Tíminn - 09.09.1983, Qupperneq 4
Járniðnaðarmenn
Okkur vantar járniðnaðarmenn til starfa nú þegar
á verkstæði okkar í Garðabæ eða úti á landi.
SMIflUIIIIJAN
Lyngási 15 — Sími 5-36-79 — Garðabæ
(8
Bllaleiga
Carrental £
Dugguvogi23. Sími82770
Opið 10.00 -22.00.
Sunnud. 10.00 - 20.00
Sími eftir lokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar
gerðir fólksbíla.
Sækjum og sendum
Þvoið, bónið og
gerið við bílana
ykkar í björtu og
rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SOLARHRINGINN
BilaleiganÁS
CAR RENTAL
ö 29090 OAIHATSU
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsími: 82063
Simi 44566
RAFLAGNIR
Nýlagnir - Breytingar - Viðhald MKKKH fM
samvirki mSSXf
Cl/Ammlaunr.! Ot\ _ OAA VAnm.n/....
Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur.
GLUGGAR
0G HURÐIR
Vönduð vinna á hagstœðu verði.
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.
Kjarnaborun
Tökum ur steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7' borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborun sf.
Símar 38203-33882
j§Ttm*irm
fréttir
FÓSTUDAGUR 9. SEPTF.MBER 1983
Þrjú ný iðnþróunarfélög stofnuð á Vestfjörðum:
„Að halda þjónustunni
á heimavettvangi
— í stað þess að sækja hana í aðra landshluta", sagði
Jóhann T. Bjarnason
Vestfirðir: Tæknimiðstöð Vestfjarða
h.f., Iðnþróunarfélag Vestfjarða og
Iðnþróunarsjóður Vestfjarða voru
stofnuð um síðustu helgi. Aðilar að
Tæknimiðstöðinni geta orðið sveitar-
féiög, fyrirtæki og stofnanir á Vest-
fjörðum og starfsmenn viðkomandi
fyrirtækja. Iðnþróunarfélagið verður
vettvangur iðnaðarmanna og allra
þeirra er áhuga hafa fyrir iðnaðarþró-
un á svæðinu auk sveitarfélaganna. Að
Iðnþróunarsjóðnum standa einungis
sveitarfélög á Vestfjörðum enda gert
ráð fyrir að hann verði fjármagnaður
með framlögum frá þeim - ákveðnum
hundraðshluta af álögðum útsvörum,
aðstöðugjöldum og fasteignagjöldum
hjá þeim sveitarfélögum sem gerast
aðilar. Þau kjósa sjóðnum stjórn og
þeir sem kosnir eru ráðstafa þeim
peningum sem í sjóðinn koma.
Jóhann T. Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Vestfirð-
inga var spurður hvort mikill áhugi
væri fyrir iðnaðaruppbyggingu í fjórð-
ungnum. „Það er viss sjálfsbjargarvið-
leitni sem kemur fram í þessu. Iðnþró-
unarfélaginu er ætlað að koma fram
með hugmyndir og sjá um þróun
þeirra að vissu leyti. Iðnþröunarsjóðn-
um er ætlað að styrkja framkvæmdir
fjárhagslega, með lánum og jafnvel
styrkjum og e.t.v. áhættufé. Tækni-
miðstöðinni er ætlað að geta veitt
ráðgjafaþjónustu sem iðnráðgjafinn og
aðrir þurfa að geta vísað á“, sagði
Jóhann.
Spurður hvort hugmyndin væri að
geta dregið úr suðurferðum með stofn-
un Tækniþjónustunnar sagði Jóhann
stefnt að því að halda þessari þjónustu
á heimavettvangi og færa ráðgjöfina
nær verkefnunum í stað þess að þurfa
að sækja hana í aðra landshluta.
-HEI.
