Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 5
fréttir Á Kirkjubæjarklaustri situr Hanna Hjartardóttir, oddviti Kirkjubæjar- hrepps. Tíðindamaður blaðsins gekk á fund Hönnu til að fræðast um starf hennar og mannlífið í hreppnum. -Hvemig líkar þér að starfa sem oddviti? „Mér líkar starfið ágætlega, það er margþætt og lifandi, ég kynnist mjög mörgum, ja flestum þáttum samfélagsins í gegnum starfið." - Finnst þér gæta tortryggni í þinn garð af því að þú ert kona í starfi sem aðeins karimenn sinntu áður, „Nei, ekki tortryggni, enda hafa konur átt sæti í hreppsnefndinni áður og nú erum við tvær af fimm hreppsnefndar- mönnum. Sólrún Ólafsdóttir er vara- oddviti. Ef eitthvað er, mætti jafnvel ■ Siggeir Bjömsson, bóndi í Holti er í hreppsnefnd með Hönnu Hjartardóttur. Hann var ómyrkur í máli um frágang Vegagerðarinnar í sýslunni, þó sérstaklega austan Sands, Tímamynd: Birgir gerði strax könnun á því meðal brott- fluttra íbúa hvers vegna þeir fóru og yfir 50% þeirra er svöruðu töldu ekki hafa verið atvinna við hæfi. Það má geta þess, til að fyrirbyggja allan misskilning, að hlutverk þessarar nefndar var aldrei að búa til einhverja atvinnu fyrir fólk heldur að vera eins ráðgefandi og frekast er unnt í þessum málurn." -Er starf oddvita erilssamt? „Já, það má segja það. Segja má að á hvaða tíma sólarhrings sem er sé eitt- hvað sem gera þarf, seint og snemma. E.t.v. er ástæðan sú að skrifstofan er opin tiltölulega stuttan tíma í viku hverri, en ég held þó að það sé meira vegna þess að ævinlega er eitthvað óvænt að koma upp á. Ég get nefnt sem dæmi að í gær, sem var sunnudagur, var maður frá Skipulagi ríkisins á ferð og þurfti að tala við oddvitann. Kannski hringt eldsnemma á morgnana út af fjárflutningum á haustin. Einhvers stað- ar flæðir inn vegna leysinga á vorin, þá er hringt í oddvitann. Ótal smáatriði eru alltaf að gerast þar sem haft er samband við oddvitann." -Ertu bjartsýn á að hér eigi enn eftir að fjölga íbúum? Kona oddviti í fyrsta sinn í Vestur-Skaftafellssýslu: EF EfTTHVAÐ ER M ER HÉR UB- ID MEIRA AF ÞVf AB ÉG ER KONA — segir Hanna Hjartardóttir á Kirkjubæjarklaustri segja að mér sé e.t.v. liðið meira af því ég er kona og einnig vegna þess að þetta er nýtt“. -Gætir ólíkra hagsmuna milli þessara tveggja meiða samfélagsins, annars veg- ar bænda og hins vegar íbúa þéttbýlisins að Klaustri? „Fyrir hendi eru jú aðeins aðrir hagsmunir, aðrar þarfir, s.s. fjallskil og slíkt. Á móti mætti benda á aðra áherslu- punkta þéttbýlisbúans, gatnagerð, dag- heimili o.fl. En megin þjónustan er að sjálfsögðu sameiginleg. Það má segja að sú tortryggni sem var a.m.k. á milli þessara tveggja hagsmunaaðila sé sífellt að minnka, enda fara um 90% tekna hreppsins til sameiginlegrar þjónustu, svo lítið er eftir til að deila um, af því sem til framkvæmda fer. Skilningur hefur aukist á báða bóga.“ - Hver eru atvinnutækifæri hér í hreppnum? „Fyrst og fremst í gegnum þjónustu einstaklinga, félaga og opinberra stofn- ana. Nefna má Heilsugæslustöð, skóla, Póst og síma, verslun og aðeins iðnað.“ - Hvernig hefur hreppnum tekist að hafa áhrif á þróun ferðamála í héraðinu? „Ég held nú, þó ég viti það ekki nógu nákvæmlega, að undanfarin ár hafi ekki verið mikið beinlínis reynt að gera til að laða hingað ferðamenn, nema að á sínum tíma gerðist hreppurinn hluthafi í hótelrekstri hér og uppbyggingu hótels. í vetur var sett á stofn Ferðamálanefnd sem átti að reyna að huga betur að þessum málum, ekki síst með það fyrir augum að atvinna skapaðist í kringum þjónustu við ferðamenn. Nefndin hefur skipt sér af hinu og þessu. Það helsta má telja að unnið hefur verið að uppbygg- ingu skipulegs tjaldstæðis sem er nú að komast í gagnið. Það starf er unnið meira og minna í sjálfboðavinnu og leggja félagasamtök svo og fjármagn í fyrirtækið. Það má segja að hér sé um sameiginlegt hagsmuna- og áhugamál fjölmargra. í öðru lagi er verið að koma á fót upplýsingaþjónustu fyrir ferðafólk. Þar verða veittar almennar upplýsingar, leiga á svefnpokaplássum í Félagsheimili, seld veiðileyfi, hestaleiga, gistinga á einkaheimilum, leiga á tjaldstæðum og ýmislegt annað mun e.t.v. koma í ljós. Þetta er tilraun sem á eftir að þróast frekar. Að öðru leyti held ég að hreppur- inn komi ekki beint inn í þennan þátt.