Tíminn - 14.12.1982, Qupperneq 1
Umsjón:
Sigurdur Helgason
KR og Orninn
hafa forystu í
flokkakeppni
■ Flokkakeppni Borðtennissam-
bands Islands hefur verið í fulium
gangi að undanförnu. Staðan í 1.
deild karla og kvenna og í 2. deild er
nú sem hér segir:
1. deild karla.
KR-A
Orninn-A
Víkingur-A
KR-B
UMFK-A
KR-ingar hafa forvstu í deUdinni,
en þeir hafa orðið íslandsmeistarar í
1. deild karla síðustu 7 ár. Keflvíking-
ar sitja á botninum en þeir hafa gefið
alla leiki sína fram að þessu og er
ekki víst að þeir spili með í vetur.
Kvennaflokkur:
Örninn-A
KR
UMSB-A
Víkingur
UMSB-B
Örninn-B
Liðin í kvennaflokki hafa leikið
mjög mismarga leiki og staðan er því
frekar óljós. A iið UMSB, sem hefur
unnið síðustu fjögur ár hefur unnið
báða leiki sína fram að þessu.
2.deild karla:
a-riðUI:
Víkingur-B
HSÞ
Örninn-D
KR-C
Víkingur-D
b-riðUI:
Örninn-C
Örninn-B
Víkingur-C
UMFB-B
3 12 0 16:12 4
3 12 0 16:12 4
2 0 0 2 2:12 0
0 0 0 0 0:0 0
í a-riðli stendur baráttan á milli- ■
B-Iiðs Víkinga og HSÞ en í b-riðli
berjast Arnarliðin um sigur. Eitt Uð
mun síðan flytjast upp í 1, deild
næsta keppnistímabU.
Hæsti virming-
ur frá upphafi
■ Reykvíkingur fékk rúmlega
357.000 króna vinning í íslenskum
Getraunum um helgina. Er það
hæsti vinningur sem faUið hefur tU
hjá Getraunum.
Sá sem um ræðir hefur tekið þátt
í Getraunum frá upphafi og var nú
með 16 raða kerfisseðU og hefur því
einnig fjórar raðir með 11 réttum.
Fyrir röðina með 12 réttum var
vinningurinn 343.000 krónur, en
fyrir 11 rétta 3585 krónur. Væn
Ijárfúlga fyrir þann heppna.
QNVfGI SIU 0G
KOŒRMANNS
Er Njarðvík sigradi KR
■ Njarövíkingar höfðu betur í barátt-
unni gegn KR í úrvalsdeUdinni í
körfuknattleik á föstudagskvöldið. En
ekki munaði mUdu og hefðu KR-ingar
ekki misst Jón Sigurðsson útaf með 5
vUlur rétt fyrir leikslok, er aldrei að vita
nema að sigurinn hefði lent þeirra
megin. En Njarðvíkingar höfðu betur og
hafði þar mikið að segja góður leikur
BUI Kotterman. í fyrri hálfleiknum hélt
hann Stuart Johnson mikið til í skefjum,
þannig að Johnson skoraði sáralítið í
hálfleiknum og í þeim síðari tóku þeir
báðir sig til og skoruðu mikið af stigum
fyrir sín lið.
Þessi leikur var ekki vel leikinn, til
þess voru mistök leikmanna of mörg.
KR-ingar voru yfir í byrjun, en síðan
tóku Njarðvíkingar yfirhöndina og í
hálfleik var staðan 41 stig gegn 34 þeim
í hag. Undir lokin tóku KR-ingar
fjörkipp, en ekki nægði hann þeim samt
til sigurs og lokatölur urðu 86 stig gegn
79 Njarðvík í hag.
Gunnar Þorvarðarson lék á föstudag
sinn 500. meistaraflokksleik í körfu-
knattleik og eru þess áreiðanlega ekki
mörg dæmi að menn hafi leikið jafn
marga leiki í meistaraflokki og á það við
um allar greinar íþrótta.
