Tíminn - 03.03.1983, Qupperneq 5

Tíminn - 03.03.1983, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1983 fréttir „Mér er það ákaflega sárt að gera einhverja að munaðarleysingjum, það verð ég að játa. Varðandi framboð, þá hef ég ekki tekið ákvörðun um það mál, og bíð eftir að sjá hvemig ýmis mál þróast á næstu dögum“ sagði dr. Gunnar Thor- oddsen, forsætisráðherra á fjölmennum hádegisverðarfundi með ungum fram- sóknarmönnum í gær, þegar einn fund- armanna, spurði hann hvort það yrði ekki hálfnapurlegt fyrir stuðningsmenn hans hér í Reykjavík að verða skildir eftir eins og pólitískir munaðarleysingar, ef forsætisráðherra færi ekki fram í sérframboð í komandi kosningum. í framhaldi þessarar spurningar var forsætisráðherra spurður að því, hvort ekki hefðu aukist líkurnar á sérframboði hans, eftir að niðurstöður í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi lægju fyrir. Forsætisráðherra svaraði á þessa leið: „Því er ekki að neita að þessi prófkjör sem hafa farið fram á vegum Sjálfstæðisflokksins, þau vekja mig til umhugsunar. Ef maður lítur t.d. yfir prjófkjörið í fjórum kjördæmum, - í fyrsta lagi þarsem mínirsamstarfsmenn, Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson komu báðir út með glæsilega sigra og hins vegar á Reykjavík og Reykjanes þar sem aðalleiðtogar stjórnarandstöð- unnar, formaður og þingflokksformað- ur, fengu þá útkomu sem kunn er, þá hefur það auðvitað allt sín áhrif, þegar metin er staðan í stjórnmálunum." Forsætisráðherra var spurður um vísi- tölumálið, og nýtt viðmiðunarkerfi og sagði þá m.a. „Þó gripið sé inn í ■ Mér er það ákaflega sárt að gera einhverja að pólitískum munaðarleysingjum,“ sagði forsætisráðherra, er hann var spurður um hugsanlegt sérframboð. Honum á hægri hönd eru þeir Finnu Ingólfsson, formaður SUF og Jón Borgar Ákason, formaður FUF í Reykjavík, en forsætisráðherra á vinstri hönd er Haukur Ingibergsson, framkvæmdastjóri Framsóknar- flokksins. Vonbrigði að ekki náðist samkomulag um nýtt við- miðunarkerfí - Forsætisráðherra var spurður að því hvort það hefði verið hans skilningur við fyrstu umræður um vísitölufrumvarpið í | ríkisstjórn að ráðherrar Alþýðubanda- lagsins hygðust einnig standa að frum- varpinu og sagði þá m.a. „í yfirlýsingu okkar í sambandi við bráðabirgðalögin frá því ágúst, þá er þetta orðað þannig að ríkisstjórnin muni standa að því að samþykkt verði frumvarp um nýtt við- miðunarkerfi, með hliðsjón af þeim tillögum sem þá lágu fyrir í vísitölu- nefnd. Náttúrlega skildum við það þann- ig að það yrðu meginatriðin í tillögum vísitölunefndar, sem unnið yrði út frá, en því miður fór þetta á annan veg" Forsætisráðherra sagði m.a. er hann var spurður um æskilegar leiðir í efna- hagsmálum: „Ég geri ráð fyrir því að ríkisstjórnin sitji fram yfir kosningar og það er mín skoðun að ekki komi til mála að hún sitji aðgerðarlaus. Auðvitað á að gera efnahagsráðstafanir vegna þeirrar geigvænlegu þróunar sem orðið hefur í verðlagsmálum, nú upp á síðkastið, samanber miklar launa- og fiskverðs- hækkanir." í framhaldi þessara orða, var forsætis- ráðherra spurður hvort ekki kæmi til greina frá hans hálfu, að leysa þá ráðherra frá störfum, sem neituðu að taka á efnahagsmálunum af alvöru, ef slík staða kæmi upp. Ráðherra brosti stórum er hann svaraði: „Ég held að við Gunnar Thoroddsen, forsætisrádherra, á fundi ungra framsóknarmanna: AKVORÐUN UM FRAMBOÐ BHHJR ÞRÓUNAR MAU NÆSTU DAGA — kemur ekki til mála að ríkisstjórnin sitji aðgerðarlaus í efnahagsmálum fram að kosningum vísitölukerfið, þá þýðir það ekki þar með kjaraskerðingu. Það getur í raun oftar virkað þannig að inngrip í vísitölu- kerfið, sem virðist vera kjaraskerðing, það reynist vera kjarabót, því aukning verðbólgunnar reynist alltaf rýra launin, og vera því af hinu verra fyrir launþeg- ann.