Tíminn - 04.09.1983, Síða 23
SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
23
ekki á löngu þar til orðrómurinn um
samdrátt þeirra kviknaði. Loks heyrði
Eddie Fisher þetta og hann spurði konu
sína hvort þetta væri satt. Hún svaraði:
„Ég elska Richard og ég vil giftast
honum.“
Skömmu síðar flaug Sybil til New
York að tala við Philip Burton, sem þá
dvaldist í Ameríku. Hann sendi strax
skeyti til Burtons og skammaði hann
fyrir hegðun hans. Burton brást við með
því að hringja til stjúpföður síns og
samtaiið endaði með miklum hávaða og
skömmum. Tvö ár liðu þar til þeir töluðu
saman næst. Þegar Sybil fór á ný til
Englands skömmu síðar reyndi Richard
að losa sig við tilfinningar sínar til
Elisabetar Taylor og vinur fjölskyldunn-
ar lét hafa eftir sér: „Mér dettur ekki í
hug að Richard yfirgæfi Sybil, nema
hann kæmist í svo erfiða aðstöðu vegna
allrar athyglinnar, að hann fengi ekki
snúið við.“
Allur auðurinn
til konu og barna
Nær tvö ár liðu þar til Burton krafðist
skilnaðar, en árið 1963 varð ekki við
snúið. Um þá erfiðu tíma sem nú fóru í
hönd hefur Burton sagt: „Þetta var á
ýmsan hátt skelfileg reynsla, vegna sorg-
ar og örvæntingar nánustu vina og ætt-
ingja. í endurminningunni er þetta eins
og martröð, sem aðeins var lýst upp af
fáum augnablikum himneskrar sælu.“
Við skilnaðinn lét Burton allan auð
sinn renna til konu sinnar og tveggja
dætra þeirra. Yngri dóttirin, Jessica,
fæddist skömmu áður en faðir hennar
fór til Rómar, og frá fæðingu hefur hún
verið alvarlega fötluð. Sybil giftist síðar
ungum popphljómlisíarmanni og eign-
aðist enn eina dótturina með honum.
Ári eftir skilnaðinn giftu þau Taylor
sig á hótelherbergi í Kanada og upp frá
því voru þau heimsins mest umtöluðu
hjón. Fyrst eftir brúðkaupið hafði Bur-
ton í hyggju að snúa sér aftur að
leikhúsinu, en ekkert varð úr því og þess
í stað léku þau í nokkrum myndum
saman, mjög misjöfnum að gæðum, sem
gáfu heilmiklar tekjur, en minni viður-
kenningu. En ekki veitti af peningunum
til þess að kaupa lystisnekkjuna, einka-
flugvélina, stórhýsin og demantana, sem
prýddu háls Elisabeth Taylor. En hvorki
ást hans til hennar né óhófslífið gat
komið í veg fyrir að Burton þætti hann í
lægð og hann tók að drekka æ meira.
„Ef til vill elskuðum við hvort annað
of mikið,“ sagði Taylor, þegar bera tók
á brestum í sambandi þeirra um vorið
1973. Aðrir telja að það hafi verið
drykkjuskapur Burtons, reiðiköst hans
og mislyndi sem var orsökin til skilnaðar
þeirra. En á þessum tíma hélt ástríðan
þeim saman og að ári liðnu höfðu þau
tekið saman aftur.
Þau giftu sig í annað sinn árið 1975 í
frumskógarþorpi í Botswanalandi en
þetta síðara hjónaband var dauðadæmt
frá byrjun og þegar Burton skömmu
síðar hitti Susan Hunt, yfirgaf hann
Elisabetu og kvæntist Susan að loknum
nýjum skilnaði. Á þessum tíma drakk
hann þrjár viskýflöskur á dag og sagði
síðar að það hefði verið nýja konan sem
bjargaði lífi hans. Um líkt leyti giftist
Elisabeth Taylor ameríska þingmannin-
um John Warner, en þau skildu nokkru
seinna.
Susan Hunt fékk Burton til þess að
breyta um lífsvenjur og hún vék ekki frá
honum fyrstu hjúskaparárin. En þegar
Burton var að leika fyrstu atriðin í
Wagnermyndinni, dvaldi hún ein í húsi
þeirra í Mexico.