Bandaríkjamennirnir voru langstiga-
hæstir í liðunum. Hjá UMFN skoraði
Bill Kottermann 36 stig, en Stuart
Johnson hafði aðeins betur og skoraði
40 stig eða rúmlega helming stiga
KR-inga.
Kottermann er tiltöiulega nýlega
genginn til liðs við Njarðvíkinga og
hefur hann sýnt að hann er mjög snjall
leikmaður og vera kann að honum og
félögum hans í liði UMFN takist að ná
meistaratitlinum í ár. sh
■ Stuart Johnson skoraði 40 stig
fyrir KR á móti UMFN:
15-5 og 15-2. Svo virðist sem úthaldið
hafi verið í betra lagi hjá Þrótturunum.
Þá sigraði Breiðablik Víking í 1. deild
kvenna, 3-1. 15-6, 15-4, 11-15 og 15-3
voru úrslitin í hrinunum.
HK sigraði svo loks Fram í 2. deild
3-1,17-15, 13-15,15-11 og 15-3.
sh
Þórsarar unnu
á lokaspretti
Sigrudu ÍS f 1. deild íkörfu
■ Þór og ÍS léku síðasta opinbera
körfuknattleiksleikinn í íþróttaskemm-
unni á Akureyri á laugardag. Ástæðan
fyrir því að leikurinn fór ekki fram i nýju
Höllinni er sú, að körfumar sem í hana
eiga að fara em ekki komnar til landsins,
en þær verða væntanlega settar upp um
áramótin.
Þórsarar sigruðu í leiknum með 76
stigum gegn 72, en staðan í hálfleik var
76 stig gegn 72. Leikurinn byrjaði ekki
björgulega, því strax í upphafi skall
Guðmundur Jóhannesson í gólfið og
rotaðist. Tók það sjúkralið 10 mínútur
að komast á staðinn og var hann fluttur
undir læknishendur. En þá gat leikurinn
hafist.
I fyrri hálfleik voru liðin yfir til skiptis,
en Þórsarar komust mest fimm stig yfir
31-26. Eftir leikhléið héldu liðin áfram
að skiptast á um að hafa forystu. Þegar
staðan var 64-59 Þór í hag skoruðu
ÍS-menn sex stig i röð. Síðan var jafnt
á öllum tölum undir lokin 68-68, 70-70
og 72-72. Þegar 15 sek. voru til leiksloka
fékk McField vítaskot og skoraði úr
þeim báðum. ÍS menn fóru í sókn, en
misstu boltann til Þórsara, sem þökkuðu
fyrir sig og skoruðu síðustu körfu
-Igiksins í þann mund er flautað var til
leiksloka.
Þetta var mikill baráttuleikur og
varnir liðanna voru góðar. Þórsarar
reyndu að stöðva Bock undir körfunni,
en Stúdentar voru yfirleitt tveir á
McField. Sóknarlega séð var þetta
fremur slakur leikur. Mikið var dæmt af
villum á báða bóga.
Stigin: ÍS: Bock29, Eiríkur Jóhannes-
son 16, Árni Guðmundsson 10.
Þór: McField 39 stig, Jón Héðinsson
13 stig, Eiríkur Sigurðsson 9.
í lið Stúdenta vantaði Gísla Gíslason
sem var vant við látinn, það var verið
að gifta hann.
GK/Akureyri
ENN SIGRA ÞRÓTTAR-
AR SDlKNTA f BIAKI
Nú hafa þeir fjögurra stiga forskot í 1. deild
Réttarhöld
vegna dauða
boxara
■ Læknir, framkvæmdastjóri
hnefaleikamanns og dómari hafa
verið kallaðir fyrir rétt í Bologna á
Italíu vegna dauða hnefaleikamanns-
ins Angelo Jacopucci fyrir Ijórum
árum.
Jacopucci lést tveimur dögum eftir
viðureign gegn Alan Minter frá
Bretlandi, en þeir kepptu um Evrópu-
meistaratitilinn í millivigt. Hann var
29 ára gamall og var rotaður í 12.
lotu, en náði að rakna úr rotinu til
þess að óska andstæðingi sínum tU
hamingju með sigurinn.
