sé nú gjörbreytt.
—HEI
■ „Sögunætur”,
skemmtikvöld hvert
föstudagskvöld í Súlna-
sal Hótel Sögu, eru
sannkölluð sælkera-
kvöld sem eiga fullt eins
mikið erindi til islend-
inga sem erlendra
ferðamanna.
Sá sem á heiðurinn af fjöl-
breyttum og nýstárlegum mat-
seðli þessara kvölda er yfirkokk-
urinn Sveinbjörn Friðjónsson, og
er skemmst frá þvi að segja, að
honum tekst frábærlega vel upp.
Um það bil 30 réttir á fagurlega
skreyttu hlaðborði eru matseðill
kvöldsins auk fjölda osta og skyr-
rétta i ábæti. Allir eru réttirnir úr
islensku hráefni og i kjötréttun-
um er lambakjötið okkar góða
uppistaðan. Sérstaklega ljúffengt
var innbakað, fyllt lambalæri. Þá
var mikið nýnæmi i þvi aö bragða
hrátt hangikjöt, sneitt örfint og
borið fram með eggjahræru.
Köldu fiskréttirnir og djúpsteikta
ýsan smökkuðust einnig svo vel,
■ Birna Bjarnadóttir leiöbeinir gestum Sögunótta varðandi veislu-
borðið og I baksýn má sjá matreiðslumeistarann Sveinbjörn Friðjóns-
son.
Sögunaetur — sann-
kölluð sælkerakvöld
að ástæða er til að nefna þá sér-
staklega
Fyrir borðhald kynnir Birna
Bjarnadóttir réttina og bendir á
þá rétti sem matreiðslumeistar-
inn mælir sérstaklega með.
® Fllkurnar úr íslenskri ull, sem
kynntar voru á Sögunótt eru
margar hinar fallegustu.
Timamyndir — V.Á.
Kynning Birnu er einkar við-
kunnanleg og þjóðleg i senn, þvi
hún klæðist islenskum búningi.
Mátti heyra á máli þeirra erlendu
ferðamanna sem voru staddir i
Súlnasal þetta kvöld, aö þeir voru
afar ánægðir með leiðsögn þá
sem þeir fengu, við samval rétta
sinna, enda sögðu þeir að ekki
veitti af, þegar slikt gnægtaborð
væri annars vegar.
Gestum á Sögunótt gefst kostur
á að kitla bragðlauka sina með
gómsætum réttunum, þar til þeir
bókstaflega geta ekki meira, og
virtist raunin sú, að flestir nýttu
sér þetta út i ystu æsar. Þvi er
það mjög þægilegt að geta að
borðhaldi loknu „hvilst” við að
fylgjast með tiskusýningu á
rammislenskum fatnaði, þar sem
ullin er að sjálfsögöu alls ráðandi,
áður en dansinn er stiginn fram á
nótt.
Það er hljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar sem sér gestum fyrir
danstónlist, eins og undanfarin
sumur i Súlnasal, og er lagaval
hljómsveitarinnar slikt að allir
ættu að finna lög við sitt hæfi. Að
visu eru margir nokkuð fram-
þungir þegar dansinn hefst, en að
nokkrum lögum liönum er sveifl-
an komin i lag.
■ llljómsveit Birgis Gunnlaugssonar kom öllum i hið besta dansstuö.