Tíminn - 25.01.1983, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983.
15
mmmwm
w$39mf$Æ$^
mÆmSm
f£3 5S?fcKPKi?í^í#5*^ Wv^íj-Váv
Éiiifei
S&ðM&fg
^K#S@í6'.i»i?i3sfee.'S'sys(4-í«
sgSaagsa
l'í liílltt’fJ. Kfl
Íáí-Ske
r
Ijúlímánuði 1982 ákvað Alþjóðahvalveiðiráðið með yíirgnceíandi meirihluta
atkvœða(25:7), að hvalveiðum í verslunarskyni skuli hœtt um óákveðinn tima
eigi síðar en 1986. Meðal þeirra þjóða, sem greiddu tillögunni atkvœði, vom nokkrar
íyrrverandi hvalveiðiþjóðir og ein þjóð, sem enn stundar hvalveiðar (Spánverjar).
íslendingar voru meðal þeirra sjö þjóða sem lögðust gegn þessari ákvörðun. Hin 25
atkvœði greidd með tillögunni endurspegla áhuga íólks víða um heim á að tryggja
framtíð stórhvelanna og vaxandi áhyggjur vísindamanna aí ástandi hvalastoína í
öllum heimshöíum.
r
Iumrœðum um stöðvun hvalveiða kom fram, að skyndilegt bann kynni að valda
fyrirtaekjum sem tengjast hvalveiðum og starísíólki þeirra verulegum vandrœð-
um. Aí þeim sökum, ,með núverandi þarfir íólks í huga", var greinilega tekið íram í
tillögunni, að aðlögunartími að hvalveiðlbanninu „yrði nœgilega langur til að komist
yrði hjá að baka hvalveiðiiðnaðinum óþaría erflðleika". Faliist var á að veita hval-
veiðiiðnaðinum þriggja ára aðlögunartíma.
Fjögur af þeim sjö löndum, sem greiddu atkvœði gegn tillögunni, bám fram
formíeg mótmœli innan níutíu daga og firrtu sig þar með ákvœðum hennar. Það
vakti innilega ánaegju okkar og fjölmargra annarra að heyra að íslendingar mót-
mœltu ekki þá.
ví miður em málalok enn ekki ljós. Frestur til að skila mótmœlum hefur verið
íramlengdur til 2. febrúar 1983. Það er von okkar, að íslendingar hunsi ekki vilja
yfirgnœfandi meirihluta aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins, en reynsla okkar aí
íramkomu íslendinga í Alþjóðahvalveiðiráðinu kennir okkur að vera við öllu búin.
Við leyfum okkur að nefna 3 dœmi:
Iíslendingar hafa margoft haít ráðleggingar vísindamanna að engu, íarið íram
á háa kvóta og hvað eftir annað veitt Japönum, Sovótmönnum og öðrum
hvalveiðiþjóðum stuðning í viðleitni þeirra til að fá háa aflakvóta aí hvalastoínum,
þar sem mat á stoínstœrð og veiðiþoli var óáreiðanlegt eða ekki fyrir hendi. Það sem
verra er, íslendingar hafa veitt slíkan stuðning í tilvikum, þar sem gögn sýndu að
hvalastoínar minnkuðu geigvœnlega og vœm jaínvel í útrýmingarhœttu.
2Árið 1980 mótmœltu íslendingar ásamt nokkrum öðrum hvalveiðiþjóðum
annarri meirihlutaákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins, ákvörðun um bann við
notkun sprengieínalausra eða .kaldra" skutla við hreínuveiðar, þar eð notkun þeirra
veldur óþarflega löngu og sársaukaíullu dauðastríði. íslendingar halda enn áfram
að veiða hreínur á þennan ómannúðlega hátt.
3íslendingar veiða enn langreyðar og sandreyðar og flytja út afurðir þeirra. Árið
1981 vom þessar tvœr tegundir íœrðar inn í Sáttmála um alþjóðaviðskipti með
tegundir í útrýmingarhœttu (CITES), og því lýst yfir að ekki mœtti versla með þessi dýr
eða afurðir þeirra í milliríkjaviðskiptum. Öll nema þrjú af þeim rúmlega sjötíu ríkjum
sem aðild eiga að sáttmálanum, studdu ákvörðunina. íslendingar veiða nú sand-
reyði einir þjóða þrátt íyrir skort á vísindalegri úttekt á ástandi sandreyðarstoínins.
Einungis íslendingar og Spánverjar veiða nú langreyði, sem er að öðm leyti íriðuð,
og Spánverjar hafa ákveðið að hœtta hvalveiðum fyrir umsamdan tíma, 1986.
Nú stöndum við andspœnis þeim möguleika, að íslendingar mótmœli tímamóta
atkvœðagreiðslu Alþjóðahvalveiðiráðsins. Félagar og stuðningsmenn nokkurra
undirritaðra samtaka haía sent bréí til íslenska sendiráðsins í Bandaríkjunum, svo og
til íorstjóra Flugleiða, framkvœmdastjóra Iceland Seaíood Corporation og fram-
kvœmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Þar er lýst yíir óánœgju vegna
þess hversu lengi íslendingar skorast undan þeirri ábyrgð að taka þátt í varðveislu
náttúmverðmœta, sem em sameiginleg arfleifð okkar allra. Tekið er fram, að mót-
mœli íslendingar ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins munu þessi samtök taka þátt í
mótmœlaaðgerðum, og margir hyggjast jafnvel hafa í írammi áróður gegn íslensk-
um fiskafurðum.
