Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 20
20
Sunnudagur 13. desember 1981
Magnei
iG KÁRi
ÍÖNSPÖTVW
om-.nheuvu
DÓRA OG KÁRI eftir Ragnheiði Jónsdóttur er
hin þriðja af Dórubókunum vinsælu sem Iöunn
gefur nú út í nýrri útgáfu meö nýjum teikning-
um eftir Ragnheiöi Gestsdóttur. Sögurnar
komu út áfimmta og sjötta áratugnum og hafa
nú um langt skeið verið ófáanlegar. RagnheiÖ-
ur Jónsdóttir var á sinni tíö einn fremsti ungl-
ingasagnahöfundur þjóöarinnar og sögur henn-
ar eru hinn ágætasti lestur handa unglingum
enn í dag.
Dóra í Kaupmannahöfn
DÓRA OG KÁRI gerist í lok seinna stríös
ag rétt eftir þaö. Dóra lýkur gagnfræöaprófi og
núfær hún aö láta þann draum sinn rætast aö
komast í ballettskóla. Hún kveöur vini sína,
Völu og Kára, og heldur til Kaupmannahafnar
bar sem ný reynsla bíöur hennar og hún kynn-
ist nýju fólki. Kára haföi langað mjög til aö
'æra söng enda hefur hann hæfileika á því
rviöi, en efnahagurinn sýnist ekki munu leyfa
baö. ÁÖur en sögunni lýkur kemur hann þó
ivænt til Hafnar og veröa þá fagnaöarfundir.
LAMBADRENGUR eftir Pál H. Jónsson er
þriöja barnabók höfundar.
Fyrir fyrri sögurnar, Berjabít og Agnar-
ögn hlaut hann mikiÖ lof og báöar voru þær
sœmdar verölaunum fræösluráös Reykjavik-
urborgar sem veitt eru bestu frumsaminni
barnabók hvers árs. Enda hafa ekki aörir um
langt skeiö samiö barnabækur af meira list-
fengi og alúÖ en Páll. Og raunar eru bækur
hans, eins og aörar góöar bamabækur, engu
síöur viö hæfi fulloröinna lesenda.
LAMBADRENGUR er indæl saga. Hún
gerist í sveit á þeirri tíÖ þegar enn var færtfrá
á íslandi. Aöalpersónan er ungur drengur, sag-
an lýsir samskiptum hans viö fólkiö á bænum
— og ekki s\öur viö náttúruna, blómin og dýrin.
Sagan er skrifuÖ á afar fallegu máli, auöugu og
blæbrigöaríku, og lýsir djúpri og næmri tilfinn-
ingu fyrir landinu og lífi þess í ýmsum mynd-
um. Páll H. Jónsson eykur hróöur sinn meÖ
þessari sögu. Hún er prýdd myndum eftir Sig-
rid Valtingojer.
KÁTT ER í KRUMMAVÍK eftir Magneu frá
Kleifum er sjálfstætt framhald sögunnar
Krakkarnir í Krummavík.
Nú er aöalpersónan frændi krakkanna í
Krummavik, Danni, sem líka kom viö sögu í
fyrri bókinni og á heima í Reykjavik. Hannfær
aö vera hjá frændfólki sinu um sumartíma og
sú dvöl reynist mikiÖ ævintýri. Mörg spaugileg
atvik gerast, fyrst í feröinni sjálfri og síðan
þegar til Krummavíkur er komiÖ.
Þar sem eru margir fjörugir krakkar er
auðvitað fundiö upp á ýmsu, og ekki er full-
orðna fólkiÖ alltaf hrifiö af tiltækjunum. En
víst er um það að enginn dagur í Krummavík
er leiöinlegur.
Öll einkennist frásögnin afglaöværö, gáska
og hlýju, kjöriö lestrarefni fyrir böm. Og ekki
spilla hinar skemmtilegu myndir sem Sigrún
Eldjám hefur teiknaö í söguna.
