Tíminn - 19.07.1983, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
■ Ein af nýrri flugvélum Flugleiða, Boeing 727-200.
Flugleiðir 10 ára
■ Á morgun eru 10 ár liðin frá stofnun
Flugleiða. Stofnendur voru hluthafar
Flugfélags íslands hf. og Loftleiða hf.
sem samþykktu á aðalfundum beggja
félaganna 28. júní 1973 uppkast að
samningi um stofnun sameignarfélags.
Fyrir sameiningu kepptu félögin tvö
að nokkru á sama markaði, en unnu að
öðru leyti hvort að sínu verkefni. Þessi
samkeppni harðnaði síðan verulega upp-
úr 1970 og það svo, að þáverandi
flugmálastjóri ritaði samgönguráðuneyt-
inu og lýsti áhyggjum sínum vegna
samkeppninnar sem hann sagði skaða
bæði félögin stórlega. Fyrir forgöngu
ríkisstjórnarinnar hófust samningaum-
leitanir milli félaganna um samvinnu
og/eða sameiningu. Síðan áttu sér stað
langar samningaviðræður félaganna sem
lyktaði loks með samkomulagi sem sam-
þykkt varáaðalfundumfélaganna28.
júní 1973, en félagið var þó ekki form-
lega stofnað fyrr en 20. júlí það ár.
Þrír forstjórar voru við félagið og
mynduðu þeir stjórnarnefnd sem fór
með ákvörðunarvald milli stjórnar-
funda. Það voru þeir Örn Ó. Johnson,
Alfreð Elíasson og Sigurður Helgason.
Þessi skipan hélst til ársins 1979 er
Sigurður Helgason varð einn forstjóri.
- ÞB
Samtök námsmanna:
Mótmæla öllum
áformum um
lánaskerðingu
■ Samtök námsmanna, Stúdentaráð,
SÍNE og Bandalag íslenskra sérskóla-
nema, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar
sem mótmælt er öllum áformum um
skerðingu á kjörum námsmanna. Segir
þar að ef hugmyndir um 25% skcrð-
ingu á námslánum, sem fjölmiðill hafi
nýlega haft eftir ókunnum ráðuneytis-
manni, nái fram að ganga muni það
leiða til þess að námsmenn yrðu að
hætt námi í stórum stíl. „Með slíkri
kjaraskerðingu væri jafnrétti til náms
afnumið1', scgir í yfirlýsingunni.
Enn fremur segja samtök náms-
manna að þau fagni öllum hugmyndum
um að auka þær tekjur sem námsmenn
mcgi hafa án þess að lán þeirra
skerðist, en benda á að slík aukning á
tekjuumreikningi leysi aðeins brot af
þeim vanda sem kjaraskerðingar
mundu skapa, vegna ójafnrar aðstöðu
námsmanna til tekjuöflunarog erfiðrar
stöðu á vinnumarkaðnum.
í yfirlýsingunni kemur fram að
Lánasjóður námsmanna áætii mánað-
arlega frantfærslu einstaklings hér á
landi 11.263 kr. frá 1. júlí s.l. Af þeirri
upphæð fái námsmenn 95% eða 10.702
kr. Samkvænit forsendum sjóðsins
skiptist þessi upphæð þannig á einstaka
útgjaldaliði að 4.939 fara í fæði, 1.649
í húsnæði, 823 í ferðir innanbæjar, 658
í föt, 577 í læknishjálpo.þ.h. 577 íblöð
og bækur, 494 í búsáhöld og 998 kr. í
ýmislcgt sem ekki er sundurgreint.
Ef um 25% skerðingu á námslánum
yrði að ræða mundu þau hvergi nærri
nægja til lífsframfæris, segir i yfirlýs-
ingunni.
Loks vekja samtök námsmanna at-
hygli á því að nántslán eru bundin
lánskjaravísitölu frá þeim degi sem
þau cru vcitt. ■
- GM
Mikil fækkun sauð-
f jár í kaupstöðum
■ Á árunum 1977 til ársins 1982 fækk-
aði sauðfé um 40% í kaupstöðum
landsins, á sama tímabili var fækkun yfir
landið allt 16,6%. Þetta kemur fram í
yfirliti sem landnýtingarráðunautur
Búnaðarfélags Íslands, Ólafur Dýr-
mundsson hefur tekið saman.
Árið 1977 voru 896.192 kindur á
fóðrum og var það mesti fjárfjöldi sem
verið hefur í landinu. Á síðastliðnum
vetri var fjöldi fjár 747.701, en það er
svipaður fjöldi og var í lok kaláranna um
1970.
Búist er við áframhaldandi fækkun
sauðfjár verði ekki breyting á markaðs-
aðstæðum fyrir kjöt erlendis.
Mest varð fækkun fjár á þessum árum
í Reykjaneskjördæmi, eða rúmlega
32%, næst kom Norðurland eystra með
19,5% fækkun, á Suðurlandi var fækk-
unin 14,4, Austurlandi 19,3%, Norður-
landi vestra 17,7%, Vesturlandi 11.7%,
en minnst varð fækkunin á Vestfjörðum
9,9%.
INGVAR HELGASON SM3æu>
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI
ARU
Hér sérðu hvernig
SUB ARU lítur út að framan
Staðreyndin er, að flestir
ökumenn sjá aðeins aftaná’ann
Peir lijá Subaru voru fyrstir með hugmyndina að fjórhjóladrifnum fjölskyldubíl og þeir eru
ennþáöruggirífyrstasœti. FyrstvurSubarumeð 1400ccvél. Hún varoflítil. Pákom lóOOcc
vélin. Ekki var krafturinn ennþá nœgilegur fyrir fjórhjóladriftð. Núna er Subaru GLF4WD
með geysi kraftmikilli en sparneytinni 1800cc vél. Pað er rétta stœrðin.
★ Upphækkanlegur með einu
handtaki (og er nú Subaru hár
fyrir), þegar þú vilt fara miklar
vegleysur eða í snjó með vel
hlaðinn bíl.
★ Með elektróniskri kveikju til að nýta bensínið enn betur, sem sagt kraft-
meiri og sparneytnari. <
★ Með algera nýjung sem slær í gegn: „Hillholder". Subaru heldur sjálfur
við í brekkum, ef þú stoppar. Þú þarft hvorki að stíga á bremsuna né
nota handbremsuna.
★ Sjálfskiptur. Engan bíl í heiminum er jafn auðvelt að setja í fjórhjóladrif
og sjálfskiptan Subaru.
★ Ekki bara með einn lágan gír, heldur EKTA lágt drif sem virkar á alla
gíra.
★ Með vökvastýri, ef þú vilt. v
★ Með rafmagnsrúðum, ef þú vilt.'
★ Að sjálfsögðu með alla þá aukahluti sem aðrir gorta sig af en eru sjálf-
sagðir í Subaru.
Subaru 1800 4WD, vinsælasti bíllinn
á Islandi
(samkvœmt síðustu tölum Hagstofu íslands).
Afhverju heldur ÞÚ að svo sé?
Munið bílasýningar okkar um helgar kl. 2-5.
Tökum allar gerðir eldrí bifreiða
upp í nýjar. -