Tíminn - 30.11.1982, Side 1
t’y. r
Umsjón: Sigurður Helgason
Haukar með
fullt hús í
1. deild
Borgarfjard-
ardömurnar
sigruðu
■ Þrír leikir voru háðir á íslands-
móti félagsliða í borðtennis í síðustu
viku. UMSB A sigraði A lið Arnarins
með þremur gegn tveimur.
Borgarfjarðardömurnar léku einn-
ig gegn B-liði Arnarins og sigruðu
þær nokkuð örugglega 3-1. Loks
léku KR og Vflcingur og sigraði KR
3-1. Þessir leikir voru allir í kvenna-
flokki.
Góður sigur
CS Brugge
á Anderlecht
■ Fyrirfram bjuggust flestir við að
CS Brugge, lið þeirra Sævars Jóns-
sonar og Ragnars Margeirssonar í
Belgíu yrði auðveld bráð stórliði
Standard Liege er iiðin mættust í
Brugge á sunnudaginn. Sú varð ekki
raunin, því Brugge sigraði með
þremur mörkum gegn einu. Sævar
lék allan leikinn og glímdi við hina
snjöllu framherja Standard, en
Ragnar var varamaður og fékk ekki
að fara inná.
Lokeren vann einnig sigur á liði
frá Liege er liðið fór til Liege og lék
gegn FC Liege. Alls skoraði Lokeren
þrjú mörk í leiknum og eru á fuliri
ferð í baráttunni á toppnum í 1.
deildinni.
Antvverpen sigraði Beerschot með
tveimur mörkum gegn einu í Ant-
werpen. Þar var mikil harka og læti
og fengu sjö leikmenn að sjá gula
spjaldið hjá dómara leiksins og
einum var vísað af leikvelli.
Tongeren og Beveren skildu jöfn,
bæði liðin skoruðu eitt mark. Þar
með töpuðu liðin sem Islendingar
leika með í Belgíu ekki leik og raunar
má bæta því við, að enda þótt Lárus
Guðmundsson leiki ekki með Wat-
erschei um þessar mundir, þá telst
lið hans lslendingslið og þeir gerðu
það gott er þeir náðu jafntefli gegn
Anderlecht.
Fjögur lið eru efst og jöfn með 20
stig í Belgíu, en það eru Standard,
Anderlech, Waterschei og Lokeren.
■ Það eru engin vettlingatök sem Hans Guðmundsson beitir þegar hann reynir að koma í veg fyrir að félagi hans í
landsliðinu Jóhannes Stefánsson skori. Allt um handboltann á bls. 12.
Tímamynd: Róbert
A1U ER Nll MEBAL
MARKAHÆSI1I MAMNA
Skoraði tvö mörk í jafnteflisleik í Leverkeusen
■ Atli Eðvaldsson sýndi aftur mjög
góðan leik með liði sínu Fortuna
Dússeldorf á laugardaginn er þeir mættu
Bayern Leverkeusen og gerðu jafntefli
3-3. Atli sá um að skora tvö markanna,
og þar með batnar staða Dússeldorfliðs-
ins sífellt.
Með þessuim tveimur mörkum hefur
Atli skoraði átta mörk í Bundesligunni
og hafa þeir Rummenigge og Burgsmúll-
er skorað 10 mörk hvor og Höness og
Littbarski eru með 9 hvor. Það má því
segja að Atli sé ekki í neinum slorfélags-
skap þarna.
Aðrar fréttir úr þýsku knattspyrnunni
eru þær helstar, að Bayern Múnchen
tókst að stöðva sigurgöngu Dortmund-
liðsins átti Karl Heinz Rummenigge
drjúgan þátt í þeim sigri. Hann skoraði
tvö mörk í 3-0 sigri liðsins, en Dieter
Höness skoraði hið þriðja. Hamborg
sigraði Kaiserslautern 1-0 og Köln
sigraði Borussina Mönchengladbach 4-1.
Pétur sá
um KR-
inga
■ Þegar KR-ingar misstu Stewart
Johnson útaf í leiknum gegn IR í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á laugar-
daginn má segja að möguleikar þeirra á
sigri hafl verið úr sögunni. Jón Sigurðs-
son lék auk þess mjög lítið með vegna
meiðsla í baki og þar á ofan bættist, að
Pétur Guðmundsson var í miklum ham
og réðu KR-ingar illa við hann.
Pétur skoraði samtals 40 stig gegn KR
og var algjör yfirburðarmaður í liði ÍR.
Næstur honum í stigaskori kom Hreinn
Þorkelsson með 22 stig, en aðrir skoruðu
minna.
Leiknum lauk með tveggja stiga sigri
ÍR, sem hefði án efa getað farið á hinn
veginn hefði Stewart Johnson getað
leikið lengur með. En sú varð ekki
■ Pétur Guðmundsson er hér í
harðri baráttu undir körfunni.
Tímamynd: Róbert
raunin og urðu lokatölur því 82-80 ÍR í
hag og í hálfleik var staðan 46-44 fyrir
KR.
