Tíminn - 20.09.1981, Blaðsíða 17
Sunnudagur 20. september 1981
kólfar Alþýðubandalagsins hittist
morgun hvern á skrifstofu
Svavars Gestssonar, félagsmála-
ráðherra og setji þar linu dags-
ins?
„Nei, þvi er ósköp fljótsvarað.
Ég er a.m.k. ekki ihópi þeirra lit-
völdu og ef slikir herforingja,-
ráösfundir eru haldnir, þá er það
án minnar vitundar! Enda er það
svo, að starfshættir Alþýðu-
bandalagsins eru meðalltöðrum
hætti en svo, að það sé einhver
einn sem sé tóngefandi, eða að
það séfámenn liðssveitsem tekur
ákvarðanir fyrir Alþýðubanda-
lagið. Flokkurinn leitast við að
hafa marga með i ráðum um
meiriháttar mál, en gerir ekki
kröfur til þess að þeir sem eru í á-
byrgðarstöðum, beri almenn og
dagleg viðfangsefni undir flokks-
stofnanir.
Samstarf okkar sem i rikis-
stiórn störfum fyrir Alþýðu-
bandalagið er auðvitað náið, og
ég geri ráð fyrir að svo sé einnig
hjá ráðherrum flokkanna. Slikt
samstarf er auðvitað nauðsyn-
legt, til að stjórnmálaflokkar skili
árangri f starfi og geti rækt sitt
hlutverk.
Ekki æskilegt sem regla
að menn verði ellidauðir
i stjórnmálum
Ég tel að það sé ekki æskilegt
sem regla að menn verði elli-
dauðir istjórnmálum. Ég held að
skipti á mönnum i opinberum for-
ystustörfum séu æskileg, þó að
vissulega þurfi menn að hafa á-
kveðinn tima til þess að reyna sig
og láta á það reyna, hvort þeir nái
fram málum sem þeir berjast
fyrir. Ég hygg raunar að sá timi
sé liðinn að stjórnmálastarfsemi
verði ævistarf nema tiltölulega
fárra. Það held ég að sé aðeins
kostur. Menn geta verið þátt-
takendur i stjórnmálastarfi sem
óbreyttir liðsmenn, jafnvel þótt
þeir skjótist fram i fremstu vig-
linu stöku sinnum. Ég held að það
sé mjög þýöingarmikið i lifandi
stjórnmálastarfi, að menn ræki
með sér slik viðhorf til þátttöku.
Ég hef i minu félagsmálastarfi
reynt að tryggja það, að eðlileg
hreyfing sé á mönnum og ég hef
reynt að losna frá forystustörfum
sem ég hefi gegnt i félögum eftir
tvö kjörtimabil, eða svo.”
..Ætla dtki sjálfur að
dæma árangur af verk-
um minum”
— t beinu framhaldi af þessum
orðum þi'num Hjörleifur, hefur á-
rangur sá sem þú hefur náð i
starfi sem ráðherra reynst
eitthvað i likingu við þær vænt-
ingar sem þú hafðir þegar þú
settist i ráðherrastól?
,,I ráðherrastarfi hef ég verið
liklega eitthvað á þriðja ár, og ég
ætla ekki sjálfur að dæma um á-
rangur af verkum minum. Per-
sónulega hef ég ekki oröið fyrir
neinum vonbrigðum með þau af-
skipti. Ég hafði heldur ekki gert
mér vonir um það i byrjun að
leysa nein mál með pennastriki.
Ég lit á stjómmálaþátttöku og
stjórnmálastarf sem ákveöið þol-
gæðisverk, þar sem menn hljóta
að þurfa að undirbúa jarðveginn,
siðan að sá, áður en þeir upp-
skera. Til þess þarf ákveðinn
tima. Ég eftirlæt öðrum og
reynslunni að skera úr um það
hvaða árangri min störf hafi skil-
að.”
..Hlýt að spyrja sjálfan
mig hvað réttmætt sé i
aðfinnslum”
— Fær gagnrýni sú sem þú
verður fyrir i starfi aldrei á þig?
„Miklu minna heldur en ég
hygg að þeir haldi sem utan við
stjórnmálabaráttu standa. Að
sjálfsögðu fylgist ég nokkuð með
þvi, sem sagt er opinberlega um
mitt málefnasvið og min störf. Ég
legg auðvitað mitt eigið mat á
það, hvaðég tel réttmætt, þegar
um aðfinnslur er að ræða. Það er
engan veginn svo að ég láti slikar
raddir sem vind um eyru þjóta.
Ég hlýt auðvitað að spyrja sjálfan
mig hverju sinni, hvað rétbuætt
sé i aðfinnslum sem oft heyrast:
En þær virka á engan hátt
truflandi, eða ræna mig svefni.
Þó að oft falli orð sem ekki
hljóma kliðmjUkt i eyra, þá er
ekkert undan sliku að kvarta. Sé
skotið yfir markið i dómum og
umsögnum um menn og málefni,
þá er það oft svo að það hittir
miklu frekar þann fyrir, sem slikt
skeyti sendir, en hinn sem þvi er
beint að.”
.Mér hitnar í hamsi á
st undum”
— Verður þú einhvern tima svo
reiöurað þú missir stjórn á skapi
þinu?
