Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 8
■ 1881 ndmsísb fl niSEbunnaa Sunnudagur 13. desember 1981 utgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjori: Sig- urður Brynjólfssón. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnárfulltrúi: Oddur V. Olafsson. Fréttastjóri: Páll Mignússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdottir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteins- dottir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 1S, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387. 86392. — Verð í lausasölu 6.00. Askriftargjald á niánuði: kr. 100.00— Prentun: Blaðaprent hf. Sauðkindin, landið Aukning kafbátaflotans ■ Allar fréttir af vigbúnaðaráætlunum kjarna- vopnarikjanna innan Varsjárbandalagsins og Atlantshafsbandalagsins benda til þess, að þau muni i náinni framtið auka stórlega þann kaf- bátaflota sinn, sem er búinn kjarnavopnum. Um þetta liggur fyrir allglögg vitneskja varðandi kafbátaflota Natorikjanna, en Varsjár- rikin flika yfirleitt ekki fyrirætlunum sinum. Það er þó vitað, að Rússar hafa i smiðum nokkra eldflaugakafbáta af svokallaðri Delta III gerð. Þetta eru fullkomnustu eldflaugakafbátar, sem þeir hafa smiðað til þessa og hefur hver um sig 48 kjarnaodda. Þá eru Rússar að hefja smiði á nýrri kafbátagerð, sem ber nafnið Typhoon, og verður enn fullkomnari en Delta III. Hver Typhoon-kafbátur mun geta flutt 72 kjarnaodda. Alvarlegast i sambandi við kafbátaflota Rússa er þó sennilega það, að kafbátsstrandið i Sviþjóð virðist hafa leitt i ljós, að þeir búa svokallaða árásarkaíbáta sina sprengjum með kjarnaodd- um. Gizkað er á, að Rússar hafi um 50 eldflauga-' kafbáta, en 120 árásarkafbáta, en hlutverk þeirra er að granda skipum og eyðileggja hafnir og flug- velli. Það eykur ekki litið kjarnavopnavæddan kafbátaflota Rússa frá þvi, sem áður var álitið, ef þeir búa árásarkafbátana yfirleitt kjarnavopn- um. Þá er að vikja að fyrirætlun Natórikjanna. 1 þeirri vigbúnaðaráætlun Reagans, sem Banda- rikjaþing er i þann veginn að samþykkja, er ráð- gert að smiða a.m.k. sjö eldflaugakafbáta af svo- kallaðri Trident-gerð á árunum 1981-1987 en þetta verða fullkomnustu eldflaugakafbátar i heim- inum og getur hver flutt um 192 kjarnaodda. Þá er gert ráð fyrir að framleiða nokkur hundruð nýrrar stýriflaugar, sem koma má fyrir á árásarkafbátum, ofansjávarskipum og flugvél- um og mun hún geta flutt kjarnavopnið, sem mest verður kappkostað að framleiða i framtið- inni. Rússar muni á næstu árum leggja allt kapp á að fullkomna stýriflaugar sinar, en þeir eru taldir standa Bandarikjamönnum langt að baki á þessu sviði. Bretar hafa nú 4 eldflaugakafbáta, sem taldir eru að séu að verða úreltir. Brezka stjórnin ráð- gerir að endurnýja þá með þvi að fá fjóra banda- riska kafbáta af Trident-gerð. Það myndi i reynd margfalda kjarnavopnastyrk Breta. Frakkar hafa fimm eldflaugakafbáta, en ætla nú að bæta þeim sjötta við. Jafnframt ætla þeir að fara að endurnýja þá gömlu. Nær allri þessari miklu fyrirhuguðu eflingu kafbátaflotans mun ætlað að vera á Norður- Atlantshafi. Slysahættan eykst að sjálfsögðu i sama hlutfalli og kjarnavopnabúnum kafbátum og skipum fjölgar. Þetta eru sannarlega iskyggilegar fram- tiðarhorfur fyrir íslendinga. Þ.