Tíminn - 12.04.1983, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1983
19
krossgáta
1 2 3 H 5
' ■ - i m
8 Y \o
II 12
li /Y 15
■ 1? m
4059.
Lárétt
1) Fórspá. 6) - Fugl. 8) Muldur. 9)
Sturluð. 11) Leit. 12) Blöskra. 13) Nögl.
15) Afar. 16) Gljúfur. 18) Slána.
Lóðrétt
1) Gamall karl. 2) Orka. 3) Fluga. 4)
Lem. 5) Þrándheimur. 8) Tal. 10)
Rugga. 14) Voði. 15) Málmi. 17) 499.
Ráðning á gátu No. 4058
Lárétt
1) Bólivía. 6) Óli. 7) Arm. 9) Náð. 11)
Ká. 12) Mu. 13) Afl. 15) Bug. 16) Ála.
18) Iðnaður.
Lóðrétt
1) Brakaði. 2) Lóm. 3) II. 4) Vin. 5)
Auðugur. 8) Ráf. 10) Ámu. 14) Lán. 15)
Bað. 17) La.
bridge
■ Úrslit íslandsmótsins í sveitakeppni
voru nú í fyrsta skipti með tölvugefnum
spilum sem voru eins í öllum leikjum.
Einhverjir kvörtuðu um að spilin væru
alltof miklar slöngur og það væri ómögu-
legt að ráða við þau. En skiptingarspilin
voru ekki svo algeng og til viðbótar eru
þau yfirleitt aðeins erfitt próf á spilamati.
Þetta kom til dæmisfyrir í 3. umferðinni.
Norður
S. A862
H. A107
T. 8
L. G9876
Vestur Austur
S. 10
H. DG986543
T. 63
L. 43
S. KG4
H. 2
T. AKDG974
L. D5
Suður
S. D9753
H. K
T. 1052
L. AK102
Það er að vísu 8-litur í hjarta á
vesturhendinni en þó lítur hún ekkert
sóknarlega út, tapararnir eru svo margir.
Samt fengu flestir vesturspilararnir
bjartsýniskast þegar þeir heyrðu austur
opna á sterku laufi. Sagnir voru oft í
þessum dúr:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1L 1S
pass(3H)3S pass pass
4 H 4 S pass pass
5H dobl
Við 3 borð voru 5 hjörtu 1100 niður,
við eitt borð 800 og við það þriðja 400
niður þegar Jóni Ásbjörnssyni og Símoni
Símonarsyni tókst að segja 5 hjörtu á
þann hátt að þeir virtust vera að missa
af slemmu. Við eitt borðið spiluðu NS 5
spaða doblaða og unnu þá slétt en við 2
borð var vestur rólegur. Bæði Þórarinn
Sigþórsson og Karl Sigurhjartarson lof-
uðu andstæðingunum að spila 3 spaða og
báðir græddu vel því sveitarfélagar
þeirra komu með 1100 frá hinu borðinu.
Það er auðvitað hart að 8-litur dugi
aðeins í 7 slagi á móti laufopnun en
sagnirnar hér að ofan ganga engan
veginn upp. Fyrst á vestur ekki slagsvon
í vörn og því ætti hann að vera feginn
því að NS eru stoppaðir í 3 spöðum.
Síðan er það augljóst að ef 5 hjörtu eru
ekki harmleikur væri austur búinn að
dobla 5 spaða fyrir löngu.