10. ferð N.V.S.V.:
Fjöruferð á Kjalarnes
■ Tíunda og næstsíðasta skoðunar-
ferð Náttúruverndarfélags Suðvestur-
lands verður nú farin á sunnudag en
ekki á laugardegi eins og venjulega.
Staður og tími er þó óbreyttur - kl.
13.30 frá Norræna húsinu, og til baka
um kl. 18.00.
Það er Iífríki á fjörum Kjalarness
sem nú er hugmyndin að líta á undir
leiðsögn Karls Gunnarssonarþörunga-
fræðings. Brúnþörungar eru sagðir •
mest áberandi lífverur í klapparfjöru.
Þeir skipti sér í belti niður eftir fjörunni
eftir breytilegum umhverfisskilyrðum
fjörunnar. Efst er dvergþangið, næst
belti af klapparþangi, þá taki við
bóluþang og síðan klóþang og
skúfþang. Innan um þangið séu svo
ýmsar smærri tegundir þörunga, svo
sem söl, fjörugrös og maríusvunta.
Einnig lifa í þessum fjörum ýmiss dýr
eins og hrúðurkarlar, skeljar, kuðung-
ar, marflær, þanglýs og burstaormar.
Þótt leirfjörur virðist oftast líflausar
við fyrstu sýn segja náttúruverndar-
menn að þar lifði þó fjöldi dýrategunda
þegar nánar er að gætt. Ýmsar sam-
lokutegundir eins og hallloka, báruskel
og smyrslingur grafi sig ofan í leirinn
ásamt sandmaðki og öðrum bursta-
ormúm. Vor og haust komi hópar
vaðfugla í leirfjöruna á leið til og frá
varpstöðvum sínum. Þar tína þeir
orma til að seðja hungur sitt eftir
langflugið yfir hafið eða til að birgja sig
upp fyrir það.
Bent er á að fjöruferðin á Kjaiarnes
sé ferð fyrir alla, stutt ganga en
gúmmístígvél heppilegasti fótabúnaður-
inn.
-HEI.
■ Auðkúluréttir í Svínadal, A-Hún.
föstud. 16. og laugardaginn 17.
sept.Arnarhóisréttir í Helgafellssv.
Snæf. þriðjudagur 20. sept. Brekku-
réttir í Norðurárdal, Mýr. mánudagur
12. sept. Fellsendaréttir í Miðdölum,
Dal.mánudagur 19.sept. Fljótstungu-
réttir í Hvítársíðu, Mýr. mánudagur
12. sept. Fossréttir í Hörgslandshr.
V-Skaft. sunnudagur 11. sept. Foss-
vallarréttir v/Lækjabotna, (Rvík/
Kóp.) sunnudagur 18. sept. Gljá-
bakkaréttir í Þingvallasv., Árn. mánu-
dagur 20. sept.Grímsstaðaréttir, Alfta-
neshr., Mýr. fimmtudagur 15. sept.
Hafravatnsréttir í Mosfellssveit, Kjós
mánudagur 19. sept.Hítardalsréttir í
Hraunhr. Mýr. miðvikudagur 14. sept.
Hraunsréttir í Aðaldal, S. Þing.
Nokkrar réttir haustið 1983
miðvikudagur 7. scpt.Hrunaréttir í
Hrunamannahr. Árn. fimmtudagur
15. sept. Hrútatunguréttir í Hrúta-
firði, V-Hún. laugardagur 10. sept.
Húsmúlarétt v/ Kolviðarhól, Árn.
mánudagur 19. sept. Kaldárréttir við
Hafnarfjörð sunnudagur 18. sept.
Kaldárbakkaréttir í KoIbeinsst.hr.
Hnapp. mánudagur 19. sept. Kirkju-
fellsréttir í Haukadal, Dal. sunnudagur
18. sept. Kjósaréttir í Kjósarsýslu
þriðjudagur 20. sept. Klausturhóla-
réttir í Grímsnesi, Árn. miðvikudagur
21 sept. Kollafjarðarréttir í Kjaiar-
neshr. Kjós. þriðjudagur 20. sept.
