Tíminn - 03.03.1983, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1983
Jörð til sölu
Jörðin Viðvík II við Eyjafjörð er til sölu ef
viðunandi tilboð fæst.
Jörðin er sérstaklega vel fallin til kartöfluræktunar.
Silungsveiði í sjó. í dag er jörðin 27 km frá
Akureyri en með tilkomu Leiruvegarins styttist
vegalengdin um 8 km.
Indriði Sigmundsson
Norðurgötu 6
Akureyri
sími 96-22725 eftir kl.20 á kvöldin
Eigum fyrirliggjandi
CAV 12 volta startari:
Bedford
Perkins
L. Rover D.
M.Ferguson
Zetor
Ursusofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og aiternatorar fyrir allar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími 29080
Islenskum hestum
sæma best
íslensk reiðtygi
Hnakkur með öllu.
Verð frá kr. 7.500.-
Vönduð vinargjöf
Allt til reiðbúnaðar
Þorvaldur
Guðjonsson Shnakkar
Söðlasmíðameistari, Einholti 2 - inngangur frá
Stórholti - sími 24180.
fréttirl
■ Magnús Bjarnfreðsson við borðsendann ásamt 12 af þeim 16 væntan-
legum „sjónvarpsstjörnum“, er hann leiðbeindi á námskeiðinu um síðustu helgi.
Tímamynd Ragnheiður.
Fjölmidla-
ff
nauösynleg
— öllum er starfa að
félagsmálum’%
segir Jón Agnar Eggertsson
BORGARNES: „Sjálfsagt kann ein-
hver að undrast það að verkalýðsfélag
úti á landsbyggðinni skuli gangast fyrir
námskeiðum um framkomu í sjón-
varpi. Ég tel hins vegar að fræðsla um
fjölmiðlun sé nauðsynleg fyrir alla þá
sem starfa að félagsmálum. Fjölmiðlun
er orðin svo ríkur þáttur í þjóðlífinu
að fræðsla um þessa hluti ersjálfsögð",
sagði Jón Agnar Eggertsson, form.
Verkalýðsfélags Borgamess, sem
ásamt Verslunarmannafélagi Borgar-
ness og MFA stóðu að námskeiði í
sjónvarpsframkomu í Snorrabúð í
Borgarnesidagana26. og27. febr. s.l.
„Þátttakendur í þessu námskeiði
voru 16 og var það einróma álit þeirra
að það hafi verið hið gagnlegasta.
Leiðbeinandinn, sem var Magnús
Bjarnfreðsson, fékk mikið lof fyrir
ágæta tilsögn, en þetta er í annað
skiptið sem hann er leiðbeinandi í
námskeiði hjá þessum aðilum“, sagði
Jón Agnar.
Námskeið þetta sagði hann hið 20.
sem stéttarfélögin í Borgarnesi ásamt
Menningar- og fræðslusambandi al-
þýðu gangast fyrir. Á námskeiðum
þessum hefur verið fjallað um hin
ólíkustu efni: Sex almenn félagsmála-
námskeið, 4 trúnaðarmannanámskeið,
2 námskeið í ljósmyndun, 1 í
framsögn, 1 í hópefli, 2 í fjölmiðlun, 2
blönduð og 2 námskeið sem haldin
hafa verið í samvinnu við Borgarfjarð-
ardeild Neytendasamtakanna, annað
um verðlagsmál og hitt um húsnæðis-
mál. Jón kvað rúmlega 200 einstak-
linga hafa tekið þátt í þessum nám-
skeiðum, en samanlagður þátttak-
endafjöldi hafi verið 402 alls. Nám-
skeið þessi kvað hann hafa verið opin
öllum.
-HEI
Verkalýðsfélag Hvera-
og nágrennis:
„Nú duga
engin slagord”
ÁRNESSÝSLA: „Nú er svo komið að
stórfellt atvinnuleysi er að hefjast á
íslandi. Verðbólgan fer ört vaxandi
sem er á leið að setja efnahag launa-
fólks og atvinnurekstur í rúst“, segir
m.a. í samþykkt sem gerð var á fundi
í stjórn og trúnaðarráði Verkalýðsfé-
lags Hveragerðis og nágrennis s.l.
sunnudag. Harma fundarmenn það
stjórnleysi sem ríkt hefur í landsmálum
síðustu mánuðina, þar sem meirihluti
þingmanna hafi aðeins haft hugann við
kjördæmamálið en virðist hafa gleymt
efnahagsmálum þjóðarinnar, með
fyrrgreindum afleiðingum.
„Fundurinn fordæmir harðlega þær
hugmyndir meirihluta alþingismanna
að etja þjóðinni út í tvennar kosningar
á árinu. Við teljum það skyldu þing-
manna að snúa sér nú þegar að raun-
hæfum aðgerðum í efnahagsmálum.