“ -Hverjar eru verklegar framkvæmdir á vegum hreppsins og hvað er brýnast? ■ Hanna Hjartardóttir, oddviti „Eins og áður er sagt eru 5 hreppar með samvinnu um skólann en auk þess Heilsugæslustöðina. Um slökkviliðið hafa 4 hreppar samvinnu að Álftavers- hreppi undanskildum. Þá hafa Hörgs- lands- og Kirkjubæjarhreppur samvinnu um íbúðir fyrir aldraða og félagsheimil- ið.“ -Hér er verið að byggja flugvöll. Hvenjir standa að því og hverjir eru hagsmunirnir? „Já, það eru framkvæmdir kostaðar af ríkinu þó svo auðvitað við höfum reynt að ýta á eftir því. Sannar- lega er hér um að ræða mikla hagsmuni héraðsins, fyrst og fremst hvað öryggi varðar því oft og einatt eru vegir lokaðir hér, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Flugvöllurinn gerir sjúkraflutninga tryggari. Auk þess vonum við að í framtíðinni verði hafið hér áætlunarflug. Þegar lokið verður við þessa 800m braut sem nú er í byggingu ætti að vera hægt að hefja hingað flug en engir samningar hafa enn verið um það gerðir. Þetta er framtíðarverkefni sem væntanlega verð- ur áfram haldið næstu ár.“ -Á mælikvaröa dreifbýlisins hefur verið mikiö byggt hér. Er áframhald þar á? “Uppbygging þéttbýliskjarnans hefur að mestu orðið s.l. 10 ár. Samt sem áður hefur orðið töluverð lægð nú tvö síðustu ár. Aðeins hefur komið ein umsókn um byggingu íbúðarhúss í ár.“ -Hefur hreppsfélagið unnið að at- vinnuuppbyggingu sérstaklega? „Á síðasta ári var stofnuð hér atvinnu- málanefnd sem átti að reyna að sjá út og aðstoða fólk við að reyna að nýta atvinnutækifæri, leiðbeina fólki í sam- bandi við lánamál og ýmsa fyrirgreiðslu. Auðvitað er enginn beinn sjáanlegur árangur orðinn enn, því atvinnuupp- bygging tekur tíma. En margt hefur verið athugað og er í athugun. Nefndin „Já, ég er mjög bjartsýn á það. Meginforsendan hlýtur náttúrulega að verða aukin atvinna og ég hef þá trú að á næstu árum fjölgi hér atvinnutækifær- um. Kirkjubæjarklaustur er aðlaðandi staður, vandinn er að finna störf og skapa störf sem við hæfi eru þeim sem hingað vilja koma og setjast hér að.“ - Nú lætur þú ekki staðar numið, orðin oddviti. Er ekki næsta skerfið þingsæti á Alþingi? -Nei, ábyggilega ekki. Sem stendur hef ég alla vega engan áhuga fyrir því. Ég býst ekki við að vera lengi í þessu starfi. Þetta er það erilsamt og fólk verður að gefa það mikið af sér í þessu starfi, án þess að það gefi mikið í aðra hönd, að ég held að ekki sé ákjósanlegt að vera lengi í því. Auk þess er nauðsyn- legt að skipta um og fá inn nýja menn með nýjar hugmyndir, fulla af starfs- • krafti.“ Birgir „Það sem er brýnast núna er að halda áfram viðbótarbyggingu við skólann og um leið héraðsbókasafnið. Það er á döfinni og tekur auðvitað langmest fjármagn eins og er. Allir hreppar þ.e. Leiðvalla-, Skaftártungu-, Hörgslands-, Álftavers- og Kirkjubæjarhreppur taka þátt í þeirri framkvæmd. Minna fjárfrek- ir hlutir eins og götuljós á Klaustri verða framkvæmdir í sumar, leitarmannahús verður byggt einnig í sumar og segja má að framkvæmdir við tjaldstæðið séu á hreppsins vegum þó svo að ákveðin nefnd vinni að því máli. Auk þess minni háttar lagfæringar og viðhald, en í fram- tíðinni verður lögð áhersla á bundið slitlag á götur í þéttbýlinu. Þá er áætlað að hefja viðgerð á félagsheimilinu Kirkjuhvoli, klæða og einangra. Vænt- anlega verður byrjað á því í haust." -Er blómlegt menningarlíf í hreppnum? „Já, það myndi égsegja. Mikið félags- líf, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Þá eru hin ýmsu félög með fasta fundi og skemmtanir. Ungmennafélag, kvenfé- lag, Lionsklúbbur, björgunarsveit, hestamannafélag, tónlistarskóli og kór- starf í tengslum við hann, kirkjukór o.fl.“ -Þú nefndir áðan samvinnu hreppsfé- laga um byggingu skóla og héraðsbóka- safns. Hafa hrepparnir með sér sam- vinnu á öðrum sviðum? NOTAÐIR LYFTARAR í MIKLU ÚRVALI Eigum til afgreiðslu nú þegar eftirtalda lyftara: Rafmagns- 1.5 Tm/1. h. 330m 2,0 Tm/1. h. 540 m 2.5 Tm/1. h. 330 m 3.5T m/1. h. 350 m Disil- 2,0 Tm/húsi 2,5 T m/snúningi 3,0 T 4,0 T m/húsi Eigum ennfremur snúninga 180° og 360°. Skiptum og tökum íumboðssölu. Uppiýsingar: Lyftarasalan hf. . r~\ UPPLÝSINGAR GEFUR: j!U k. JÖNSSON & CO. HF., VITASTfG 3, SfMAR 26455 og 12425.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.