„Nei, það held ég hafi aldrei
komið fyrir mig. Mér hitnar i
hamsi á stundum, en ég vænti að
ég geti talist umburðarlyndur
maður. Ég held að sli'kt sé far-
sælla, þegar til lengdar lætur, að
geta brugðist viö aðstæðum með
sæmilegri rósemi.”
— Núhefur þú ákveöna viðtals-
eða framsögutækni, þegar þú
flytur mál þitt, eða heldur blaða-
mannafundi. Þú virðist halda at-
hygli áheyrenda þinna með þvi að
stofna til svokallaðs „augnakon-
takts” og svo áttu það til á ólik-
legustustöðum i málflutningi þin-
um að brosa. Getur þú skýrt fyrir
mér ástæður þessa?
„Mér er ekki kunnugt um aö ég
hafi tamið mér neina tækni
hvorki i sambandi við ræðu-
mennsku eða frásögn. Það er
ekkert sem er lært eða tamið,
heldur eru það einfaldlega þættir,
að ég held, sem eru mér eðlislæg-
ir og ekki mitt að dæma um það,
hvernig það kemst til skila. Ég
hef auðvitað, eins og þeir sem
eitthvað hafa fengist við kennslu,
fengið einhverja þjálfun i þvi að
reyna að koma hlutum til skila,
en hvernig málflutningur minn
kemst til skila á hinum pólitiska
velli skal ég ekki dæma um.”'
— Att þú þér einhverja póli-
tiska fyrirmynd?
„Nei, það tel ég ekki vera. Ég
hef auðvitað kynnst mörgum á
ekki löngum ferli, og lesiö um
ennþá f leiri, sem hafa tekið þátt i
pólitisku starfi, en það er enginn
sem ég lit á sem sérstaka fyrir-
mynd, enda held ég að hverjum
sé það best að vera hann sjálfur.
Það er li'ka svo, aö þó þú teljir að
st jórnmálamanni eöa öðrum
verkmanni hafi tekist vel upp á
tilteknum tíma, þá er engan veg-
inn þar með sagt, aö hægt sé aö
endurtaka slikt viö allt aðrar að-
stæður.”
„Þjóðfélagið marg-
slunginn vefur”
— Aliðiö er orðiö kvölds og ég
geri mér grein fyrir þvi að
iðnaöarráðherrann Hjörleifur
17
þarf sinn nætursvefn, þótt
skammur verði. Eina spumingu
langar mig þó aöbera upp aö lok-
um, en hún er sU hvort skilja hafi
mátt orð þin með kjörtimabilin
tvö, nU áöan, sem svo aö þú
hyggistdraga þig ihlé frá stjóm-
málunum að loknu næsta kjör-
timabili „Ég lit ekki á þjóð-
félagið sem kreddubundnar
viðjar, heldur sem lifandi og
margslunginn vef, sem sifdlt
verður að endurnýja. Stjórn-
málamenn ráða sem betur fer
litlu um, hversu lengi umboð
þeirra endist.
Það er ekki rétt að draga þá á-
lyktun, að ég hafi einsett mér að
hætta eftir ákveðinn árafjölda.
Ég tel hins vegarað t.d. áratugur
sé allnokkur timi að standa i
fremstu viglinu. Ég lit ekki svo á,
að þátttaka i' stjórnmálum tak-
markist við það að skipa fremstu
ábyrgðarstörf og siðan hverfi
menn af vettvangi. En eins og ég
gat um i upphafi, þá hef ég frá
blautu barnsbeini haft mikinn á-
huga á þjóðmálum og ég geri ráð
fyrir, að sá áhugi haldist löngu
eftir að ég verð horfinn af þvi
sviði, sem fjölmiðlar beina sjón-
um sinum að, ef mér endist aldur.
Það er nú svo, aö ánægju er að
finna ekki siður I hinu hljóðláta,
daglega starfi sem vinna þarf til
að tryggja lýðræðinu inntak. Það
er ekki endilega eftirsóknarvert
eða hollt fyrir einstaklinginn aö
standa á tindi valds og ábyrgðar
of lengi. Þá getur fariö svo aö
jarðsambandið taki aö rofna.”
— Að svo búnu hverfur blaða-
maður ábraut, sannfæröurum aö
hann veit nU meira um persónu
HjörleifsGuttormssonar, en hann
gerði áöur en viötal þetta hófst.
Vonar blaðamaður aö sú verði
einnig raunin meö þá lesendur
Timans sem þetta viðtal lesa.
—AB
VERKTAKAR
émmti
lllfl
íáýf'iMrrH*!
Isuzu Pick-Up 4x2 4 cyl. bensinvél 1.8 Itr. 86 ha. palllengd 1855 burðarg. 1245 kg. verð kr. 85.5.00.-.
Isuzu Pick-Up 4X4 4 cyl. bensínvél 2,0 Itr. 86 ha. palllengd 1855, burðarg. 1320 kg. verð kr. 99.800.-.
Isuzu Pick-Up 4x4 4 cyl. dieselvél 2.0 Itr. 55 ha. palllengd 1855, burðarg. 1120 kg. verð kr. 118.000.-
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
Lægsti punktur 20,5 cm
ISUZU PICKUP