Tíminn - 20.09.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.09.1981, Blaðsíða 6
Sunnudagur 20. september 1981 Létt spurningakeppni fyrir alla ■ tslendingar erumanna fjölfróö- astir — til að sannreyna þaö hefj- um viðhérspurningakeppni. Hún er ósköp létt og ætti ekki að vefj- ast fyrir neinum en formið er þó ef til vill nýstárlegt fyrir fólk. Leikurinn gengur út á það að við spyrjum um tiltekið atriði — til dæmis einhvern mann, atburö, land, ártal, biómynd, bók og svo framvegis, en i stað beinnar spurningar gefum við fimm vis- bendingar, sem eiga aö gefa til kynna um hvað er spurt. Fyrsta visbendingin telst vera erfiðust, sú næsta öllu léttari og þannig koll af kolli. Við vekjum athygli á að þesar spumingar þurfa ekki endilega aö snerta atriðið sem spurt er um beint, heldur getur einasta verið um að ræöa „hug- myndatengsl” sem flestum ættu að vera auðsæ. Svo dæmi sé tek- ið: Ef við ætluðum að spyrja um Richard Nixon, fyrrum Banda- rikjaforseta, þá gætu visbending- arnar fimm verið eitthvað á þessa leiö? 1. Átti hundinn Checkers — en Nixon flutti á sinum timamjög fræga ræðu isjónvarpi og haföi hundinn sinn með sér! 2. Kom Alger Hiss á kné — en á McCarthy-tímabilinu hamaðist Nixon gegn Hiss þessum fyrir að vera kommunisti og njósn- ari og var Hiss að lokum dæmdur i fangelsi. 3. Gekk á múrnum i Kina — en Nixon fór i fræga för til Kina- veldis eins og menn muna. 4. Woodward og Bernstein reynd ust honum illa — en þeir kumpánar eru blaðamennimir við Washington Post sem öðr- um fremur áttu þátt i aö sanna hlut Nixons i Watergate-mál- inu. 5. Sagði af sér forseta-embætti — nú er þetta orðið býsna augljóst. Þannig gengur þetta sem sagt fyrirsig. Fyrir að geta upp á réttu svaristrax við fyrstu visbendingu eru gefin fimm stig, fjögur fyrir þá næstu og loks eittstig fyrir að geta uppá rétta svarinu i fimmtu tilraun. Hér aö neðan eru tíu spurningar, settar upp á töflu, fimm visbendingar við hverja, einsog áður var getið, en svörin eru siðan birt á Uaðsiðu 24. Til að freistaþess að svara spumingun- um þurfa menn helst aö leggja pappirsblað yfir hluta töflunnar, þvfaðöðrumkostiblasa allar vis- bendingarnar við ieinu og leikur- inn verður auðveldari en ástæða er til. Til þess að reyna sig, ásamt lesendum, höfum viðfengið tvo af keppinautum okkar i helgar- blaðaútgáfu, þau Magdalenu Schram — umsjónarmann helg- arblaðs Visis — og Guðjón Frið- riksson — umsjónarmann Sunnu- dagsblaðs Þjóðviljans. Hefjum þá leikinn, en svör eru birt á blaðsiðu 24. 1. spurning Fyrsta vísbending Önhur vísbending Þriðja vísbending Fjórða vísbending Fimmta vísbending Þessi biómynd var gerö eftir sögu Margaret Mitchell David Selznick haföi veg og vanda af henni Leslie Iloward lék sannan herramann Eftirsótt kvenhlutverk féll aö lyktum Vivian Leigh Clark Gable var Rhett Butler 2. spurning Haft eftir honum: „fcg elska Beethoven, einkum ljóöin”. Höfundur „Kolkrabba- garösins”. Bolaöi Pete Best i burtu Núoröiö giftur Barböru Bach Hét eiginlega og i raun: Richard Starkey 3. spurning Var af fjendum sinum stundum kallaöur Schicklgruber Sat löngum í fjallabústaö sinum, Berchtesgaden 1 fyrri heimsstyrjöld fékk hann járnkrossinn fyrir vasklega framgöngu Féll tvivegis á inntöku- prófi i listaakademiuna i Vin Elskaöi hann Evu Braun? 