Tíminn - 30.07.1981, Side 8

Tíminn - 30.07.1981, Side 8
8 Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Af- greiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarins- son, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. olafsson. ' Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriöason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir). Otlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elín Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Kristin Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausa- sölu 4.00. Askriftargjald á mánuði: kr.80.00—Prentun: Blaöaprent h.f. Vörn fyrir Jón Baldvinsson ■ Það hefur verið höggvið i ýmsar áttir i Al- þýðublaðinu siðustu daga. Ekki aðeins hefur höggunum verið beint að Jóhönnu Sigurðardóttur og fleiri leiðtogum Alþýðuflokksins innan laun- þegasamtakanna. í siðasta þriðjudagsblaði Alþýðublaðsins er röðin komin að Jóni Baldvinssyni og samherjum hans, sem ekki vildu sameinast kommúnistum á sinni tið. í grein eftir Vilmund Gylfason sem birtist i Al- þýðublaðinu á þriðjudaginn, sagði m.a. á þessa leið um deilur þeirra Héðins Valdimarssonar og Jóns Baldvinssonar á sinni tið: ,,Og er það endilega rétt söguskoðUn, að Héðinn hafi gert rangt? Gerðu þeir ekki einmitt rangt, sem voru svo litlir kallar að fylgja honum ekki? Hefði ekki Islandssagan orðið öðruvisi, kjörin jafnari og betri, ef Alþýðuflokksforingjarnir á ár- unum fyrir strið hefðu haft vit á að fylgja Héðni, mynda stóran vinstri flokk, þar sem lýðræðis- jafnaðarmenn hlutu að verða i meirihluta, og fá- mennur kommúniskur og heiðarlegur minni- hlutahópur hefði fengið að ráða i hlutfalli við höfðatölu?” Þessi ummæli Vilmundar Gylfasonar hafa þann svip, að það hafi strandað á Alþýðuflokkn- um, að sameining hans og Kommúnistaflokksins tókst ekki á þessum tima. Þetta er alrangt. Á árinu 1938 fóru fram viðtæk- ar viðræður um sameiningu flokkanna og náðist fullt samkomulag um öll atriði, nema eitt. Þetta atriði, sem samkomulag náðist ekki um, var afstaðan til lýðræðis og þingræðis. Fulltrúar Alþýðuflokksins vildu fá skýlausa yfirlýsingu um, að hinn sameinaði flokkur starfaði á lýðræð- is- og þingræðisgrundvelli, en hafnaði byltingu. Fulltrúar Kommúnistaflokksins vildu hins vegar halda byltingarleiðinni opinni. Á þessu strandaði sameining flokkanna. Þótt margt sé ólikt með Alþýðubandalaginu og Kommúnistaflokknum, þótt það sé arftaki hans, heldur það enn i það stefnuatriði Kommúnista- flokksins, sem stóð i vegi sameiningar Alþýðu- flokksins og Kommúnistaflokksins á sinni tið. í stefnuskrá Alþýðubandalagsins segir, að hin sósialiska hreyfing (Alþýðubandalagið) verði að vera þess albúin að ná helztu valdamiðstöðvum þjóðfélagsins úr höndum borgarastéttanna á annan hátt en friðsamlegan, ef nauðsyn þykir krefja. Þannig heldur Alþýðubandalagið bylting- arleiðinni opinni, þótt það telji sig heldur kjósa lýðræðislegu leiðina. Undir slikt ákvæði vildi Alþýðuflokkurinn ekki gangast 1938 og fylgdi þar ráðum Jóns Baldvins- sonar. Er Alþýðuflokkurinn reiðubúinn til að gangast undir slikt skilyrði nú og sameinast Alþýðu- bandalaginu á þeim grundvelli? Helzt verður það skilið á þeim ummælum Vilmundar Gylfasonar, að Jón Baldvinsson og félagar hans hafi haft rangt fyrir sér. Þ.