“ Forsætisráðherra sagðist telja að betra væri að fá ekki verðbætur, en fá þeim mun meiri grunnkaupshækkanir, þegar samið væri. „í sambandi við frumvarp um nýtt viðmiðunarkerfi, sem ég lagði fram, ásamt samráðherrum mínum úr Fram- sóknarflokknum og Sjálfstæðis- flokknum, þá er gert ráð fyrir nokkrum aðgerðum," sagði forsætisráðherra, til þess að draga úr skaðlegum áhrifum gild- andi vísitölukerfis, en því miður þá gengur það ekki fram á þessu þingi“ „Tel að kosningalagafrum- varpið verði að lögum“ - Er forsætisráðherra var spurður út í kjördæmamálið, kosningalagafrum- varpið og væntanlegt stjórnarskrárfrum- varp sagði hann m.a. „Varðandi kosn- ingalagafrumvarp flokksformannanna, þá hefur gagnrýni á því orðið miklu meiri en gert hafði verið ráð fyrir, Það er auðvitað mismunandi hvernig sú gagnrýni er, og fer það fyrst og fremst eftir búsetu hvaða afstöðu menn hafa til frumvarpsins. Ég, fyrir mitt leyti, hefði talið æskilegra, að halda óbreyttri tölu þingmanna og að dregið hefði verið meira úr misvægi milli byggðarlaga, en gert er með þessu frumvapi. Það er auk þess annmarki á fumvarpinu, hversu torskilið það er. Mér finnst það hinsveg- ar ákaflega mikilvægt að formenn flokk- anna og meirihluti þingflokka þeirra hafa náð samstöðu um þetta frumvarp. Það má vera að einhverjar breytingatil- lögur komi fram, en hvort sem þær verða samþykktar eða ekki, tel ég mestar líkur á að þetta frumvarp verði samþykkt í þinginu og verði að lögum. Það er nú verið að ganga frá frumvarpi um endurskoðun stjórnarskrárinnar í samræmi við niðurstöður stjórnarskrár- nefndar og ég geri ráð fyrir að það frumvarp verði lagt fram nú næstu daga, en ég tel engar líkur að það fái afgreiðslu á þessu þingi. í stjórnarskrárfrumvarp- inu verða einnig tillögur um kjördæma- skipunina, en það er ekki endanlega afráðið hverning þær tillögur verða. „Einhliða aðgerðir gagn- vart Alusuisse ekki tíma- bærar að mínu mati“ - Er forsætisráðherra var spurður álits á þeirri gagnrýni sem komið hefði fram á hann í Þjóðviljanum, fyrir endur,- skoðun álsamninganna 1975, en hann var þá iðnaðarráðherra, auk þess sem hann var spurður um afstöðu til tillagna iðnaðarráðherra um einhliða aðgerðir, sem liggja frammi í frumvarps-formi á Alþingi, sagði hann m.a. „Ég tel að samningarnir sem gerðir voru um orku- verð 1975 hafi verið mjög hagstæðir og til mikilla bóta. Þetta voru erfiðir samn- ingar, en engu að síður þá tókst að fá fram samkomulag um verulega hækkun á raforkuverðinu, sem kemur fram í því að Landsvirkjun hefur fengið í tekjur stórkostlegar fjárupphæðir af raforku- sölunni til fSAL, umfram það sem ella hefði orðið. Nú, það hefur verið reynt að túlka það að samningurinn sem gerður var um skattamál hafi verið þannig að við höfum tapað á honum, en það er ekki rétt. Þessu til sönnunar er nú í undirbúningi samantekt um þetta mál sem vonandi verður birt fljótlega, en þáverandi formaður samninganefndar- innar er með slíka samantekt í undirbún- ingi. ^Ég hef ekki talið tímabært nú að grípa til einhliða aðgerða gagnvart Alus- uisse, þannig að Alþingi ákveði með lögum hækkun á rafmagnsverði, sem ákveðið er með samningum. Ég vil engan veginn útiloka að til slíkra að gerða gæti komið síðar, en ég tel það ekki þrautreynt enn hvort hægt er að fá hækkun á rafmagnsverði með samning- verðum að athuga aðeins nánar efna- hagsaðgerðirnar og tillögur í þeim efnum, áður en við förum að gera að því skóna að gefa einhverjum frí!“ Einn fundarmanna klykkti út með eftirfarandi spurningu: „Mig langar að spyrja forsætisráðherra að því hvaða líkur hann telur á því að Gunnar Thor- oddsen fari í framboð, eins og horfurnar eru í dag.“ Dr. Gunnari Thoroddsen, forsætisráð- hcrra varð ckki svara vant frekar en fyrri daginn, því hann sagði: „Ég skal trúa ykkur fyrir því að Gunnar Thoroddsen er hvað eftir annað búinn að spyrja forsætisráðherra þessarar spurningar, og gagnkvæmt, en hvorugur þeirra hefur fengið nokkurt svar ennþá.“! - AB ■ Eins og sjá má fjölmenntu ungir framsóknarmenn á þennan hádegisverðarfund með forsætisróðherra, enda ekki á hverjum degi sem gefst tækifæri tU þess að sPyrJa forsætisráðherra spjörunum úr. Tímamyndir - G.E.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.