Tíminn - 25.01.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 25.01.1983, Blaðsíða 20
Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingafé/ag » 'wdabriel p HÖGGDEYFAR u y Givara^lutir Sími 36510. . . ,V.-V... .. ■ Jakaruðningur við land neðan við brúna. (Ljósmynd: Hrafn Oskarsson) Stórflóð í Ölfusá: KLAKAHRANNIR EYÐI- LÖGÐU GIRÐINGARNAR ■ Vatnsborðið í Ölfusá lækk- aði heldur í gær, eftir flóðin í fyrradag. Unnið var að lagfær- ingum á vegum í Gaulverjabæj- arhreppi í allan gærdag, borið ofan í göt við ræsi og að sögn vegagerðarinnar á Selfossi er reiknað með að bráðabirgðavið- gerðum Ijúki á morgun ef aUt fer eftir áætlun. Eitthvað var um að vatn flæddi upp úr niðurföllum í kjöllurum húsa á Selfossi, en tjón mun ekki hafa orðið þar af völdum vatnagangsins. Vatn flæddi heim undir bæi niður með Ölfusánni og klakaspangir hrönnuðust upp á túnum. „Það er mikið flóð hér alveg heim undir bæ,“ sagði Guðborg Aðalsteinsdóttir á Kaldaðarnesi þegar Tíminn hafði samband við hana í gær. En húsin standa það hátt að vatn nær ekki til þeirra hvorki íbúðarhúss né útihúsa. Hins vegar er alófært milli bæja Vegurinn heim að Kaldaðarnesi var víðast hvar yfirflotinn vatni í flóðunum. vegna vatnagangs og klaka á vegunum. Það er löng heimreið að bænum og ekki hægt að sjá ennþá hvernig henni hefur reitt af. En það er Ijóst að allar girðingar eru ónýtar. Það er óvenjulegt að komi svona mikil flóð hér,“ sagði Guðborg að endingu, „það hefur ekki gerst síðan 1968.“ dropar Allur er varinn góður ■ Þennan rákumst við á í Degi: Maður kom labbandi inn á bjórkrá, dimma og drunga- lega. Eina hljóðið sem maður heyrði var sötrið þegar þung- búnir gestimir sötmðu í sig drykkina. Enginn mælti orð frá vörum. Komumaður pantaði sér að drekka, saup einn sopa en fór síðan að þulda vasa sína að utan. Hann fann greinilega ekki það sem hann leitaði að og leit upp og ávarpaði gestina: „Getur einhver hjálpað mér um sígarcttu? Drungaleg þögn og enginn svaraði. Ekki einn einasti gest- anna leit upp. „Er virkilcga enginn sem getur séð af sígarettu handa mér?“ áréttaði maðurinn. Sama þögnin. „Ókei. Sá ykkar sem getur gefið mér sígarettu má eiga Fordinn minn, sem stendur hérna fyrir utan.“ Drungalega þögnin ríkti áfram, þar til dimm rödd kvað við utan úr horni: „Hvaða árgerð er hann?“ Þingeyingar gleðjast ■ Þennan fengum við sendan norðan úr Þingeyjarsýslum og tilefnið er greinilega stutt til- vitnun „Dropa“ á dögunum i æfisögu Steindórs frá Hlöðum, þar sem hann sver af sér öll tengsl og frændsemi við Þing- eyinga: „Margir Þingeyingar sem þekkja Steindór Steindórsson frá Hlöðum og heyrt hafa eða lesið yfirlýsingu Steindórs um uppruna sinn hafa glaðst yfir því fyrir sína hönd og sýslu sinnar að nú skuU tekin af öll tvimæli um það að sýslan eigi ekkert í honum og þurfi því cnginn góður Þingeyingur að bera kinnroða fyrír skrif Steindórs eða skoðanir.