Við hörmum þá erfiðleika sem aðgerðimar kunna að valda oíangreindum fyrir-
tœkjum, en við hörmum enn írekar að stórhveli skuli enn vera deydd, ekki
einungis vegna þeirrar eftirsjár sem yrði aí þeim, verði þeim útrýmt, heldur einnig
vegna þeirra aíleiðinga sem hvarí stórhvelanna kcmn að haía á aðrar lífverur sjávar,
á lífkerfi og heilbrigði hafanna. Þœr breytingar haía einnig áhrif á mannkynið í heild,
en líkast til mest á eyþjóðir sem búa í nánu sambýli við hafið, líkt og íslendingar.
Við hörmum að álit meirihluta þjóða heims, sem óskar þess að hvalveiðum verði
hœtt, skuli hvað eftir annað virt að vettugi. Þegar árið 1972 var þetta álit ljóst af
samþykkt ráðsteínu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi mannsins. íslendingar
studdu þá tillögu, en hún gerði ráð fyrir tíu ára banni við hvalveiðum. Síðan hafa birst
fjölmargar kröfur sem undirstrika óskina um að vemda hvali gegn oínýtingu. Ein
markverðasta krafan er í Stefnumörkun um varðveislu heimsins (World Gonservation
Strategy), en hún er studd af fjölmörgum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Stefnu-
mörkunin var birt árið 1980 aí World Wildliíe Fund, Alþjóðlegu náttúruvemdarsam-
tökunum (IUCN) og Umhverfisáœtlun Sameinuðu þjóðanna (UNEP), með aðstoð
Matvœla og landbúnaðarstoínunar S.Þ. (FAO) og Menningar og vísindastofnunar
S.Þ. (UNESCO). Allt em þetta virtar alþjóðastofnanir með mikla þekkingu í þessum
efnum. Sameiginlegar ráðleggingar þeirra til ríkisstjóma heimsins vom, að nauðsyn-
legt vœri að leggja niður hvalveiðar um óákveðinn tíma vegna vemdunarsjónar-
miða.
Loks skal þess getið, að á síðasta fundi Norðurlandaráðs lýstu Danir yfir áhyggjum
sínum vegna aístöðu íslendinga og Norðmanna í hvalveiðimálum. Nokkm
seinna sendu 19 danskir þingmenn, frá átta stjómmálaflokkum. bréí til íorsœtisráð-
herra íslands og til Alþingis, þar sem þakkað er fyrir að íslendingar skuli ekki hafa
mótmœlt hvalveiðibanninu og bent er á mikilvœgi samhœfðrar viðleitni Norður-
landanna um að eíla náttúmvemd.
akka þér fyrir að kynna þér oíangreind sjónarmið. Við vonum innilega að
ríkisstjóm þín ákveði að virða samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins. Slíkri ákvörðun
verður vel tekið aí rikisstjómum, náttúmvemdarmönnum og áhugamönnum um
víða veröld.
Greenpeace Intemational
World Wildlile Fund Intemational
The Royal Society íor the Prevention
oi Cmelty to Animals
Intemational Fund íor Animal Weliare
World Wildliie Fund Germany
World Wildliíe Fund U.K.
Friends oi the Earth U.K.
Friends oi the Earth U.S.
Les Amis de la Terre
Humane Society oi the United States
(Bretlandi)
(Þýskalandi)
(Bretlandi)
(Bretlandi)
(Bandaríkjunum)
(Frakklandi)
(Bandarikjunum)
The Animal Weliare Institute (Bandaríkjunum)
Canadian Federation of Humane Societies (Kanada)
Intemational League for the Protection oi Cetaceans
Project Jonah (Ástralíu)
The American Cetacean Society (Bandarikjunum)
The American Society for the Prevention
oi Cruelty to Animals (Bandarikjunum)
CentrumíörStudieravValarochDeliiner (Svíþjóð)
Deutsche Tierschutzbund (Þýskalandi)
Finlands Naturskyddsforbund (Finnlandi)
Foreningen til Dyrenes Beskyttelse (Danmörku)
Forsögsdjurens Vem (Finnlandi)
Gesellschaít zum Schutz und Rettung
der Meeressáugetiere
Gröne Korset
Ligue Frangaise des Droits de 1 Animals
National Audubon Society
Natur och Miijö
Natur og Ungdom
Nature 2000
Peoples Trust lor Endangered Species
Rddda Vaiama
The Whale Center
World Conservation Strategy Group
(Þýskaiandi)
(Finnlandi)
(Frakklandi)
(Bandarikjunum)
(Finnlandi)
(Danmörku)
(Belgíu)
(Bretlandi)
(Sviþjóð)
(Bandaríkjunum)
(Hollandi)