Þ. og þjóðin ■Bókaútgáfan Bjallan hefur sent frá sér athyglisveröa bók, sem ber heitið Sauðkindin, landið og þjóðin. Höfundur bókarinnar er dr. Stefán Aðalsteinsson, bú- fjárerfðafræðingur. Hann er löngu kunnur bændum og bú- visindamönnum og öllum, sem lesa ti'marit og bæklinga um land- búnaðarmál, fyrir ritgerðir sinar um rannsóknir og tilraunir, sem hann hefur unnið að um aldar- fjórðungsskeið. Vegna starfa höfundar og framannefndra ritsmiða hans, mætti búast við, að hin nýút- komna bók hans væri hagnýt kennslubók eða fræöirit sérstak- lega ætiuð bændum og þá einkum þeim, sem sauðfjárrækt stunda. En svo er ekki. Bókin er fyrst og fremst skrifuð fyrir fólk, einkum börn og unglinga, sem litiö eða ekkert þekkir til sauðfjárbúskap- ar, nema þáð sem öðru hverju birtist i fjölmiðlum einkum frá áhugamönnum um skógrækt og eigendum illa girtra skrúðgarða eða sumarbústaöa, þá jafnan i óvinsamlegum tón. 1 formála bókarinnar segir höfundur meöal annars: ,,En bókinni er ætlað að brúa það mikla bil sem myndast hefur á siðustu áratugum, þar sem annars vegar eru fornir at- vinnuhættir dreifð búseta og ein- angruð bændamenning, en hins vegar visinda- og tækniþekking siðustu áratuga, búseta i borgum og bæjum og flæði menningar- áhrifa úr öllum álfum heims með sifelldri aukningu i fjölmiðlum.” Höfundi hefur tekist að halda þessu megin markmið og það meö þeirri snilld, að bókin er ánægjuleg og fræðandi lesning fyrir alla, sem hug hafa á þjóð- háttalýsingum og menningarsögu þjóðarinnar.Finnstmér, að bókin sé tilvalið lesefni i siðari hluta grunnskóla og i fyrrihluta fram- haldsskóla. ^ Efni bókarinnar er.uigerð glögg skil i stuttum köflum i léttu og skýru máli. Stillinn ersvo lipur og frásögnin svo ánægjuleg, að les- andinn hlakkar til að lesa næsta kafla og lýkur þvi bókinni á skammri stundu. Bókin er mikið myndskreytt, sem er kostur, þvi erminna aðlesa, en meira aðsjá. Ekki er ástæða til að rekja efni bókarinnar hér, en geta má þess, að fyrstu 6 kaflarnir eru léttur fróðleikur og verður án efa til þess að varðveita ýmis ágæt orð frá glötun. Næstu 3 kaflarnir, 7. Sambúð manns og sauökindar á Islandi i 1100 ár, 8. Fjárhús og 9. Beit sauðf jar.eru aðalefni bókar- innar, og isenn þarfur froðleikur og þjóðháttalýsing. Þessir kaflar eru ritaðir af slikri hlutlægni, að ég hygg, að þeir valdi ekki ágreiningi, þótt i 9. kafla sé fjallaö um eitt viðkvæmasta mál, er landbúnaö okkar varðar. í næstu 6 köflum tekst höfundi að gera miklu efni skil i fáum orðum, en að sjálfsögðu verða þá ýmis áhugaverð atriði homreka, t.d. i 13. kafla: Fengitimi, frjó- semi áa og sauðburður.er fengi- tima gerð of litil skil. Ekki er minnst á snuðrara og að áður fyrr var fáti'tt að hleypa hrútum laus- um i ær, heldur jafnan leitað með snuðrara á degi hverjum aö þvi, ... hvaða ær vildu þýðast hrút þann daginn, þær teknar frá og hverri þeirra haldiö undir þann hrút, sem eigandi taldi heppilegastan til að fá æskilegt lamb, forðast skyldleikarækt o.fl. Að sleppa hrút lausum i ærhúsiö á fengitið, er siðari áratuga fyrirbæri til vinnusparnaðar. 16. og síðasti kafli bókarinnar Fé i sögnum og skáldskap, er skemmtilegur og sniðuglega valinn. 1 þessari bók er drepið á ótrú- lega mörg atriði, sem varða sauð- kindina, landið og þjóðina, sér- staklega áður en nUtima þekking og tækni kom til sögunnar. Samt er mörgu markverðu sleppt vegna rUmleysis. Má t.d. nefna i 1. kafla, þar sem sagt er frá að hrútlömb séu stundum gelt, er þess aðeins getið, að gelt hrút- lömb heiti geldingar á fyrsta ári, en sauðir úr þvi. Þetta er of stutt- araleg skýring á þessum leiða, en þó þá brauðnauðsynlega verkn- aöi, geldingunni. Sauðirnir voru höfðingjar hverrar hjarðar, foröabúr heimilisins og banki eig- andans. Gerður var greinar- munurá þvi', hvort lömb vorugelt á vorin eða á haustin. Haustgeld- ingar voru oft kallaðir kyrningar