Johnson skoraði 36 stig í leiknum og
næstur honum hvað skor varðar var
Þorsteinn Gunnarsson með 12 stig.
sh
Ótrúlega öruggt
hjá Valsmönnum
Sigrudu ÍBK 100:61
f úrvalsdeildinni
■ Valsmenn unnu mjög öruggan
sigur á Keflvikingum í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í gærkvöldi í
Hagaskóla. Lokatölur leiksins urðu
100 stig gegn 61 stigi Keflvíkinga .
Yflrburðir Valsmanna voru mjög
miklir allan tímann og segja má að
Keflvflúngar hafi aldrei átt minnstu
möguleika.
Stigahæstur Valsmanna var Rík-
harður Hrafnkelsson með 32 stig,
Tim Dwyer skoraði 23 og Kristján
Agústsson 16 stig.
Hjá Keflavík var Þorstcinn
Bjarnason stigahæstur með 17 stig,
Axel var með 15 og Brad Miley
skoraði 11 stig.
BH/sh
■ Haukar og ÍS mættust í 1.
deildinni í körfuknattleik á sunnu-
dagskvöldið. Leikið var í Hafnarfirði
og sigruðu Haukar með 77 stigum
gegn 73. Haukamir hafa leikið 8
leiki i 1. deildinni og unnið þá alla
og næstir á eftir þeim koma Þórsarar
með 10 stig.
Þá léku Grindavík og Skallagrímur
og sigruðu Grindvíkingar með 118
stigum gegn 92. í þeim leik skoraði
nýi Kaninn hjá Grindavík 58 stig, en
það er Douglas Kintzinger sem
rekinn var frá Fram og var síðan
liðsstjóri hjá Val. Grindvíkingar
hafa hlotið 4 stig í 1. deild, en
Skallagrímur er enn án stiga.
Helgi
Ragnarsson
með Vfkingi
Ólafsvfk
Ml Helgi Ragnarsson fyrrverandi
leikmaður með FH-ingum hefur
verið ráðinn þjálfari hjá 3. deildarliði
Víkings í Olafsvík. Víkingum hefur
ekki vegnað alltof vel á undanförnum
árum, en líklegt er að einhverjir
ieikmenn fari með Helga vestur, en
FH hefur verið eins konar Ólsaraný-
lenda á undanförnum árum.
Keflvíkingar
höfóu betur
■ Keilvíkingar höfðu betur í
„Suðumesjaslagnum“ í körfuboltan-
um á föstudagskvöld, en þá léku
UMFN og ÍBK í íþróttahúsinu í
Njarðvík. Leiknum lauk með sigri
þeirra 69 stig gegn 67 og skoraði Axel
Nikulásson flest stig þeirra Keflvík-
inga eða 27.
Þar af skoraði hann átta stig í röð
á kafla í fyrri hálfleik og eins skoruðu
Njarðvíkingar 19 stig í röð, en þrátt
fyrir það tókst ÍBK að knýja fram
sigur. Var það fyrst og fremst Axel
sem gerði út um leikinn.
Staðan í leikhléi var 36 stig gegn
28 Njarðvik í hag, en á lyrri helmingi
síðari hálfleiks tóku Keflvíkingar sig
til og jöfnuðu og komust yfir.
Njarðvíkingar tóku þá aftur forystu,
en á lokasprettinum tókst ÍBK að ná
sigri.
Eins og fyrr segir skoraði Axel 27
stig, Þorsteinn Bjarnason skoraði 14
og Jón Kr. Gíslason var með 10 stig
og Brad Miley einnig með 10.
Hjá Njarðvík skoraði Kottermann
19 stig, Valur 16, Arni Lárusson 11
stig og Gunnar Þorvarðarsson 10.
sh
9 Islandsmet sett
í bikarkeppninni
ÍA varó bikarmeistari í sundi f 1. deild
■ Mjög góður árangur náðist í
bikarkeppni SSÍ 1. deild, sem fram
fór i Sundhöllinni í Reykjavík um
helgina. Níu ný íslandsmet sáu
dagsins Ijós og að auki voru sett 3
stúlknamet auk eins piltamets.
Mjög hörð keppni var um titilinn
bikarmeistari SSI 1982 og voru það
lið Ægis, HSK og IA sem harðast
börðust. Lið IA sigraði að þessu
sinni, en í fyrra voru það HSK-menn
sem fögnuðu sigri að aflokinni ellefu
ára sigurgöngu Ægis í bikarkeppn-
inni.
Okkar besta sundfólk var mjög
áberandi á bikarkeppninni og til
dæmis sigraði Tryggvi Helgason
HSK, Guðrún Fema Ágústsdóttir,
Ingi Þór Jónsson ÍA öll í fjórum
greinum og Ragnheiður Runólfsdóttir
Akranesi sigraði í þremur greinum.
Þar að auki tók allt þetta fólk þátt í
boðsundum fyrir sitt félag.
Eins og fyrr segir var stigakeppnin
allan tímann mjög spcnnandi, en
þegar upp var staðið hafði sveit IA
203 stig, Ægir 178, HSK 175 og
Njarðvík. 59. Lestina rak svo ÍBV
sem hlaut 32 stig og fellur þar með í
2. deild í stað Sundfélags Hafnar-
fjarðar sem sigraði í 2. deild á
dögunum.
sh