Tíminn - 14.12.1982, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
16
Iþróttir
enska knattspyrnan
UVERPOOL SKORUÐU TVISVAR UR
VlTASPYRNUM GEGN WATFORD
Coventry og Everton komu á óvart með því að sigra West Ham og Ipswich
■ Liverpool heldur sínu striki í 1.
deildinni í Englandi og á laugardag
afgrciddu þeir liö Watford, sem leikið
hefur mjög vel það sern af er vetrar og
reynst öllum liöunum óþægur Ijár í þúfu.
En leikmenn Liverpool tóku þá engum
vettlingatökum er þeir léku í fyrsta sinn
á Anfield í dcildarkeppninni. Það var
Ian Rush sem skoraði fyrsta mark
leiksins á Anfield á 21. mínútu fyrri
hálfleiks. Wilf Rostron heitir varnarleik-
maður Watford og á hann voru dæmdar
hvorki meira né minna en tvær víta-
spyrnur á Anficld og úr þeim báðum
skoraði landsliðsbakvörðurinn Phil Neal
af miklu öryggi. En þáttur fyrrnefnds
Rostrons í þessum leik var ekki þar með
búinn, því hann skoraði einnig hinum
megin hjá Liverpool og bætti þar með
stöðuna í 3-1.
Phil Thomson landsliðsmiðvörður
Englands meiddist á ökkla er 28 mínútur
voru til leiksloka, en hann fór útaf og
lét binda unt ökklann og kom aftur inná,
en í Ijós kom að hann var ekki í nógu
góðu ástandi til að leika áfram, þannig
að hann fór alfarinn af leikvelli rúmlega
tveimur mínútum síðar. Pað er stór
spurning hvort Thomson geti leikið með
í landsleiknum gegn Luxemburg á
Wembley á miðvikudaginn.
Úrslit leikja í I. deild urðu sem hér
segir:
Birininghani-Southainpton 0-2
Rrighton-Norwich 3-0
Ipswich-Everton 0-2
Liverpool-Watford 3-1
■ Þegar Alan Devonshire fór útaf
hjá West Ham hrundi leikur liðsins.
Fashanu til
Notts County
■ Justin Fashanu sem átt hefur
erfitt uppdráttar að undanförnu hjá
Nottingham Forest hefur verið seldur
til 1. deildarliðs Nolts County.
Fashanu var í haust i láni hjá
Southampton, en er hann kom aftur
á heimaslóð í Nottingham hugðist
Brian Clough senda hann til Derby
sem lánsmann, en Fashanu var ekki
sáttur við þaö.Varð úr mikil rimma
milli þeirra tveggja, sem endaði með
því að Fashnnu var bannað að æfa
með Forest og lét Clogh fjarlægja
hann af svæði félagsins með lögreglu-
valdi. En nú er Fashanu áreiöanlega
feginn að vera laus frá Brian Clough.
Lutun-Man. City 3-1
Man. Utd.-Notts County 4-0
Nott. For.-Swansea 2-1
Stoke-Tottenham 2-0
W.B.A-Sunderland 3-0
West Ham-Coventry 0-3
í 2. deild urðu úrslit hins hér segir: vegar sem
Barnsley-Carlisle 2-2
Bolton-Charlton 4-1
Burnley-Leicester 2-4
Crystal Pal-Sheff. Wed 2-0
Fulham-Derby 2-1
Middlesbro-Chelsea 3-1
Newcastle-Wolves 1-1
Oldham-Cambridge 3-0
Q.P.R-Grimsby 4-0
Rotherham-Leeds 0-1
Sbrewsbury-Blackburn 0-0
■ Notts. County sóttu ekki gull í
greipar stjörnuliðs Manchester United
er liðin mættust á Old Trafford. Samt
voru það leikmenn aðkomuliðsins sem
voru kröftugri í byrjun leiksins, en smátt
og smátt náðu miðvallarleikmenn Unit-
ed yfirráðum á miðsvæðinu, og þar með
áttu þeir alls kostar við County. Fyrsta
markið skoraði Norman Whiteside, en
síðan Frank Stapleton. Bryan Robson
skoraði þvínæst þriðja markið með
skalla og loks skoraði Mike Duxbury
fjórða mark Manchester United. Rétt
fyrir leikslok varð Bryan Robson að
'yfirgefa völlinn vegna meiðsla og því
kann svo að fara að bæði hann og
Thompson verði fjarri góðu gamni á
miðvikudaginn.