4. spurning Landsvæöi sem á dögum Rómverja var skattland- iö Pennónia Fæddur þar Franz Liszt, 1811 Ættbálkurinn Magyar allsráðandi Landsmenn éta stundum gúllas! ...Hjalti 5. spurning Vann Hastingsskákmótiö eitt sinn með Friðrik Ölafssyni Sigraöi á millisvæðamóti 1973 meö Anatóli Karp- ov Tuskaöi Mikhæl Tal reglulega Háði „einvígi hatursins” Bella var honum gefin og áttu þau ígor 6. spurning 9 Bretar tóku land i Súez á árinu Krússjof hélt sögufræga ræöu Vinstri stjórn Hermanns settist aö völdum Ungverjar geröu upp- reisn Vilhjálmur vann silfriö i Melbourne 7. spurning Pláneta meö mörgum tunglum, eitt þeirra er 10 Rauöur blettur finnst á ásýnd sömu plánetu Fimmta reikistjarnan frá sólu Heitir eftir höfuöguöi Rómverja Stærsta reikistjarnan i kerfinu 8. spurning Lék sér gjarnan i Globe Fæddist, aö sögn, i Strat- ford Skrifaöi mikiö um kónga Helgi Hálfdanarson hefur þjónaö honum vel Fræg persóna hans: Lér 9. spurning Pólskir fótboltamenn reyndust óvænt vera þriöju bestu i heimi Undrun vakti aö Englendingar voru ekki meö Á fyrstu minútu úrslita- leiksins var dæmd sögu- fræg vitaspyrna í raun heföi Cruyff átt aö fá gulliö! En Beckenbauer hrósaöi sigri 10. spurning Hugur hans stóö i upphafi fremur til listmálunar en kveðskapar Gaf út fyrstu Ijóöabók sína, einfaldlega „Ljóö” áriö 1944 önnur Ijóöabókin, „A Gnitaheiöi" 1952 Orti — „Hver vegur aö heiman er vegur heim” Ennfremur — „Land, þjóö og tunga, þrenning sönn og ein” Magdalena og Guðjón keppa ■ Bæöi Magdalena Schram og Guðjón Friðriksson reyndust standa sigmjögvelikeppninni og við vonum aö svo hafi veriö um fleiri. Til gamans skulum við rekja hér hvernig Magdalenu og Guöjóni gekk við einstakar spurningar, án þess þó aö birta svörin. 1. Magdalena reyndist vel aö sér i kvikmyndasögu, hún vissi strax rétta svarið og fékk fimm stig. Guðjóni gekk verr en fékk tvö stig fyrir aö giska rétt i fjóröu tilraun. '5:2fyrir Magda- lenu. 2. Þessi kappi þvældist fyrir báö- um en Magdalena fékk að lok- um tvö stig og Guðjón eitt. 7:3. 3. Hér gekk báðum vel og fengu bæöi fjögur stig. 11:7. 4. Nú fór að saxast á forskot Magdalenu, hún fékk tvö stig en Guðjón fjögur. 13:11. 5. Magdalena reyndist ekki nægi- lega vel að sér i skák, hún gat ekki þessa spurningu en Guöjón hins vegar i fyrstu tilraun. 13:16 fyrir Guðjón. 6. Hvorugt var hér i vafa, bæöi fengu fimm stig. 18:21. 7. Hérfékk Magdalena tvöstigen Guðjón þrjú og jók forskotið i 20:24. 8. Bæði reyndust vel aö sér i þessu atriði en Magdalena þó öllu betur. HUn fékk fullt hús, fimm stig, en Guðjón fjögur. 25:28. 9. Hérfékk Magdalena tvö stig en Guðjón gat ekki þessa spurn- ingu og fékk þvi ekkert stig. 10. Spurningin réði úrslitum i þessari spennandi keppni. Magdalena fékk þrjú stig en Guöjón hins vegar fimm og sigraði þvi 30:33. Guðjón Friðriksson heldur þvi áfram keppni en næst etjum við saman tveimur mönnum eftir fjórar vikur og verður þessi þátt- ur í Helgar-Timanum mánaðar- lega á næstunni. —ij. ■1 Magdalena Schram — hún fékk 30 stig. ® Guðjón Friðriksson — hann fékk 33 stig.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.