Tíminn - 03.09.1983, Qupperneq 17

Tíminn - 03.09.1983, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 minmng] Ásgrímur Þorgrímsson bóndi á Borg Fimmtudaginn 25. ágúst s.l. lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi bændahöfðing- inn Ásgrímur Porgrímsson á Borg í Miklaholtshreppi nær 88 ára að aldri. Ásgrímur fæddist á Ytri-Kóngsbakka í Helgafellssveit 16. sept. 1895. Ungur missti hann báða foreldra sína með stuttu millibili. Faðir hans drukkn- aði en móðir hans dó úr lungnabólgu, sem á þeim tíma var mannskæður sjúk- dómur. Eftir lát foreldranna fór Ásgrímur í fóstur að Staðarbakka til hjónanna Ás- gríms Jóhannssonar og Guðrúnar Ey- leifsdóttir og dvaldi hjá þeim og síðar Gesti Guðmundssyni bónda á Staðar- bakka uns hann réðst vetrarmaður til Stefáns Guðmundssonar hreppsstjóra á Borg, haustið 1915, þá rétt tvítugur að aldri. Dvöl Ásgríms á Borg varð lengri en . ráðgert var í upphafi. Vorið 1916, þann 17. júní, kvæntist hann Önnu, dóttur Stefáns hreppsstjóra og hófu þau búskap á Borg í sambýli við tengdaföðurinn og Ólaf Guðmundsson, sem kvæntur var Kristínu systur Önnu. Borg varð þar með ævivettvangur Ásgríms. Eins og gefur að skilja voru efni ungu hjónanna afar lítil. En bæði voru óvenju dugleg og ósérhlífin til vinnu og tókust þau á við frumbýlingsverkefnin af mikilli bjartsýni, kjarki og vinnusemi og voru sérstaklega samhent. Ásgrímur var ein- staklega mikið karlmenni að burðum og feikna fjörmaður og mikill afkastamaður við vinnu. Því var líkast að hann þyrfti næstum aldrei á hvíld að halda og gæti nánast unnið dag og nótt, ef svo bar undir. Fyrstu búskaparárin var bústofn hans ekki mikill. En þá fór hann á veturna í vinnu suður með sjó eða til Reykjavíkur til að drýgjatekjursínar. Hannþóttisvo eftirsóttur í vinnu að hann gat valið úr, þar sem mestar tekjur var að fá hverju sinni. Hann hlífði sér heldur aldrei. Oft var hann í hafnarvinnu við skipaafgreiðslu á næturna, þó hann væri í annarri vinnu að deginum. þannig tókst honum að afla verulegra tekna á tiltölulega skömmum tíma. I’ctta gerði Ásgrími fært að stækka bú sitt á fáum árum. Það leið því ekki á löngu þar til Ásgrímur var kominn í röð stærri og efnaðri bænda í hreppnum. Stefán tengdafaðir Ásgríms féll frá 1926 og Ólafur mágur hans flutti frá Borg 1919 og varð hann því einn bóndi á jörðinni frá 1926 og til þess að Páll tengdasonur hans kom að Borg 1949. Bjuggu þeir saman eftir það til æviloka Ásgríms. Auk þess byggði Halldór sonur PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða VERKAMENN við lagningujarðsímaástór-Reykjavíkursvæðið. Nánari upplýsingar verða veittar í síma 26000. Útgerðarstjóri Hraðfrystihús Keflavíkur h.f. vill ráða útgerðar- stjóra nú þegar. Starfssvið: er umsjón með rekstri og viðgerðum á tveimur skuttogurum. Skriflegar umsóknir sem greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins sem gefur allar nánari upplýsingar í síma 92-2095. Hraðfrystihús Kefiavíkur h.f. Ásgríms nýbýli 1958, sem hann kallaði Minni Borg. Var sambýlið alla tíð mjög gott. Samvinna var um öll helstu bústörf og samheldni mikil. Á þessum tíma varð mikil umbreyting á jörðinni. Ásgrímur ræktaði mikið og byggði nýjar byggingar yfir fólk og fénað. Árið 1930 byggði hann t.d. nýtt íbúðar- hús. Þó Ásgrímur hefði ærinn starfa við bú sití lét hann ekki þar við sitja. Hann var t.d. grenjaskytta um mörg ár og eyddi miklum og dýrmætum tíma á vorin í grenjaleit og vinnslu grenja. Hann var mjög fengsæll í því starfi og hefur fáum tekist betur í því efni. Þá gerði hann mikið að því að stunda rjúpnaveiði fyrri hluta vetrar og var í því efni einnig oft fengsæll og hélt hann þeirri iðju áfram svo lengi sem sjón hans og orka, aldurs vegna, leyfði. Kreppuárin komu illa við íslenska bændur og knésetti marga þeirra. En Ásgrímur stóð þá erfiðleika af sér betur en flestir aðrir