Tíminn - 12.01.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 12.01.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag 4 tf labnel HÖGGDEYFAR GJvarahlutir Armiila 24 Sími 36510 Stffir viðrædufundir formanna flokkanna um kjördæmamálið: FJÖLGUN í 65 ÞINGMENN OG d’HONT-UTREIKNINGSREGLAN? ■ Þeir tveir möguleikar sem formenn stjórnmálaflokkanna hafa aö undanfömu velt fyrir sér sem lausnarmöguleikum í kjör- dæmamálinu, em annarsvegar sá möguleiki að þingmenn veröi á bilinu 62-64 og útreikningsregl- an um úthlutun þingsæta verði meðaltalsatkvæöafjöldi í kjör- dæmi og hins vegar er það möguleikinn á 65 þingmönnum, með d’Hont útreikniaðferðinni, svipað og nú er, en með þeim breytingum að uppbótarþingsæt- in yrðu bundin við Reykjavík og Reykjaneskjördæmi, til þess að ná fram meira jafnvægi á milli kjördæma, en þó þannig að tveimur uppbótarþingsætum yrði haldið fyrir fjölmennustu landsbyggðarkjördæmin. Flokksformennirnir hafa undanfarna daga setið við að yfirfara og fínpússa þessa tvo möguleika, en þetta virðast vera þeir möguleikar, sem líklegast er að breið samstaða geti náðst um. Hafa flokksformennirnir í því sambandi yfirfarið mismun- andi reikniaðferðir, og nú virðist allt stefna í það, að formennirnir geti bráðlega skilað áliti til þingflokkanna. Það er ekki Ijóst enn hver vilji hvers formanns er, en þó mun Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins frek- ar hallast að kostinum 62-64 þingmenn, Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsókn- arflokksins mun geta hugsað sér hvorn kostinn sem er, Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins og Geir Hallgríms- son, formaðurSjálfstæðisflokks- ins munu til að byrja með hafa viljað fara a.m.k. upp í 67 þingmenn, en munu nú vera á því að nægilegt verði að fjölga þingmönnum um 5. Það er því ekki ólíklegt að seinni kosturinn, þ.e. 65 þingmenn og d’Hont kerfið, verði það sem verður ofan á, þegar flokksformennirnir ganga frá tillögum sínum. Formenn flokkanna munu hittast á nýjan leik nú á föstudag- inn til þess að reyna að ganga frá tillögum sínum, þannig að þing- flokkarnir geti fjallað um þær þegar þing kemur saman. - AE annar tveggja möguleika sem nú eru helst til umræðu ■ Ekki verður beinlínis sagt að gæftir hafi verið góðar að undanförnu, og ekki að vita hvenær úr rætist. Að góðum sjómannsið hefur maðurinn á myndinni brugðið sér umb orð í bát sinn, til þess að huga að landfestum, ef hann skyldi skella á að nýju. (Tímamynd Árni Sæberg) maaatm dropar Aldrei er góð vísa of oft kveðin ■ Dropar mega til með að drjúpa smávegis vegna Stjörnumessu- skrifa þeirra DV-manna. Þegar Dropateljari fletti DV í mesta sakleysi í gær sá liann að síða 11 í blaðinu var undirlögð af myndum og umfjöllun um Stjörnumessuna svokölluðu, sem var um nokkurra mánaða skeið í fyrra uppistaðan í fréttaflutningi DV. Varð Dropa- teljara þá hugsað til þess hvort það væri raunverulcga liðið hcilt ár frá þvi að þreytandi Stjörnumessu- „fréttir“ ætluðu að tröllríða DV, jafnt útsíðum sem innsíðum, en við nánari skoðun á bls. 11 kom hið sanna í Ijós. Stjörnumessan 1983 verður ekki haldin fyrr en að þremur mánuðum liðnum, eða 7. apríl nk. Er því augljóst að sama Stjörnumcssuæðið er í uppsiglingu í DV nú og var í fyrra, svo nú er bara að brynja sig til þess að geta þreyjað