Tíminn - 03.03.1983, Side 8
8
MIÐVHOJDAGUR 2. MARS 1983
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason.
Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Hallgrímsson og Atli Magnússon.
Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Guðmundur Magnússon. Blaðamenn: Agnes
Bragadóttlr, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni
Kristjánsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja
Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir:
Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir,
María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86392.
Verð í lausasölu 15.00, en 18.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 180.00.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf.
—
Sjálfstæðismenn og
atvinnureksturinn
■ t>að hefur sennilega komið ýmsum atvinnurekendum
á óvart, að engum fremur má eigna það en Geir
Hallgrímssyni, Albert Guðmundssyni og öðrum slíkum
leiðtogum Sjálfstæðisflokksins, að atvinnuvegirnir þurfa
að greiða 15% launahækkun um þessi mánaðamót, án
þess að það komi öðrum en hátekjumönnum að gagni, þar
sem launabætur hinna láglaunuðu fara samstundis í
verðbólguhítina.
Fáir munu þó hafa boðað það af meira kappi en Geir
Hallgrímsson og Albert Guðmundsson, að leggja bæri
kapp á að styrkja grundvöll atvinnuveganna og tryggja
þannig atvinnuöryggi og sæmileg lífskjör. Peir hafa haldið
því fram, að þetta væri höfuðatriðið í stefnu Sjálfstæðis-
flokksins.
Á kjörtímabilinu, Sem nú er að ljúka, hefur þó
meginþorri þingmanna Sjálfstæðisflokksins og forustu-
manna reynt eftir megni að hindra allar viðnámsaðgerðir
gegn verðbólgunni og nú síðast gert bandalag við leiðtoga
Alþýðubandalagsins um að stöðva vísitölufrumvarpið, sem
hefði frestað launahækkunum um einn mánuð meðan
leitað hefði verið víðtækari úrræða gegn verðbólgunni.
Rétt er að geta þess, að ekki eiga allir forustumenn
Sjálfstæðisflokksins skilið þennan vitnisburð. Ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins hafa reynt ásamt ráðherrum Fram-
sóknarflokksins að fá Alþýðubandalagið til raunhæfs
viðnáms gegn verðbólgunni.
Þetta hefur tekizt alltof sjaldan, en þá sjaldan sem það
hefur tekizt hafa forustumenn Sjálfstæðisflokksins risið
upp og gert flest til ófrægðar slíkum aðgerðum.
Petta hefur dregið kjark úr ráðherrum Alþýðubanda-
lagsins, sem sífellt hafa þá verið minntir á, að þeir hafi
einu sinni haft að kjörorði: Samningana í gildi.
Óneitanlega hefur þetta haft sínar afleiðingar. Ásamt
óviðráðanlegum óhöppum, eins og aflabresti og verðfalli
og sölutregðu erlendis, hafa þessi vinnubrögð umræddra
leiðtoga Sjálfstæðisflokksins átt meginþátt í því að ekki
hefur tekizt að veita verðbólgunni nægilegt viðnám.
Kórónan á þessu verki er bandalag Alþýðubandalagsins
og Sjálfstæðisflokksmanna í stjórnarandstöðu gegn vísi-
tölufrumvárpinu og hin mikla holskefla verðbólgunnar,
sem nú ríður yfir landið.
En þetta er ekki lokaþátturinn í þessu óhugnanlega
starfi. Alþýðubandalagið og Sjálfstæðisflokkurinn hafa
bundizt fóstbræðralagi um að efna skuli til tveggja
þingkosninga á fyrra helmingi þessa árs með þeim
afleiðingum, að enn meiri verðbólgu-holskefla mun koma
hér til sögu 1. júní.
Þeir kjósendur, sem hingað til hafa trúað því, að
Sjálfstæðisflokkurinn bæri hag atvinnurekstrarins fyrir
brjósti, ættu vissulega að hafa fengið hér áminningu um
að endurskoða þetta mat sitt. Óneitanlega sýnir þetta, að
Sjálfstæðisflokkurinn stjórnast af öðru en tillitssemi við
atvinnuvegina, þegar hann telur annað henta hagsmunum
sínum.