og leitaði engrar kreppu- aðstoðar, sem margir bændur þurftu þó að gera. Mæðiveikin herjaði á fjárstofn hans eins og margra annarra bænda, en hon- um tókst einnig með útsjónarsemi og dugnaði að komast úr þeim erfiðleikum. Vorið 1938 var Ásgrímur fenginn til að stjórna uppsetningu girðingar sem lögð var á vegum sauðfjárvarnanna þvert yfir Snæfellsnes úr Skógarnesi að sunnan í Álftafjörð að norðan. Honum var sakir dugnaðar og hagsýni trúað betur en öðrum fyrir að stjórna því verki. Hann sá um hlutann frá Þórishamri við Skógar- nes norður fyrir Ljósufjöll, eða meir en 2/3 hluta leiðarinnar. Það verk gekk mjög vel þó girðingarstæðið væri afar slæmt. Hinsvegar var girðingin of seint á ferðinni og mæðiveikin kom upp vestan girðingarinnar næsta vetur eftir að hún var gerð. Fljótlega þreyttust menn á því að búa við veikan fjárstofn og kom upp umræða um að skera hann niður og kaupa heilbrigðan fjárstofn frá Vestfjörðum í staðinn. Þetta varð að veruleika 1949 og var Ásgrímur mjög áhugasamur um þá framkvæmd og tók virkan þátt í henni, m.a. fór hann til fjárkaupa vestur í Þingeyrarhrcpp. Þá var Eiríkur Þor- steinsson kaupfélagsstjóri á Þingeyri. Hann var kappsfullur maður og lét þess getið við Ásgrím, þegar hann kom vestur til fjárkaupanna, að þau þyrftu að ganga fljótt og féð vera tilbúið til flutnings á tilteknum degi og var tími sá sem hann setti til fjárkaupanna mjög naumur. Ásgrímur svaraði því til að hann væri ekki vanur því að rekið væri á eftir sér við vinnu. Hann fór því hratt yfir og lauk fjárkaupunum á heldur skemmri tíma en Eiríkur hafði ætlað til verksins og þótti báðum gott og féll þá vel á með þeim. Eftir fjárskiptin tók Ásgrímur að sér eftirlit og gæslu varnargirðingarinnar sem áður er um getið og hafði það starf á hendi svo lengi sem ástæða þótti til að halda uppi reglubundnu eftirliti með henni. Þá var hann oft fljótur í förum yfir fjallgarðinn. Ásgrímur var um nokkra vetur póstur frá Gröf í Miklaholtshreppi til Stykkis- hólms þann tíma sem ekki var fært á bílum yfir Kerlingaskarð. Sýndi hann í því starfi eins og öllu öðru mikla karl- mennsku. Ásgrímur var afar hjálpsamur við nágranna sína og sveitunga og munaði mikið um handtök hans, þegar hann kom til hjálpar sem oft bar til. Ásgrímur kom allmikið við sögu sveit- armála í Miklaho.ltshreppi. Hann sat lengi í hreppsnefnd og átti sæti í skóla- nefnd alllengi. Einnig var hann lengi í stjórn búnaðarfélagsins og í sóknarnefnd Fáskrúðarbakkakirkju um skeið. Hann var mikill áhugamaður um íþrótta og æskulýðsmál. Hvatti hann unga fólkið óspart til dáða og var góður stuðningsmaður þess í þeim málum. Ásgrímur og Anna eignuðust sjö mannvænleg börn, sem öll eru á lífi, nema Stefán, elsti sonurinn sem féll frá fyrir rúmlega tveimur árum. Börnin tóku mjög fljótt virkan þátt í bústörfun- um með foreldrum sínum. Það var oft glatt á hjalla á Borg þegar börn þeirra hjóna voru að vaxa úr grasi og voru heima. Ásgrímur var mjög glaður og hress og hrókur alls fagnaðar. Mjög var gestkvæmt á Borg og oft tekið í spil þegar gesti bar að garði. Synir Ásgríms urðu landsþekktir íþróttamenn, bæði fyrir glímu og frjálsar íþróttir og héldu uppi, ásamt fleiri ungum mönnum, heiðri sveitar sinnar um mörg ár í því efni. Anna á Borg varð fyrir því áfalli á besta aldri að missa heilsuna og vera bundin við hjólastólinn fjölda ára, því hún gat ekki gengið vegna meinsemdar í baki, sem ekki fékkst bót á hvað sem gert var. Þetta var henni og fjölskyldunni allri mikil raun. Anna lést árið 1967, rúmlega sjötug að aldri. Ásgrímur átti við heilsubrest að stríða allra síðustu árin. Með Ásgrími er fallið mikið karl- menni og mikill atgervismaður. Hann lætur eftir sig mikið af verkum, sem staðfesta þetta. Hann hefur skilað þjóð sinni arfleifð, sem er vandmetin og verður skarð það sem hann lætur eftir sig vandfyllt. Jörðin Borg