Tíminn - 13.12.1981, Page 20

Tíminn - 13.12.1981, Page 20
20 Sunnudagur 13. desember 1981 Magnei iG KÁRi ÍÖNSPÖTVW om-.nheuvu DÓRA OG KÁRI eftir Ragnheiði Jónsdóttur er hin þriðja af Dórubókunum vinsælu sem Iöunn gefur nú út í nýrri útgáfu meö nýjum teikning- um eftir Ragnheiöi Gestsdóttur. Sögurnar komu út áfimmta og sjötta áratugnum og hafa nú um langt skeið verið ófáanlegar. RagnheiÖ- ur Jónsdóttir var á sinni tíö einn fremsti ungl- ingasagnahöfundur þjóöarinnar og sögur henn- ar eru hinn ágætasti lestur handa unglingum enn í dag. Dóra í Kaupmannahöfn DÓRA OG KÁRI gerist í lok seinna stríös ag rétt eftir þaö. Dóra lýkur gagnfræöaprófi og núfær hún aö láta þann draum sinn rætast aö komast í ballettskóla. Hún kveöur vini sína, Völu og Kára, og heldur til Kaupmannahafnar bar sem ný reynsla bíöur hennar og hún kynn- ist nýju fólki. Kára haföi langað mjög til aö 'æra söng enda hefur hann hæfileika á því rviöi, en efnahagurinn sýnist ekki munu leyfa baö. ÁÖur en sögunni lýkur kemur hann þó ivænt til Hafnar og veröa þá fagnaöarfundir. LAMBADRENGUR eftir Pál H. Jónsson er þriöja barnabók höfundar. Fyrir fyrri sögurnar, Berjabít og Agnar- ögn hlaut hann mikiÖ lof og báöar voru þær sœmdar verölaunum fræösluráös Reykjavik- urborgar sem veitt eru bestu frumsaminni barnabók hvers árs. Enda hafa ekki aörir um langt skeiö samiö barnabækur af meira list- fengi og alúÖ en Páll. Og raunar eru bækur hans, eins og aörar góöar bamabækur, engu síöur viö hæfi fulloröinna lesenda. LAMBADRENGUR er indæl saga. Hún gerist í sveit á þeirri tíÖ þegar enn var færtfrá á íslandi. Aöalpersónan er ungur drengur, sag- an lýsir samskiptum hans viö fólkiö á bænum — og ekki s\öur viö náttúruna, blómin og dýrin. Sagan er skrifuÖ á afar fallegu máli, auöugu og blæbrigöaríku, og lýsir djúpri og næmri tilfinn- ingu fyrir landinu og lífi þess í ýmsum mynd- um. Páll H. Jónsson eykur hróöur sinn meÖ þessari sögu. Hún er prýdd myndum eftir Sig- rid Valtingojer. KÁTT ER í KRUMMAVÍK eftir Magneu frá Kleifum er sjálfstætt framhald sögunnar Krakkarnir í Krummavík. Nú er aöalpersónan frændi krakkanna í Krummavik, Danni, sem líka kom viö sögu í fyrri bókinni og á heima í Reykjavik. Hannfær aö vera hjá frændfólki sinu um sumartíma og sú dvöl reynist mikiÖ ævintýri. Mörg spaugileg atvik gerast, fyrst í feröinni sjálfri og síðan þegar til Krummavíkur er komiÖ. Þar sem eru margir fjörugir krakkar er auðvitað fundiö upp á ýmsu, og ekki er full- orðna fólkiÖ alltaf hrifiö af tiltækjunum. En víst er um það að enginn dagur í Krummavík er leiöinlegur. Öll einkennist frásögnin afglaöværö, gáska og hlýju, kjöriö lestrarefni fyrir böm. Og ekki spilla hinar skemmtilegu myndir sem Sigrún Eldjám hefur teiknaö í söguna. EINS OG í SÖGU eftir Sigrúnu Eldjárn en hún sendi frá sér í fyrra skemmtilega bamasögu í máli og myndum, Allt í plati! Varö hún afar vinsæl, afungum lesendum. Nú kemur önnur bók frá Sigrúnu EINS OG í SÖGU! og fjallar um tvo krakka, Eyvind og Höllu og ævintýri þeirra. Þau hitta vini sína, Sigvalda krókófíl og ÞjóÖhildi. En Loftur lyftuvöröur sem þau léku grátt i fyrri bókinni er nú kominn á stúfana og hyggur á hefndir. Hann stendur reyndar ekki einn uppi því hann á dreka fyrir vin. Þegar við slíka kumpána er aö eiga er betra aö kunna eitthvaö fyrir sér! GLEYMMÉREI er skemmtileg bók fyrir litlu bömin. Teikningar eftir Sigrúnu Eldjárn, en Þórarinn Eldjárn IjóÖskreytti. Á hverri mynd er sýnt hvernig þaö að gleyma einhverjum hlut sem þarf aö nota í daglega lífinu veldur fólki dálitlum vandræöum, og rímaöur texti Þórar- ins skýrir þaö enn frékar. Og svo er þama líka falin mynd sem sýnir hvaö til þarf svo aö allt komist í lag! HIMNARÍKI FAUK EKKI UM KOLL eftir Ármann Kr. Einarsson. Simmi er ellefu ára og á heima í Breiö- holti. ÞangaÖ er hann nýfluttur meö foreldrum sinum og yngri systur, og húsiÖ ekki nærri full- búiö. Pábbi hans er smiöur og vinnur að því í fristundum að innrétta íbúöina. Drengurinn er elskur að pabba sinum, en hann finnur aÖ ein- hver skuggi hvilir yfir heimilislifinu. Pabbi er stundum lengi í burtu og mamma veröur þá kuldaleg í viömóti viö hann á eftir. Hvemig stendur á því? Og hvaö getur Simmi gert til að bæta andrúmsloftiö milli foreldra sinna sem honum þykir svo vænt um? Einn þekktasti barnabókahöfundur þjóðarinnar Ármann Kr. Einarsson hefur hér bætt skejnmtilegri sögu viö safn bama- og ungl- ingabóka sinna. Hann er einn af þekktustu og mikilvirkustu bamabókahöfundum þjóöarinn- ar. Liggja eftir hann tugir bóka og hafa margar þeirra verið þýddar á erlend tungumál. Þetta er viöburöarík saga þótt hún sé raunsæ, og hún er gædd hlýju og samúöarskiln- ingi. Hinn stóri lesendahópur höfundar mun áreiöanlega taka henni tveim höndum. Myndir i bókina teiknaði Pétur Halldórsson. SÓLARBLÍÐAN eftir Véstein Lúðvíksson er fyrsta bamasaga höfundar sem er löngu kunn- urfyrir bækur sínar handa fullorönum, skáld- sögur og leikrit. SÓLARBLÍÐAN fjallar um samskipti lítillar stúlku sem nefnd er þessu nafni við yfirstjóra sem settur er til aö gæta hennar. Hann vill hafa strangan aga á stúlk- unni en hún reynir aö verja sjálfstæöi sitt og vera eins og henni er eölilegt. VerÖur því spenn- andi viöureign milli þeirra. En Sólarblíöan stendur ekki ein í stríöinu, hún á vini sem sitthvaö kunna fyrir sér. Fara brátt óvæntir atburöir að gerast sem koma yfirvöldum úr jafnvægi. Þetta er skemmtileg bamabók prýdd teikn- ingum eftir Malinu Örlygsdóttur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.