Everton kom á óvart
Everton hefur ekki vegnað ýkja vel
það sem af er keppnistímabilinu og því
kom það á óvart að þeir skyldu sigra
Ipswich á Portman Road. Everton hafði
fram að þessu ekki unnið sigur í níu
leikjum og því var annað hvort að duga
eða drepast og þeir dugðu. Það var
Kevin Sheedy sem skoraði tvívegis fyrir
Everton, bæði mörkin í síðari hálfleik.
Tottenham gengur illa um þessar
mundir, enda eiga margir leikmenn
liðsins við meiðsli að stríða. Liðið tapaði
gegn Stoke á laugardaginn á útivelli og
þar skoruðu þeir Sammy Mcllroy og
Dave Watson eitt mark hvor.
Coventry lagði West Ham
á Upton Park
West Flam hafa ekki þótt árennilegir
andstæðingar á heimavelli sínum í
London Upton Park. Þess vegna kom
góður sigur Coventry gegn þeim mjög á
óvart. Reyndar vantaði marga kunna
kappa í lið West Ham vegna meiðsla og
má þar nefna Trevor Brooking, Billy
Bonds og Alvin Martin og síðan meiddist
Alan Devonshire og varð að yfirgefa
leikvöllinn og þá var eftirleikurinn
auðveldur fyrir Coventry.
Öll mörkin voru skoruð á síðustu átta
mínútum fyrri hálfleiks. Fyrst á 37.
mínútu og var Mark Hateley þar á ferð.
Því næst skoraði Brian Roberts og loks
Steve Witton.
Enn sigrar Forest
Nottingham Forest sigraði Swansea á
heimavelli með tveimur mörkum gegn
einu. Leikmenn heimaliðsins komust í
2-0 áður en Swansea tókst að kvitta.
Fyrra mark Forest skoraði Colin
Walsh og síðan bætti Mark Proctor öðru
marki við. Robbie James minnkaði
muninn í eitt mark er hann skoraði. En
ekki tókst leikmönnum John Toschack
að jafna metin.
W.B.A. vann góðan sigur á Sunder-
land með þremur mörkum gegn engu.
■ Sammy Mcllroy. Gamli refurinn
skoraði eitt mark gegn Tottenham.
Skoruðu þeir Robertson og Gary Owen
mörk W.B.A.
Southampton sigraði Birmingham
með tveimur mörkum gegn engu í
Birmingham. Steve Moran og David
Wallace skoruðu mörk „Dýrlinganna1".
Brighton sigraði Norwich örugglega
á heimavelli sínum og Luton lagði
Manchester City og þar var Asa Hart-
ford í sviðsljósinu er hann skoraði fyrsta
mark leiksins í eigið mark.
Q.P.R. hefur fjögurra marka forystu
í 2. deild og á laugardag unnu þeir
fjögurra marka sigur á Grimsby. Fulham
sem er í öðru sæti sigraði Derby með
tveimur mörkum gegn einu, en Úlfarnir
og heimamenn Newcastle skildu jafnir í
Newcastle.
Ekki nægði mark Simonsen Charlton,
því andstæðingar þeirra Bolton skoruðu
fjögur. Simonsen skoraði eina mark
Charlton.
■ Celtic juku enn við forystu sína í
skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er
liðið sigraði Aberdeen með tveimur
mörkum gegn einu á laugardaginn.
Aberdeen höfðu veitt þeim einna mesta
samkeppni upp á síðkastið, en með
tapinu á laugardag fór lið Dundee
United upp fyrir þá.
