Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 36

Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 36
36 Sunnudagur 13. desember 1981 i sjóbissness var enginn stærri en Elvis Presley enda var hann kallaður Kóngurinn. Þarfnast Ivarla kynningar: var einn upphafsmanna rokksins og hafði meiri áhrif á aðra tónlistarmenn en nokkur annar, tryllti smástelpur og matrónur á miðjum aldri/ söng þar til hann var orðinn hluti af samtfð- inni. Hann dó árið 1977 — þá ekki nema skugginn af sjálfum sér— en þá var andlit hans oftar þrykkt á pappír en nokkurt fés annað ef Mikki mús er und- anskilinn. ,,Minningin um Konunginn lifir"/ segir fólk en nú hin siðari ár hefur goðsögnin látið á sjá. Nú fyrir örfáum vikum kom út i Bandaríkjunum I ævisaga Presleys/ eftir Albert nokkurn Goldman — prófessor í samanburðarbókmenntum — og fer | hún langt með að rifa niður í eitt skipti fyrir öll ímyndina um Kónginn. Bók þessi/ sem heitir ein- faldlega ,/ELVIS" er mjög umdeild; til að mynda I sagði gagnrýnandi breska blaðsins Observer, rit- höfundurinn Martin Amis/ að hún segi meira um jsálarlíf höfundarins en Elvis Presley/ en Goldman segir á móti að bók hans sé byggð á mjög nákvæm- um og samviskusamlegum rannsóknum/ þar sé jekkert sagt sem ekki sé stutt framburði áreiðan- legra vitna. Við grípum niður hér og hvar i þessari merku bók —þess má geta að Almenna bókafélagið Ihefur tryggt sér rétt á að gefa hana út á íslensku. ■ Hið fyrsta sem Albert Goldman kveðst hafa rekið sig á er hann hóf athuganir sinar á ævi Presleys var hversu goðsögnin um hann reyndist byggð á ótraustum grunni. Meirihluti þeirra sagna sem gengiö hafa um Presley og fest i huga almennings um heim allan voru, ef ekki rakin lygi, þá að minnsta kosti miklar ýkjur. Allt aftur i barnæsku. Tök- um dæmi: Fjölskylda Presleys og aðdáendur hans hafa jafnan haldið þvi statt og stööugt fram að hann hafi verið hinn eldri af eineggja tviburum, yngri bróðir- inn hafi látisí i fæðingu. Goldman gerði ekki annað en fara i lækna- skýrslur og þá kom i ljós að Elvis fæddist nokkru á eftir bróöur sin- um, sem að sönnu var andvana fæddur. Ekkert bendir til þess að þeir bræður hafi verið eineggja, þó að sjálfsögðu hafi ekki verið hægt að afsanna það heldur. Svo smávægilegt atriði sem þetta lýsir goðsögninni um Presley nokkuð vel. Vitanlega skiptir þetta engu máli en i hugum þeirra sem dýrkuðu — bókstaflega dýrk- uðu — Elvis var það mikilvægt til sönnunar um dýrð Kóngsins að hann hefði verið eldri tviburinn. Svona sögur ganga um mörg svo- kölluð mikilmenni — aðdáendum þykir fátt rómantiskara og huggulegra en svona hlutir. Allt um það, Elvis fæddist 8. janúar 1935, var skirður fullu nafni Elvis Aaron Presley og var af ætt svo- kallaðra „hillbillies” i Suöurrikj- um Bandarikjanna. Aðdáendurn- ir hafa jafnan mikið upp úr þvi að hann hafi verið af traustum og rótgrónum — en að visu fátækum — ættum en það er af og frá: „hillbillies” voru rótlausir menn, eiginlega fiökkukindur og festu sjaldan yndi lengi á sama staö. Fátækt fjölskyldunnar hefur einnig verið ýkt stórlega. Presley-fjölskyldan var að visu oftast i fjárkröggum en þó aldrei á nástrái og lifði þokkalegu lifi. glaðlynd kona og feikna vilja- sterk. Er Vernon var settur i fang elsi um hrið fyrir smávægilegt ávisanafals tók hún stjórnina á heimilinu i sinar hendur. Hún dýrkaði son sinn, gætti hans eins og sjáaldurs augna sinna og gerði hann að lyktum mjög háðan sér. Elvis svaf i sama rúmi og móðirin næstum fram á fullorðinsár og vandist þvi að geta sifellt leitað til móður sinnar ef eitthvað, hversu litilfjörlegt sem það var, bjátaði á. Afleiðingin lét ekki á sér standa. Elvis varð mömmu- drengur hinn mesti og i rauninni komst hann aldrei af barnsaldri. 