Tíminn - 09.04.1983, Side 2
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1983
fréttirí
Fjöldi manns tepptur nyrðra frá þriðjudegi:
HOFÐUM DYNUR OG TEPPI OG
FÓLK LÉT SÉR ÞflÐ VEL LÍKfl”
— sagði Magnús Gíslason í Staðarskála sem hýsti um 70 manns í 3 daga
■ Mikið óveður gekk yfir norðunvert
lundiö s.l. þriðjudug og tepptust vegir
víðu norðanlunds af þeim sökum. Tölu-
verður fjöldi fólks var á leið bæði til
Reykjavíkur og Akureyrar í lungferða-
og einkabílum og var meirihluti þess
einkum tepptur á tveimur stöðum, þ.e.
á Blönduósi og í Staðarskála.
Við náðum tali af hótelstjóranum á
Blönduósi, Sigurði Jóhannssyni, og
spurðum hann hvernig fólkinu hafi reitt
af hjá þeim.
„Þetta gekk allt ljómandi vel fyrir
sig“, sagði Sigurður. „Aðstaðan hjá
okkur er tiltölulega góð. Við höfðum
ofanaf fyrir fólki hér t.d. með mynd-
böndum og var það vel þegið af yngri
kynslóðinni, auk þess sem diskóið var í
r'ffl/r\VÍRy^\\
Staflanlegi stóllinn sem sló í gegn
íslenskir húsgagnaframleiðendur og hönnuðir hafa líklega aldrei náð jafn
merkum árangri sem Stálhúsgagnagerð Steinars með Stacco stólnum. Þessi
glæsilega íslenska framleiðsla hefur náð miklum vinsældum í öllum helstu
nágrannalöndum okkar, svo og í Bandaríkjunum, Japan, Nýja Sjálandi og viðar.
Allt frá því Stacco var fyrst kynntur á Skandinavísku húsgagnasýningunni í
Kaupmannahöfn 1981 hefur hróður hans farið vaxandi, gagnrýnendur hafa
farið um hann lofsamlegum orðum og virt húsgagnatímarit um allan heim'hafa
gert honum góð skil.
Séreiginleikar Stacco stólsins eru fjölmargir og afar þýðingarmiklir:
• Hann staflast hrelnt frábærlega; 40 stólar mynda stafla sem er
rúmur metri á hæð!
e Hann er sterkbyggður úr massívu gæðastáli, sbr. styrkleika-
prófun dönsku tæknistofnunarinnar.
e Honum fylgja aukahlutir s.s. skrifplata sem fest er á án
fyrirhafnar, armar, tengingar á hliðar og vagnar.
e Hann er einkar þægilegur, styður vel við bakið og ber
gæðastimpil Möbelfakta.
Hvassaleitisskóli fékk 150 Stacco
stóla hjá Stálhúsgagnagerö Steinars
fyrir h.u.b. einu ári.
Stólarnir eru notaðir í samkomu- og
íþróttasal, „fjölnýtisal". Þeim er
staflað á þar til gerða vagna og
geymdir þannig. Þeir hafa reynst vel,
því get ég gefið þeim góð meðmaeli.
Virðingarfyllst,
Kristján Sigtryggsson
skólastjóri.
Kynntu þér yfirburði Stacco stólsins.
Hann er varanleg lausn fyrir skólann,
félagsheimijið, fundarsalinn, mötuneytið,
samkomusalinn og fyrirtækið.
Arkitekt: Pétur B. Lúthersson
Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur á
undanförnum árum notast mjög mikið
við Stacco stóla frá Stálhúsgagna-
gerð Steinars h/f.
Æskulýðsráð var einn fyrsti
kaupandinn að verulegu magni af
Stacco stólum og hafa stólarnir verið
notaðir í félagsmiðstöðvum og
samkomusölum við ágæta reynslu.
Auðveldlega er hægt að mæla með
Stacco stólum fyrir samkomuhús og
félagsheimili.
Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
■%
STÁLHÚSGAGNAGERO
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6, SlMAR: 35110,39555,33590
gangi. Þá gat fólk farið í sund og tekið í
spil þannig að ég held að engum hafi
leiðst hér hjá mér. Hér mun eitthvað af
fólki hafa gist á einkaheimilum og tíu
munu hafa gist á Húnavöllum og veit ég
ekki betur en að allir hafi látið vel yfir
veru sinni hér“, sagði Sigurður Jóhanns-
son hótelstjóri.
Að sögn Magnúsar Gíslasonar í Stað-
arskála gisti hjá honum um 70 manna
hópur og hefði hann verið þar líka síðan
á þriðjudag. „Aðstaðan hér er að vísu
ekki alveg nógu góð fyrir þetta stóran
hóp, en það kom þó ekki til neinna
vandræða. Við höfðum hér nægar dýnur
og teppi og lét fólk sér það vel líka þó
þetta væri ekki allt fyrsti klassi. Þetta var
ánægður og nægjusamur hópur sem ekki
lét sér allt fyrir brjósti brenna og gerði
það eflaust útslagið um hve vel þetta allt
gekk fyrir sig“, sagði Magnús Gíslason.
-ÞB
Cliff Barnes í sjón-
varpsþætti SAA í kvöld
■ Nú um helgina verður stærsta átakið
í söfnun S.Á.Á vegna sjúkrastöðvarinn-
ar sem reisa á við Grafarvog. Skemmti-
dagskrá verður því flutt í sjónvarpi í
kvöld 9. apríl kl. 21.00 og mun þar koma
fram hinn margfrægi Dallas-leikari Ken
Kercheval sem þekktari er þó af sjón-
varpsáhorfendum undir nafninu Cliff
Barnes. Hann mun einnig verða á
skrifstofu S.Á.Á að Síðumúla 3-4 kl.