Það var Murdo McLeod sem skoraði
fyrsta mark leiksins á 16. mínútu
leiksins, en hann fékk góða hjálp eins
varnarmanna Aberdeen. En leikmenn
Aberdeen voru alls ekki á þeim buxun-
um að gefast upp og skoraði Mark
McGee jöfnunarmark tveimur mínútum
síðar, en Davie Provan skoraði sigur-
mark Celtic á 15. mtnútu síðari hálf-
leiks.
Dundee United sem komust upp í 2.
sæti í úrvalsdeildinni unnu glæsilegan
sigur á liði Kilmarnock og urðu mörkin
sjö áður en upp var staðið, en Kilmar-
nockmönnum tókst ekki að kvitta. Það
var góð viðbót við sigur liðsins á Werder
Stadan
Staðan 1. deild:
Liverpool 18 11 4 3 41 15 37
Man Utd 18 10 4 4 28 14 34
Nottm Forest 18 10 2 6 32 25 32
Aston Villa 18 10 1 7 28 20 31
Watford 18 9 3 6 35 21 30
West Bromwich 18 9 3 6 30 24 30
West Ham 18 9 1 8 31 27 23
Coventry 19 8 4 7 23 24 28
Ipswich 19 7 6 6 31 22 27
Man City 18 8 3 7 22 25 27
Stoke 18 7 3 8 32 29 24
Tottenham 18 7 3 8 23 26 24
Notts County 18 7 3 8 23 32 24
Everton 18 6 5 7 27 26 23
Arsenal 18 6 5 7 21 23 23
Southampton 18 6 4 8 20 31 22
Swansea 18 6 3 9 26 30 21
Brighton 18 6 3 9 18 36 21
Luton 18 4 8 6 36 33 20
Norwich 18 4 5 9 20 32 17
Birmingham 18 3 8 7 11 27 17
Sunderland 18 3 5 10 21 37 14
2. deild:
Q.P.R 19 12 4 3 31 13 40
Fulham 18 11 3 4 39 24 36
Wolves 18 10 4 4 32 19 34
Shefld Wed 18 9 4 5 31 21 31
Oldham 18 7 8 3 31 22 29
Leeds 18 7 7 4 22 17 28
Shrewsbury 18 3 4 6 23 23 28
Grimsby 18 8 3 7 27 29 27
Leicester 18 8 2 8 33 22 26
Barnsley 18 6 8 4 25 22 26
Crystal Palace 18 6 6 6 22 22 24
Newcastle 18 6 5 7 26 27 23
Blackburn 18 6 5 7 23 30 23
Carlisle 18 6 4 8 35 37 22
Rotherham 18 5 7 6 22 27 22
Chelsea 18 5 6 7 21 22 21
Charlton 18 6 3 9 25 37 21
Middlesbrough 18 5 6 7 22 37 21
Bolton 18 4 5 9 13 26 17
Burnley 18 4 3 11 25 35 15
Derby 18 2 3 8 17 29 14
Cambridge 19 3 5 11 19 33 14
Bremen í Evrópukeppni félagsliða á
miðvikudaginn var. Þeir komust þó ekki
almennilega í gang fyrr en í seinni
hálfleik, því staðan í leikhléi var 1-0, en
sex voru síðan skoruð í þeim síðari.
St. Mirren vann 3-0 sigur á Jóhannesi
Eðvaldssyni og félögum í Motherwell,
en Rangers gerði jafntefli 1-1 gegn
Morton og sömu úrslit urðu í leik
Hibernian og Dundee United.
Staðan í skosku úrvalsdeildinni eftir
leikina á laugardag er sem hér segir:
Celtic 14 12 1 1 39 16 25
Dundee Utd. 14 9 4 1 34 10 22
Aberdeen 15 9 3 3 29 13 21
Rangers 14 4 7 3 24 17 15
Dundee 14 5 4 5 19 16 14
St Mirren 15 3 6 6 17 27 12
Morton 15 2 6 7 13 27 10
Hibernian 15 1 7 7 12 23 9
Motherwrell 15 4 1 10 16 34 9
Kilmarnock 15 1 7 7 15 35 9
Sex mörk
f sfdari
hálfleik