Tíminn - 03.09.1983, Qupperneq 11
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
11
Hjólreiða-
keppni í
Keflavík
■ 4. hjólreiðakeppni knalt-
spyrnuféiags Keflavíkur er í dag.
Keppnin hefst klukkan 14 og
verður keppt í þremur flokkum,
16 ára og eldri,14-16 ára og 13 ára
og yngri. - Hjólaður verður
hringurinn Keflavík, Sandgerði,
Garður, Keflavík, en það cr um
25 km leiö. Skráning er frá
klukkan 12 til 13 á íþróttavellin-
um og í síma 2730. í fyrra var
þessi keppni haldin i mjög góðu
veðri, þá sigraði Helgi Geirharðs-
son og var meðalhraði fyrstu 6
keppendanna um 40 km á klst.
- SÖE
Moses setti
heimsmet
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Edwin Moses, grindahlaupar-
inn ósigrandi frá Bandaríkjunum
setti í vikunni nýtt heinismet í 400
metra grindahlaupi. Moses hljóp
á 47,02 sek. er hann sigraði í
hlaupinu á frjálsíþróttamóti hér í
Koblenz. Gamla metið átti Moses
sjálfur, 47,13 sek. - Moses átti
afmæli á mótsdaginn. - MÓ/SÖE
Unglingamót
í siglingum
■ Um síðustu helgi var haldið
siglingamót á Optimist bátum á
vegum UMF. Kjalarnessþings.
Siglt var á Arnarnesvogi hjá
siglingaklúbbnum Vogi í Garða-
bæ. Keppnisstjórar voru Jón
Gunnar Aðils og Snorri Hrcggviðs-
son.
Sigurvegarar voru í flokki 12-
15 ára: Arnar Freyr Jónsson Vogi
og Stefán Guðjohnsen Vogi. í
flokki 11 ára og yngri sigruöu
Magnús Valþórsson Þyt og Stefán
Kjærnested Vogi. -SÖE
Vann tæp
190 þúsund
■ Sá hcppnasti í fyrstu viku
getrauna, sem lauk s.l. laugardag
vann 188.935 krónur. Hafði sá 12
rétta á 36 raða kerfisseðli. Sá eini
seðill kom fram með 12 réttum.
Vinningur fyrir 12 rétta var
176.965.- en fram komu 38 raðir
með 11 rétta. -SÖE.
KA-STRAKAR
VÖKNUDUVIB
V0NDAN DRAUMI
— þegar Einherjar höfðu jafnað
— unnu 3-2
rFótboIti um helgina "■
■
i
i
i
■
■
i
■ Næst síðasta umferð stendur nú
sem hæst í fyrstu og annarri deild í
knattspyrnunni. í dag eru þrír leikir í
fyrstu deild og þrír í annarri. I'á eru
úrslit í fjórðu deild. A morgun er einn
leikur í 1. deild kvenna.
í dag fara Vestmannaeyingar upp á
Skaga, og leika þar við heimamenn.
Þetta er úrslitaleikur íslandsmótsins,
síðustu helgi. En það er erfitt að sækja ■
gull á Skagann, það hefur sannast í ■
sumar. Leikurinn á Skaganum hefst “
klukkan 14.30, en aðrir leikir í dag I
klukkan 14.00. Valsmenn fara á ísa- _
fjörð og er þar barist til síðasta blóð- |
dropa um fall. Þórsarar leika við ■
Víking á Laugardalsvelli, og þar getur 5
einnig verið spurning um stig í fallbar- |
ef Skagamenn vinna er Islandsmeist- áttu. I annarri deild leika FH-Reynir, ■
aratitillinn í höfn, en ef Eyjamenn Víðir-Fylkir og Völsungur-KS. Úrslit i ■
vinna geta þeir gert sér vonir áfram. 4. deild og Breiðablik-Víðír í 1. deild |
Líklegt cr að uni mikinn baráttuleik kvenna á inorgun klukkan 14.00.
verði aö ræða, því Eyjamenn vilja |
^hefna tapsins í bikarúrslitaieiknum uni
Frá Gylfa Kristjánssyni tíðindamanni á
Akureyri:
■ „Eftir að við vorum komnir í 2-0 var
eins og þetta væri búið. Við vöknuðum
við það að Einherjar jöfnuðu, vegna
þess að þá höfðum við allt í einu ekki
nema annað stigið. - Annars hef ég trú
á því að það verði markahlutfall sem
ræður því hverjir komast upp“, bætti
Erlingur við. KA vann leikinn 3-2, eftir
að komast í 2-0 og Einherjar höfðu
jafnað 2-2.
KA komst í 2-0 eftir 6 mínútur.
Gunnar Gíslason skoraði á 3. rnínútu
eftir að hafa fengið þversendingu á
markteiginn, og Ormar Örlygsson bætti
við á 6. mínútu, þegar hann fékk boltann
út á vítateiginn eftir þvögu. Fyrri hálf-
leikur varð síðan þóf eftir þetta, Einherj-
ar öllu sprækari ef eitthvað var,
Einherjar komu síðan með kraftinn í
pokahorninu í síðari hálfleik. Á 55.
mínútu fékk Gísli Davíðsson stungu inn
fyrir KA vörnina og setti boltann yfirveg-
að í hægra hornið framhjá úthlaupandi
markverðinum. Jón Gíslason skoraði
síðan jöfnunarmark Einherja 7 mínútum
síðar, fékk boltann einn og óvaldaður af
sofandi vörn KA á markteignum eftir
gott spil og skoraði örugglega.
