Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 2
Laugardagur 3. október 1981
2
spegill
ÞAU ERU HÆTT AÐ ELSKAST
■ Sjálf lýsir hún sér á
eftirfarandi hátt: — Ég
er ósköp hversdagsleg,
með skögultennur, of
langa fótleggi og engin
brjóst!
Engu að siður varð
Jane Birkin kyntákn og
eftirlæti gjálifisfólksins.
Hún gekk fram af siö-
prúöu fólki með nektar-
senu i kvikmyndinni
Blow-Up. 18 ára giftist
hún tónskáldinu John
Barry, eignaðist dóttur,
Kate, og skildi svo við
John I snarheitum.
1 Paris tók hún upp
■ Serge þykir ekki smáírlöur maður, en Jane segir
um hann: —Hann kom mér til aöhlæja.
sambúð með franska
skáldinu Serge Gains-
bourg. Og þar afrekaði
hún það, sem lengst
hefur haldið nafni hennar
á lofti. Ásamt Serge gerði
hún plötuna Je T’aime
(Ég elska þig), þar sem
fátt heyrist annað en
frygðarstunur og dæs-
ingar. Vakti platan svo
mikla hneykslan að páf-
inn og BBC bannfærðu
hana. Engu að siður
komst hún ofarlega á vin-
sældalista.
I 12 ár komu þau Jane
og Serge sér með jöfnu
millibili á forsiður blaða
með alls konar undarleg-
um uppátækjum. Að visu
þótti ekki fegurðinni fyrir
aðfarahjá honum, en hún
hafði unnið sér þann ein-
staka sess, að bera fræg-
asta flata barm i Evrópu,
sem hún var iðin við að
sýna i þeim u.þ.b. 20
itölsku og frönsku kvik-
myndum, sem hún tók
þátt i.
Nú er öllu þessu lokið.
Serge býr i Paris, en Jane
hefur dregiö sig i hlé og
býr nú 1 afskekktu húsi i
Normandy með dætrum
sinum, Kate og Charlotte,
dóttur Serge.
Nú býr Jane I afskekktu húsi uppiisveit meðdætrum sinum.
Frægasti flati barmur Evrópu!
AFI ÞYKKNAR
UNDIR BELTI
ÞEGAR VON ER
Á BARNI í
FJÖLSKYLDUNNI
■ Bill Bennett og kona
hans Grace hafa eignast
fimm dætur og tvo syni.
Nú eiga þau 22 barnabörn
og 9 barnabarnabörn.
Þegar elsta dóttir
þeirra hjóna, June, átti
von á sinu fyrsta barni,
tók Bill eftir þvi, að
buxnastrengurinn hans
var oröinn nokkuð þröng-
ur, og siðan eftir þvi sem
dóttirin gildnaði þá
þykknaði hann undir belti
lika. Þetta þótti mjög-ein-
kennilegt, og kona Bills
bað hann að fara til
læknis. Læknirinn fann
ekkert sérstakt að, en
sagði honum aö hreyfa
sig meira, og sjá hvort
þetta lagaðist ekki.
Nú varð June léttari og
um sama leyti fór faöir
hennar að renna. Smátt
og smátt varð umfang
hans eðlilegt og allir
vörpuðu öndinni léttar.
Ensiðan gerðist þetta æ
ofan i æ, — alltaf þegar
fjölgunarvon var i fjöl-
skyldunni tók Bill að
gildna lika. Konan hans
hefur varla haft viö aö
vikka og þrengja bux-
urnar hans til skiptis!
„Ég veit ekkert af
hverju þetta gerist”,
sagði Bill við blaðamann
sem talaöi við hann um
þessi undur, „ætli þetta
sé ekki bara einhvers
konar „samúöar-ólétta”
hjá mér” sagði hann, og
sýndi á málbandinu mis-
muninn á mittismáli sinu
frá siðasta „meðgöngu-
tima”. Mismununurinn
var um 40 sm.
Læknar hafa skoðað
Bill Bennett nýlega, og
sögðu aö hann væri við
hestaheilsu af 79 ára
gömlum manni að vera,
og enga skýringu gátu
þeir gefið á þessu sér-
kennilega fyrirbrigði.
• „Þetta er munurinn á mittismáli minu, frá þvi
að ég siðast gildnaði undir belti”, sagði Bill
Bennett.