Tíminn - 20.09.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.09.1981, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 20. september 1981 í-ða: nEn ég vil sjá Eiffeí-turninii!” ■ Lestin til Parisar var að leggja af stað. Leiðinlegur brautarpall- urinn i Calais. Inni i rúmgóðum, bólstruöum klefa sátu tvær konur á aö giska þritugar, vel snyrtar, vel klæddar — Parisardömur væntanlega. Takk fyrir, jújú, við máttum fá okkur sæti, þær kink- uðu koili. Svo fór lestin af stað. Þægilegheita lest. Konurnar störöu þegjandi út um gluggann, Calais þaut framhjá og það var komiö upp i sveit. Bleikir akrar, fögur tún, skógar og litil vötn. Hvar skyldu skotgrafirnar hafa verið, ætli bresku hersveitirnar hafi marséraö þessa leið til fund- ar við Von Klug? önnur Parisar- daman svaf, það var fariö að rökkva. Kenneth Toomey var nauögaö af ruddafengum sjólið- um. Svo vaknaði Parisardaman og sagði við hina: „Ya wann somethin t’eat?” Þær voru engar Parisardömur, heldur amerisk- ar. Á tösku annarrar þeirra stóð Tatiana Kolnyekova, rússneskar i þokkabót. Þær gáfu sig á tal viö okkur, reyndust vera að koma frá London og minntust þess ekki ógrátandi. „Aldrei vitað ógeös- legri borg, subbuleg og skitug og fólkiö dónalegt og kalt — mér skilst aö Frakkar séu öðruvisi”, flissaöi Tatiana Kulnyekova. Annars voru þær á leið til Spánar, Spánverjar voru þó ábyggilega öðruvisi. Ekki svo að skilja, þetta voru penar stúlkur og Tatiana hafði klukkuna sina ennþá stillta á Amerikutima til að geta hringt i manninn sinn á þeim tima sem honum hentaði best. Þær voru ágætir ferðafélagar og björguðu okkur einu sinni. Gæslumaður lestarinnar kom inn i klefann að skoða miða og hann benti okkur haröneskjulegur á svið á tölustaf- inn „2” á Interrail-miðunum okkar — við værum á fyrsta far- rými. Við bjuggum okkur undir að yfirgefa þessi mjúku sæti meðan gæslumaðurinn kannaði miða Amerikurússanna. Sjá, þær ryndust hafa annars flokks miða lika. Þá nennti gæslumaðurinn ekki að standa i að reka aila út, fór. Konurnar flissuðu og fliss- uöu. Þegar viö stoppuðum nokkru siöar I Amiens og þær sáu gæslu- manninn spranga um á brautar- pallinum þá uröu þær aftur á móti hræddar, drógu tjöld fyrir glugga og vildu slökkva ljósið. En svo fór lestin af stað aftur. Nú var orðiö almykrt úti og enn klukkutimi til Parisar. Það sagöi vinkona Tati- önu — aldrei vissi ég hvað hún hét — alla vega, en allt i einu var lest- in komin inn I borg og hægði ferð- ina. Þær Tatiana leituðu á kort- unum sinum en fundu enga borg á þessum stað, skyldum við vera komin til Parisar? „Nei”, sagði vinkonan ákveðið, „hérna eru bara blokkir. Það eru áreiðanlega engar blokkir i Paris”. Hún hafði sýnilega lesið Veisla i farangr- inum eftir Hemingway. „En sjáiði”, hrópaði Tatiana og tókst á loft, „þaðer kirkja”! Það er svo mikið af kirkjum i Paris, það veit ég!” Og þarna var vissulega kirkja. En hvar var Eiffel-turn- inn? — átti hann ekki að sjást alls staðar aö? Tatiana fikraði sig fram á gang og spurði farþegana sem allir voru komnir úr klefum sinum: „This Paris? This Paris?”