og þeir hyrndu voru alla ævi auð- þekktir frá vorgeldingum á þvi, að þeir höfðu miklu sverari horn og nokkru sterklegra höfuð. Gaman heföi verið að skýra þennan mun með mynd. Tvær aðferðir við vorgeldingu lamba: fjaðrir i bæði eistnahólfin eða skorið neðan af pungnum i einu hnifsbragði til þess aö ná eistun- um út. Hinsvegar var haustgeld- ing oftast framkvæmd með þvi að binda svo fast fyrir punginn með sterkumog mjúkum spotta, að öll blóðrás til eistnanna stöðvaðist. Dó þá pungurinn með öllu inni- haldi og var jafnan numinn burt með beittum hnif skömmu eftir geldingu. Væri það ekki gert, féll þá pungurinn með öllu af nokkr- um dögum siðar og var þá gróið fyrirsárið. Þessi aðferðvarog er kölluð að reyra undan. Ekki er það allskostar rétt, aö geldingur hafi alltaf þýtt gelt lamb. Aður fyrr voru fullorðnir sauðir oft nefndir geldingar. Sést það all- víða ifornsögumog örnefni benda til þessa. Þá minnist höfundur ekki á frægeldinga. Þeir voru geltir á þann veg, að þeir héldu hrútseöli og hornalagi hrúta, en voru ófrjóir. Þóttu þeir hvimleiðir fyrir, hvað þeir fitnuðu treglega, en sumum f járhirðum þóttu gott aö hafa einn frægelding með án- um á jólaföstunni, svo að þær hlypu ekki úr haga í leit að hrút, er ær beiddu. Fyrst höfundur getur nokkurra sauðfjársjúk- dóma i ll.kafla, hefði hann átt að nefna júgurbólgu, liklega elsta þekkta sauðfjársjúkdóminn, sem hefur þurft að berjast við. Aður fyrr, og af ýmsum ástæðum enn i dag, var þessi sjúkdómur nefndur undirflug eða undirhlaup og or- sökin ýmistkennd hinum fagra og meinlausa spörfugli steindepl- inum eða hinni imynduðu skað- ræðisskeppnu tilberanum, sem stundum var nefndur snakkur. Þjóðtrúin krafðist skýringar á hlutunum áður en visindin komu til sögunnar. Steindepillinn verpti oft I holu á kviavegg og var þvi stundum aö flögra um kviarnar á meðan verið var að m jólka ærnar og fýrir mun hafa komið að fugl- arnir skutust undir á og á, á leið i hreiðriö sitt. Héldu þá m jaltakon- ur, að þessir fuglar væru aö totta ærnar eða gogga i júgrin, svo aö þau bólgnuðu orsakaði það undir- flug. Þjóðtrúin skapaði tííberann áþann hátt, að sumar húsmæður, sem eignuðust mikið smjör, voru taldar göldróttar, þó búsæld þeirra hafi vafalaust verið eðli- leg, og var talið að þær gerðu til- berann og gæddu hann lifi og þeirri náttúru að skjótast um haga nágrannanna og hlaupa undir ær þeirr, sjúga Ur þeim mjólkina og bera hana i strokk húsmóður sinnar. Var talið að þessi kvikindi hengju fast á ær- spenunum, að júgrin bólgnuðu. Var það undirhlaup kallað. Eyrir daga fúkklyf ja olli undirhlaup oft dauða ærinnar. Sauðasmjör sem illa strokkaðist, þ.e. var með smá-meyrnun i, var kallað til- berasmjör. Illa gert skyr, þ.e. kornóttskyr var nefnt graðhesta- skyr. Lesendur sem vilja kynnast tilberanum, geta fundið lýsingu á honum i þjóðsögum Jóns Árna- sónar. Hér skal staðar numið með upptalningur á þvi, sem mér finnst að ávinningur hefði verið aö hafa i þessari ágætu bók. Ég hiröi ekki um að telja upp þau fáu atriði sem höfundur nefnir öðru- visi en ég á að venjast. Hann notar eðlilega orð og málvenjur úr átthögum sinum eins og hann tekur fram. Ég veit að mikil sala verður i þessari bók, og hún verður þvi fljótlega endurprentuð. Þá mun höfundur bæta 5-10 blaðsfðum við lesmálið um sum atriðin, sem ég hef nefnt og annað, sem ávinning- ur væri að fá i svona bók. Þetta er ágætt byrjunarverk, sem ég óska höfundi til hamingju með. HalldórPálsson. ÆF*- 'f~~ Halldór Pálsson skrifar um bókmenntir: klkÉ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.