Fréttablaðið - 29.10.2008, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 29.10.2008, Qupperneq 26
MARKAÐURINN 29. OKTÓBER 2008 MIÐVIKUDAGUR6 S K O Ð U N Sögurnar... tölurnar... fólkið... O R Ð S K Ý R I N G I N ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 – prentmiðlar RIT STJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson RITSTJÓRN: Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Ingimar Karl Helgason, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Magnús Sveinn Helgason, Sindri Sindrason AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 – prentmiðlar PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@ posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu á heim ili á höf uðborg ar svæð inu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands byggðinni. Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. bjorn.ingi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l ingimar@markadurinn.is l jonab@ markadurinn.is l msh@markadurinn.is l olikr@markadurinn.is l sindri@markadurinn.is Um miðja síðustu viku hófst uppgjörstímabil þriðja ársfjórðungs í Kauphöll Íslands með því að Nýherji skilaði inn ársreikningi sínum, fyrst skráðra fyrirtækja líkt og svo oft áður. Í gær bættist svo Össur í hópinn. Þar á bæ er ekki gert ráð fyrir að sveiflur á fjármálamörk- uðum hafi veruleg áhrif á rekstur félagsins, enda starfi Össur innan heilbrigðisgeirans. Hagnaður félagsins eykst um rúman helming á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra, ef frá er tekinn ein- skiptishagnaður af sölu á einni af vörulínum félagsins. Hlýtur það að teljast dágóður árangur og vonandi fyrirboði um það sem koma skal hjá öðrum þeim fyrirtækjum sem ekki verða fyrir beinum áhrif- um af sviptingum fjármálamarkaða hér heima og erlendis. Óhætt er hins vegar að segja að annar bragur verði á uppgjörstíma þeim sem nú fer í hönd miðað við það sem áður var, þar sem bankarnir hafa borið höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki í hagnaði. Fjármálafyrirtæki hafa vegið þungt í Kauphöll Íslands, raunar mun þyngra en í öðrum kauphöllum, og stað- ið undir stórkostlegum vísitöluhækkun- um síðustu ár. Nú er öldin önnur og full ástæða til að hafa áhyggjur af framtíð kauphallarviðskipta hér. Skráðum félögum fækkar óðum í Kauphöllinni. Þau eru núna 18 á lista, en standa væntanlega eftir 14 þegar búið verður að taka út Kaupþing (Glitnir og Landsbankinn eru þegar horfnir) og kemur að afskráningu Existu sem í stefnir og Vinnslustöðvarinnar sem stefnt hefur verið að um skeið og Atorku. Þá ríkir óvissa um framtíð fleiri félaga. Raunar er búið að skrúfa kaup- hallarviðskipti hér aftur í árdaga þeirra, en árið 1991 voru hér tvö skráð félög, 11 árið eftir og 17 árið 1993. Jafndramatískir atburðir og fall fjármálakerfis heillar þjóðar, jafn- vel í skugga alþjóðlegrar fjármálakreppu, hljóta að kalla á viðamikið uppgjör við fortíðina, hvort heldur það snýr að regluverki eða stjórn- málum og um leið gagngera endurskoðun á því umhverfi sem fyrir- tækjum er hér búið. Um leið er mikilvægt að missa ekki taktinn í um- bótum sem þegar hefur verið blásið til. Þar má nefna heimild til að skrá hlutabréf í evrum í Kauphöll Íslands og tengingu uppgjörskerfis kauphallarinnar við stórgreiðslukerfi Seðlabanka Evrópu með liðsinni Seðlabanka Finnlands. Eftir þau áföll sem dunið hafa yfir má Kaup- höllin hér ekki við því að fæld verði úr landi burðugustu fyrirtækin af þeim sem eftir standa. Víðar mætti gera kerfisbreytingar sem strax yrðu til bóta. Til dæmis þyrfti ekki langan aðdraganda að því að auka gagnsæi ákvarð- anatöku í Seðlabanka Íslands, líkt og oft hefur verið haft orð á, með því að birta fundargerðir bankastjórnarinnar. Fordæmi eru fyrir slíku verklagi annars staðar frá og færa mætti fyrir því rök að óvíða væri mikilvægara að hlutir gerðust fyrir opnum tjöldum, en þar sem vafi leikur á hvort bakgrunnur og pólitísk fortíð