Það þurftiekki nema sjá hneykslunarsvipinn á þeim til að skilja að við vorum komin til Parisar. Hvað gerir maður næst? 1 flestum ef ekki öllum bió- myndum frá Paris kemur fyrir umferðarhnútur og bilstjórarnir stökkva út úr bilum sinum, hár- reyta hver annan, æpa og öskra, og pata út i loftið. Ég hélt i sak- leysi minu að þetta væri þjóð- saga.eða aö minnsta kosti ýkjur, en fimm minútum eftir að við stigum út úr lestinni sáum við þetta gerast. Við biðum i röð eftir leigubil og svertingi nokkur ætl- aöi að svindla sér út úr röðinni og inn i næsta bil. Uppfullur af heil- agri vandlætingu visaði bilstjór- inn honum á bug. Þá kom þar aðvifandi annar leigubill og bil- stjórinn svartur sem sót. Hann sá ekki betur en þarna væri dæmi um kynþáttafordóma i verki, fyrri bilstjórinn vildi ekki aka blökkumönnum, og rann blóðið til skyldunnar. Hann snaraðist þvi úr bilsinum og að fyrri leigubiln- um, jós bilstjórann skömmum og munnsöfnuðurinn hefur áreiðan- lega ekki verið til fyrirmyndar. Nú sáu aðrir bilstjórar færi á að gripa gæsina. Leigubilstjórar og farþegar flykktust að, hinir prúð- ustu menn skildu bila sina eftir úti á miðri götu til að geta tekið þátt i gamninu. Það var mikið fjaðrafok en svertinginn sem hafði komið þessu öllu af stað var löngu horfinn á braut. Hann hafði smeygt sér inn i leigubil, sem ók brott á mikilli ferð. Eftir dágóða stund rann það upp fyrir mönn- unum á götunni að þeir höfðu ekki lengur hugmynd um um hvað þeir , voru að rifast og samkundan leystist upp. Þátttakendur voru rjóðir og sælir á svip, og nú gekk röðin miklu betur en áður. Þegar við náðum upp i leigubil vorum viö ekki prettuð um nema sex fránka, það er vist ekki mikið af nýgræðingum i Paris. Næsta morgun var farið að skoða heimsborgina. Við þrædd- um leiöina niöur i bæ eftir metró- korti og vorum, held ég, ansi túr- istaleg. Nei, þarna er Pompidou- safnið! Bara alveg eins og geim- stöð. Viö sátum og horfðum á Pompidou-safnið. Já, þetta var alveg óumdeilanlega Pompidou- safnið. Hm. Hvað gerir maður næst? Fer að skoða Eiffel-turn- inn? Notre Dame? Mónu Lisu? Eða kaffihúsin þar sem Joyce var, Pound, Gertrude Stein og existentialistarnir? Rúmið hans Prousts? Gröf Jim Morrison? Viö vorum alveg ráðvillt, ég segi það satt. Svo við gengum. Gengum og gengum. Yfir Signu — já, þarna er Notre Dame — og á Saint Michel. Siðan „heim”, upp á Rue Jean-Pierre Timbaud þar sem við höfðum ibúð i láni. Þetta var fin- asta ibúð, en Mústafa! — Mústafa var klósett, viðbjóðsleg hola inn i skáp frammi á gangi og þar skriðu silfurskottur og önnur dýr sem ég kann ekki að nefna. Það sem Frakkar láta sér lynda. Mústafa var eina hreinlætisaö- staðan á staðnum og eftir nokkra daga i rykugri heimsborginni var bað orðið aðkallandi. Við vissum af baðhúsi einhvers staðar i ná- grenninu en hvar i ósköpunum? Við svo búið mátti ekki standa, það var farið að vaxa á mann hreistur. Ekki gátum við spurt Frakkana, ótalandi á frönsku og þeir á ensku. Sem betur fór fund- um viö i Ibúðinni „Berlitz — fransk for rejsebrug” og þar setninguna: „Geturðu visað mér veginn til næsta veitingahúss?” á þessari finu frönsku að þvi er séð i n varð. I annarri orðabók fundum við hvað „bað” heitirá frönsku og vopnaður miða sem á stóö: „Geturðu visað mér veginn til næsta baðhúss?” gekk ég milli nálægra Frakka. Stúlka með litað hár kom mér til