Tíminn - 07.12.1982, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
Víkingar
töpudu
— Dukla Prag - Víkingur 23-15
■ í gær léku Víkingar fyrri leik sinn í
2. umferð Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik. Andstæðingar þeirra
voru Dukla frá Prag og var leikið í
Tékkóslóvakíu. Tékkamir sigmðu með
23 mörkum gegn 15, en staðan í leikhléi
var 10 mörk gegn 8 Dukla í hag.
Munurinn á liðunum var þetta tvö
til þrjú mörk, þar til síðustu tíu
mínúturnar að Tékkarnir sigu framúr og
unnu öruggan sigur.
Viggó Sigurðsson var markahæstur í
leiknum og skoraði 4 mörk, Hörður
Harðarson og Steinar Birgisson skoruðu
þrjú mörk hvor, Þorbergur Aðalsteins-
son tvö mörk og Hilmar Sigurgíslason,
Árni Indriðason og Guðmundur Guð-
mundsson eitt hver.
Leikurinn var fyrirhugaður á sunnu-
dag, en þá komust rúmensku dómararnir
sem áttu að dæma leikinn ekki til Prag
og var honum því frestað. Síðari
leikurinn er fyrirhugaður hér á landi
næstkomandi sunnudag.
Sh.
■ Haukur Geirmundsson sýndi sinn besta leik með KR í vetur gegn Nis. Hér skorar
hann eitt marka sinna. Nánar um leikinn á næstu opnu. Tímamynd: EUa
EUert B. Schram.
Þriggja stiga
reglan felld
■ TUIaga Valsmanna um að þrjú
stig verði veitt fyrir sigur í deUda-
keppninni í knattspyrnu var ekki
samþykkt á ársþingi KSÍ um helgina.
Þar með munu 2 stig vera látin nægja
a.m.k. á næsta ári fyrir unnin leik.
Mörg mál voru rædd á þinginu, sem
stóð yfir í tvo daga.
EUert B. Schram var endurkjörinn
formaður KSÍ og með honum verða
í stjórn Helgi Daníelsson, Friðjón B.
Friðjónsson, Árni Þorgrímsson, sem
aUir voru cndurkjörnir, en fyrir sátu
í stjóminni sem ekki þurfti að greiða
atkvæði um Gunnar Sigurðsson,
Helgi Þorvaldsson og Gylfi Þórðar-
son. Varamenn í stjóminni vom
kjömir Sigurður Hannesson, Sveinn
Sveinsson og Þór S. Ragnarsson.
Ingólfur Jóns-
son sigraði
■ Fyrsta skíðamót vetrarins var
haldið á Miklatúni í Reykjavík á
sunnudaginn. Það var Skíðafélag
Reykjavíkur sem sá um framkvæmd
mótsins. Þetta var göngumót og var
keppt í flokknum karla og kvenna og
gengu karlamir 10 km., en konurnar
6 km.
Sigurvegari í karlaflokki varð
Ingólfur Jónsson S.R., en hann gekk
á 31:16 mín. í öðru sæti varð Haukur
Eiríksson Akureyri, þriðji varð svo
Garðar Sigurðsson S.R. og í fjórða
sæti Ingþór bróðir Hauks, en þeir
em bræður hins landskunna göngu-
kappa Magnúsar Eiríkssonar frá
Siglufirði.
Guðbjörg Haraldsdóttir S.R. sigr-
aði í kvennaflokki, Sigurbjörg Helga-
dóttir varð önnur. I öldungaflokki
keppti Tryggvi Halldórsson, en hann
gekk 6 km., á 32,28 mín.
sh
Framarar höfðu
betur í lokin
Og sigruðu Þrótt 23:20 í 1. deild
■ Það var mikið um mistök á báða
bóga í leik Þróttar og Fram í 1. deildinni
í handbolta í gærkvöldi. Það vora þó
Framarar sem höfðu betur í leiknum og
er upp var staðið var staðan 23 mörk
gegn 20 Fram í hag. í hálfleik var staðan
Þrótti í hag, en er líða tók á síðari
hálfleikinn komust Framarar yfir og
héidu forystu aUt til loka.
Fyrri hálfleikurinn var fremur sveiflu-
kenndur. Framarar komust í 10-7, en
rétt fyrir leikhlé var staðan 11-10 Þrótti
í hag og þeir bættu öðru marki við.
Síðustu mínútur leiksins voru sér-
kennilegar. Bæði liðin gerðu ótrúlegan
fjölda mistaka og mikilvægi leiksins var
greinilega farið að setja mark sitt á hann.
Þó keyrði út yfir allan þjófabálk síðustu
tvær mínúturnar og lá við að fólk héldi
að verið væri að aðhafast eitthvað allt
annað en leika handknattleik.
Þeir leikmenn sem stóðu uppúr í
þessum leik hjá Fram voru Egill Jó-
hannesson sem skoraði nokkur mjög
góð mörk. Þá lék Sigurður Svavarsson
vel, ekki bara í vörn heldur einnig í
sókninni. Þá var Hinrik drjúgur á
línunni. Hannes átti spretti, einkum
undir lok leiksins. Sigurður varði mjög
vel í markinu.
Hjá Þrótti var Ólafur Benediktsson
bestur í markinu og einnig var Gísli
Óskarsson drjúgur.
Mörkin: Fram: Egill 6, Sigurður
Svavarsson, Hinrik og Hermann 4 hver,
Hannes Leifsson 3, Björn og Erlendur
eitt hvor.