Hálendið
Ríkisstjórnin mun hafa tekið þá ákvörðun að hafna
beiðni, sem borizt hefur um að halda alþjóðlega rallkeppni
á hálendinu næsta sumar.
Þetta er sjálfsögð ákvörðun. En frekari ráðstafanir þarf
að gera til að vernda hálendið, því ásóknin til bílferða um
það er líkleg til að fara vaxandi.
Þ.Þ.
skrifað og skrafað
Vísitala
Verðbólga, vísitala, misrétti,
kjaraskerðingar og verka-
lýðsbarátta eru allt orðin svo
útþvæld hugtök að þau eru
orðin merkingarlítil og skipta
fólk litlu máli. Laun og verð
hækkar á víxl eða hvað með
öðru og fæstir vita hvað eitt
eða neitt kostar og líklega
vefst mörgum tunga um tönri
ef þarf að svara þeirri spurn-
ingu hvað viðkomandi hafi í
laun.
Það hagfræðilega mæli-
kerfi sem notað er á efna-
hagsþróun, vísitalan, er orð-
inn ráðandi þáttur í efnahags-
málunum. Svona listilega
hefur tekist til við að mæli-
kerfi var gert að stjórntæki.
Það er eins og menn haldi að
hægt sé að láta hitamæla ráða
hitastigi, sem reyndar er gert
í einstaka tilvikum, það er að
segja við sérstakar aðstæður
innanhúss. En utan dyra gera
hitamælar nákvæmlega ekki
neitt nema mæla hita- eða
kuldastig.
En það eru margir sem
halda því stíft fram að vísital-
an sé grundvöllur afkomu
fyrirtækja eða launþega, og
heyja harða baráttu til að
sanna misskilninginn. Því
fólki þýðir lítið að segja að
þjóðarframleiðsla og þjóðar-
tekjur ráði afkomunni.
Aðalheiöur Bjarnfreðs-
dóttir er farin að efast um
ágæti vísitölunnar. Ilún ritar
grcin í DV þar sem hún segir
að sú skoðun sín hafi styrkst
að leggja eigi vísitöluna
niður. Hér á hún að sjálf-
sögðu við að vísitalan sé ekki
sá hárrétti mælikvarði til
launaútreikninga sem látið
er í veðri vaka. Hún minnist
á aö s.l. haust hafi hún ásamt
öðrum í stjórn ASÍ fcngið
nýjan vísitölugrundvöll í
hendur til athugunar. Aðal-
hciður segir þær hugmyndir
hafa vcrið á svo lóðnu og
flóknu stofnanamáli, að þær
hafi verið illskiljanlegar öllu
venjulegu fólki. „Samt leist
mér illa á þær," skrifar Aðal-
hciður. En kannski það hafi
cinmitt vcrið þess vegna sem
henni leist illa á hugmyndirn-
ar, og lagði hún til að vísital-
an yrði felld niður.
Skelfing
Aðalheiður skrifar:
„Launamisréttið í landinu
er orðið svo voðalegt að það
hlýtur að skelfa hvern mann
sem í hjarta sínu trúir á
jöfnuð og bræðralag. Vísi-
tölufjölskyldan hefur í dag
32-35 þús. í meðallaun á
mánuði og þriðjungur úrtaks-
ins er með 47 þús. á mánuði.
V ísitölufjölskyldan nú er
hjón með l,98barn,auðveld-
I ara er að segja hjón með tvö
börn. Hjónin cru vafalaust á
besta aldri og tæplega vinna
. þau á réttu taxtakaupi. Inni í
myndinni er ekkert af ein-
hleypu fólki, ekkjum, ein-
stæðum foreldrum, oft með
börn og unglinga á framfæri,
eldra fólki og fólki með
skcrta starfsorku. Ég fullyrði
að í hverju stéttarfélagi hér á
Reykjavíkursvæðinu er fullt
af einstaklingum með innan
við 12 þúsund á mánuði bæði
í ASÍ og BSRB. Þingmenn
og aðrir spekingar segja að
hér sé um lítinn hóp að ræða.