Þegar orðrómur komst á kreik um að
skilnaður stæði fyrir dyrum sagði blaða-
fulltrúi Burtons: „Það eru erfiðleikar í
öllum hjónaböndum. Það er erfitt fyrir
tvær manneskjur á ólíkum aldri og af
ólíkri skapgerð að eyða öllum tíma
sínum saman. En Susan og Richard tala
saman í marga klukkutíma í síma á dag
og það er ekkert hæft í því að þau séu
að skilja." Richard Burton og Susan
Hunt skildu að hálfu ári liðnu.
Ég elska þig
til dauðadags
Þegar Richard Burton kom skömmu
eftir skilnaðinn til London til þess að
vera í 50 ára afmæli Elisabeth Taylor,
áttu flestir von á að þau myndu rugla
reitum sínum í þriðja sinn. í vasa sínum
hafði hann nefnilega Ijóð sem endaði á
orðunum: „Ég elska þig til dauðadags".
Þau höfðu þá bæði fallist á að leika
■ Richard Burton naut ekki þeirrar ánægju sem barn að sitja á fööurknénu. Hér
sést hann í myndinni um Wagner með barn tónskáldsins og Cosimu á knjám sér.
Wagner hafði reyndar þegar átt tvö börn með Cosimu, áður cn hún skildi við mann
sinn, svo mörgum þvkir Burton eiga nokkuð sammerkt með nafna sínum Wagner
hvað fjöllyndi í ástum snertir.
saman í leiknum „Einkalíf“ eftir Noel
Coward, en þar var víst varla um annað
en auglýsingabrellu að ræða, þar sem
Burton hafði þá nýlega kynnst Sally
Hay, aðstoðarleikstjóra við gerð Wagn-
er-myndarinnar í Feneyjum. Þau giftust
síðan.
En Elisabeth og Burton leika enn í
„Einkalíf" og bæði áhorfendur og pen-
ingarnir koma í stríðum straumum, þótt
gagnrýnendur sölluðu samleik þeirra
niður eftir frumsýninguna í febrúar sl.
Menn hafa spurt eftir þeim ástríðuhita
og krafti sem cinu sinni lýsti af þeim og
er skilyrði þess að leikritið rísi. Einkum
voru gagnrýnendur óvægnir við Burton,
sem brást við með því að koma ekki á
frumsýningarhátíðina.
Kvennavinurinn
Burton var eitt sinn spurður hvað
hann mundi gera þann dag er hann yrði
að hætta að leika. Hann svaraði: „Þá fer
ég til Wales. Ég ætla að sitja við ólgandi
hafið í storminum og þar mun ég vafa-
laust slappa vel af. Vonandi hef ég þó
einhverja við hlið mér.“
Þörfin fyrir að hafa einhverja við hlið
sér hefur fylgt Burton frá unga aldri. Frá
því augnabliki er hann 24 ára gamall
kvæntist Sybil hefur aldrei liðið langur
tími á milli hjónabanda, ogskýringarinn-
ar er ef til vill að leita í orðum sem hann
mælti við blaðamanninn Alex Harvey
1978: „Þótt menn líti á mig sem harð-
gerðan námamannsson frá Wales, sem
geti afgreitt öll vandamál lífsins með
annarri hendinni, þá er það aðeins á ytra
borðinu. í rauninni er ég algjörandstæða
þess sem fólk heldur mig vera og það er
hjá konum mínum sem ég hef fundið
þann styrk sem mig skortir. Auðvitað
hefur komið fyrir að konur hafa hengt
sig á mig, en oftar er það ég sem hef
hengt mig á þær. Eftir að móðir min dó,
þegar ég var tveggja ára gamall, faldi ég
mig á bak við pils stóru systur minnar,
Ceciliu. Hún verndaði mig. Hið sama
hefur átt við um allar aðrar konur sem
ég síðan hef elskað.“ (Þýtt -AM)
■ Það olli mikilli hneykslun þegar Co-
sima dóttir Franz Liszt giftist Richard
Wagner. Það er Vanessa Redgrave sem
fer með hlutvcrk hennar í sjónvarps-
myndinni.