15:00-17:00 á laugardag til að ræða við
gesti og svara fyrirspurnum.
f sjónvarpsþættinum munu margir
ágætir skemmtikraftar aðrir koma fram
og munu þeir allir gefa vinnu sína, þar á
meðal Ken Kercheval sem kemur hingað
söfnuninni alveg að kostnaðarlausu.
Susanne Brögger
í Norræna húsinu
■ Nú dvelst hér á landi hinn þekkti
danski kvenrithöfundur, Susanne Brög-
ger og verður efnt til dagskrár í Norræna
húsinu á morgun kl. 17.00 í tilefni af
komu hennar. Það er Norræna húsið,
ásamt danska menningarmálaráðuneyt-
inu og dönsku vinafélögunum, sem gang-
ast fyrir heimsókninni.
Susanne Brögger kvaddi sér hljóðs
sem rithöfundur með bókinni „Fri os fra
kærligheden“ (1973) og vakti sú bók
mikla eftirtekt. Tveimur árum síðar
kom út „Kærlighedens veje og vildvje,"
sem enn jók á hróður höfundar, en
báðar fjalla þessar bækur um ást, samlíf
og kúgun konunnar. Síðar hafa komið
út bækurnar „Créme Fraiche", sem skip-
aði henni á skáldabekk bæði listrænt og
í almenningsaugum. 1979 kom svo út
bókin „En gris som har været oppe að
slás kan man ikke stege“, og 1980 kom
út sagan „Brög“. Nú kveðst hún vinna
að framhaldi „Créme Fraiche“, sem er í
sérstæðu sjálfsjátningarformi.
Aðgangur að dagskránni er ókeypis
og öllum opinn.
Síðustu tónleikar
kammersveitarinnar
■ Fjórðu og síðustu tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur verða á morgun
kl. 17.00 í menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg í Reykjavík. Ásamt
kammersveitinni kemur Blásarakvintett
Reykjavíkur fram, en stjórnandi verður
Páll P. Pálsson.
Á efnisskránni verða verk eftir Poul-
enc, Berio og Spohr.
Almennur
framboðsbundur
allra flokka á Borginni
■ Kvennaframboðið í Reykjavík
gengst fyrir almennum framboðsfundi á
Hótel Borg í Reykjavík á morgun,
sunnudag, og verða þar komnir efstu
menn á listum allra stjórnmálaflokk-
anna.
Á þessum fundi, sem hefst kl. 14 er
ætluhin að kjósendur geti spurt fram-
bjóðendur ýmissa spurninga sem varð
stefnumál þeirra og viðhorf.
Leynileg blaðaútgáfa í
Noregi frá stríðsárunum
■ f dag verður opnuð í anddyri Norr-
æna hússins sýning um leynilega blaðaút-
gáfu í Noregi og þátt hennar í norskri
andspyrnuhreyfingu meðan á hernámi
Noregs stóð 1940-45. Sýningin er að
meginhluta byggð á efni af sýningu sem
háskólabókasafnið í Osló setti upp vorið
1980, en sú sýning var m.a. sýnd í
Frihedsmuseet í Kaupmannahöfn.
Á sýningunni er m.a. ljósmyndir frá
dvöl norska heraflans sem dvaldi á
íslandi, einkum frá „flugsveit 330“ sem
svo var kölluð en hún hafði aðalbæki-
stöðvar sínar á íslandi frá því í maí 1941
þar til í ársbyrjun 1943.
Að sýningunni í Norræna húsinu
standa, auk háskólasafnsins í Osló og
félags leynilegu blaðaútgáfunnar, sendi-
ráð Noregs á íslandi, Landsbókasafn
íslands og Norræna húsið. Sýningin
stendur út apríl.
Ráðstefna um
kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norður-
löndum
■ Á morgun verður haldinn fundur í
Háskólabíói á vegum Samtaka herstöða-
andstæðinga. Fundurinn er helgaður
baráttunni fyrir kjarnorkuvopnalausum
Norðurlöndum og munu talsmenn þeirra
stjórnmálaflokka sem beráþetta málefni
fyrir brjósti kynna viðhorf sín. Q4U
flytja tónlist en fundarstjóri verður
Valgeir Guðjónsson.
í framhaldi af þessum fundi verður
haldin ráðstefna í Norræna húsinu kosn-
ingahelgina 23.-24. apríl. Þar er um að
ræða samráðsfund Norrænna friðar-
hreyfinga og verður þar formlega sam-
þykkt og kynnt samræmd stefna hreyf-
inganna varðandi kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum. Gert er ráð fyrir
að 2-3 fulltrúar verði frá hverju landi á
ráðstefnunni, þ.á.m. nokkur þekkt nöfn
úr friðarhreyfingum Norðurlandanna,
Göran V. Bondsdorff frá Finnlandi, Jon
Grenstad frá Noregi og Judit Winter frá
Danmörku. Þá er vitað að allmargir
fréttamenn frá Norðurlöndunum munu
koma og fylgjast með ráðstefnunni og
væntanlega gefa kosningunum gaum í
leiðinni. í kjölfar ráðstefnunnar mun
síðan hefjast hér á landi undirskrifta-
söfnun þar sem fólki gefst kostur á að
lýsa stuðningi sínum við kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndunum,
en slíkar safnanir hafa þegar farið fram
ytra.