Jafnframt skorar fundurinn á samtök
launþega og atvinnurekenda að taka
upp sjálfstætt samstarf við stjórnvöld
um brýnustu ráðstafanir í efnahags-
málum. Nú duga engin slagorð eða
óraunhæfar hugmyndir, heldur er það
skylda allra að taka á málum með
kjark. heiðarleika og drengskap, en
ekki láta augnabliksvinsældir hafa nei-
kvæð áhrif á aðgerðir. Eftirtalin atriði
vill fundurinn stefna á:
- Dregið verði nú þegar úr ónauðsyn-
legum innfiutningi.
- Vísitölumálið.
- Aðhald í opinberum rekstri og fram-
kvæmdum.
- Nýjum orkuframkvæmdum verði
frestað þar til séð verður um orku-
markað.
- Breytt skipulag í landbúnaðarmál-
um, með eftirfarandi t.d. í huga:
Framleiðsla miðist við innanlands-
þarfir. Framleiðsla á landbúnaðaraf-
urðum hjá öðrum en bændum verði
stöðvuð og sérstök tilraunabú á
vegum ríkisins lögð niður. Vinnslu
og dreifingarkostnaður athugaður
með meiri hagkvæmni í huga.
- Bankakerfið verði tekið til endur-
skoðunar, með það stefnumarkmið
að fækka bankastofnunum.
- Betra skipulag á fiskveiðum og fisk-
vinnslu og meiri samræmingu milli
veiða og vinnslu.
- Dregið verði sem frekast er unnt úr
erlendum lántökum að þær aðeins
teknar til framkvæmda sem ótvírætt
sína mikla hagkvæmni",
-HEl
Þorlákshöfn:
Mikið um
landlegur
aðundan-
förnu
ÞORLÁKSHÖFN: „Vertíðin gengur
svona bærilega miðað við þá andsk...
ótíð sem verið hefur í vetur. Þótt
manni finnist aflinn vera eitthvað að
skána er samt erfitt að segja til um það
vegna þess hve mikið er um landlegur
að undanförnu. í gær voru sumir
bátarnir t.d. með þokkalegan afla, en
það var auðvitað 2-3 nátta fiskur
vegna brælu. í dag gerði svo aftur
botnlausa brælu, svo þeir hafa áreiðan-
lega lítið sem ekkert getað dregið af
netunum í dag“. Þetta sagði Þórður
Ólafsson í Hveragerði m.a. er við
spurðum hann hvernig vertíðin gengi
hjá þeim þar um slóðir, s.l. mánudags-
kvöld.
Þar sem Þórður er formaður verka-
lýðsfélagsins á staðnum gripum við
tækifærið að spyrja hann álits á vísi-
töluhækkunum þeim á launum sem
voru að ganga í gildi. „Ég vil auðvitað
ekki segja að fólki veiti af þessu í allri
dýrtíðinni. En þegar aldurflokka-
hækkanirnar koma inn í þetta til
viðbótar við vísitöluna sýnist manni
þetta glannalega mikið. Þegar fisk-
verðshækkunin bætist síðan við þá er
alveg sama hvort það eru fyrirtæki sem
rekin eru á vegum bæjarfélaganna,
samvinnufélaga eða einkaaðila, þau
geta ekki bætt þessu á sig öðruvísi en
að fá samsvarandi gengisfellingu. Það
hlýtur því að verða 14-15% gengisfell-
ing áður en langt um líður“, sagði
Þórður.
-HEI
■ Pétur og Hlíf gestgjafar í Hreða-
vatnsskála. Þessi mynd er raunar tekin
í Botnsskála, sem þau hjón reka líka
og innréttuðu á ný á síðasta ári.
- Mynd HEI
Samvinnu-
ferðir/Landsýn
reka Bifröst
í sumar
HRAUNBÆ'BORGARI'IRÐI: í ferða-
málum er það helst að frétta að
Samvinnuferðir/Landsýn mun sjá um
rekstur Sumarheimilisins að Bifröst í
Borgarfirði í sumar og mun reksturinn
verða með svipuðu sniði og verið
hefur. Undanfarið hafa farið fram
endurbætur og breytingar á Hreða-
vatnsskála af mikilli smekkvísi svo þar
er inn að koma eins og í nýtt húsnæði
væri. Sömu aðilar eiga og reka staðinn
af miklum dugnaði, en það eru þau
hjónin Hlíf Steinsdóttir og Pétur
Geirsson.
Margir skólar starfa í Borgarfjarðar-
héraði, þar af þrír sérskólar, hús-
mæðraskóli að Varmalandi og bænda-
skóli að Hvanneyri ásamt verslunar-
skóla að Bifröst sem er hér næstur
mér. Góður nágranni í fámennri sveit.
Þar er gefið út fréttabréf af nemendum
í viku hverri með þeirri nýlundu að
það er unnið í tölvu með ritvinnslufor-
riti sem Ritþór nefnist og ég hygg að
það sé hið fyrsta sinnar tegundar hér á
landi.
Leópold.
f