hjálpar. Baðhús- ið reyndist vera á Rue Ober- kampf, steinsnar i burtu. Heimsins lélegasti töframaður Nokkru siöar f jölgaði okkur um helming (og moskitó-flugunum i ibúðinni reyndar lika). Mágkona min og svili voru komin til borg- arinnar og maðurinn heimtaði bjór. „Gróssbér.” — ogþjóninn á kaffihúsinu við Saint Michel glotti. Allt i lagi þótt hann væri ekkert hrifinn af túristum en af hverju glotti helvitis maöurinn? Svo kom hann með bjórinn — i tveggja litra tunnu. — og glotti ennþá meira. Við vorum þarna næsta klukkutimann að klára bjórinn og þaö þótt dálitill töfra- maöur, sem var að galdra fyrir gesti kaffihússins, fengi sér ööru hvoru sopa. Þegar við sluppum loksfráParisvar ekki alveg laust við að viö værum orðin leiö á þessum töframanni — eftir að hafa séð hann fremja sömu töfra- brögöin að minnsta kosti hundrað sinnum á ýmsum kaffihúsum og krám. Og þegar við fórum á úti- markaö uppá Clignancourt, þá var hann þar lika. Heldur ekki nóg með hann. Sæti maður eina kvöldstund á kaffihúsi, veitinga- húsi, krá, var áreiðanlegt að að minnsta kosti fimm eða sex trúbadúrar, söngvarar, töfra- menn, eldlistamenn og önnur álika fyrirbæri heimtuöu af manni fé fyrir mjög svo mismun- andi listir si'nar. Töframaöurinn sem ég minntist á hér aö ofan hef- urán nokkursvafa veriðlélegasti töframaður sem sögur fara af, samt tókst honum að hala inn álitlega fjárhæö á hverju kvöldi. Svo mátti finna eitt stykki Bob Dylan á hverju götuhorni, Leonard Cohen á öðru hverju, Bítlarnir voru viöa, Edith Piaf hér og hvar og inná milli voru rosknir menn með harmóniku. Það voru reyndar þeir sem fengu mesta peninga, aö þvi er ég best sá. Svo urðu þessir menn ákaf- lega reiðir ef maður heillaðist ekki og setti pening i boxið þeirra, einn rauðhærður afglapi (frá Astraliu, grunar mig), sem hafði nauögað Leonard Cohen, Bitlun- um ogSimon & Garfunkel i einni striklotu, stökk uppá nef sér og hrópaði: „Láttu þér vaxa yfir- skegg. Þá veröurðu alvegu einsog Hitler!” Hitler, af öllum mönn- um! Agúst er vist ekki besti mánuö- urinn til aö vera i Paris — það segja mérsérfræðingar — Frakk- ar sjálfir útá landi i frii og borgin full af túristum. Engu að siður var þaö sem kallað hefur veriö „kaffihúsalif” bara gott, aö minnsta kosti fyrir þann sem ekki veit betur. Pompar Eiffel-turninn? — Jæja.hvað eigum viðaögera i dag? — Það veit ég ekki. —Það veit ég ekki. — Ég vil sjá Eiffel-turninn. —Nei, ég meina bara sjá hann. —Til hvers? —Það veit ég ekki. —Hann pompar örugglega niö- ur. —Pomparniður? Hann er búinn aö standa siöan sautján hundruð og súrkál. —Þess þá heldur. —Komum i búöir. —Við erum búin að fara i búðir. Ég vil fara i fleiri búðir. Jæja, komum út. Já. Hvert eigum við að fara?. —Ekki að skoða Eiffel-turninn. —Eigum við að koma og skoða Mónu Lisu? —Þú getur keypt þér plakat. —Plakat... —Nei, ég er alveg til i að koma og skoða Mónu Lisu. Æ, er þaö ekki voðalega erfitt? Louvre risastórt? —Við skreppum bara inn, för- um og skoðum Mónu Lisu og för- um svo út aftur. —Það er hallærislegt. —Jæja, farðu þá aö skoöa Eiffel-turninn! —Mig langar ekkert að sjá Eiffel-turninn. En fyrst maður er i Paris á annað borð, á maður þá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.