spili inn í ákvarðan- ir bankans. Í því uppgjöri sem í hönd fer ríður á að bæta samfélagið og stór þáttur í þeirri viðleitni er aukið gagnsæi og upplýsingagjöf, hvort sem það er hjá stofnunum ríkisins, fyrirtækjum sem það hefur tekið að sér að stýra, eða annars staðar. Upplýst umræða er forsenda lýðræðis- legra ákvarðanatöku. Og núna þarf að taka réttar ákvarðanir. Fyrirtæki Kauphallarinnar taka nú að skila inn reikn- ingum sínum. Víðar í þjóðfélaginu dregur til uppgjörs. Uppgjörstímabil að hefjast af þunga Óli Kristján Ármannsson Í góðæri síðustu ára hafa marg- ar mikilvægar grunnstoðir at- vinnulífsins, svo sem sprota- og hátæknifyrirtæki, átt erfitt upp- dráttar. Vextir hafa verið háir, viðvarandi skortur verið á hæfu starfsfólki og gengi krónunnar of sterkt. Vegna þessa hefur sam- keppnishæfni og staða útflutn- ings- og samkeppnisgreina verið erfið – drifkraftur góðærisins var erlend lántaka, einkaneysla og útrás. Í kjölfar hruns bankanna og þeirra efnahagslegu hremminga sem nú ganga yfir landið er ljóst að breytinga er þörf. Með skynsamlegum aðgerðum verður að virkja þann drifkraft sem fólginn er í íslenskum iðn- aði, lágmarka þann efnahagslega skaða sem orðið hefur og um leið treysta stoðir efnahagslífsins til lengri tíma. VELJUM ÍSLENSKT Iðnaðurinn hefur þá sérstöðu að vera í senn gjaldeyrisaflandi og gjaldeyrissparandi. Með því að flytja inn hráefni sem umbreytt er í fullunna vöru minnkar þörf á innfluttri vöru og gjaldeyrir spar- ast. Um leið verður til innlendur virðisauki og innlend störf. Með því að velja íslenskt leggjum við öll lóð á vogarskálarnar og stuðl- um að uppbyggingu íslensks efna- hagslífs. Iðnaðurinn er mikilvæg upp- spretta gjaldeyrisöflunar í land- inu. Fyrstu 8 mánuði ársins voru fluttar út vörur að verðmæti 272 milljarðar. Þar af var útflutn- ingur á iðnvörum 143 milljarð- ar, stærstur hluti vegna stór- iðju 111,6 milljarðar. Margvísleg önnur iðnframleiðsla vegur einn- ig þungt s.s. lyf, lækningatæki og margvíslegur vélbúnaður til mat- vælaframleiðslu. Í þessum tölum er ekki tekinn með útflutningur á hvers kyns hugbúnaði og tölvu- leikjum en sá hluti verður sífellt stærri og mikilvægari. AUKIN NÝSKÖPUN Bandaríski hagfræðingurinn og nýkrýndur nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, Paul Krugman, sagði eitt sinn að framleiðni væri ekki allt en „til lengri tíma litið er framleiðni næstum allt. Geta sam- félagsins til að auka lífsgæði yfir lengri tímabil eru byggð á getu þess til að auka framleiðsluverð- mæti hvers starfsmanns.“ Besta leiðin til að ná þessu fram er fólgin í nýsköpun í atvinnu- lífinu. Til skamms tíma litið er hægt að stíga mikilvæg skref til að treysta stoðir nýsköpunar í fyrirtækjum. Eitt þeirra væri að tryggja að fjárfestingarsjóður- inn Frumtak verði að veruleika en hann er samstarfsverkefni Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, viðskiptabankanna þriggja og líf- eyrissjóðanna. Annað mikilvægt skref væri að efla Tækniþróunar- sjóð og Nýsköpunarsjóð atvinnu- lífsins. Mikilvægt er að láta þessar stoðir ekki verða undir í fjár- málakreppunni heldur virkja þær og treysta þannig hagsæld okkar til langframa. Í þessu ljósi er rétt að minna á fordæmi Finna og Svía þegar þessi lönd lentu í kreppu á níunda og tíunda áratugnum. Í kjölfarið voru rannsóknir og þró- unarstarf fyrirtækja sett í for- gang og að nokkrum árum liðnum blómstruðu nýir og arðbærir at- vinnuvegir. VIRKJUN MANNAUÐS Síðustu vikur og mánuði hefur efnahagslíf okkar einkennst af miklum fjármagnsflótta frá land- inu sem birtist í gengisfalli krón- unnar. Slíkan skaða er hægt að bæta og raunar miðar aðstoð Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins við Ísland að því að skjóta styrkari stoð- um undir gjaldeyrismarkaðinn á ný. Á meðan atvinnuleysi eykst hröðum skrefum eykst hættan á mannauðsflótta frá landinu. Þann skaða getur verið erfitt að bæta. Það er einnig dýrt að hafa vinnu- fúsa