Tíminn - 25.05.1983, Page 4
14
MIÐVIKUDAGUR 25.MAÍ 1983
Tíminn kynnir leikmenn Juventus Torino og Hamburger S.V.:
íþróttir
Juventus-Hamburger
Úrslitaleikur Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu
í sjónvarpinu í kvöld
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Það uppgjör sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur fá að sjá á skerminum í
kvöld milli Hamburger SV og Juventus
Torino í Evropukeppni meistaraliða í
Aþenu endurspeglar að mörgu leyti
úrsUtpleik Italíu og Vestur-Þýskalands
um heimsmeistaratitilinn á Spáni síðast-
liðið sumar. HSV hefur því fyrir hönd
Þýskalands harma að hefna. En Juvent-
us með sína 9 landsliðsmenn og þar af 6
heimsmeistara mun leitast við að stað-
festa réttmæti úrslitanna á Spáni. Til að
hjálpa lesendum Tímans til að njóta
betur leiksins gerir blaðið hér með grein
fyrir leikmönnum liðanna tveggja:
Juventus
Torino
í markinu stendur þjóðsagnapersónan
Dino Zoff, 41 árs með 111 landsleiki að
■ Michel Platini, besti miðjumaður
á Ítalíu og ef til vill í heiminum,
einnig markakóngur á Italíu í vetur.
baki, og heimsmeistaratitil. Þeir segja
að hann beri ekki með sér að vera
kominn á fimmtugsaldurinn, en að
undanförnu hefur hann átt í erfiðleikum
með föst langskot. Takið því eftir hinum
hættulegu miðjumönnum HSV.
Hægri bakvörður er hinn hættulegi
Claudio Gentile, 29 ára og heimsmeist-
ari. Það er maðurinn sem hélt Mara-
dona, Zico og Littbarski niðri á Spáni
með sinni hörðu varnarspilamennsku.
Miðvörðurinn Scirea aftasti maður
varnarinnar verður þrítugur í dag. Hann
er einnig heimsmeistari og sérlega harð-
ur í einstaklingseinvígjunum. En tekst
honum að halda skallaboltum Hrubesch
niðri?
Fyrir framan Scirea leikur Sergio Bria,
26 ára. í hornspyrnum fer hann fram,
enda 1,94 m á hæð,
Vinstri bakbörður er Antonio Ca-
brini, 25 ára, heimsmeistari. Eins og
Gentile á hann til að sækja upp kantinn.
A miðjunni snýst allt um franska
landsliðsmanninn Michel Platini. Þessi
frábæri knattspyrnumaður er ekki aðeins
besti miðjuleikmaður Ítalíu og ef til vill
heimsins, heldur líka markakóngur ítal-
íu með 18 mörk. Takið eftir aukaspyrn-
unum, langskotunum og löngu nákvæmu
sendingunum.
Hægra megin við Platini er Bonini, 23
ára, og vinstra megin heimsmeistarinn
Marco Tardelli, 29 ára og með meira en
60 landsleiki að baki.
Fjórði miðjumaðurinn er hinn rauð-
hærði pólski landsliðsmaður, Bonick,
sem áhorfendur kannast vel við frá
Spáni síðastliðið sumar.
í framlínunni er Paolo Rossi 26 ára,
markakóngur og kjörinn leikmaður HM
1982. Rossi hefur átt við meiðsli að
stríða að undanförnu, og mun því ekki
leika af fullri getu semkvæmt ítölskum
heimildum.
Hinn framh'numaðurinn er Robcrto
Bettega, sem komst ekki í HM-lið Ítalíu
í fyrra vegna meiðsla. Bettega er nærri
33 ára, og vill gjarna enda feril sinn í
■ Zbigniew Bonick, sóknarmaður-
inn knái með rauða hárið. Frægasti
leikmaður pólska landsliðsins í dag.
Leikur með Juventus.
evrópskri knattspyrnu með meistaratitl-
inum, en hann er nú á förum til Kanada.
Hamburg-
er Sport-
verein
Aðalsmerki HSV er miðjan, sem er
einfaldlega sú besta í Þýskalandi. En í
leiknum í kvöld vantar mikilvægan hlekk
í þessa miðju, því Jimmy Hartwig verður
í leikbanni. Þrátt fyrir að HSV sé besta
lið Þýskalands, er einungis einn núver-
andi landsliðsmaður í liðinu, en að vísu
fjórir fyrrverandi landsliðsmenn. Styrk-
ur liðsins liggur fremur í góðri liðsheild,
en frábærum einstaklingum, og er í
rauninni enginn veikur hlekkur í liðinu.