EINS OG í SÖGU eftir Sigrúnu Eldjárn en hún
sendi frá sér í fyrra skemmtilega bamasögu í
máli og myndum, Allt í plati! Varö hún afar
vinsæl, afungum lesendum.
Nú kemur önnur bók frá Sigrúnu EINS
OG í SÖGU! og fjallar um tvo krakka, Eyvind
og Höllu og ævintýri þeirra. Þau hitta vini
sína, Sigvalda krókófíl og ÞjóÖhildi. En Loftur
lyftuvöröur sem þau léku grátt i fyrri bókinni
er nú kominn á stúfana og hyggur á hefndir.
Hann stendur reyndar ekki einn uppi því hann
á dreka fyrir vin. Þegar við slíka kumpána er
aö eiga er betra aö kunna eitthvaö fyrir sér!
GLEYMMÉREI er skemmtileg bók fyrir litlu
bömin. Teikningar eftir Sigrúnu Eldjárn, en
Þórarinn Eldjárn IjóÖskreytti. Á hverri mynd
er sýnt hvernig þaö að gleyma einhverjum hlut
sem þarf aö nota í daglega lífinu veldur fólki
dálitlum vandræöum, og rímaöur texti Þórar-
ins skýrir þaö enn frékar. Og svo er þama líka
falin mynd sem sýnir hvaö til þarf svo aö allt
komist í lag!
HIMNARÍKI FAUK EKKI UM KOLL eftir
Ármann Kr. Einarsson.
Simmi er ellefu ára og á heima í Breiö-
holti. ÞangaÖ er hann nýfluttur meö foreldrum
sinum og yngri systur, og húsiÖ ekki nærri full-
búiö. Pábbi hans er smiöur og vinnur að því í
fristundum að innrétta íbúöina. Drengurinn er
elskur að pabba sinum, en hann finnur aÖ ein-
hver skuggi hvilir yfir heimilislifinu. Pabbi er
stundum lengi í burtu og mamma veröur þá
kuldaleg í viömóti viö hann á eftir. Hvemig
stendur á því? Og hvaö getur Simmi gert til að
bæta andrúmsloftiö milli foreldra sinna sem
honum þykir svo vænt um?
Einn þekktasti barnabókahöfundur
þjóðarinnar
Ármann Kr. Einarsson hefur hér bætt
skejnmtilegri sögu viö safn bama- og ungl-
ingabóka sinna. Hann er einn af þekktustu og
mikilvirkustu bamabókahöfundum þjóöarinn-
ar. Liggja eftir hann tugir bóka og hafa margar
þeirra verið þýddar á erlend tungumál.
Þetta er viöburöarík saga þótt hún sé
raunsæ, og hún er gædd hlýju og samúöarskiln-
ingi. Hinn stóri lesendahópur höfundar mun
áreiöanlega taka henni tveim höndum. Myndir
i bókina teiknaði Pétur Halldórsson.
SÓLARBLÍÐAN eftir Véstein Lúðvíksson er
fyrsta bamasaga höfundar sem er löngu kunn-
urfyrir bækur sínar handa fullorönum, skáld-
sögur og leikrit. SÓLARBLÍÐAN fjallar um
samskipti lítillar stúlku sem nefnd er þessu
nafni við yfirstjóra sem settur er til aö gæta
hennar. Hann vill hafa strangan aga á stúlk-
unni en hún reynir aö verja sjálfstæöi sitt og
vera eins og henni er eölilegt. VerÖur því spenn-
andi viöureign milli þeirra. En Sólarblíöan
stendur ekki ein í stríöinu, hún á vini sem
sitthvaö kunna fyrir sér. Fara brátt óvæntir
atburöir að gerast sem koma yfirvöldum úr
jafnvægi.
Þetta er skemmtileg bamabók prýdd teikn-
ingum eftir Malinu Örlygsdóttur.