og hæfa einstaklinga at- vinnulausa. Mesti kostnaðurinn er ekki fólginn í bótagreiðslum heldur í þeim verðmætum sem vinnufúsar hendur gætu skapað en gera ekki. Nú skiptir sköpum að bregðast hratt við og nýta vel þann mann- auð sem losnar og finna honum nýjan farveg. Ýmsar möguleg- ar aðgerðir má nefna s.s. að gera tímabundna samninga við At- vinnuleysistryggingasjóð og að taka upp endurgreiðslu rannsókn- ar- og þróunarkostnaðar eins og Samtök iðnaðarins hafa lengi bar- ist fyrir. Laust húsnæði í eigu rík- isins kann einnig að skapa sóknar- færi í þessu sambandi. ESB OG EVRA Óhjákvæmilegt er að velta upp þeirri spurningu hvað taki við þegar efnahagsstorminn sem nú geisar lægir. Samtök iðnaðarins hafa árum saman bent á nauðsyn þess að hér ríki stöðugleiki í víð- tækum skilningi þess orðs. Hann er forsenda þess að hér þrífist arðbær atvinnustarfsemi. Það er lítið gagn í metnaðarfull- um aðgerðum til að efla atvinnu- lífið ef vextir verða áfram háir, verðbólga mikil og gengi krón- unnar eins og korktappi í ólgu- sjó. Metnaðarfull áætlun um end- urreisn efnahagslífsins hlýtur því að fela í sér aðild að Evrópu- sambandinu og upptöku evru eins og Samtök iðnaðarins hafa árum saman bent á. FINNUM KRÖFTUM OKKAR RÉTTAN FARVEG Áfallið sem nú dynur yfir efna- haginn felur í sér tækifæri til að beina kröftum okkar að þeirri hlið atvinnulífsins sem skapar mest verðmæti fyrir þjóðarbúið í lengd og bráð. Hagsæld okkar mun í framtíðinni byggjast á því að hér þrífist atvinnulíf sem hannar og framleiðir eftirsóttar vörur og þjónustu. Hagsæld er ekki feng- in að láni. Við þurfum að vinna fyrir henni. Með því að virkja mátt hugans og nýta auðlindirnar og tækifærin vel verður sú vinna auðveldari og arðbærari. Á síðust árum hafa hátæknifyr- irtæki, sprotafyrirtæki og mörg útflutnings- og samkeppnisfyrir- tæki ekki búið við góð starfsskil- yrði. Mikilvægt skref á leið okkar út úr þeim efnahagsþrengingum sem við stöndum frammi fyrir er að bæta úr því. HÁTÆKNISTÓRIÐJA Hér sjást tvö af netþjónabúum bandaríska netleitarrisans Google, hvort um sig á stærð við knattspyrnuvöll. Greinarhöfundur bendir á að nú sé mikilvægt að missa ekki sjónar á nýsköpun í íslensku atvinnulífi sem stuðli að auknum útflutningi. MARKAÐURINN/GETTY IMAGES Hagur okkar allra Jafndramatískir atburðir og fall fjár- málakerfis heillar þjóðar, jafnvel í skugga alþjóðlegr- ar fjármálakreppu, hljóta að kalla á viðamikið uppgjör við fortíðina. Í umræðu um hrun fasteignamarkaðarins í Banda- ríkjunum hefur athyglin mjög beinst að því sem á ensku er kallað „predatory lending“ og má þýða sem varglán. Varglán eru ævinlega okurlán. Fólk tekur okurlán yfirleitt vitandi vits, oft í stundarneyð, en varglán eru seld á fölskum forsendum með gylliboðum sem glepja. Stór hluti svokallaðra „und- irmálslána“ voru í raun varg- lán. Athyglin hefur einkum beinst að lánum á breytilegum vöxtum og lánum sem báru lága „kynningarvexti“, sem hækkuðu að ákveðnum tíma liðnum. Mörg fasteignalánafyrirtæki hafa verið sökuð um að hafa selt slík lán án þess að gera lántakend- um ljóst hver raunverulegur kostnaður þeirra væri. Þá hefur verið bent á að skilmálar margra þeirra hafi verið það flóknir að óvanir og ómennt- aðir lántakendur hafi ekki haft tök á að skilja þá, og þannig verið glaptir til að taka lán sem þeir réðu ekki við. Fasteignalánafyrirtækin sem veittu lánin höfðu tekjur sínar fyrst og fremst af ýmsum lántökugjöld- um og seldu lánin áfram til fjárfestingarbanka sem breyttu þeim í verðbréf og seldu í flókn- um skuldavafningum. Í útboðslýs- ingum þeirra ábyrgðist útgefandi lánsins yfirleitt að lántakendur myndu ekki lenda í greiðsluvanda minnst tólf mánuði eftir lántöku, það er, áður en vextirnir breyttust. „Varglán“ eða „predatory lending“ Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins O R Ð Í B E L G Ótrúlegt verð! 1.795 kr. Ó ! · 1 2 0 8 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.