Ég spyr hvernig vita þeir
mörg Ijón á veginum þegar
óskað er eftir að fundin sé
tala þessa fólks, hún fröken
tölva seni svo óspart eys úr
sérupplýsingum sem oft reyn-
ast neikvæðar þegar gengið
er til samninga, hún getur
ekkert sagt þegar þessi hópur
er annars vegar. Kannski er
hún svona brjóstgóð að hún
vill ekki hryggja þá hjarta-
hlýju menn sent í tíma og
ótíma tala um hvað þcir vilja
gera fyrir þá sém verst eru
settir. En þetta er gleymt.
Hópurinn, sama fólkið sem
vó salt á borðbrúninni eða
féll niður þegar láglaunabót-
jum var úthlutað sællar
minningar. Þetta fólk er
dæmt til að tapa þegar verð-
hækkanir dynja yfir við nýja
vísitölu.
Tökum dæmi: Vísitala
hækkar um 10%, þú hefur 10
þúsund í mánaðarlaun, þú
færð 1 þúsund í bætur, en
hafirðu 30-70 þús. í mánaðar-
laun færðu 3-7 þús. í bætur.
Sem sagt, litli maðurinn fær
sáralítið bætt og stynur auk
þess undan því seni hátekju-
maðurinn tekur glaðbeittur
við.
varnar. Þó á hann enn sinn
atkvæðisrétt og atkvæði hans
vegur það sama og hinna.
Afnám
Að öllu þessu athuguðu
legg ég til að vísitalan verði
afnumin í tvö ár til reynslu,
jafnframt verði gerðar ýmsar
ráðstafanir. Ég tel aðeins
tvær upp í þessari grein þó ég
hafi margar fleiri í huga, en
þessar þarf að gera strax.
í fyrsta lagi á að hækka
tekjutryggingu verulega og
sú hækkun á einnig að ná til
þcirra sem sækja laun til
almannatrygginga. í öðru lagi
á að gera málin upp í desem-
bcr ár hvert og sú kaupmátt-
arskerðing, sem verður að
fullu bætt, öllum jafnt.
Nú á að kjósa, tvisvar frek-
ar en einu sinni. Ef að vanda
lætur verður öllum vanda-
málum troðið niður í skúffu
fram yfir seinni kosningar.
Þá verður verðbólgan trúlega
komin um eða yfir 100%.
Atvinnuleysi er þegar farið
að gera vart við sig, fleiri
atvinnufyrirtæki komast í
þrot, nauðungaruppboð
hrannast upp vegna vaxta-
okurs og minnkandi greiðslu-
getu. Á meðan þingmenn
eyða tíma í að semja í glugga-
skotum um liver eigi að draga
hvern á þing, fljótum við öll
að feigðarósi. Er ekki mál til
komið að sameinast um að
finna ráð við vandanum?
Liggur ekki meira á að finna
lausn á efnahagsvandanum
en rjúka nú í tvennar kosn-
ingar? Hvernig sem dæminu
er velt þá er eitt víst, sú
stjórn sem tekur við í sumar
cða haust verður að taka
ákvarðanir. Það cr ekki
■endalaust liægt að hella olíu
á verðbólgubálið og leggja
nýjar og nýjar skuldir á af-
komendur okkar. Ef sá andi
ríkir áfram sem hefur ríkt í
þjóðfélaginu lengi að þeir
sem mest hafa skuli mest fá,
þá óttast ég alvarlega um það
fólk sem ég ber mest fyrir
brjósti. Nú er mál til þess
komið að standa upp, hrista
fölsku spilin úr ermunum,
stokka upp og gefa rétt.“
það?