Uli Stein, sem stendur í markinu er
mjög öruggur léikmaður, sem ver það
sem verjanlegt er, enda þótt hann sé
ekki einn af bestu markvörðum Þýska-
lands. Hins vegar hef ég séð hann gera
ljót mistök í úthlaupunum.
í vörninni eru þeir Wehmayer,
Jakobs, Hieronymus, og Kaltz. Þeir eru
allir feikilega öruggir varnarmenn, en
Kaltz er sá eini sem hefur langa lands-
leikjareynslu að baki. Hann erlykilmað-
ur í liði HSV, eins og reyndar áður með
þýska Iandsliðinu. Manfred Kaltz er
óvenju sókndjarfur hægri bakvörður, og
eru fyrirgjafir hans alltaf hættulegar,
enda hafa óteljandi mörk HSV og þýska
landsliðsins komið með skallamörkum
Hrubesch eftir fyrirgjafir frá Kaltz.
Vinstra megin á miðjunni eru þeir
Rolff og Magath. Sá fyrrnefndi er eini
landsliðsmaður HSV í dag, og uppá-
haldsleikmaður undirritaðs í Búndeslíg-
unni. Rolff hefur óvenju næmt auga fyrir
skemmtilegum sendingum, og sé hann í
góðu formi, ræður enginn varnarmaður
við hann. Magath var ein styrkasta stoð
þýska landsliðsins og er góður liðsstjórn-
andi.
■ Paolo Rossi, frægasti leikmaður
Juventus, stjarna HM á Spáni.
Hægra megin á miðjunni verða þeir
Groh, og trúlegast von Heesen fyrir
Hartwig.
f framlínunni verða þeir Hrubesch og
Milewski. Horst Hrubesch er af mörgum
talinn hættulegasti skallaboltamaður
heims, og ótrúlega markheppinn. Sumir
segja að þar með séu hæfileikar hans
upptaldir. Milewski er smávaxinn eld-
snöggur leikmaður, sem hefur leikið
með þýska landsiiðinu. Hann hefur átt
við meiðsli að stríða í vetur, og er nýlega
kominn inn í liðið. Leiki Milewski ekki,
eða verði honum skipt út af, kemur
danski landsliðsmaðurinn Lars Bastrup
inn á. Hann hefur skorað grimmt fyrir
HSV í Evrópukeppninni. Hann hefur
hins vegar ekki skorað mikið í Bundes-
lígunni, en aldrei að vita nema hann eigi
að vera leynivopn, hann virðist standa
sig vel gegn erlendum liðum. Hann
skoraði t.d. þrennu gegn Dynamo Kiev,
fyrr í þessari keppni.
-MÓ
■ Horst Hrubesch, af mörgum talinn sterkasti skallamaður heims. Fyrrum
landsliðsmaður Þýskalands. Leikur með HSV.
HSV tap
adi stigi
Bremen sigraöi,
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ HSV tapaði stigi gegn Kaiserslautern
(2-2) um helgina, meðan Bremen sigraði
Bielefeld 5-1. Kapphlaupið um meist-
aratitilinn er því í hámarki nú, þar sem
liðin eru aftur orðin hnífjöfn.
Hvorki meira né minna en 41 mark
var skorað í þessari þriðju síðustu um-
ferð keppnistímabilsins, eða að meðal-
tali 4,6 mörk í leik. Sem dæmi um
markaregnið má nefna hina skemmti-
legu viðureign Dortmund og Bayern
Múnchen sem lyktaði með jafntefli 4-4.
- Það er ekki á hverjum degi að
markvörður, sem fær á sig Ijögur mörk
i leik er besti maðurinn á vellinum, en
svo var það að þessu sinni. Belgíski
landsliðsmarkvörðurinn Jean-Marie
Pfaff bjargaði Bayern frá stórtapi að
þessu sinni með glæsilegri markvörslu
hvað eftir annað.
Lið Ásgeirs Sigurvinssonar, Stuttgart,
sigraði botnliðið Hertha Berlin örugg-
lega og stóð Ásgeir sig ágætlega. Hann
var þó tekinn útaf þegar 15 mínútUT voru
eftir, vegna meiðsla.
Einungis tvö lið koma til greina sem
væntanlegir meistarar, HSV og Bremen.