Þróttur: Páll 5, Gísli 5, Ólafur H,
Magnús og Jens tvö hvor, Lárus Karl,
Lárus Lár og Einar Sveinsson eitt mark
hver.
sh
Þróttarar taplausir
í 1. deild í blaki
■ Þróttarar eru í toppsætinu í 1.
deildinni í blaki, en um helgina léku
þeir gegn botnliði Víkings og sigruðu
3-0, 15-4, 15-4 og 15-7. Þetta er
stærsti sigur Þróttara um skeið í
blakinu.
Stúdentar sigruðu UMSE 15-6,
15-9 og 15-11 og kræktu sér þar með
í tvö stig.
Síðasti leikurinn í 1. deild karla
var á milli Víkinga og Eyfirðinga og
höfðu Eyfirðingarnir betur, en ekki
munaði miklu. Hrinurnar enduðu
15-7, 15-9 og í þeirri þriðju komust
Eyfirðingar í 13-11, en töpuðu 13-15,
10-15 og í lokahrinunni var sem allur
máttur væri úr Víkingum sem töpuðu
15-3.
Þrír leikir fóru fram í fyrstu deild
kvenna. ÍS sigraði KA 3-0, KA vann
sinn fyrsta sigur í 1. deild 3-0 og loks
sigraðu Þróttarastúlkurnar UBK 3-1.
Akurnesingar gáfu loks leik sinn
gegn Samhygð í 2. deild.
24 marka
munur hjá
Val og ÍR
■ Valsmenn lentu ekki í neinum
erfiðleikum með ÍR-inga er liðin
mættust í 1. deildinni í handbolta á
sunnudaginn. Unnu þeir með ótrú-
legum yfirburðum og er upp var
staðið var markatalan 38 mörk gegn
14. Andstaða ÍR-inganna var því
ekki mikil í þessum leik, en leikurinn
þar á undan hafði geflð góða von um
að eitthvað rofaði til hjá liðinu, en
þá töpuðu þeir með aðeins fimm
mörkum gegn íslandsmeisturam
Víkings.
Gunnar Lúðvíksson skoraði 8
mörk fyrir Val, en markahæstur í
ÍR-liðinu var Atli Þorvaldsson með
sex mörk.
sh
Stuttgart og
Dusseldorf
sigruðu
■ Fortuna Dusseldorf hefur tekið
á rás upp á við á stigatöflunni í þýsku
Bundesligunni í knattspyrnu. Á
laugardag sigraði Dusseldorf Armen-
ia Bieldfeld með tveimur mörkum
gegn engu, en Atli Eðvaldsson var
ekki í hópi markaskorara að þessu
sinni.
Stuttgart vann góðan sigur á Köin
með tveimur mörkum gegn einu og
komst Stuttgart í 2-0 áður en Kölnar-
menn komust á blað. Allgöwer
skoraði bæði mörk Stuttgart ■ fyrri
hálfleik, en það var Klaus Allofs sem
náði að bæta stöðu þeirra í þeim
síðari.
Hamborg sigraði Dortmund, sem
átt hafa miklu gengi að fagna með
þremur mörkum gegn einu. Hra-
besch skoraði tvö af mörkum Ham-
borgar og lék mjög vel.
Þá má geta þess að Kaiserslautem
skoraði þrjú mörk gegn engu á móti
Gladbach. Þar af skoraði Torbjöm
Nielsson mark eftir að Allofs hafði
skorað fyrsta markið. Þriðja markið
skoraði síðan Kitzmann,
ff
Hann lék
mjög vel”
sagöi Mc Enroe um
Björn Borg
■ „Haldi hann áfram að spUa
svona, em þeir ekki margir sem geta
sigrað hann,“ sagði John McEnroe
um keppinaut sinn á tennismóti i
Antwerpen í Belgíu um helgina. Þeir
kapparnir léku í undanúrslitum og
sigraði McEnroe, en hann varð að
hafa fyrir þeim sigri.
„Hann lék mjög vel,“ sagði
McEnroe um Borg, en Björn er um
þessar mundir að hefja keppni að
nýju eftir árs hvfld frá keppni.
Viðureign þessara heimsþekktu
kappa lauk með 2-6, 6-4 og 6-3.
Sigraði Svíinn þar með í einni lotu
en Bandaríkjamaðurinn í tveimur.
VINNUR KR
NKflFlllR?
— Liðin leika kl. 20.00 íkvöld
■ Frábær frammistaða KR-inga í
fyrsta Evrópuleik félagsins í hand-
knattleik á sunnudagskvöldið kom
skemmtilega á óvart. Menn gerðu
sér raunar vonir um góð úrslit, en
enginn lét sig dreyma um aðra eins
franunistöðu og raun bar vitni. En
liðið hefur nú fímm mörk í forskot
og í kvöld er að duga eða drepast.
Þeir leika síðari leikinn gegn
Júgóslövunum í Höllinni klukkan
20.00 og vist er að Slavarnir mæta til
leiks eins og öskrandi Ijón. Þeir gera
sig áreiðanlega ekki ánægða með
annað en góðan sigur og munu
berjast af fuUum krafti. Hið sama
munu KR-ingar gera. Þeir munu
verja fenginn hlut og stefna að því
að verða meðal liðanna í pottinum
þegar dregið verður í 3. umferð.
Það var samdóma áUt allra leik-
manna KR að hlutur áhorfenda í
fyrri leiknum hefði skipt miklu máli
og það sama mun áreiðanlega verða
upp á teningnum í kvöld. Þess vegna
er ástæða tíl að hvetja alla handknatt-
leiksáhugamenn til að mæta í Höllina
og bvetja KR tfl siguxs.