er ein best rækt- aða og best byggða jörð á Snæfellsnesi og ber ævistarfi Ásgríms og fjölskyldu hans gott vitni. Sveitin er svipminni eftir en áður. Ásgrímur verður lagður til hinstu hvíldar í Fáskrúðarbakkakirkjugarði í dag við hlið Önnu konu sinnar, hvíldinni feginn. Sveitungarnir kveðja hann með þökk fyrir langa og góða samfylgd. Ég og kona mín sendum börnum hans og öllum vandamönnum samúðarkveðj- ur. Gunnar Guðbjartsson. BRIDGEDEILD BORGFIRÐINGA ■ Aðalfundur deildarinnar verður haldinn laugardaginn 10. sept. nk. kl. 14:00 í Hreyfilshúsinu, og er fólk ein- dregið hvatt til að mæta. Síðan hefst vetrarstarfsemin fimmtu- daginn 15. sept. á sama tíma og áður eða stundvíslega kl. 19:30 og auðvitað í Hreyfilshúsinu. Byrjað verður með tvímennings- keppni og geta þátttakendur látið skrá sig í síma 72840 eða 42571. r SUMARBRIDGE AÐ UUKA Ágæt aðsókn var sl. fimmtudag í Sumarbridge, eða rúntlega 50 pör. Spil- að var í 4 riðium og urðu úrslit þessi: A) Baldur Árnason - Sveinn Sigurgeirsson 255 Guðríður Guðmundsdóttir - Kristín Þórðardóttir 247 Nanna Ágústsdóttir- Sigurður Ámundason 237 Inga Bernburg - Vigdís Guðjónsdóttir 232 Margrét Margeirsdóttir - Júlíana Isebarn 232 B) Esther Jakobsdóttir - Guðmundur Pétursson 194 Arnar Ingólfsson - Magnús Eymundsson 179 Guðjón Jónsson - Gunnar Guðmundsson 176 Heimir Guðjónsson - Jón Steinar Ingólfsson 169 C) Sigfús Ö. Árnason - Svavar Björnsson 204 Jón Hilnrarsson - Oddur Hjaltason 194 Bragi Hauksson - Sigtryggur Sigurðsson 179 Aðalsteinn Jörgensen - Gcorg Sverrisson 168 D) Viktor Björnsson - Sigurþór Hjartarson 135 Baldur Bjartmarsson - Valdimar Elíasson 119 Hjálmar Pálsson - Tómas Sigurjónsson 118 Meðalskor í A var 210, í B og C 156 og 108 í D. Og úrslit í Sumarbridge 1983 urðu því þessi: 1. Hrólfur Hjaltason 20.5 stig 2. Esther Jakobsdóttir 20 stig 3. Guðmundur Pétursson 19 stig 4. Jónas P. Erlingsson 18.5 stig 5. Gylfi Baldursson 17 stig 6. Sigurður B. Þorsteinsson 16 stig 7. Sigfús Þórðarson 14 stig 8. Vigdís Guðjónsdóttir 13.5 stig 9. Sigtryggur Sigurðsson 12.5 stig Alls liafa tæplega 190 spilarar hlotið vinningsstig í Sumarbridge að þessu sinni, sem er mjög góð dreifing á 14 spilakvöldum. Að méðaltaii hafa um og yfir 60 pör spilað á kvöldi, sem er mesta þátttaka í Suntarbridgc frá upphafi. Spilar þar cflaust inní, að í sumar var spilamennskan færð úr Heklu í Dontus, en tvö undanfarin sumur var spilað þar. (Þar áður í Hreyfli og Domus). Sumarspilamcnnsku lýkur formlega næsta fimmtudag, mcð verðlaunaaf- hcndingu. Kcppnisstjórar sumarsins, Ólafur Lárusson og Hcrmann Lárusson þakka samfylgdina, um leið og spilarar eru hvattir til að fjölmenna á síðasta spilakvöldið. Keppni hefst að venju í síðasta lagi kl. 19.30. Allir velkomnir. Guðmundur Sv. Hermannsson skrifar dagbók Þrjár sýningar á um helgina 1 Kjarvalssal er sýningin Kjarval á Þing- völlum, þar sem safnað hefur verið saman málverkum frá Þingvöllum eftir Kjarval frá einkaheimilum og söfnum í Reykjavík og nágrenni, samtals 44 myndir málaðar á árunum 1923 til 1962. Sýningin hefur vakið mikla athygli innlendra og erlendra gesta í sumar, og erlendir aðilar borið fram mjög ákveðnar óskir um að fá slíka eða samsvar- andi sýningu á verkum Kjarvals til kynningar erlendis. Sýningin verður opin fram í miðjan september. Kjarvalsstöðum Skipulagssýning í austur-forsal. í tengslum við Norræna byggingadaginn var Borgar- skipulag Reykjavrkur með sýningu á Kjar- valsstöðum. Sýningin verðuropin almenningi fram á sunnudagskvöld, 4. september. Starfs- menn Borgarskipulagsins munu kynna sýn- inguna og efni hennar á sunnudaginn kcmur kl. 16:00. Hagsmunafélug myndlistarmanna opnar sýn- ingu á verkum félagsmanna á laugardaginn kemur. Sýningin verður f vestursal, forsal, fundarsal og f garðinum umhverfis Kjar- valsstaði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.