Fréttablaðið - 29.10.2008, Page 18
SNJÓSLEÐAFERÐIR , ísklifur, flúðasigling og hópeflisferðir eru á
meðal þess sem fyrirtækið Hvataferðir býður upp á. Fyrirtækið tekur
á móti hópum og ferðast með þá vítt og breitt um landið. Allar
nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.hvataferdir.is.
Þær fregnir bárust frá Dalvík í lið-
inni viku að þar væri búið að opna
skíðasvæðið. Slíkt heyrir að sjálf-
sögðu til frétta, enda ekki mjög
algengt að nógu mikill snjór sé á
landinu til að hægt sé að opna skíða-
svæði svo snemma. Þó hljóta
margir að vera farnir að leggja á
ráðin um skíðaferð seinna í vetur
og því ekki úr vegi að minnast á
nokkra ferðamöguleika innan-
lands.
Á Ísafirði má finna eina skíða-
svæðið á Vestfjörðum. Þar var
neðri hluti svæðisins opnaður í
gær. Úlfur Guðmundsson forstöðu-
maður telur líklegt að Íslendingar
muni sækja í auknum mæli í skíða-
ferðalög innanlands í vetur. „Ég
held að flest skíðasvæði á landinu
reikni með auknum fjölda heim-
sókna í vetur enda hagstæðast
fyrir Íslendinga að ferðast innan-
lands um þessar mundir. Ég hef
sjálfur orðið var við talsverðan
þrýsting á að opna svæðið sem
fyrst og það er því ánægjulegt að
það skuli hafa snjóað almennilega
jafnsnemma og raun ber vitni.“
Ýmsir möguleikar eru á gistingu á
Ísafirði. Gamla gistihúsið við
Mánagötu 5 er í hjarta miðbæjar
Ísafjarðar og Gistiheimili Áslaug-
ar er elsta starfandi gistihús bæj-
arins.
Skíðamiðstöð Austurlands er í
Oddskarði. Svæðið hefur enn ekki
verið opnað vegna snjóleysis, en
vænta má að nánari upplýsingar
um starfsemi í vetur liggi fljótlega
fyrir. Skíðaferð í Oddskarð er
góður kostur fyrir þá sem hafa hug
á að kanna Austurland betur, en í
Fjarðabyggð má finna skemmtilegt
úrval gistihúsa og annarrar ferða-
þjónustu.
Stefnt er að því að opna skíða-
svæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri í
lok nóvember. Akureyri er
skemmtilegur bær heim að sækja
enda býður hann upp á margvís-
lega gisti- og afþreyingarmögu-
leika. Á vefsíðunni www.visitakur-
eyri.is má finna greinargóðar
upplýsingar um ferðaþjónustu og
viðburði á Akureyri.
Ekki má gleyma að minnast á
skíðasvæðið í Bláfjöllum, en enn
sem komið er hefur svæðið ekki
verið opnað. Fylgjast má með þróun
mála þar, sem og á öðrum skíða-
svæðum landsins, á vefsíðunni
www.skidasvaedi.is. Upplýsingar
um gistingu og ferðaþjónustu víða
um land má svo nálgast á vefsíð-
unni www.gistihus.is.
vigdis@frettabladid.is
Skelltu þér á skíði
Vegna kulda og vetrarveðurs undanfarið hefur opnast óvenjusnemma fyrir þann möguleika að skella sér
á skíði innanlands. Fjölmörg skíðasvæði um land allt veita vandaða þjónustu.
Höfuðborgarbúar og aðrir hafa lengi skemmt sér á skíðum í Bláfjöllum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.
Auglýsingasími
– Mest lesið