KA-strákarnir vöknuðu við vondan
draum. Liðið tók að spila á ný eins og
það gerði fyrstu 6 mínútur leiksins, og
markið lá í loftinu. Það kom líka á 71.
mínútu, Gunn'ar Gíslason skallaði vel út
fyrirgjöf frá hægri, á Jóhann Jakobsson
sem skoraði með viðstöðulausu skoti
neðst í bláhornið. Þetta er annað mikil-
væga markið sem Jóhann skorar á
stuttum tíma, hann skoraði jöfnunar-
mark KA gegn Fram á dögunum
Leikurinn var ekki upp á marga fiska.
Einherjar voru öllu grimmari allan
tímann, en KA menn betri þegar þeir
vildu og nenntu. Gústaf Baldvinsson var
bestur í liði Einherja, sterkur og öruggur
eins og endranær. I KA-liðinu var lang-
bestur, og reyndar á vellinum sá minnsti
á vellinum, Guðjón Guðjónsson.
Leikurinn fór fram í kuldanepju og
greinilegt að góðu sumri á Akureyri er
að ljúka.
Með þessum sigri er KA komið á topp
deildarinnar á ný, og hefur nú góða
möguleika á 1. deildarsætinu. Frám er
ekki öruggt, FH-ingar eru skammt
undan, en þau lið eiga eftir að Ieika.
-gk/SÖE
ppHollendingar
óskrifað blað”
„Vikan búin að vera skrautleg’%
segir Jóhannes Atlason
■ „Hollendingar eru óskrifað blað,
landsliðsþjálfari þeirra hefur fengið
gagnrýni á sig fyrir að nota sífellt nýja
menn í landsliðinu, og því ekki hægt að
miða við leikinn við þá í fyrra, og varla
reyndar leiki undanfariö", sagði Jóhann-
es Atlason landsliðsþjálfari í samtali við
Tímann í gær. „Þessi vika er
búin að vera frekar skrautleg, landslið-
in komust loks á hreint í nótt“, bætti
Jóhannes við.
Jóhannes sagði að óvissan með lcik-
mennina í Belgíu hefði tafið gang mála,
varðandi landsliðsvalið. „Við lokuðum
á þetta loks í gærkvöld, og það er ekki
hægt að boða ákveðinn fjölda manna,
fyrr en komið er á hreint hverjir þeirra
atvinnumanna sem valdir eru komast.
Um æfingar þjá landsliðunum var ekki
að ræða fremur en vant er, íslandsmót
og bikarkeppni hafa verið í fullum
gangi. En við fáum þrjá daga með
strákana úti, og því verður undirbúning-
urinn nokkuð hefðbundinn", sagði Jó-
hannes.
Guðni Kjartansson mun fara með
unglingalandsliðinu út til Hollands, en
Jóhannes með A-landsliðinu. Unglinga-
landsliðið fer snemma á sunnudagsmorg-
un með flugi til Luxemborgar, en A-
landsliðið fer um miðjan dag á sunnu-
dag. Allnokkur vegalengd er á milli
leikstaða, og því ekki um neitt samneyti
að ræða hjá liðunum eftir brottför,
Aðalforföllin hér heima í sambandi
við liðin eru þau að Sigurður Lárusson
og Jón Gunnar Bergs gátu ekki gefið
kost á sér, og svo vantar náttúrulega
hluta atvinnumannanna", sagði Jóhann-
es Atlason. - SÖE
2. DEILD:
Heima Úti Samtals
Leikir Unnið Jafnt Tapað Mork Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U J T M St.
KA 9 6 2 1 18-10 14 8 3 3 2 9-9 9 17 9 5 2 27-19 23
Fram 8 5 2 1 18-9 12 8 3 4 1 10-7 10 16 8 6 2 28-16 22
FH 8 4 3 1 16-10 11 7 2 3 2 9-7 7 15 6 6 3 25-17 18
Víðir 8 4 3 1 5-2 11 8 2 4 2 7-8 7 16 6 6 3 12-10 J8
Njarðvík 8 4 2 2 9-4 10 9 3 1 5 8-13 7 17 7 3 7 17-17 17
Einherji 8 3 4 1 9-6 10 9 2 3 4 7-12 7 17 5 6 5 16-18 17
Völsungur 8 2 3 3 5-5 7 8 4 0 4 10-10 8 16 6 3 7 15-15 15
KS 8 3 3 2 9-7 9 8 0 4 4 5-11 4 16 3 7 6 14-18 13
Fvlkir 8 2 2 4 5-9 6 8 1 2 5 8-13 2 16 3 4 9 13-22 10
Revnir 8 1 3 4 5-15 5 8 0 4 4 4-9 4 16 1 7 8 9-24 9
RAWLPLUG
Allar skrúfur,
múrfestingar
draghnoð
og skotnaglar
&
^SSSSSOt
SAMBANDIÐ BYGGINGAVORU
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033