Þ. Fimmtudagur 30. júli 1981 NORSKAR BÓKMENNTIR MILLI HEFÐAR OG BYLTINGAR eftir Knut Faldbakken I i eftirfarandi grein rekur Knut Faldbakken þróun siðustu ára i norskum bókmenntum. Faldbakken f. 1941 er sjálfur meðal fremstu rithöfunda Noregs. Hann hefur gefið út átta skáldsögur, sem margar hverjar hafa verið kvikmyndaðar, smá- sagnasafn og eitt leikrit. Hann hefur starfað sem blaðamaður, veriðritstjóri bókm enntatimarita og er fastráðinn bókm enntagagn- rynandi eins af stærstu dagblöð- um Noregs. Að loknu námi i sál- arfræði dvaldist Faldbakken f 10 ár I útiöndum áður en hann héit aftur til Noregs 1975. Pólitisku stóratburðimir, sem áttu se'r stað á árunum 1960—’70, Víetnamstriðið, sjálfstæðistaka fyrrum breskra og franskra ný- lendna, menningarbyltingin i Kina, hin svokallaða „uppreisn æskunnar”, settu svip á hugsun- arhátt heillar kynslóðar á Vestur- löndum og áhrif þeirra komu glöggt I ljós i menningarllfi þeirra. Svo varð einnig i Noregi. Ásama tlmaog ný kynslóð rithöf- unda kom fram um miðjan ára- tuginn, var skyndilega tekið upp nýtt verðmætamat og hefðbundin yfirvöld, sem verið höfðu óum- deild, sættu vaxandi gagnrýni. Nýjar hugmyndir um form t fyrstu kom þetta fram i þvi að nýjar hugmyndir ruddu sér rúms hvað form varðar. Það hafði tekið „modernismann” langan tima að hljdta viðurkenningu i landinu. Ljöðskáld, eins ogPaalBrekke og Gunvor Hofmo, höfðu mætt mik- illi andstöðu, þegar þau kynntu tilraunir sinar með form á 6. ára- tugnum. Tíu árum siðar kom fram heill hópur ungra ljóðskálda, sem gleypti ákaft við þessum nýju hugmyndum, ljóðskáld, eins og Jan Eri'k Vold, Einar Okland, Ge- org Johannesen, Stein Mehren, Kjell Heggelund, Kate Næss, Paal Helge Haugen, voru nú i ess- inu si'nu í myndmáli, sem var I al- gerri andstæðuvið hiðheföbundna ljóðræna. Og kenning „modernismans” um nánari tengsl milli forms og innihalds, hafði lika áhrif á fjölda ungra prósahöfunda, sem leituðu leiða til að sniðganga þá sálfræðilegu- raunsæju skáldsagnahefð, sem hafði verið rikjandi i Noregi. Þessi unga bókmennta „upp- reisnarhreyfing” átti sér fyrst og fremst samastað við tlmaritið „Profil”, sem á árunum 1965—1968 birti verk margra þeirra rithöfunda, sem siðar gáfu tóninn i' nýjum norskum bók- menntum i ýmsum greinum og stílstefnum. Jan Erik Vold, Einar ökland og Helge Rykkja, og prdsahöfundar, eins og Tor Obre- stad, Dag Solstad, Espen Haavardsholm og Olav Angell, voru allir félagar I þessum fjöl- breytilega og hvatvisa höpi. Áhugi á pólitik og þjóð- félagsvandamálum evkst. En hrun hefðbundinna yfir- valda eftir pólitlskt. gjaldþrot stórveldanna I gömlu nýlendun- um (Afri'ku, Indókina) og auknar efasemdir um óskeikulleik sósial- demókrati'smans að afloknum fyrstu miklu vinnudeilunum eftir striðið (Kiruna, Sauda), leiddi lika til annarrar þróunar á bók- menntasviðinu. Pólitiskar um- ræður voru upp teknar af miklu kappi og hinn nývaknaði áhugi á öllum samfélagsvandamálum settu lfka sinn svip á val rithöf- undanna á þemum og áróðurs- brögðum. Síðan á miðjum 7. ára- tugnum hefur brennidepill bók- menntanna færst til. Þó að norsk- ur skáldskapur hafi aldrei ein- göngu fjallað um almenn mann- leg vandamál frá sjónarhóli eilifðarinnar, og alltaf hafi verið litið á þær norsku bókmenntir, sem hæst hefur borið hverju sinni, sem á undan sinni samtíð (Ibsen, Kielland, Björnson, Hoel, överland, Grieg) var það ný- lunda, hversu uppteknir rithöf- undarnir voru af mikilvægi og þýðingu samfélagsins eins og það er á Uðandi stund, og hversu sólgnir þeir voru i að viða að sér staðreyndum, skjölum og vitneskjuum pólitiska starfsemii lck áratugarins. Með tið og tima fór þessi greining öll að ógna hin- umhefðbundnu lýsingum ámönn- um og málefnum þar sem al- rnennineur gat sett sig I spor sóiyhetjanna. Og öðru hverju leit út fyrir, að öll þessi þjóðfélags- umræða ætlaði að útrýma sköp- unarþörfinni. Georg Johannesen kemur e.t.v. til með að veröa það skáld 7. áratugarins, sem á mest sannfærandi hátt tókst að bræða saman róttæka pólitiska starf- semi og skapandi leit að nýjum ljóðrænum formum, sem stæðust timans tönn, á samatima og ung- ir prösamenn, s.s. Espen naa- vardsholm, Tor Obrestad og Dag Solstad gerðu sér nokkurs konar