1 huga sér hann alltaf litli drengur- inn hennar mömmu og lýsti það sér mjög i samskiptum hans við konur siðar meir. Hann ætlaðist til þess að þær konur sem hann elskaði — á sinn eigin og dálitið undarlegan hátt — gengju honum i móðurstað og þegar hann var þunglyndur eða leiður töluðu þær við hann á barnamáli og reyndu að hugga hann eins og hann lægi enn i vöggu. Hann óx i reynd aldrei upp úr vöggunni, þó hann reyndi ýmislegt til þess. Góði drengurinn og/eða Tony Curtis Er Elvis komst á táningsaldur var hann ósköp litill og sætur strákur, fjölskyldan bjó i Memp- his um þær mundir, og þar kom að stráksi vildi breyta imynd sinni. t skóla hafði boriö litið á honum og hann var enginn náms- maður — eftir að hann sá kvik- mynd með Tony Curtis ákvað hann að breyta Imynd sinni. t Suðurrikjunum voru þá allir strákar með snoöklippingu og gengu pent til fara. Tony Curtis lék I umræddri mynd Norður- rikjatöffara með brilljantin og greitt i piku, lúnaður til fara og Elvis var hrifinn, tók upp sama hlaut að launum. Astæöan var sú að hann sá sjálfur ekkert rangt viö það sem hann var aö gera — sama var uppi á teningnum siöar er hann var oröinn frægur og var það hvað eftir annaö sakaður um að haga sér óviðurkvæmilega á sviöúsem sé kynferðislega. Aldrei lét hann af þeirri framkomu, en töffarabúningur. Og eins og drengur sem látinn er klæðast fötum af föður sinum, þá óx Elvis upp I búninginn sinn. A endanum var hann oröinn töffari eins og út- litið gaf til kynna, engu að siöur var hann alltaf „sami, góði Faðirinn Vernon Elvis Presley var verkamaður og fær slæma einkunn i bók Goldmans — sem segir blátt áfram aö Vernon hafi verið „leiðindapúki og asni”, auk þess bæöi gráöugur og niskur — en móöirin hét Gladys. Hún var stil. Er skemmst frá þvi að segja aö hann varð að athlægi, hann var barinn hvað eftir annað af „red- nekkunum” i skólanum, en undarlegt nokk/kom Elvis aldrei til hugar að snúa aftur við blaðinu. Hann var fjarri þvi sterkur karakter, en þarna stóð hann fastur fyrir og lét einu gilda hversu stórar barsmiðar hann hefði orðið fljótur til-ef honum heföi sjálfum þótt eitthvað ósið- legt við sviðsframkomu sina. El- vis var nefnilega penn drengur úr hófi fram. Hann var góður við mömmu sina, þægur, hlýðinn og ljúfur, gerði aldrei neitt það sem hann mátti ekki. Nú var það aug- ljóst mál að útlit það, klæða- burður og hárgreiðsla sem Elvis apaöi eftir Tony Curtis hæfði ekki beinlinis þessum góða strák sem lýst var hér að ofan — þetta var drengurinn”, eins og segir i ömmubæn sjómannsins. Þarna mættust sem sé tveir andstæðir pólar i skapgerð Presleys og urðu andstæðurnar sifellt greinilegri eftir þvi sem á leið og árunum fjölgaði. Hafa sumir gengið svo langt, og meðal þeirra er að sjálf- sögðu Albert Goldman aö halda þvi fram aö Elvis hafi næstum verið skitsófreniskur, það vill segja geðklofi, slik hamskipti sem á honum gætu oröiö. 1 aðra röndina var hann næstum heilagur, i hina stór og grimmur töffari — eða altént eitthvaö i þá áttina. Sjálfum gekk honum Fyrri hluti ágætlega að samræma þessar tvær hliöar sinar, eins og við munum sjá i næstu viku er Elvis fer — útúrdópaður — á fund Nixons til að leggja honum lið við að kveöa i kútinn eiturlyfjaófögn- uðinn. Hitt er svo annað mál aö náttúrlega þurfti ákaflega út- haldsgóðan mann til að þola þær öfgarsem Elvis sveiflaðist á milli og það úthald hafði hann ekki. Hafi hann haft það i byrjun var hann ekki lengi að eyðileggja það sjálfur með heldur taumlitlum lifnaðarháttum eins og við mun- um kynnast. Engin afmælisgjöf handa mömmu En vikjum að tónlist, sérgrein Presleys. Sjötti áratugurinn er á að giska hálfnaður og miklar hræringar i bandarisku tónlistar- lifi. Ahrif þeirrar tónlistar sem svertingjar höfðu þróað með sér i langan tima fóru sivaxandi, ekki einungis i jazzinum, sem var óðum að vinna sér virðulegan sess, heldur einnig á öðrum tón- listarsviðum. Til var það sem kallað var „Rythm’n’Blues” og var nánast einkaeign negranna til að byrja með er fram liðu stundir jukust vinsældir þessarar tónlist- ar og hvitir menn tóku að stunda hana einnig. Úr bræðingi ýmissa tónlistartegunda varð smátt og smátt til þaö sem kallað er siðan rokk. Og Elvis var, sem áður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.