Það er ekki eitt, heldur
Litli maðurinn á fátt sér tii
OO
starkadur skrifar
Sjónvarpinu beitt gegn
komu frönsku þyrlanna
■ ÞAÐ var sérkennilegur þáttur í sjónvarpinu á föstudags-
kvöldið í tilefni af mánaðarheimsókn frönsku björgunarþyrl-
anna hingað til lands. Þyrlur þessar hafa vakið mikla athygli
nteðal almennings og sýnt fram á ónýtta möguleika að því er
varðar notkun þyrla við sjúkraþjónustu. Þótt það sé nokkuð
Ijóst, að við höfum ekki efni á því á næstunni að ráðast í
þyrluvæðingu heilbrigðisþjónustu okkar, er mikilvægt fyrir
okkur að kynnast þeim möguleikum sem eru fyrir hendi í
þessu efni.
Þessi þáttur var hins vegar ekki byggður upp af slíku
jákvæðu hugarfari, heldur sýnilega settur saman í því skyni að
reyna að koma því inn hjá fólki hversu tnikið hneyksli það væri,
að frönsku þyrlunum skyldi yfirlcitt hafa verið leyft að koma til
landsins. Stjómandi þáttarins var sýnilega þessarar skoðunar
og cinkenndi það þáttinn allan; var reyndar ekki annað séð en
fréttamaðurinn væri hinn fúlasti þegar í Ijós kom að yfirmaður
Landhelgisgæslunnar vildi ekki taka þátt í krossferðinni.
Einhver undirmaður forstjórans, sem við var talað, var hins
vegar allur spældur yfir því, að nokkrum dytti í hug að nokkur
aðili í þessum heimi hefði á nokkurn hátt meiri vitneskju um
möguleika þyrla en hann sjálfur. Þessar frönsku boðflennur
gætu sko ekkert kennt íslendingum, sem miðað við þyrlufjölda
eiga þó vafalaust heimsmet í þyrluslysum.
Gegn þessum smálegu viðhorfum hcyrðust svo undir lok
þáttarins viðsýn sjónarmið forstjóra Landhelgisgæslunnar.
sem gerði sér góða grein fyrir mikilvægi þess að landsntenn
kynntust sem best möguleikum þyrla, sem væntanlega yrði til
þess að auka skilning á nauðsyn þeirra og auðvclda möguleika
á fjárveitingum til slíkra hluta í fraintíðinni.
ANDÚÐ gegn nýjungum - jafnvel gegn því að kynnast
nýjungum til þess eins að kanna, hvaða gagn þjóðfélagið geti
af þeim haft - á sér yfirleitt tvenns konar rætur. Annars vegar
er rótgróin íhaldsmennska og blinda sjáifsánægjunnar, sem
alltaf er hemill á framfarir. Hins vegar beinir fjárhagslegir
hagsmunaárekstrar. I þessum sjónvarpsþætti mátti sjá fulltrúa
beggja þessara viðhorfa. Það var ekki síst ógeðfelit vegna
þess, að hér var verið að fjalla um mál sem snertir líf og heilsu
fólks.
Landhelgisgæslan hefur nú til umráða eina stóra Sikorsky-
þyrlu, sem hefur reynst vel. Það urðu að vísu deilur um kaup
hennar á sínum tíma, en þáverandi dómsmálaráðherra - sem
er yfirmaður landhelgisgæslunnar - tók af skarið í þessu efni
og studdi kaup þyrlunnar. Þótt ferill íslendinga í þyrluntálun-
um sé ekki glæsilegur, þá virðist allt benda til þess að þar sé
yfirleitt ekki við þyrlurnar að sakast. Vel má því vera að þær
geti í framtíðinni gegnt enn meira hlutverki hér á landi en
liingað til. í það minnsta er vel þess virði að það sé athugað
gaumgæfilega og án allra fordóma.
í því efni skiptir auðvitað ekki máli, hvers lenskar þyrlurnar
eru: fulltrúar Sikorský-þyrlunnar hafa vafalaust á því allt aðra
skoðun en talsmenn þeirra frönsku, hvor tegundin sé betri. En
hræðsla við viðskiptahagsmuni má ekki verða til þess hindra
að þekking á möguleikum þyrla sé aukin meðal landsmanna.
Starkaður.