Langholtsréttir í Miklaholtshr. Snæf.
miðvikudagur21. sept. Laufskálaréttir
í Hjaltadal, Skag. sunnudagur 11.
sept. Laugarvatnsréttir í Laugardal,
Ám. þriðjudagur 20. sept.Miðfjarðar-
réttir í Miðfirði, V-Hún. sunnudagur
11. sept. Mýrdalsréttir í Kolbeinsst.
hr. Hnapp. þriðjudagur20. sept. Mæli-
fellsréttir í Lýtingsstaðahr. Skag.
dagur 18. sept. Nesjavallaréttir í
Grafningi, Arn. mánudagur 19. sept.
Oddsstaöaréttir í Lundarreykjadal,
Borg. miðvikudagur 14. sept. Rauðs-
gilsréttir í Hálsasveit, Borg. föstudagur
16. sept.Reyðarvatnsréttir, Rangár-
vallahr. Rang. laugardagur 17. sept.
Reynistaðaréttir í Staðarhr., Skag.
mánudagur 12. sept. Seiflatarréttir í
Grafningi, Árn. miðvikudagur 21.
sept. Sclvogsréttir í Selvogi, Árn. mið-
vikudagur 21. sept. Silfrastaðaréttir í
Akrahr., Skag. mánudagur 19. sept.
Skaftártunguréttir í Skaftártungu, V-
Skaft. miðvikudagur 21. sept. Skaft-
holtsréttir í Gnúpverjarhr. Ám.
fimmtudagur 15. sept. Skarðaréttir í
Skarðshr. Skag. sunnudagur 11. sept.
Skeiðaréttir á Skeiðum, Árn. föstu-
ur 16. sept. Skrapatunguréttir í Vind-
hælishr. A.-Hún. sunnudagur 18. sept.
Stafnsréttir í Svartárdal, A.-Hún.
fimmtudagur 15. sept. Svarthamars-
réttir á Hvaifjarðarstr. Borg. miðviku-
dagur 21. sept. Svignaskarðsrétt í
Borgarhr. Mýr. miðvikudagur 14.
sept. Tungurétt í Svarfaðardal, Eyjaf.
sunnudagur 11. sept. Tungnaréttir í
Biskupstungum Árn. miðvikudagur
14. sept. Undirfellsréttir í Vatnsdal,
A.-Hún. föstudagur 16. og laugardag-
ur 17. sept. Vatnsleysustrandarréttir,
Vatnsl.str. Gull. miðvikudagur 21.
sept. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-
Hún. föstudagur 16. og laugardagur
17. sept. Þingvailaréttir í Þingvalla-
sveit, Árn. mánudagur 19. sept. Þór-
. kötlustaðaréttir v/Grindavík mánudag-
ur 19. sept. Þverárréttir í Eyjahr.
Hnapp. mánudagur 19. sept. Þvcrár-
réttir í Þverárhlíð, Mýr. þriðjudagur
13. og miðvikudagur 14. sept. Öifus-
réttir í Ölfusi, Árn. fimmtudagur 22.
sept. Ölkelduréttir í Staðarsveit, Snæf.
fimmtudagur 22. sept.
Stóðréttir
Auðkúluréttir
Svínadal, A.-Hún
sunnudagur 25. sept. Undirfellsréttir
Vatnsdal, A.-Hún. sunnudagur 25
sept. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V.
Hún. sunnudagur 25. sept. Skarða
réttir í Skarðshr. Skag. sunnudagur
18. sept. Reynistaðaréttir í Staðarhr
Skag. sunnudagur 18. sept. Laufskála
rétt í Hjaltadal, Skag. laugardagur 24
sept. Miðljarðarréttir Miðfirði, V
Hún. mánudagur 12. sept. Silfrastaða
réttir, Akrahr. Skag. sunnudagur 18
sept.