Þorrann, Góuna og góðan hluta Einmánaðar einnig, áður cn sjálf Stjörnumessan hcfst, og síðan verður sjálfsagt komið eitthvað fram á Hundadaga þegar DV hefur lokið Stjörnuumfjöllun sinni þetta áríð. Ekki er að spyrja að „stofnana- málinuu ■ „Stofnanamálið" sem þau möppudýrin tala sín á milli er oft tekið fyrír í skammadálkum í blöðum og útvarpi, cn því ver er það sjaldan sem dæmi fylgja, svo menn geti áttað sig á hvað við er átt. En mönnum ætti að verða það Ijóst eftir að þeir hafa lesið cftirfarandi kafla úr fundargerð um togarakaup norður í landi. Kaflann er að flnna í skáldsögu Jóns Orms, „Spámaður í föður- landi". „Ungur hagfræðingur benti á að þó hér væri um jaðarframlag að ræða, sem í sjálfu sér skekkti ekki jákvæð gildi umræddra fram- boðsfalla með tilliti til markaðs- þjöppunar, þá yrði engu að síður að gefa gaum að leitnilögmálum þessu eins og öðru, en ýmislcgt benti til misvísunar þeirra og kjörstöðu nýtingarhagkvæmni framleiðslufalla. Hann bætti þvi við til frekari skýringar að auðvit- að væri þetta mjög undir ýmsum flæðistærðum komið og hæpið væri í rauninni að segja nokkuð um þetta fyrr en reynsla væri Dómur í deilu vörubfl- stjóra og verktaka: STAÐFEST1R EINKARETT BÍLSTJÓRANNA ■ Nýlega hafa gengiö tveir dómar til staðfestingar lög- bannsaðgerðum, sem bílstjór- ar í félögum vörubflstjóra, annars vegar á Húsavík og hins vegar í Hafnarfirði, fengu lögð vegna meintra ólöglegra vöru- flutninga verktakafyrirtækja. í Hafnarfírði háttaði svo til, að verktakafyrirtækin Ferro s.f. og Hafsteinn og Sæmundur hf. höfðu með verksamningi tekið að sér flutning á saltfarmi úr Hafnarfjarðarhöfn tii Kópa- vogs. Félagsmcnn bflstjórafé- lagsins töldu, að þeir ættu skilyrðislaust sjálfir og einir að annast flutninga þessa, og hindruðu þeir akstur verktaka- bflanna á hafnarbakkanum. í framhaldi af því fengu þeir lagt lögbann við starfsemi þeirra. Á Húsavík kom til hlið- stæðra árekstra, er eigendur vörubfla í sýslunni feugu lagt lögbann við því, að verktaka- fyrirtækin Norðurverk og BJG fengju efnt verksamning sinn við Kröfluvirkjun um flutning á sementsfarmi frá Húsavík upp að Kröflu. I báðum tilvikum neyddust verktakafyrirtækin til þess, að seraja við bflstjórafélögin um flutningana, þarscmsamnings- aðilar þeirra böfðu með úr- skurði fógeta verið hindraðir í efndum. -Sjó. Borgarlögmaður fékk viku frest ■ Borgarfógetinn í Reykjavík hefur að beiðni borgarlögmanns veitt viku fresti til að skila greinargerð í lögbannsmáli Verðlagsstofnunar á fargjalda- hækkun Strætisvagna Reykjavík- ur, sem verðlagsstjóri telur ólög- lega. „Ég bað um þennan fresti til að geta gert nægjanlega grein fyrir sjónarmiðum borgarinnar í þessu máli, sem að mörgu leyti er flóknara en flest lögbanns- mál,“ sagði Magnús Óskarsson, borgarlögmaður í samtali við Tímann. „Það liggur í augum uppi að þetta mál er óvenjulegt vegna þess að opinber stofnun krefst lögbanns á opinbera stofnun í fyrsta skipti. Það er náttúrlega ekki það sama og að stoppa byggingu á bílskúr svo dæmi sé tekið. Nú, það er ekki einsdæmi að biðja um vikufrest; það fór vika í Steindórsmálið, sem var minna í sniðum,“ sagði Magnús. Magnús sagði ennfremur að í þessu tilfelli hyrfu hagsmunir ekki á einni viku, eins og stundum er í lögbannsmálum. -Sjó.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.