Fréttablaðið - 12.11.2008, Blaðsíða 8
568 18 2400milljarðar dollarar er stærð efnahags-örvunarpakkans sem kínversk stjórnvöld kynntu um helgina. prósent er stærð kínverska efnahagsörvun-arpakkans sem hlutfall af landsframleiðslu Kína, sem var 3300 milljarðar dollara í fyrra. milljarðar dollara væri stærð hlutfallslega jafn stórs björgunarpakka í Bandaríkjunum og kynntur hefur verið í Kína.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Íslendingar hafa löngum haft
gaman af því að rýna í bækur
og lista þar sem hulunni er
svipt af auðmönnum Íslands.
Markaðurinn er hvergi saklaus
af leiknum en í það minnsta einu
sinni ef ekki oftar síðastliðið
árið hefur blaðið leitað uppi og
beitt ýmsum reikningskúnstum
til að benda á ríkasta einstakl-
inginn. Eins og allir vita hefur
áttavitinn nú snúist í allt aðra
átt. Í samræmi við þróunina er
rökréttasta framhaldið að leita
uppi skuldsettasta einstakling-
inn. Það verður svo aftur spurn-
ing hvort bók um skuldugt fólk
komist nokkurn tíma á metsölu-
lista.
Íslenskir
fátæklingar
Stoðtækjafyrirtækið Össur var
valið markaðsfyrirtæki ársins
á verðlaunahátíð ÍMARK fyrir
viku. Markaðsmaður ársins var
svo Magnús Geir Þórðarson,
hinn síkviki og hugmyndaríki
leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Ekki er vitað til þess að margir
hafi farið í bollaleggingar í kjöl-
farið. Faðir Magnúsar er nefni-
lega Þórður Magnússon, sem
einmitt er varaformaður stjórn-
ar Össurar. Til að flækja málið
lítið eitt er Þórður sömuleiðis
stjórnarformaður fjárfestingar-
félagsins Eyris Invest, sem er
stærsti hluthafi bæði Össurar og
Marel Food Systems. Forstjóri
Eyris er svo Árni Oddur, bróð-
ir Magnúsar Geirs, og stjórnar-
formaður Marel Food Systems.
Æra má óstöðugan
og segja að Árni
Oddur hafi sömu-
leiðis hlotið verð-
laun ÍMARK með
ó b e i n u m
hætti í
g e g n u m
eignastöðu
félagsins í
Össuri.
Stjórnendapabbi
Í grein í nýjasta hefti
Management Today er viðtal við
fyrrverandi starfsmann fjárfest-
ingarbankans Lehman Brothers
um Dick Fuld, framkvæmda-
stjóra Lehman, stjórnunarstíl
hans og ábyrgð á hruni bankans.
Fuld er sagður hafa verið afleit-
ur stjórnandi og raunar verið
eins og leiðtogi í sértrúarsöfn-
uði, umkringdur jámönnum.
Fuld á að hafa verið sann-
færður um að hann gæti með
viljastyrk setið af sér kreppuna,
og hafi því slegið á öll tilboð um
aðstoð og hjálp.
Því hefur verið haldið fram að
ein ástæða þess að Lehman hafi
ekki verið bjargað hafi verið
hroki Fuld sem hafi í raun komið
í veg fyrir að ríkið gæti rétt
bankanum hjálparhönd. Greinin
rennir stoðum undir þá kenn-
ingu. „Paulson missti þolinmæð-
ina og lét okkur rúlla,“ segir
starfsmaðurinn.
Sértrú hjá
Lehman
Hannaðu heimilið með Tengi
Smiðjuvegi 76 Kópavogur | Baldursnes 6 Akureyri | www.tengi.is | Opið virkadaga 8.00 -18.00 laugardaga 10.00 -15.00
Mikið úrval hreinlætistækja