Nokkrum klukkustundum síðar
var hann fluttur á sjúkrahús, þar sem
hann gekkst undir heilaaðgerð. Það
er álit sækenda málsins, að dómarinn
hefði átt að stöðva leikinn fyrr og
með því móti hefði verið hægt að
koma í veg fyrir dauða mannsins.
Nú tapaði ÍR
fyrir Fram
■ Eftir tvo sigurleiki í röð urðu
ÍR-ingar að sætta sig við tap gegn
Fram í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik á föstudagskvöldið síðasta. Ekki
var munurinn mikill, aðeins sjö stig er
upp var staðið. Þegar staðan var
73-70 Fram í hag átti að reyna að láta
Pétur vinna leikinn fyrir ÍR, en
sendingar þær sem honum voru
ætlaðar rötuðu ekki rétta leið og því
skoruðu Framarar tvær síðustu körf-
ur leiksins og gulltryggðu sigurinn. í
leikhléi var staðan 39 stig gegn 36 ÍR
í vil.
Bestur Framara í leiknum var Val
Brazy, þá voru Viðar, Þorvaldur og
Símon góðir. Brazy var þeirra stiga-
hæstur.
Hjá IR var Pétur bestur, en vegna
villuvandræða gat hann lítið beitt sér
og fékk hann sína fjórðu villu í
upphafl síðari hálfleiks. En hann lék
samt allt til loka leiksins. Hann
skoraði 21 stig, Hreinn Þorkelsson
átján.
ÍR-ingar hafa hlotið fjögur stig í
úrvalsdeildinni og víst er að vetur-
inn á eftir að reynast þeim erfiður.
En liðiðl er nú mun betur sett en
fyrir örfáum vikum og það er alveg
vonlaust að segja til um það nú,
hverjir koma til með að falla niður í
1. deildina í körfunni. sh.
■ Páll Björgvinsson
sigur 19-18.
var einna drýgstur Víkinga í sóknarleiknum gegn Dukla Prag er Víkingsiiðið vann á þeim sætan
Tímamynd: Róbert
■ Þróttarar þurftu ekki að hafa mikið
fyrir því að sigra sína aðalandstæðinga í
1. deildinni í blaki er þeir mættu liði ÍS
um helgina. Þróttur vann i þremur
hrinum 15-10, 15-6 og 15-10. Með
þessum sigri hafa Þróttarar fjögurra
stiga forskot í 1. deild og stefna ótrauðir
að þvi að halda íslandsmeistaratitli
sínum.
Víkingur og Bjarmi léku einnig í 1.
deild og sigraði Bjarmi með þremur
hrinum gegn einni. Fyrstu hrinuna unnu
Víkingar 15-12, en síðan ekki söguna
meir. Næst fór 14-16 og sú þriðja 15-17.
í síðustu hrinunni sigruðu Bjarmamenn
síðan 15-1. Burst. Víkingar eru án stiga
í 1. deild einir liða og líklegt er að þeir
fari beina lið niður í 2. deild.
Þróttarar léku einnig gegn Bjarma og
sigruðu örugglega 3-0. Hrinurnar fóru
15-10, 15-7 og 15-12.
ÍS og Þróttur léku í kvennaflokki og
þurfti fimm hrinur til að fá fram úrslit.
Að þeim loknum stóðu Þróttardömurnar
uppi sem sigurvegarar. Hrinurnar end-
uðu (Þróttur fyrst) 14-16, 15-9, 13-15
Aston Villa
tapadi
íTókyó
■ Um helgina léku Aston Villa og
Penarol um nafnbótina besta knatt-
spyrnulið heims. Penarol er frá
Urugay í Suður-Ameríku, en Aston
Villa eru eins og kunnugt er Evrópu-
meistarar meistaraliða. Leikurinn
var háður í Tókyó í Japan og sigraði
Penarol með tveimur mörkum gegn
engu. Mörkin skoruðu Cercalves í
fyrri hálfleik og Silva í þeim síðari.