“ Prófkjör Sjálfstædismanna: Þorsteinn og Árni efstir á Sudurlandi ■ GeysUeg þátttaka var í prófkjöri sjálfstæðismanna á Suðurlandi og tóku nokkru flciri þátt en greiddu flokknum atkvæði í kjördæminu i síðustu kosningum, en prófkjörið var opið öllum. Röð efstu manna virtist orðin nokkuð Ijós. Þor- steinn Pálsson hafði langflest atkvæði í efsta sætið eða 756, en næst flest atkvæði i það sæti hafði ÓU Þ. Guðbjartsson, 470. Árni Johnsen hafði lang flest atkvæði í annað sæti, 746 og í þriðja sæti hafði Eggert Haukdal 884 atkvæði. Flest atkvæði í 4. sæti hafði Siggeir Björnsson, 1112. Búist var við að talningu lyki um kl. 3 í nótt, en samkvæmt þessum tölum virtist Ijós að Guðmundur Karlsson alþm. frá Vestmannaeyjum hafði misst sæti sitt í hendur Árna Johnsen. - JGK. Lárus og Halldór efstir ■ Þegar 1400 atkvæði höfðu verið talin í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra var Ijóst að tveir efstu menn í síðustu kosningum og þingmenn flokksins í kjördæminu, þeir Lárus Jónsson og HaUdór Blöndal höfðu tryggt sér sæti sín áfram. Lárus hafði þá hlotið 789 atkvæði í fyrsta sæti og 1191 atkvæði alls. Halldór hafði fengið 903 atkvæði í 1.-2. sæti og 1160 atkvæði alls. Björn Dagbjartsson var í þriðja sæti með 564 atkvæði í 1.-3. sæti og 830 alls, Júlíus Sólnes var í fjórða sæti með 657 atkvæði í 1.-4. sæti og 756 atkv. alls. Næstir urðu Vigfús Jónsson, sem verið hefur vara- þingmaður flokksins þetta kjörtímabil, þá Svavar Magn- ússon frá Ólafsfirði og í sjö- unda sæti var Sverrir Lcósson með 630 atkvæði. Þeir Bjöm Dagbjartsson og Júlíus Sólnes vora ekki í framboði í síðustu kosningum, en þá gekk Sjálfstæðisflokkur- inn klofinn tU kosninga í Norðurlandskjördæmi eystra ems og menn muna. - JGK. Iðnaðarráðherra um svarskeyti Alusuisse: „Næsta skrefið að leita annarra löglegra leiða” (Ljósmynd: Sigurður Sigurjónsson). Síðdegis í gær var reiknað með því að flóðið í Ölfusá væri í rénum og hætta á frekari tjóni liðin hjá. - JGK. ■ Paul Mueller hefur nú ritað iðnaðarráðherra svar við skeyti hans frá 21. desember sl. og hefur blaðið fengið afrit af svarinu frá ísal. Er þar fundið að hugmyndum um að dómur skip- aður íslendingum fjalli um á- greiningsmálin og hugmyndum um raforkuverð 15-20 mills er vísað á bug. Verðið er nú 6.45 mills. Segir í skeyti Alusuisse að keppinautum fyrirtækisins standi til boða álíka verð, 6.5 mills í Kanada, sem gefur til kynna að félagið telji ekki ástæðu til verulegra hækkana. Segist félag- ið þó tilbúið til viðræðna um almenna endurskoðun orku- verðsins, en þær geti þó ekki orðið m.a. ef krafist er verulegr- ar hækkunar strax. Lagt er til í skeytinu að þegar verði skotið á fundi, - þ.e. nú á miðvikudag eða snemma í febrúar, - þar sem sérfræðingar beggja aðila skoði málin. Paul Mueller kveðst ekki geta komið til viðræðna að svo stöddu, en lýsir sig reiðubúinn til slíks um leið og viðunandi grundvöllur telst fyrir hendi. Hjörleifur Guttormsson, iðn- aðarráðherra, sagði í viðtali við Tímann í gærkvöldi að hann teldi fátt nýtt koma fram í skeytinu, sem hann mun kynna í ríkisstjórninni í dag. Minnti iðnaðarráðherra á að í skeytinu frá 21. desember hefði ráðuneyt- ið sagt að leitað yrði annarra tiltækra löglegra leiða, ef Alu- suisse gengi ekki að þeim skilyrð- um sem sett hafa verið af íslendinga hálfu fyrir viðræðum og hlyti það því að verða næsta skrefið af hálfu íslendinga. ...sá drekkhlaðinn bfl, „sem slygaðist nánast eftir götun- um“ á baksíðu DV í gær. Sýnist svo sem þaraa hafi íslenskukunnáttan sligað meitlaðan penna blaðamanns- ins. rann

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.