Þýsku meistaramir spila við Dortmund
á heimavelli á laugardaginn, en í millitíð-
inni leika þeir erfiðan úrslitaleik í
Evrópukeppni meistaraliða gegn J uvent-
liðin nú jöfn
us Turin, sem kunnugt er. í síðustu
umferð leika þeir svo gegn Schalke 04,
sem berst fyrir sæti sínu í Búndeslígunni
af mikilli grimmd. Bremen á eftir að
spila við Frankfurt úti, og Bochum
heima.
Lið í sætum 2-5 komast örugglega í
UEFA keppnina, fleiri lið gætu komist
áfram ef FC Köln sigrar Fortuna Köln í
úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar 11.
júní næstkomandi, og eins ef HSV sigrar
Juventus í kvöld og Bremen verður
meistari. Komast þá 7 lið áfram.
Úrslitin í Þýskalandi urðu þessi um
helgina:
Braunschweig-Karlsruher .........5-1
Kaiserslautern-Hamborg SV .... 2-2
Dortmund-Bayern Munchen .... 4-4
Núrnberg-Frankfurt...............3-0
Bremen-Bilefeld .................5-1
Dússeldorf-Leverkusen............4-0
Stuttgart-Hertha Berlin..........4-1
Köln-Gladbach....................2-1
Schalke-Bochum...................2-0
Staða efstu liða er þessi:
HSV............ 32 18 12 2 72-32 48
Bremen......... 32 21 6 5- 72-36 48
Stuttgart .... ,,32 18 8 6 75-44 44
Bayern Múnchen . 32 16 10 6 71-30 42
Köln............ 32 16 9 7 65-38 41
Atli var maðurinn
bak vid sigurinn
Pétur Ormslev átti einnig góðan leik
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Atli Eðvaldsson var maðurinn bak
við stórsigur Fortuna Dússeldorf á Le-
verkusen 4-0 um helgina. Atli skoraði
fyrsta mark leiksins og lagði annað upp.
Pétur Ormslev, sem einnig var mjög
góður, lagði upp hin tvö mörkin, þannig
að segja má að þetta hafi verið dagur
Islendinganna.
Sjónvarpið, svo og þau blöð sem
undirritaður sá um helgina, fóru lofsam-
legum orðum um þá félaga. Kicker valdi
til að mynda Atla í þriðja sinn í lið
vikunnar. Pétur Ormslev lék að þeslu
sinni á miðjunni, og skilaði sínu hlut-
verki mjög vel.
Kicker sagði frá því í gær, að Pétur
hafi framlengt sanming sinn við Fortuna,
og benda allar líkur ti) þess að hann hljóti
fast sæti í liðinu á næsta kcppnistímabili.
MÓ
Aberdeen varð
bikarmeistari
— sigraði Rangers 1-0
■ Eric Black tryggði Aberdeen
bikarmeistaratitilinn.
■ Aberdeen, nýbakaður Evrópu-
meistari bikarhafa í knattspyrnu, varð
um helgina skoskur bikarmeistari í
knattspyrnu í annað sinn, liðið sigraði
í keppninni einnig í fyrra. Það var hinn
bráðungi og efnilegi Eric Black, sem
skoraði eina mark þessa leiks og var
því titillinn einna mest honum að
þakka, ásamt hinum frábæra mark-
verði Aberdeen ogskoska landsliðsins,
Jim Leighton.
Eric Black skoraði mark Aberdeen
á 116. mínútu, en ekkert mark hafði
verið skorað í leiknum sjálfum og því
framlengt. En heiðurinn af því að
framlengingin varð hafði markvörður
Aberdeen, Jim Leighton. Tvívegis
varði hann aldeilis meistaraiega 1
síðari hálfleik, skot sem líklega hefðu
lekið inn víða. Eins og í Englandi er
það orðinn árlegur viðburður að fram-
lengja verður bikarúrslitaleik. í þriðja
sinn í röð í Englandi, en í fimmta sinn
í Skotlandi nú í röð.
Black fékk boltann af vamarmanni
á 116. mín., eftir að félagi hans hafði
gefið fyrir. Hálfíslendingurinn Jim
Bett var allnærri því að skora hinu
megin, en allt kom fyfir ekki. Frábær
árangur Aberdeen á þessu keppnis-
tímabili, þriðja sæti í skosku deildinni,
aðeins einu stigi á eftir meisturunum
og með jafnmörg stig og silfurhafinn,
Evrópumeistari bikarhafa og nú bikar-
meistari.