formúlu um þjóðfélagsumræðu i bókum sinum, þar sem slfellt var lögð meiriog meiri áhersla á hug- ■" myndakerfi og pólitiska stefnu- mörkun I lok 7. áratugarins og uphafi þess 8. Þetta var I augljósu samræmi við þá nýju þróun rithöfunda, að leita sjálfþekkingar, sem varð vopn. Samhliða hinum aukna og sivaxandi áhuga á brennandi spurningum samtimans fór einn- ig fram áköf umræða um hlutverk listam annsins i þjóðfélaginu. Þeir framsæknu héldu þvi fram, að hlutverk skáldsins hefði til þessa tima verið of afskiptalaust, að bókmenntimar héðan i frá yrði að nota til að upplýsa og hafa áhrif á valda hdpa lesenda, með áþreif- anlegar þjóðfélagsbreytingar fyrir augum. Mikill meirihluti norskra rithöfunda sem bar meiri bökmenntalega virðingu fyrir sinu starfi, var án efa þessu ákaf- legaósammála — ogerþaðenn. Andstæðurnar milli ungra og rótgróinna bókmennta ekki fyrir hendi Skýringuna á þvi að tiltölulega fámennur hópur ungra ljóðskálda náði á tiltölulega skömmum tima slíkum áhrifum á opinberum vettvangi með þessi óvenjulegu sjónarmið, er kannski að finna I þeirri staðreynd, að kynslóða- andstæðurnarmilli ungra og rót- gróinna bdkmennta er ekki að finna á árunum 1960—’80. Bók- menntarisar millistriðsáranna voru horfnir fyrir 1960, sá síðasti þeirra, Tarjei Vesas, dó 1970, og eini eftirlifandi rithöfundurinn af eldri kynslóðinni, Johan Borgen (d. 1979) var alla sina ævi fram- sækinn mjög i allri sinni afstöðu. Sama hefur orðið uppi á teningn- um hvað varðar merkustu höfunda millikynslóðarinnar, an- arkistann Jens Björneboe, vinstrisósialistann Sigbjörn Hölmebakk og sósialistademd- kratann Korne Holt, sem ásamt mörgum öðrum, Finn Carling, Simen Skjönsberg, Ebba Has- lund, Carl Fredrik, Engeistad og fleiri, hafa allir einbeitt sér að þjóðfélagsumræðu, gagnrýnni og andsnúinni rikjandi þjóðskipu- lagi. Sama skortinn á djúpstæðum á vettvangi dagsins Ferðamanria- þjónusta í Mývatnssveit eftir Sólveigu Jónsdóttur ■ Tilefni þessara skrifa er grein Halldórs K. Valdimarssonar sem birtist i blaðauka Timans 14. júli s.l. og fjallarum Mývatnssveitog ferðamannaþjónustu þar. Undir- fyrirsögn greinarinnar „Mývetn- ingar taka ferðamálin i sínar hendur” gefur til kynna að til- gangur hennar sé m.a. sá að fjalla um þá þjónustu sem Mý- vetningar veita ferðamönnum. Við lestur greinarinnar kemur hins vegar iljósað þar er aö finna itarlegar upplýsingar um ferða- þjónustu sem eitt fyrirtæki sveit- arinnar, Eldá hf., býöur upp á en ekki er minnst á aðra aðila sem sllka þjónustu veita. Greinin er þvi villandi og samsvarar inni- hald hennar engan veginn fyrir- sögninni. Halldór segir i grein sinni að Eldá hf. hafi meö höndum mikinn hluta ferðamannaþjónustu við Mývatn. Hann sér ekki ástæðu til að nefna nokkuð af þeirri ferða- mannaþjónustu sem aðrir Isveit- inni sjá um. Til að fólk fái réttari hugmynd- irum þessi mál skal hér minnst á nokkur atriði. Fleiri ferðamöguleikar í Mývatnssveit eru fleiri ferða- möguleikar en þeir sem Eldá hf. býður og nefndir eru I grein Hall- dórs. Þetta erannað sumarið sem Jón Arni Sigfússon býður upp á fastarferðirfrá Mývatnssveitsex sinnum I viku. Ferðir þessar eru tvenns konar. Annars vegar eru ferðir i Herðubreiðarlindir og Oskju. Þetta eru dagsferðir, farn- ar þrisvar iviku og eru helstu án- ingarstaðir Grafarlönd, Herðu- breiðarlindir, Jökulsárgljúfur efri, Drekagil og Askja. Hins vegar eru ferðir að Detti- “fossi og i Ásbyrgi farnar þrisvar i viku. Fariðer niður með Jökulsá að austan, aö Dettifossi og að Hafragilsfossi sem er á einum fegursta stað i Jökulsárgljúfrum. Siðan er farið i Ásbyrgi, um Tjör- nes (þar sem hin frægu skeljalög eru skoðuð) og síöasti viökomu- staður er HUsavik.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.